Lesbók Morgunblaðsins - 24.09.1988, Page 2

Lesbók Morgunblaðsins - 24.09.1988, Page 2
Leitinað hollustunni - fyrirtækin og vísindin EftirÓLAF SIGURÐSSON arkaðsstjórar vilja að hlutimir gerist hratt og nota vísindalegar niðurstöður til fram- dráttar þeim matvælum sem þeir eru að selja,“ sagði David McCarron, einn af stjóm- endum þeirrar deildar Oregon-næringar- fræðiháskólans sem fæst við rannsóknir á nýma- og háþrýstingssjúkdómum. „En ef þeir flýta sér um of, þá eiga fyrir- tækin málssókn á hættu og geta fengið á sig háar fjárkröfur fyrir það að ganga of langt í hollustufullyrðingum." A ráðstefnu um næringar- og matvæla- fræði í Chicago í aprfl á þessu ári voru þessi mál rædd af ýmsum sérfræðingum úr iðnaði og vísndamönnum. Ef hollustufullyrðingar eigi að standast þarf að uppfylla nokkur skilyrði að mati MacCarrons': • Faraldsfræðilegar rannsóknir verða að sýna fram á tengls fæðu og heilsu. • Rannsóknir á fólki verða að sýna fram á tengsl fæðunnar og sjúkdómsins (ein rannsókn er ekki nóg). • Skilgreina þarf hvaða hópar koma til með að njóta góðs eða bíða tjón af því að breyta eftir hollustufullyrðingunum. • Að síðustu þarf að fínna hvaða efna- ferli liggja til grundvailar því að tiltek- inn fæðuþáttur geti orðið til góðs. David McCarron hefur á undanfömum árum komið af stað miklum umræðum með- al næringarfræðinga í Bandaríkjunum og víðar vegna rannsókna sinna á áhrifum kalks á háþrýsting. Hann hefur ráðist að kjama þeirrar kenningar að minni salt- neysla og mikil treflaefnaneysla eigi að vera holl. Þrátt fyrir þá almennu skoðun að salt (natríum) í fæðunni valdi háþrýstingi, hafa rannsóknir sýnt fram á að fólk getur bmgð- ist mjög miskjafnlega við saltneyslu. McCarron vitnaði í rannsókn þar sem mikil saltneysla tengdist lágum blóðþrýst- ingi hjá sumum einstaklingum. Sumir, sem vom á fæði sem innihélt minna salt vora með hærri blóðþrýsting. Rannsókn frá Nýja Sjálandi sem var framkvæmd undir mjög nákvæmu eftirliti, sýndi engin tengsl milli saltneyslu og háþrýstings. „Á að leyfa hollustufullyrðingar sem byggjast á þessum rannsóknum," spurði McCarron ráðstefnugesti. Hann sagði einni að meta þyrfti áhrif salts (natríums) á blóðþrýsting í tengslum við aðra þætti f fæðunni eins og kalíum og kalk. Sýnt hefur verið fram á að bæði þessi steinefni hafa áhrif á háþrýsting. Samkvæmt því sem McCarron hefur áður sagt hafa 24 af 25 rannsóknum stutt þá tilgátu að kalk í fæðu geti lækkað blóð- þrýsting ef nægilegt salt var í fæðunni. „Matvæli sem innihalda lftið salt ganga ekki vel. Þessar vömr geta verið varasamar fyrir suma einstaklinga. við höfum gleymt því að líkaminn getur losað okkur við ofgnótt af ýmsum fæðuþátt- Matvælaframleiðendur hafa i æ ríkari mæli leitað til vísindanna. hafa niðurstöð- ur rannsókna á hollustugildi matvæla leitt ýmsar nýjungar i Ijós, sem gagnast neytendum ekki síður en framleiðendum. um, við em alltof upptekinn af því að borða ekki mikið af þessu og hinu. Við megum ekki gleyma því að slíkt getur leitt til skorts. Við þurfum að ræða mataræðið í heild ekki einstaka fæðuþætti" sagði McCarron. ÁHRIFHOLLUSTU- FULLYRÐINGA Þrátt fyrir að sala hafí aukist vemlega á skyndimat vestan hafs þá em neytendur þar meðvitaðir um mataræðið. í neytendakönnun sem General Mills- fyrirtækið stjómaði sögðu 89% neytenda þá langaði til að vera með hollan mat á boðstólum. 30% þeirra trúðu því að sum matvæli væm slæm eða óholl og 53% kváð- ust hafa breytt mataræðinu til hins betra. Samkvæmt einum talsmanna General Mills em neytendur mjög mglaðir í ríminu hvað varðar flókin kolvetni (sterkja eða mjölvi og trefjaefni.) Margir virðast telja að sterkja sé fítandi. Aftur á móti töldu 90% aðspurðra í könnuninni að treflaefni væm holl. Það er því ljóst að margt er enn ógert í því að fræða almenning þarlendis um heilsu- fræði. Til dæmis má nefna að heildarsala á sykur-, fítu- og saltríkum matvælum hefur ekki minnkað undanfarin ár þrátt fyrir það að 53% aðspurðra segðust hafa breytt mat- aræðinu til hins bera. Einnig er talið að engin matvæii séu beinlfnis óhoil, aðeins ofneysla þeirra. MJÓLKURVÖRUR Mjólkurvömr era dæmigerð vara sem er f senn holl og óholl. Varað er við fítunni og kólestróli, en samt innihalda þær gnægð steinefna og vftamína. í samanburði við appelsínusafa hefiir mjólk yfírhöndina hvað varðar meira magn bætiefna í fleiri skipti eða í sex af hveijum tíu. Það segir þó ekki alla söguna því hvort tveggja er nauðsyn- legt. Mjólkuriðnaðurinn hefur einnig leitað aðstoðar vísindamanna við að „fínna holl- ustuna". Ýmsar mjög merkar nýjungar hafa komið fram á þeim vettvangi. Tekist hefur að sýna fram á að stuttar og einómettaðar fítusýmr í smjörfítu hafí jákvæð áhrif fyrir böm, geijaðar mjólkurvömr hafa áhrif á sýkla, tengjast lækkun ristilkrabbameins og kólesteróls og draga úr mjólkursykuróþoli. Aðrar mjólkurvömr hafa ýmis önnur jákvæð áhrif eins og sumir ostar, sem vinna á tann- sýklum. Sumt af þessum umdeildu atriðum hefur tekist að „sanna" eins og t.d. örvem- talningar geta borið vott um. Annað er umdeilt og mun sjálfsagt vera það næstu áratugina. Fitu- Og Kjötiðnaðurinn Fituiðnaðurinn á sjálfsagt vinninginn í því að „eiga umræðuna" að margra mati. Fiskolíur hafa fengið mikla umflöllun í umræðu næringarfræðinga og leikmanna. Rannsóknir á hlutverki fítusýra, sem kostað- ar hafa verið af framleiðendum, hafa leitt ýmsa hluti í ljós, sem hefðu eflaust verið síðar á ferðinni ef fjármagnið hefði ekki verið til staðar þá. Má vænta nýjunga um fitur af öllum teg- undum og gerðum í næstu framtíð. Kjötiðnaðurinn í Bandarikjunum virðist vera að gera það sama og mun sjálfsagt leggja sitt af mörkum til umræðunnar um heilsufræði. Viðbrögð þessa iðnaðar við vamaðarorðum yfírvalda um óhollustu mett- aðrar fítu og kólesteróls hafa verið þau að fítuskera kjötið meira, fylgjast vel með gæðum þess, þróa farsvömr með litlu fítu- innihaldi en miklu af flóknum kolvetnum, þróa fóðmnaraðferðir til að auka hlut ýmissa bætiefna í kjötinu o.fl. VONANDIÖLLUM TlL HEILLA Vissulega ber að fagna því að framleiðslu- fyrirtækin skuii styrkja gmndvallarrann- sóknir svo dyggilega. Er það mikil lyftistönd fyrir ýmsar rannsóknir í næringarfræði og tækni. Matvælin em mikilvæg tengsl við tæknibyltingu síðustu ára þar sem ný vísindi og tækni snertir okkur hvað mest á því sviði. Það er því vonandi að sérfræðingunum takist að koma vamaðarorðum að í umræð- unni um hollustufullyrðingar fyrirtækjanna svo samstarf iðnaðar og vísinda verði með sem bestum hætti okkur öllum til heilla. Höfundur er matvælafrseðingur.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.