Lesbók Morgunblaðsins - 24.09.1988, Síða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 24.09.1988, Síða 6
 Málverk Eugene Delacroix, Frelsisgyðjan leiðir fólkið, var að vísu máluð árið 1831, en virðist samt hafa falið í sér spásögn um þá þjóðfélagsbyltingu, sem í vændum var í Frakklandi. Napóleon og franska stj órnarbyltingin Gegn múgæði og aftökum - en fékk litlu áorkað ur að vagninum, benti á silkihatt Maríu- Önnu og gargaði: „Aristókratar! Drepum aristókratana!" „Við erum ekki frekar aristókratar en þið,“ hrópaði Napóleon, þreif hattinn af höfði systur sinnar og kastaði honum til múgsins, sem rak upp fagnaðargól. Þáttaskil í Frakklandi Orrustan við Valmy breytti enn einu sinni ástandinu í Frakklandi. Frakkar sigruðu prússneska og austurríska heri 20. septem- ber og sigurinn sýndi Frökkum að vannærð- ur og illa búinn her sem var haldinn eld- móði hugsjónar og föðurlandsástar gat sigr- að vel búinn og agaðan atvinnuher. Með þessum sigri urðu þáttaskil í Frakklandi. Napóleon kom til Korsíku í október og til þess að geðjast löggjafarþinginu, sem -þótti lítið kveða að byltingaráhuga Korsíku- manna, var ákveðið af Paoli og stjómendum eyjarinnar að herferð skyldi farin til eyja sem tilheyrðu Sardiníu, sem var hluti ríkis Viktors Amadeus konungs í Piedmont, sem var bandamaður Austurríkis. Eyjar þessar voru byggðar korsískum hjarðmönnum og fiskimönnum. Napóleon og liðsveit hans var send í þennan leiðangur, yfirforinginn var stuðningsmaður Paols. Svo fór að leiðangur- inn mistókst. Nokkmm dögum eftir heim- komuna munaði minnstu að nokkrir sjómenn frá Marseille hengdu Napóleon, aðvífandi liðsmenn úr herdeild hans björguðu honum. Paoli ætlaði sér alls ekki að ganga erinda löggjafarþingsins, hann stefni að sjálfstæði Korsíku og svo fór að það skarst í odda milli Napóleons og Luciens bróður hans og Paolis hinsvegar, það kom til vopnaðra átaka, Napóleon réðst á virki Ajaccio, en árásin tókst ekki og tilraunir hans til þess að vinna Korsíkubúa á sitt band mistókust. Lyktimar urðu þær að Paoli stjómaði Korsíku undir hervemd enska flotans til 1796. Ætt Buonaparta var gerð útlæg frá eynni, „dæmd til eilífrar útskúfunar og svívirða hennar skyldi ætíð uppi vera“. Snemma í september hófust septembermorðin, sem byltingarmenn kölluðu „hreinsun fangel- sanna“. Skipulagðir morðingjahópar réðust inn í fangelsin og myrtu þá fanga, sem voru taldir hættulegir þjóðinni. Morðingjarnir voru einkum slátrarar og slátrarasveinar, iðnaðarmenn og iðnsveinar, smákaupmenn og dtjúgur hópur starfandi glæpamanna, morðingja og þjófa. Samsafn dreggja þjóðfélagsins og smáborgara og verkalýðs. Frumkvæðið að þessum viðbjóðslegu morðum áttu hugmyndafræðingamir og Jakobínar, sem um þessar mundir hvöttu óspart til morða, illvirkja og rána í nafni „þjóðarinnar, frelsisins og jafnréttisins". Viðbrögð Napóleons við múgsefjun og mú- gæði vora afdráttarlaus, hann bæði hataði og óttaðist þetta „marghöfðaða villidýr". Napóleon hafði komið til Parísar þetta vor til þess að hreinsa sig af ákæram, sem á hann voru bomar af andstæðingum hans á Korsíku, sem honum tókst og var jafnframt hækkaður í tign innan hersins. ÓVINIR Þ JÓÐARINNAR Eftir því sem leið á sumarið 1792 skerpt- ust pólitískar andstæður á Frakklandi. Tek- ið var að líta á aristókratíið sem óvini þjóðar- innar, prestana enn frekar og konunginn sem svikara, eftir að styijöldin við Prússa hófst. 16. ágúst var Saint-Cyr, kvennaskóla ætluðum stúlkum af aðalsættum, lokað. Systir Napóleons, María-Anna, var nemandi í þessum skóla og því hlaut Napóleon að koma systur sinni sem fyrst heim. Það var ekki nóg með að múgæði hefði gripið um sig í borginni, nú streymdi til borgarinnar lið úr ýmsum héruðum og borgum Frakk- lands, sem var ýmist talið til sannra föður- landsvina eða ótíndur raslaralýður, sem væri til alls vís. Liðsveitin frá Marseille var einkum áberandi þar sem hún fór syngjandi „Marseillaise", hinn nýja þjóðsöng Frakka eftir Rouget de Lisle. Flóttamaður Kemur SérFyrir Með þessum atburðum lýkur öllum til- raunum Napóleons til þess að verða mál- svari og leiðtogi Korsíkumanna. Framtíðin beið hans í Frakklandi, og hann gerði sér það fyllilega ljóst. Hann áttar sig á mýraljós- um hugmyndafræðinganna og byltingar- hugsjónunum. Hann kastar trúnni á goð æsku sinnar, hann þykist vita að ótti, for- dild og hagsmunir ráði gjörðum mannanna og hann ákveður að þjóna stjóminni í París, um annað var ekki að velja. Löngu síðar: Napóleon fór hina mestu sneypuför með her sinn austur til Rúss- lands 1812 og áform hafði hann um innrás í Bretland. Gerðar voru teikningar af hjólaskipum til að flytja herinn yfír Ermarsund og þættu þetta fyndin hemaðar- tæki nú á dögum. Þessi áætlun komst þó ekki lengra en á teikniborðið. Flóttafjölskyldan Naþóleon, systkini hans og móðir hans, setjast fyrst að í Toulon og síðar í Marseille og það kom í hlut Napó- leons að sjá henni farborða, sem hann gerði af korsískri frændrækni. Frakkland hafði verið lýst lýðveldi seint í september 1792. Línumar taka að skerp- ast á hinu nýkjörna þjóðþingi milli hægri og vinstri manna, Gírondína og Jakobína. Jakobínar unnu að því að tengja borgaraleg réttindi, sem unnist höfðu í byltingunni, efnahagslegu jafnrétti og öryggi. Gírondínar töldu eignarréttinn undirstöðu borgaralegra réttinda svo og athafnafrelsi. Jakobínar litu svo á að uppreisnarástand innanlands og yfírvofandi innrásir hlytu að auka afskipti ríkisins af efnahagslífinu og takmarka at- hafnafrelsi og eignarrétt. Þeir róttækustu meðal Jakobína kröfðust afnáms eignarrétt- ar einstaklinga á framleiðslutækjum og jarð- eignum. Harðar deilur urðu um örlög kon- ungs. Gírondínar vildu bjarga lífi hans en Jakobínar kröfðust dauðadóms. Hann var tekinn af lífi 21. janúar 1793. 2. hluti Þetta voru óskaplegir tímar í Frakklandi. Napóleon var hermaður af lífi og sál og slyngur stjórnandi, en hann hataði og óttaðist múgseQun og múgæði og varð jafnvel tortryggilegur vegna þess. eftir SIGLAUG BRYNLEIFSSON María-Anna var nú 15 ára gömul og fram- koma hennar og málfar bar augljósan vott um þá siðfágun og reisn sem nægði til þess að lýðurinn hefði hengt hana í fyrsta ljósa- staur hefði hún hætt sér út á götu án fylgd- ar. Napóleon sótti systur sína til Saint-Cyr og þau fóru til Parísar, þar sem hann bauð henni í Óperuna. Maríu-Önnu hafi verið kennt það í skólanum, að óperar væru ekki við hæfi kristins fólks, jafnvel eitt af spil- verkum djöfulsins. Hún tók það ráð fyrst í stað að loka augunum, en þegar leið á ann- an þátt tók Napóleon eftir því að hún hafði opnað augun og virtist skemmta sér vel. Napóleon og María-Anna héldu síðan með póstvagninum heimleiðis. Alls staðar þar sem þau stigu út á leiðinni mátti greina tortryggni meðal íbúa þorpa og borga, sem þyrptust að póstvagninum eins og tíðkaðist. Eftirlitslið Jakobína-klúbbanna á hverjum stað fylgdist grannt með öllum ferðum manna og þegar þau systkin stigu út úr vagninum í Marseille þyrptist ógnandi múg- 6

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.