Lesbók Morgunblaðsins - 11.06.1988, Síða 10
„Sjónin
þarf sinn tíma“
Þegar Þorvaldur Skúlason lést árið 1984 voru verk hans, þau
sem hann lét eftir sig, flutt úr landi af erfingjum hans. í vetur
náði Gallerí Borg samkomulagi við erfingjana um að fá hingað
til lands nokkur þessara verka til sýningar í tengslum við Lista-
hátíð. En þar eð Listahátíð hafði gengið frá dagskrá sinni þegar
þetta kom til verður þessi sýning að teljast sjálfstætt framlag
til hátíðarinnar. Stendur sýningin frá 9.-12. júni í Pósthússtræti 9.
Þau verk sem sýnd verða í Gallerí Borg eru um tuttugu tals-
ins. Þar af eru 8 olíuverk frá árunum 1960-’82, frá „þessari
mögnuðu umbreytingaröld í ævi hans“, eins og Björn Th. Björns-
son, listfræðingur orðar það í bók sinni yÞorvaldur Skúlason,
brautryðjandi íslenskra samtímalistar". (Utg. 1983, Bókaútg.
Þjóðsaga). Þá verða og sýndar 10-12 teikningar, kol- og vatns-
litamyndir, flestar áður ósýndar, sem spanna nær allan listferil
Þorvaldar.
Hér fara á eftir þrír kaflar úr fyrrgreindri bók Björns Th.
Bjömssonar um Þorvald, og fjalla þeir einmitt um umbreytingar-
öldina í ævi listamannsins. a
Vatnslitamynd frá þvi um 1946, 30x45 sm.
Krítarmynd, 27x21 sm.
Vatnslitamynd, 1946-48, 26x38 sm.
Ilandi með svo ríka landslagshefð
í málaralist sem ísland, var ekki
nema von að strangflatalist Þor-
valds Skúlasonar vekti af sér
margvíslegar vangaveltur, og þá
ekki sízt um það, hvort hér væri
aðeins um formleik að ræða, án
andlegs innihalds. Eftirsóknin í
verk Þorvalds sýndi þó að allstór hópur
manna kunni vel að meta þessa tegund listar
og hætti jafnvel að hafa unun af einberri
sýnilist eftir að hafa aðhænzt henni, auk
þess sem þeir vissu vel að slíkur málari sem
Þorvaldur færi ekki villu vegar. Til þess að
svara ýmsum áleitnum spurningum ritaði
Þorvaldur grein í tímaritið Birting árið 1955,
sem hann nefndi Nonfígúratív list. Þar segir
hann meðal annars: „Litir eiga sér sína nátt-
úru sem er í nánu sambandi við allt lifandi
en samt eitthvað sérstakt. Við vitum í raun-
inni ekki hvað liturinn blátt er, fýrr en við
hættum að tengja hann hafi, himni eða fjalli.
í nonfígúratívu málverki hafa litir allt aðra
merkingu en í natúralistísku. 1 hinu fyrr-
nefnda er þeim teflt saman, hveijum með
sínum sérkennum; í hinu síðara eru sérkenni
þeirra máð út til þess að líkja eftir yfirborði
náttúrunnar. — Það leiðir af sjálfu sér að
í tilefni sýningar á
myndum — sumum alls
ókunnum — eftir
Þorvald Skúlason, sem
sýndar eru í Gallerí
Borg.
Eftir BJÖRN TH.
BJÖRNSSON
Olía á striga, 130x98 sm. 1977.
Olía á stríga, 130x98 sm. 1971.
10