Lesbók Morgunblaðsins - 11.06.1988, Síða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 11.06.1988, Síða 6
I samin undir sterkum áhrifum frá nýróm- antík, sem strax upp úr aldamótunum er tekin að hrífa hugi allra bókelskra manna á Norðurlöndum. Fyrstu verk þeirra fjórmenninganna ger- ast í íslensku umhverfi og yrkisefnið er ást og meiri ást, hatrömm örlög og heiftarleg átök upp á líf og dauða í hrikalegri náttúru íslenskra öræfa. Verkin eru líka krydduð með íslenskri þjóðtrú, stíll þeirra er tilfinn- ingaríkur og Ijóðrænn — t.d. er mikið um skáldlegar líkingar. Þetta féll vel að smekk tímans. í Noregi og Svíþjóð varð nýrómantíkin t.d. til þess að svokallaður „átthagaskáld- skapur“ (Heimatdichtung) varð gríðarlega vinsæll, en í þessum skáldskap óð uppi ofsa- fenginn tilfinningahiti, samfara framandi og ógnfullu landslagi, draumkenndum þjóðlífslýsingum og óbeislaðri náttúru. I Noregi og Svíþjóð (og víðar) voru það auðvit- að höfundar úr þröngum fjörðum og af- skekktum dölum sem mestri hylli náðu — borgarbömin vildu fá náttúruna taumlausa, framandi og ómengaða inn á stræti sín og torg. í Danmörku er hins vegar fátt um fjöll og fjarlægðir litlar, og því urðu íslensku höfundamir nokkurskonar átthagaskáld danskra borgara. Ef skoðaðir em danskir rit- og leikdómar frá ámnum 1912—18 um verk Islendinganna er til að mynda alstaðar lagt mest upp úr hinu framstæða í verkun- um. Því er tekið fagnandi að ritað sé um fmmstætt fólk, fmmstætt líf, og fmmstæð- ar tilfinningar. Það þykir og til mikillar prýði að þar sé minnst á eldfjöll, hraun og jökla. Tilvísanir til fomra íslenskra hetju- sagna em einnig taldar skáldunum til tekna, einkum fengu menn hrós fyrir að gmnd- valla kvenpersónur sínar á kvenhetjum forn- aldar. Allt hjálpaði þetta íslensku skáldunum við að ná fótfestu í Danmörku og öðlast þar bæði frægð og frama þegar tímar liðu. JÓHANN RUDDIBRAUTINA Það var Jóhann Sigurjónsson sem ruddi braut íjórmenninganna í Danmörku. Arið 1905 var leikrit hans Dr. Rung gefið þar út og skömmu síðar þýddi hann ásamt Gunnari Gunnarssyni Fjalla-Eyvind á dönsku. Gunnar hafði haldið til Danmerkur árið 1907, 18 ára.gamall, staðráðinn í að verða frægur rithöfundur og vinna glæsta sigra — það tókst með tímanum. Fjalla- Eyvindur var fmmsýndurí Reykjavík á jól- um 1911 og þótt sú sýning mikill viðburður í íslenskri menningar- og leiklistarsögu. Árið eftir var „Eyvindur" sýndur í Kaup- mannahöfn og vakti þar fádæma hrifningu og einróma lof gagnrýnenda. Jóhann var hafinn upp til skýjanna og barst frægð hans strax suður um Evrópu. Hann var hylltur sem stórskáld og hvatti sigur hans marga - íslenska höfunda til að spreyta sig á leikrit- un. Einn þeirra var Guðmundur Kamban. Árið 1912 kom einnig út í Kaupmanna- höfn fyrsti hluti Sögu Borgarættarinnar eftir Gunnar Gunnarsson og vakti mikla og óskipta hrifningu. Vom verk þeirra Jóhanns og Gunnars snemma þýdd á fjölda tungu- mála og juku mikið hróður íslenskra bók- mennta. Álheimi var kunnugt að íslendingar hefðu ekki hætt að skrifa bækur um 1400, þaðan væri enn stórtíðinda að vænta. Þeir Jóhann og Gunnar vom einnig braut- ryðjendur á öðra sviði. Fjalla-Eyvindur var fyrsta íslenska verkið sem var kvikmyndað og Saga Borgarættarinnar var fyrsta kvikmynd sem gerð var á íslandi. Þriðja íslenska verkið sem kvikmynd var gerð eft- ir var Hadda Padda Kambans. Bent hefur verið á að hrifning danskra gagnrýnenda á hinu fmmstæða í verkum íslensku skáldanna í Danmörku og ánægja þeirra með skyldleikann við íslenskar fom- bókmenntir hafí ekki fallið öllum skáldunum vel í geð. Einkanlega mun Kamban ekki hafa verið ánægður með að nærast þannig á fornri frægð — hann vildi ná frama óstudd- ur. í ljósi þeirrar staðreyndar ber auk ann- ars að leita svara við því hvers vegna hann breytir svo snögglega um stíl eftir tvö fyrstu verk sín, en þau em byggð á íslensku efni og sækja föng í náttúrurómantík. Kamban var mikið í mun að kveða niður þá skoðun að á Islandi væri allt — og ætti að vera — eins og í fomsögunum. Hann vildi vera metinn án nokkurrar viðmiðunar við ísland og því m.a. er svið næstu leikrita hans út- lend stórborg og viðfangsefnið er þar í senn alþjóðlegt og nútímalegt. Jóhann hefur e.t.v. verið farinn að hugsa á svipuðum nótum undir lok ferils síns, því þegar hann lést í ágúst 1919 var hann að vinna að leikritinu Fru Else, sem hefur að geyma alþjóðlegt efni. Gunnar Gunnarsson hélt hins vegar ótrauður áfram við að skrifa um íslenskt efni. Hnýtt í Hin Burtsigldu Skáld Þótt íslensku rithöfundamir í Danmörku Vér morðingjar var frumsýnt í Kaupmannahöfn 1920 og sama árhjá Leikfélagi Reykjavíkur. Síðan hefur leik- ritið verið sýnt fjórum sinnum á íslandi, síðast 1968. Á mynd- innisjást Gísii Halldórsson og Erna Sigurleifsdóttir í upp- færslu LR1952. bæm hróður lands og þjóðar víða og ryddu brautina fyrir komandi kynslóðir vom menn heimafyrir alls ekki á eitt sáttir um ágæti útlegðarinnar. Oft andaði köldu frá saml- öndunum norður í íshafi og fannst ýmsum sem þeir hefðu svikið land sitt og þjóð með því að skrifa á danska tungu og afla sér frægðar erlendis. Meðal þeirra sem veittust að íslensku höfundunum vom Holger Wiehe, sem þá var sendikennari á Islandi, og Einar Benediktsson skáld. Einnig var Einar Ólafur Sveinsson (og vitaskuld fleiri) lítt hrifnir af þvi í fyrstu að skáldin leituðu út fyrir landsteinana og í grein í Iðunni 1930 telur hann sér „óskylt" að fjalla um aðra rithöf- unda en þá sem íslensku rita. Þannig verð- ur Fjallkirkja Gunnars útundan er hann kryfur „íslenskar samtímabókmenntir“ þessara ára. Enginn var höggþyngri en Einar Ben. Hann tekur m.a.s. svo djúpt í árinni á einum stað að fullyrða að íslenskir menn hafí orð- ið að grípa til þess úrræðis að rita á er- lendu máli vegna þess að dómgreind íslend- inga viðurkenni ekki svo „óhæfar ritsmíð- ar“. Hann telur og að menn hér heima hafí einungis þolað og lofað þessar bókmenntir af ótta við að spilla fyrir frægð íslands í útlondum. Það liggur við að Einar vilji stimpla þessa menn föðurlandssvikara. Svo vom aðrir sem bám í bætifláka fyrir hin burtsigldu skáld, m.a. Haraldur Níels- son, Ámi Jakobsson og Ámi Pálsson (sem þó var tvíbentur í afstöðu sinni). Kamban sá aldrei ástæðu til að svara ásökunum manna hér heima fyrir, en Gunnar var iðinn við það og tilgreinir þá stundum ástæður þess að hann — og þeir félagamir — hafi orðið að flýja land. Óg Gunnar rekur öfug ofan í Einar Ben. þau ummæli hans að hann (og hinir væringjarnir) hafí atvinnu af því að skrifa „andlausan og jafnvel hneyxlanlegan uppspuna, lokleysur og ós- mekkvísi" — eins og Einar hafði komist að orði í grein í Skfmi 1922. En víkjum nú að Guðmundi Kamban og verkum hans. Hér verður þó einungis fjallað um leikrit hans, og þá auðvitað sérstaklega um Marmara og þau verk hans sem næst Marmara em að efni og í tíma. Einnig verður rakinn í stómm dráttum þróunarfer- ill Kambans fyrstu ár hans ytra. „ÞARÁÉgHEIMA...“ Áður en við snúum okkur að Höddu Pöddu, fyrsta leikriti Kambans, skulum við rifja lítillega upp frægð hans og stöðu, sigra og ósigra. Með sagnabálkinum Skálholti (1930—35) vann Kamban sér frægð í Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Þýskalandi, Tékkóslóvakíu og Ámeríku. Verkið hefur verið þýtt á yfír tíu tungumál. Erlendir ritdómarar vom allir sammála um að höfundur þess væri mikill rithöfundur. Maxim Gorki lét t.d. tvisvar þau orð falla í blaðaviðtali, eftir að hafa lesið Ragnar Finnsson (1922), að Kamban ætti samstöðu með Hamsun. Af enskum gagnrýnendum er honum skipað á bekk með Thomas Hardy og þýskir líkja honum hiklaust við Kleist. En Kamban naut víst tæplega þess hróss sem honum hlotnaðist fyrir skáldsögumar. Sjálfur leit hann svo á að leikhúsið væri sitt svið: „Þar á ég heima, bæði sem leik- stjóri og höfundur," sagði hann eitt sinn. Hann ritaði aðeins skáldsögur þegar leik- húsin vom honum lokuð. Þegar leikrit hans Vér morðingjar (1919) var fmmsýnt í Dagmarleikhúsinu í Kaupmannahöfn 1920 vann hann afdráttarlaust sinn fyrsta stórsig- ur og mikil hrifning greip um sig. Vér morðingjar var t.d. valið fmmleikrit norska Þjóðleikhússins. En þótt mörg leikrita hans væm sett á svið í Kaupmannahöfn og víðar, urðu mörg þeirra að bíða ámm saman. Það þorði t.d. enginn í Kaupmannahöfn að setja Marmara (1918) á svið: „Ég hef beðið eft- ir því í tuttugu og fímm ár og bíð enn,“ er eitt af því síðasta sem Vagn Borge, dansk- ur leikhús- og fræðimaður, heyrði Kamban segja. Borge segir að þetta minni óneitan- lega á Strindberg, sem ásamt Jóhanni Sigur- jónssyni, Ibsen, Bemhard Shaw og Oscari Wilde var einn helsti lærimeistari Kambans. Strindberg lét eitt sinn þau orð falla í bréfi að hann hafi beðið í tíu ár eftir því að sjá Dauðadansinn, Svanhvíti, Gustaf Adolf, Kristínu og fleiri verk sín sett upp, og tutt- ugu á'r eftir að sjá Föðurinn og Fröken Júlíu. Það er ofrausn að líkja Kambani við Strindberg, en skiljanleg em sárindi hans yfír því hversu oft gekk treglega að koma verkum hans á svið, ekki síst á íslandi, þar sem hann mætti oft í lifanda lífi andúð og skilningsleysi. Raunar verður ekki horft fram hjá því að Kamban hafí á stundum borið hluta af sökinni, hann var alla tíð mjög stór upp á sig og jafnvel hrokafullur þegar verst lét. Á fyrstu ámm sínum í Kaupmannahöfn samdi Guðmundur Kamban tvö leikrit, Höddu Pöddu (1912) og Konungsglímuna (1913). Bæði em þessi verk samtímaleikrit í nýrómantískum stíl og gerast meðal íslenskrar borgarastéttar. Hadda Padda er „sorgarleikur“ í fjórum þáttum og kom fyrst út á dönsku árið 1914, og á íslensku sama ár. Kamban samdi leik- ritið árið 1912, sama ár og Fjalla-Eyvindur var fmmsýndur, og er verkið undir sterkum áhrifum frá Jóhanni, Ibsen, Eddu og íslensk- um fomsögum. í langri og merkri ritgerð Helgu Kress um Guðmund Kamban í Studiu Islandicu 1969 (sem hér hefur verið — og verður áfram — stuðst við), er efni verksins dregið saman í svohljóðandi kafla: „Efni leikritsins er ást Hrafnhildar — Höddu Pöddu — og síðar örvænting og hefnd, eftir að unnusti hennar, Ingólfur, hefur svikið hana. í upp- hafi leiksins virðist ekkert skyggja á ást þeirra og hamingju, en strax í næsta þætti er hann skyndilega orðinn henni afhuga og farinn að elska Kristrúnu, yngri systur hennar. Þegar svo er komið, ákveður Hadda Padda að deyja og taka Ingólf með sér í dauðann. Henni tekst að fá hann upp að djúpu klettagljúfri, en einmitt þar hafði hann eitt sinn lagt líf sitt í hennar hendur, er hann seig i gljúfrið bundinn vaði, sem hún ein hélt. Gmnlaus heldur Ingólfur nú í vaðinn, meðan Hadda Padda sígur í gljúfr- ið í leit að perlubandi, sem hún þykist hafa misst niður í það. Skyndilega spymir hún við fótum í bergið, og hvað eftir annað reyn- ir hún af öllu afli að kippa Ingólfí fram af bjargbrúninni. Þau togast á upp á líf og dauða. Ingólfur hefur betur og er í þann veginn að ná Höddu Pöddu upp á brúnina, þegar hún bregður hnífi á loft, sker vaðinn og hrapar í gljúfrið." FALLEGTVERKOG Ljóðrænt Hadda Padda er mjög rómantískt verk og þmngið miklum tilfinningahita. Bygging verksins er með jöfnum og góðum stíganda og táknsmíði er þar listilega af hendi leyst. Auðvitað má finna á þessu verki ýmsan byijendabrag, og bendir Helga Kress t.d. á að höfundur eigi oft í vandræðum með að koma ýmissi vitneskju til skila, einkum þeg- ar liðnir atburðir em kynntir — bakgmnnur- inn smíðaður. í fyrsta þættinum em þau Hadda og Ingólfur t.d. látin segja hvort öðm frá atburðum sem báðum em kunnug- ir — þau em greinilega ekki að tala hvort við annað heldur við áhorfendur. Tæpast verður heldur sagt að efni leiksins sé fmm- legt, og að hætti nýrómantíkurinnar er þar mikið um þjóðsagnaminni og drauma. Leik- ritið er náskylt Fjalla-Eyvindi og sakaði Jóhann Kamban m.a.s. um að hafa stolið hugmyndinni að gljúfuratriðinu frá sér (þó ekki úr „Eyvindi"). Er það raunar einn helsti veikleiki Kambans sem leikskálds að hann skortir víða fmmleika og þarf oft á utanaðkomandi hugmyndum að halda til að fylla verk sín. Persónulýsingar leikritsins em líka að mörgu leyti ófullkomnar. En þetta er fallegt verk og ljóðrænt og lætur engan óhamingjusaman elskanda ósnortinn. Það gerðist víst á hveijum degi að elskend- ur ná ekki saman og að því leyti er efnið sígilt og óbundið í tíma. Kamiban bauð Leikfélagi Reylqavíkur Höddu Pöddu til sýningar haustið 1912 og síðar einnig Konunglega leikhúsinu í Kaupmannahöfn. Hvomgt leikhúsanna hafði áhuga. Það var ekki fyrr en Georg Brandes hafði farið mjög lofsamlegum orð- um um verkið að Konunglega leikhúsið tók það til sýningar. Hadda Padda var fmm- sýnd í nóvember 1914 og aðstoðaði Kamban sjálfur við leikstjómina. Markaði það upp- hafíð á leikstjómarferli hans, sem varð bæði langur og strangur. Leiknum var tek- ið með miklum fögnuði í Kaupmannahöfn og vom dómar um sýninguna lofsamlegir. Hadda Padda var lengi á fjölunum og afl- aði höfundi sínum mikillar frægðar; annað íslenskt leikskáld hafði slegið í gegn í Höfn. í Reykjavík var verkið fmmsýnt um jólin 1915 og vakti mikla hrifningu. Reyndist sýningin „kassastykki" þess leikárs. Sumar- ið 1923 var svo Hadda Padda kvikmynduð og stjómaði Kamban sjálfur upptökunni ásamt Gunnari R. Hansen, sem síðar varð íslendingum að góðu kunnur. Konungsglíman heitir annað verk Kambans. Hann samdi það árið 1913 og var það gefíð út á dönsku 1915 og löngu síðar á íslensku. Konungsglíman er líkt og Hadda Padda tilfinningarfkur leikur um örvæntingarfulla ást og sterkar ástríður. Verkið er samt tæplega eins innilegt og uppmnalegt og Hadda Padda og af þeirri ástæðu vildi Kamban víst oft ekkert við það kannast löngu síðar og fór víða um það niðrandi orðum. Er það vel skiljanlegt — þetta er ekki ýkja merkilegur skáldskapur. Leikritið gerist á Íslandi og fjallar auk annars um morð, fangelsisvist, glímukeppni og óhamingjusamar ástir sem þó fá gleðileg- an endi. Bygging verksins er víða brota- kennd og samtöl persónanna á stundum til- gangslaus og þreytandi. En persónumar em stórbrotnar, einkum kvenpersónumar Hekla

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.