Lesbók Morgunblaðsins - 24.09.1988, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 24.09.1988, Blaðsíða 9
Ríkarður Jónsson og kona hans María Ólafsdóttir frá Dallandi. ,Ríkarður vinur minn notar tálguhníf og berar hendurnar“ egar nafn Ríkarðs Jónssonar er nefnt, eða ber fyrir augu á blaði, fer það allt eftir aldri manna hver viðbrögð verða. Miðaldra borgarar og roskið fóik man Ríkarð vel. Hann setti svip á umhverfi sitt hvar sem hann fór, ekki bara RÍKARÐUR JÓNSSON fæddist fyrir 100 árum á Strýtu í Hamarsfirði og varð þjóðkunnur fyrir myndskurð sinn, svo og mannamyndir. Hann skar urmul gripa, sem merkismönnum voru gefnir á stórafmælum og er mest af því listrænt handverk. En það er fyrst og fremst á sviði mannamynda að listrænir hæfileikar Ríkarðs njóta sín og það eru þau verk, sem halda munu nafni hans á lofti. Eftir PÉTUR PÉTURSSON Reykjavíkurborg, þar sem hann vann öll sín manndómsár af dáð og drenglund; klettar og klungur Austfjarða, fjallvegir og geig- vænar gnípur geyma spor hans. Grösugar hlíðar Caprieyjar, bláir hellar og brimsorfn- ar musterisdyr Miðjarðarhafsins enduróm- uðu karlmannlegan söng hans, er jafnan hljómaði hvar sem Ríkarður steig fæti á fold, eða sat við iðju sína. Myndir Ríkarðs margvíslegar, svipleiftur samtíðarmanna og sögufrægrar tíðar, spegilflúr og rammaum- gerðir, rjáfurskraut baðstofu, brfkur, rekkj- ur og munir margir, biskupsstóll í Krists- kirkju og kirkjumunir í öllum landsQórðung- um; flest er það alþjóð kunnugt. Dagiega ber fyrir augu vegfarenda í Reykjavík mörg verka Ríkarðs, án þess þeir geri sér grein fyrir því hver átti svo haga hönd og hníf svo beittan, að táiga tré, hamra málm og höggva stein er prýðir hús og gönguleiðir við stræti og torg. Fálk- ar Ríkarðs siija á húsburst Hamborgar og Heimilistækja við Hafnarstræti, á Fálkahús- inu svonefnda. Þá ber við himin í borgarys. Ríkarður skar þá að beiðni Stefáns Eiríks- sonar myndskera þá er hann var þar við nám. Hurðaskraut og dyraumbúnaður við Vallarstræti, Hótel Vík, síðar aðsetri kvennasamtaka og í Bjömsbakaríi, konung- legri konfektgerð prýðir enn og ber vitni hagieik og hugkvæmni. Tryggvi Gunnarsson og fjöldi dýra í vemd hans í garði Alþingis, Vídalín klerkur við Dómkirkjuna, lágmynd af Sveinbimi Sveinbjömssyni tónskáldi á , legsteini hans. Þorsteinn skáld Erlingsson á Klambratúni, dr. Charcot, vísindamaður- inn heimskunni á lóð Háskólans. Banakoss, myndverk í Þjóðleikhúsinu. Allt em það verk Ríkarðs Jónssonar. Eftirmynd V alþjófsstaðarhurðarinnar skar Ríkarður að beiðni Guðjóns Samúels- sonar, húsameistara ríkisins. Um þær dyr ganga stjómsýslumenn landssjóðs og ríkis- stjómar daglega. Þeir byija hvem vinnudag á því að Ijúka upp hurð Ríkarðs Jónssonar, eftirmynd Valþjófsstaðarhurðar í Amar- hvoli. Barði Guðmundsson þjóðskjalavörður taldi Randalín Filippusdóttur, stórættaða konu af meiði Oddaveija hafa skorið Val- þjófsstaðarhurð þá sem nú er geymd á Þjóð- minjasafni og er fyrirmynd Amarhvols- hurðarinnar. Hurðin er fræg í norrænni listasögu. „Á hana em skomar myndir af frábæmm hagleik og snilli." Þegar húsa- meistari ríkisins svipaðist um eftir lista- manni til þess að skreyta nýtt húsnæði æðstu sijómar fullvalda ríkis, aðaldyr stjómsýsluseturs, þótti einsýnt að ráða Ríkarð Jónsson til verksins. Hann var þá þegar kunnur fyrir frábæran hagleik og snilli. Snemma varð ljóst að hveiju fór um áhuga Ríkarðs á smíðum og hagleik. Hann stendur ungur í smiðju föður síns, Jóns Þórarinssonar, „og elur á glóðinni á aflinum með handknúðum smiðjubelg, damlar sveif- inni rólega og smáelur á glóðinni, en horfír með undrunaraugum á hamfarir föður síns, sem er ótrúlega höggviss, hversu ört sem hann slær, missir hann aldrei marks, og hann formar jámið svo vel með hamrinum einum saman, að jafnvel vönduðustu hluti, sykurtangir, byssulása o.þl. þarf lítið að þélja." Þannig lýsir Ríkarður föður sfnum og smíðum hans. Jón faðir Ríkarðs var að sögn hans af- bragðs jámsmiður. Hafði þó ekkert lært, nema vetrartíma, sem hann var við jáms- míðanám og koparsteypingar f Hrísey út af Búlandi, hjá Þorsteini Pálssyni. Jón var mikill hagleiksmaður og kvaðst Ríkarður „aldrei hafa séð nokkura mann slá jám af jafnmikilli leikni og hann. Það var eins og hann gæti formað hvað sem var með hamr- inum einum. Hann var ekki síður hagur á tré og kopar og bjó til mót sín sjálfur." Þegar rætt var um himnavist og eilífðarmál sagði Jón: „Fái ég nýja og góða smiðju, nóg jám, nóg kol og nóg og góð verkfæri, þá vil ég fara til himnaríkis.“ Þegar lof var borið á Ríkarð og systkini hans í áheym móður þeirra svaraði hún oft þannig: „Þakka skyldi þeim og vera bömin hans Jóns Þórarinssonar." Þótt Ólöf húsfreyja orðaði athugasemd sína með þessum hætti af hógværð sinni og ást á bónda sínum má telja fullvíst að þrautseigju, þolgæði og iðjusemi hafí bömin éngu síður sótt til móður sinnar, enda kippti þeim einnig í það kyn. Rfkarður lýsti móður sinni svo á efri ámm hennar „Ég hygg að móðir mín hafí síðust kvenna gengið pijón- andi um götur Reykjavíkur. Þegar hún kom að heimsækja mig á Grundarstíginn, frá Georg bróður, úr Skildinganesi, yfír Vatns- mýrina gekk hún ævinlega pijónandi. Slík var iðjusemi hennar." „Það er auðséð, að bæjarstæðið á Strýtu og umhverfi hefír drottinn skapað og skreytt með svo margvíslegum hætti... Þetta LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 24. SEPTEMBER 1988 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.