Lesbók Morgunblaðsins - 02.06.1990, Blaðsíða 2
Lilla Teatern frá Helsinki á Listahátíð 1990
Leikhús
Nikítas
gæslumanns
Imiðborg Helsinki er starfandi leik-
hús sem nefnist Lilla Teatern (Litla
leikhúsið), stofnað 1940. Eins og
nafnið gefur til kynna er þetta
ekki ýkja stórt leikhús. Stærðin
er helst sambærileg við gamla Iðnó
í Reykjavík. Lilla Teatern er leik-
hús í nútímastíl, sem hefur þjóðleg
einkenni, en er á sama tíma hluti af alþjóð-
legu leikhússamfélagi. Styrkur leikhússins
hefur einkum legið í hæfni þess til að bregð-
ast skjótt við atburðum líðandi stundar. Leik-
rit sem eru skrifuð fyrir Lilla Teatern glíma
oft við einhver aðkallandi mál, eins og t.d.
nýlegt leikrit sem fjallar um eyðnifaraldur-
inn. Það hefur verið flutt yfir fjögur hundruð
sinnum á síðustu árum og þýtt yfir á tólf
tungumál, meðal annars íslensku. Leikhúsið
stendur reglulega fyrir gestauppákomum
erlendis,- aðallega á Norðurlöndunum, en
einnig í öðrum löndum. Hjá því starfar
íslenskur leikari, Borgar Garðarsson.
Ein athyglisverðasta uppfærsla Lilla Teat-
ern í seinni tíð ber heitið Leikhús Nikítas
gæslumanns („Vaktmástare Nikitas Teat-
er“). Það er samið af Kama Ginkas upp úr
Deild 6, sögu eftir Anton Tsjekov, sem af
mörgum er talin eitt magnaðasta verk þessa
mikla höfundar. Lilla Teatem hefur sýnt leik-
ritið í Noregi, Danmörku, Svíþjóð og nýlega
á Italíu. Undirtektir hafa verið fádæma góð-
ar og blaðagagnrýni óvenju lofsamleg.
Lilla Teatern hefur fallist á að sýna Leik-
hús Nikítas gæslumanns á Listahátíð í
Reykjavík 3. og 4. júní. Þessi gestaleikur_er
óefað mikill fengur fyrir listunnendur á ís-
landi. í tilefni af komu Lilla Teatern á Lista-
hátíð er grein þessi skrifuð til að kynna
bæði leikhúsið og leikritið sjálft. Spjallað er
við tvo af leikurum Lilla Teatem, þau Asko
Sarkola og Elínu Salo. Sarkola hefur verið
leikhússtjóri hjá Lilla Teatem síðan 1974,
en er líka víðfrægur leikari og fer með eitt
af aðalhlutverkunum í Leikhúsi Nikítas
gæslumanns. Elín Salo leikur eina kvenhlut-
verkið í leikritinu.
Deild 6
Deild 6, sagan sem leikritið er byggt á,
gerist í lítilli borg í Rússlandi skömmu fyrir
aldamót. Hún fjallar um Deild eða Pavilljón
6 á geðveikraspítala. Deildin hýsir fjóra sjúki-
inga. Spítalinn er í algjörri niðurníðslu og
Deild 6 er niðurdrepandi staður þar sem alls
konar drasli er hrúgað innan um sjúkling-
ana, gömlum dýnum, slitnum náttsloppum,
aflóga inniskóm og öðru í þeim dúr. Aðalper-
sónurnar í sögunni eru læknirinn Andrej Je-
fimovits Ragin og sjúklingurinn Ivan Dim-
itrij Gromov.
Aður en hann veiktist af ofsóknaræði var
í nýlegu hefti af
tímaritinu Plays and
Players fær sýning Lilla
Teatern á Leikhúsi
Nikítas gæslumanns
frábæra dóma. Sýningin
er dagsett 3. og 4. júní á
Listahátíð. Björgvin
Björgvinsson í Finnlandi
Qallar um sýninguna og
ræðir við leikarana Asko
Sarkola og Elinu Salo.
Eftir BJÖRGVIN
B J ÖRG VINSSON
Asko Sarkola og Marcus Groth í hlut-
verkum sínum í „Leikhúsi Nikítas
gæslumanns“. Marcus Groth leikur þar
sjúklinginn Ivan Dimitrij Gromov og
Asko Sarkola Ieikur dr. Andrej Jefímo-
vits Ragin.
Jakov Jakulov, er líka Sovétmaður. Að mörgu
leyti þykir sýningin því gefa vísbendingu um
það sem er efst á baugi í sovésku leikhúsi.
Með aðferðum sem þykja nokkuð dæmigerð-
ar fyrir yngri kynslóð leikstjóra í Sovétríkjun-
um steypir Kama Ginkas saman sálfræði-
legri gegnumlýsingu og áhrifum úr absúrd-
leikhúsinu; hér er einnig spurt stórra spurn-
inga um frelsi, kúgun og mannlega reisn sem
óvíða eru jafn áleitnar og einmitt í Sovétríkj-
unum.
„Ég hef verið í þessari atvinnugrein í leik-
húsinu í 35 ár, og þetta er mitt uppáhaldsleik-
rit og uppáhaldsuppfærsla. Þetta er eitt af
bestu skáldverkum Tsjekovs, en reyndar
sagði einhver eftir að hafa lesið söguna að
leikritið væri jafnvel betra,“ segir leikkonan
Elina Salo.
„Leikstjóranum hefur tekist að styrkja
persónurnar í leikritinu með því að nota brot
úr öðrum skáldverkum eftir Tsjekof,-þar sem
ýmsar heimspekilegar vangaveltur hæfa
þessu verki vel. Þó að viðfangsefnið sé háal-
varlegt, er leikritið í eðli sínu tragíkómískt.
Bilið milli þess harmræna og hlægilega er
ekki svo ýkja breitt, enda er slík blanda
reyndar hálfgert vörumerki þessa leikstjóra.
Hann sá kómíska hlið á sögu Tsjekofs, þótt
fæstir aðrir gerðu það,“ segir Asko Sarkola.
Eins og áður er komið fram leikur Sark-
ola sjálfur aðalhlutverkið, Ragin lækni. Asko
Sarkola: „Tsjekov skrifaði söguna eftir að
hafa heimsótt fangaeyjuna Sakalin. Við höf-
um leikið verk eftir Dostojevski, og tekið
eftir því að í samanburði við hann er Tsjekov
öllu grimmlyndari. Dostojevski hefur hug-
sjón, sinn Krist og sína trú. Það hefur Tsjekov
ekki. Hann skrifar og skrifar og lýsir hlutun-
um eins og þeir eru. Þess vegna er hann oft
svona harðneskjulegur. Þess vegna er þetta
oft svona erfitt hlutverk — um leið og ég
leik er ég að mótmæla því að lífið geti verið
svona óvægið. í augum læknisins er lífið
hálfgerð gildra og varla nein undankomuleið
fær.“
Gestaleikir Víða Um Lönd
„Eitt hið besta við leikritið er hvernig all-
ir leikararnir eru eins og sniðnir fyrir hlut-
verk sín. Þótt við höfum ekki leikið verkið í
heila sex mánuði, þurfum við ekki nema eina
. æfingu til að stilla leikarana saman. Þannig
hefur leikritið í raun sína eigin tilveru. Allir
eru mjög stoltir af sínum hlutverkum, og það
er næstum fágætt hvernig öll smáatriði
ganga upp,“ segir Asko Sarkola og bætir við:
„Þetta er eins og leikrit verða best og inni-
heldur vissan boðskap, húmanisma og bæði
leikræna upplifun og sjónræna. Þannig hefur
leikritinu farnast vel hvar sem við höfum
sett það upp, í Stokkhólmi, Osló, Kaup-
mannahöfn og á Ítalíu. Við höfum einnig
fengið boð um að fara í leikferð til Englands
og Póllands. Við teljum okkur verða að færa
íslendingum það besta sem við höfum upp á
að bjóða og erum hæstánægð með að hafa
fengið þetta boð.“
Að lokum má bæta því við að Liila Teat-
ern hefur sýnt þrívegis áður á íslandi. Fyrst
var það fyrir 18 árum að leikhúsið kom á
aðra Listahátiðina með sýninguna Umhverfis
jörðina á áttatíu dögum. Þar lék Asko Sar-
kola hlutverk Phileasar Fogg, en Elin Salo
fór með eina kvenhlutverkið.
Sýningar Liila Teatern á Listahátíð verða
í Islensku óperunni 3. og 4. júní. Leikið er
á sænsku.
Höfundur býr í Finnlandi.
Marcus Groth í hlutverki Ivans Dimitrij
Læknirinn Andrej Jefimovits Ragin veit
mæta vel hvað er á seyði á Deild 6, en iæt-
ur sig það engu varða. Hann lifir í draumaver-
öld heimspekinnar, innan um stafla af bók-
um, með vodka og saltgúrkur við höndina.
Hann kvartar yfir því við vin sinn, póstmeist-
arann Mikhail Avetjanits, að í borginni sé
ekki neinn sem geti rætt af viti um heim-
spekileg málefni. Síðar uppgötvar hann að
sjúklingurinn Ivan Dimitrij er eini maðurinn
sem getur staðið í slíkum samræðum. Hann
fer að venja komur sinar á Deild 6 til að
ræða við Ivan Dimitrij. Svo kemur að því
að tíðar íieimsóknir iæknisins á deildina fara
að valda ýmsu fólki grunsemdum.
Þegar Andréj Jefimovits er sjálfur úrskurð-
aður geðveikur og settur í vörslu Nikíta, átt-
ar hann sig loks á því hvað sjúklingarnir á
Deild 6 hafa orðið að þola í mörg ár. Þar
skilur hann fyrst mistök sín, en þá er allt
um seinan.
j Gromovs.
Harmrænt En Samt
Hlægilegt
í sýningu Lilla Teatern á Leikhúsi Nikítas
gæslumanns eru elllefu leikarar. Leikhús-
stjórinn Asko Sarkola fer með hlutverk lækn-
isins Andrej Jefimovits Ragin. Elín Salo leik-
ur eina kvenhlutverkið, ráðskonuna Darj-
usku. Borgar Garðarsson leikur sjálft titil-
hlutverkið, gæslumanninn Nikíta. Af öðrum
nafntoguðum leikurum sem taka þátt í sýn-
ingunni má nefna Tom Wenzel, sem leikur
póstmeistarann Mikhail Avetjanits, og Marc-
us Groth, sem er í hlutverki sjúklingsins Ivans
Dimitrij Gromovs.
Leikstjórinn, Kama Ginkas, er frá Litháen,
en starfar í Moskvu, m.a. hjá því fræga Lista-
leikhúsi. Leikmyndin er gerð af David Borov-
ski, sem starfar hjá Tagan-leikhúsinu. Þess
má geta að Borovski gerði leikmynd við róm-
aða sýningu á Náttbólinu eftir Gorkí í Þjóð-
leikhúsinu fyrir rúmum áratug. Tónskáldið,
Læknirinn Andrej Jefímovits og póstmeistarinn Mikhail Avetjanits, sem Tom
Wentzel leikur.
Ivan Dimitrij vel metinn ungur maður í borg-
inni. Hann var eins konar gangandi alfræði-
safn, vel menntaður og vitur. Auk hans koma
m.a. við sögu þrír aðrir sjúklingar, og svo
Nikíta, sem er eins konar varðhundur á Deild
6. Sjúklingarnir hafa vart annað fólk fyrir
augum en Nikíta, því heimsóknir eru mjög
fátíðar á deildinni. Hann er ekki aðalper-
sóna, en mjög áhrifamikill. Með kröfu sinni
um skilyrðislausan aga er hann fulltrúi þess
kerfis sem kveður niður bæði sjúklingana og
síðar iækninn. Nikíta ergamall eftirlaunaher-
maður sem metur aga ofar öllu, og einfeldn-
ingur sem trúir blint á áhrifamátt handalög-
málsins. í sjúkrastofunni er því reyndar trú-
að að í því felist eina leiðin til að halda aga
á Deiid 6.
Leikararnir Asko Sarkola og Elina Salo
fyrir framan LiIIa Teatern við Georgs-
götuna í miðhluta Helsinki.
2