Lesbók Morgunblaðsins - 14.09.1991, Qupperneq 5
iðt fíð v’ar áfið'eftlf T)|fðg-'aðeftís"smatetnr -
þegar þeir komu heim og handtóku pabba.
Svo vildi til að hann var einn heima með
mig. Honum var neitað um að hringja til
móður minnar en frænku minni, sem bar
að garði, var leyft að fara í hermannabíl
til þess að sækja hána, svo barnið yrði ekki
skilið eftir eitt heima. Honum var líka neit-
að um að hringja til forsætisráðherra og
lögreglustjóra og hótað valdbeitingu. Að
handtaka þingmann þannig á meðan Al-
þingi stóð yfir, var alvarlegt brot á íslenzk-
um lögum.
Að sjálfsögðu man ég ekki eftir þessu,
en heyrði mikið talað um það síðar. Pabbi
og tveir blaðamenn Þjóðviljans voru síðan
í haldi í London í þrjá mánuði og Þjóðviljinn
var bannaður.
Ég flaug snemma úr hreiðrinu; varð hús-
móðir við Kleppsveg og síðar í einni af Sól-
heimablokkunum. Þar á ég raunar íbúð
ennþá, en við hjónin skildum eftir 20 ára
hjónaband. Ég fór að kenna við Vogaskóla
1963 án þess að hafa til þess réttindi og
þá rann það upp fyrir mér að betra væri
að læra eitthvað meira til þess að hafa fulla
burði til að kenna. Ég dreif mig þá í dönsku
og sögu í Háskólanum.
Það var einum of mikið álag með kennsl-
unni, svo ég tók mér frí frá henni í tvö ár
á meðan ég lauk náminu. Áfram kenndi ég
við Vogaskóla, en flutti mig 1973 í Mennta-
skólann við Sund og kenndi þar til 1989,
að ég fluttist til Ástralíu."
„Fram að þessu hafðir þú lifað venjulegu
lífi, komið þínum börnum til manns, verið
húsmóðir í blokk og kennt menntskælingum
dönsku. Svo ert þú allt í eiriu orðin skáld úti
í Ástralíu. Hvað olli þessum sinnaskiptum
og stórbreytingu á þínum högum?“
„Það var ástin. Ég varð ástfangin og þá
langaði mig til að byija nýtt líf.“
„Kom ástin einn góðan veðurdag og
hringdi dyrabjöllunni í Sólheimunum?"
„Nei, svo einfalt var það nú ekki. Hún
kom til mín í sumarfríi úti í Grikklandi
1988, þegar ég hitti Lindsay O’Brian, dokt--
or í plöntuerfðafræði frá Ástralíu. Sérgrein
hans er kynbætur á hveiti. Hann var þá
nýtekinn við stöðu við Háskólann í Sidney,
en vegna sérgreinar hans búum við ekki
þar, heldur í Narrabri, sem er lítið þorp,
talsvert langt inni í landinu. Þar fengum
við hús, sem fylgir starfinu. Lindsey var
fráskilinn eins og ég og átti einníg tvö upp-
komin börn.“
„Fórstu bara rakleiðis til Astralíu með
bláókunnugum manni úr sumarleyfinu ístað
þess að snúa heim til íslands?"
„Nei, það var ekki alveg svo dramatískt.
Eftir kynni okkar í Grikklandi, lá leiðin
heim. Við skrifuðumst á og Lindsay stakk
uppá að ég kæmi til Ástralíu í 6 mánuði,
skoðaði mig um og kynntist landi og þjóð.
Það gerði ég og líkaði vel. Að þeim tíma
liðnum héldum við bæði norður til íslands
og giftum okkur í júlí 1989. Um haustið
kenndi ég til áramóta, en fór síðan alfarin.
Við búum í Nýja Suður Wales, sem er í
suðausturhorni þessa mikla meginlands. Þar
er víða yndislega fallegt. Háskólinn í Sydn-
ey rekur stóra rannsóknarstöð í Narrabri
og við hana vinna um 50 manns. í Narrabri
eru sumrin afar heit og það rignir sjaldan.
Við söfnum þó regnvatni í tank og nægir
það til heimilishaldsins, það er að segja ef
þú lætur vatnið aldrei renna að óþörfu og
ferð vel með það. Óhætt er að drekka þetta
vatn, en ekki þykir mérþað bragðgott, drekk
yfirleitt mineralvatn. Á minibar á hóteli í
Perth rakst ég reyndar á íslenzkt vatn í
fallegum dósum og stóð á þeim Svali. Mér
bragðaðist það betur en nokkurt vín.
Lindsay þarf að sækja fundi og ráðstefn-
ur vítt og breitt og ferðast ég alltaf með
honum. Er búin að sjá meira af Ástralíu
en margir innfæddir.
Ég er ekki í neinni fastri vinnu; gæti
samt fengið vinnu ef ég vildi, en þá gæti
ég ekki ferðast að vild og minna skrifað.
Ritferill minn hófst á því að ég fór að skrifa
pistla í Þjóðviljann og þar með rættist gam-
all draumur. Mig hafði alltaf langað til að
skrifa.
Nú gafst næði og ég fór að skrifa smásög-
ur. Ég sendi eina heim til Guðmundar Andra
Thorssonar, sem keypti hana í Tímarit
Máls og menningar. Hún hét „Ein á báti“
og þetta varð mér mikil hvatning.
„Er það rétt skilið, að þú sért alein heima
á daginn ogfáistþá við skriftir með húsmóð-
urstörfunum. Er það ekki daufleg vist fyrir
svo lifandi manneskju, sem mér sýnist þú
vera?
„Alls ekki. Ég hef fundið mér vettv'áng
til að starfa á og hef allt það næði, sem
ég þarf. Oft hlusta ég á músík og syng
jafnvel fullunfi hálál á íslenzkú,' Þú bíáfjaílá-
geimur... eða eitthvað álíka þjóðlegt og ró-
mantískt. Ég skal játa, að hugurinn er oft
heima.
Tíminn líður samt ótrúlega hratt og hleyp-
ur jafnvel frá manni. Mér leiðist aldrei.
Bezti tíminn til að vinna er á morgnana,
en seinnipartinn verður of heitt. Þarna eru
allt aðrir lífshættir en á íslandi; það er far-
ið snemma að sofa, svona um kl 10 og á
fætur á bilinu 6-6.30.
Hitanum fylgir ýmislegt, sem ekki þarf
að hafa áhyggjur af á íslandi. Þar á meðal
eru skorkvikindi, sem alstaðar skríða inn,
enda eru hús ekki eins þétt og vel byggð og
á Islandi. Öðru hvoni verður að ryksuga
húsið vegna þessa. Ég hef fengið froska,
litiar og stórar köngullær, litlar eðlur og
fleira í heimsókn. Reyni yfírleitt að koma
þessum dýrum lifandi út aftur. En risastór
köngulló sem skríður hratt - skríður er' ekki
rétta orðið - hún hleypur - getur reynst
erfið viðureignar. Eiturslöngurnar eru va-
rasamar því þær skríða hljóðlaust og eru
allar eitraðar. Hinsvegar eru þær misjafn-
lega árásargjarnar. Maður fleygir sér ekki
útaf í grasið eins og hér á íslandi.
Ástralir skipuleggja alla hluti meira fram
í tímann en tíðkast á íslandi. Það er velmeg-
un, en óneitanlega skyggir á, að 10% at-
vinnuleysi er í landinu, sem þýðir að 170
þúsund manns eru án atvinnu. Til Ástralíu
flytjast um 100 þúsund manns á ári. Það
er mikið deilumál, að hve miklu leyti eigi
að hafa landið opið innflytjendum, t.d. hvort
leyfa eigi þeldökku fólki eða fólki frá Mið-
Austurlöndum óheftan aðgang. Lengi vel
var sú stefna ofaná, að leyfa einungis hvítu,
enskumælandi fólki að koma.
Nú hefur það gerst í seini tíð, að Japan-
ir, sem eiga gríðarlega mikil viðskipti við
Ástrali, kaupa í gríð og erg lönd og fyrir-
tæki. Af mörgum eru þeir illa séðir.“
„íslenzkur rithöfundur í Ástralíu, - geng-
ur það upp? Verður þú ekki að skrifa á
ensku og þá um áströlsk yrkisefni?
„Ég skrifa allt á íslenzku. Og sVo yrki
ég ljóð. Sum þeirra hafa birzt í Lesbókinni
eins og þú veizt. Það þótti mér skemmti-
legt. Nokkrar smásagna minna hef ég þýtt
á ensku, en ég hef ekki talað við neinn
útgefanda í Ástralíu ennþá; kannski geri
ég það. Svo tók ég þátt í skáldverkasam-
keppni Almenna Bókafélagsins, sem 'rann
út 1. marz nú í ár. Ég senúi þá inn smá-
sagnasafn og lét mig ekki einu sinni dreyma
um verðlaun. Síðar í vor fékk ég svo að
vita, að ég væri ein af þremur höfundum,
sem valdir hefðu verið til útgáfu.
Eftir það sveif ég á ljósrauðum skýjum.
Langar samt til að læra að skrifa betur.
Bókin kemur út nú í haust. í henni eru
12 smásögur, sem voru í samkeppninni og
svo bæti ég fleiri sögum við. Þær gerast
bæði á íslandi og í Ástralíu. Mig dreymir
um að skrifa skáldsögu og þetta verður
mér hvatning til að reyna. Mig langar til
að gera eitthvað virkilega gott.“
„ En sambandið við ísland og sjálft móð-
urmálið, - er það þér nauðsynlegt, eða skipt-
ir það ekki máli lengur?
„Ég verð að halda sambandi við ísland;
tel mig verða að komast hingað á hveiju
ári. í haust kem ég aftur því að Lindsay
sækir ráðstefnur í Bandaríkjunum í októ-
ber. Þá er ég of nærri íslandi til þess að
sleppa því að koma heim þótt dýrt sé.
Ég fæ mjög sjaldan tækifæri til að tala
íslenzku, en þekki þó tvær íslenzkar konur
í Sydney og tala stundum við þær í síma.
í Narrabri hef ég engan íslending hitt nema
sjómann frá Tálknafirði, sem var þar á ferð
með ástralskri kærustu; hún hafði unnið
nokkur ár í fiski á Tálknafirði. Stúlkan var
að sýna manninum heimaland sitt og svo
ætluðu þau að setjast að á Tálknafírði.
í Adelaide býr Matthildur Björnsdóttir,
sem gift er áströlskum jarðfræðingi og hef-
ur skrifað pistla í Morgunblaðið. Ég hef
hitt hana og hringi stundum í hana, en það
er dýrt. Svo er íslenzk kona í Melbourne,
Inga Ámadóttir lögfræðingur, sem þar er
gift. Hún er ritari Islendingafélagsins þar.
Það er svo langt á milli okkar, að það er
verulegum annmörkum háð að hittast; til
Melbourne er til dæmis 12 tíma akstur frá
Narrabri.
Stóru borgirnar í Ástralíu eru eins og
annars staðar, mér fínnst þær alveg skelfí-
Iegar. Þar er gífurleg umferð og mikil meng-
un. En náttúran hefur uppá þeim mun meira
að bjóða og Ástralir eiga mjög fagra þjóð-
garða. Skammt frá Brisbane á austurströnd-
inni er regnskógur, ekki mjög stór að vísu.
Þangað hef ég komið og það var ævintýra-
legt.
„Það er líklega fátt í þessu landi, sem
minnir þig á ísland?"
„Lífsgæðakauphlaupið er svipað og fólk
leggur mjög mikið á sig til að eignast hús.
Þetta tvennt fínn ég að er sameiginlegt, en
eiginlega er allt annað ólíkt, maturinn,
tungumálið, veðurfarið og landslagið.
Eg er alltaf að læra eitthvað nýtt. Hvern-
ig eigi að kveikja upp í arninum til dæmis.
Og svo er það matseldin. Hér er ekki einu
sinni notaður ostahnífur eins og við þekkj-
um. Borðsiðir eru strangir og maturinn gjö-
rólíkur að mörgu leyti. Pönnukökurnar
mínar eru vinsælar - en ekki með sultu og
ijóma. Ónei, hér er ekki borðaður rjómi -
bæði vegna hitans og eins fyllist fólk sektar-
kennd yfír að borða ijóma. Síðustu gestir
sem komu til okkar, settu strásykur á
pönnukökurnar, kreistu síðan- sítrónusafa
yfír og fannst þetta sælgæti. Bezt hefur
mér reynst að bera þær á borð með nýjum
jarðarbeijum, sem legið hafa í Grand Marni-
er og með fortölum hefur mér tekizt að fá
fólk til að setja smá ijómasleikju yfír.
Ástralía er mjög gamalt land; jarðsögu-
lega er hún fimm til sexhundruð milljón ára
gömul. Okkur fínnst það ótrúlegt, en Ástr-
alía er stærri en Evrópa að undanskildum
Sovétríkjunum.“
„Hvernig er lífið í þorpinu Narrabri?“
„Það er svona eins og gengur og gerist
í þorpum: allir þekkja alla og bæjarslúðrið
er á fullu. Öll nauðsynleg þjónusta er þar
og góðar verzlanir. Bæjarblað er gefið út,
en það vantar listmenningu. Það er ekkert
leikhús og ekkert kvikmyndahús, aðeins
bílabíó um helgar. Aftur á móti er þar
stærsta myndbandaleiga í Nýju Suður-
Wales. Mikill hluti frítíma fólks fer í að
glápa á myndbönd og sjónvarpið. Stöku
sinnum koma farandleikarar og setja upp
sýningar eða tónlistarmenn sem spila og
syngja, en það er aðeins í fáein skipti á ári.
Aftur á móti er mikið íþróttalíf. Bæði það
og annað líf í plássinu er utandyra. Fólk
glóðarsteikir oft og tíðum úti. Það er meira'
að segja vinsælt að hafa giftingarveizlu í
garðinum.
Á íslenzkan mælikvarða er enginn vetur,
þótt svo heiti samkmæmt almanakinu; hit-
inn fer þá niður í 10 - 15 stig á daginn, en
á nóttunni er stundum frost, jafnvel 4 stig.
En sumarið er 9 mánuðir og allan þann tíma
fer fólk varla inn í hús nema til þess að sofa.
Nema þessi kona frá íslandi, sem situr
inni og skrifar."
GÍSLI SIGURÐSSON
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 14. SEPTEMBER 1991 5
SÓLVEIG KR. EINARSDÓTTIR
KASTALAHJARTAÐ
I. hjartað vill ekki tíundu hverja sekúndu
Þú ert kastali verða bráð hins óþekkta grátviðurinn fellir tár sín
umhverfis ekki kremjast í botnlausa tjörn
virkisgröf áranna ekki springa af ótta gekkóinn gengur eftir loftinu aumari en hann
úr háum turni hangir heldur áfram að slá
líftaug þín vesælli en maurinn
III. sem þú kramdir
kastaladyrnar. eru luktar Sérhver draumur undir sandalasólanum
fuglinn syngur dapurlega íbúrinu er martröð hins liðna ert þú
fjöll í fjarska marghöfða snákur snákurinn reisir höfuð sín
hófadynur illur, svartur er dillað
þrusk fíkjublaðanna sækir þig heim glottir
ónáðar vindinn í draumaland rauðum tungum
ómur af hundgá árangurslaust heggur þú hvergi sést fleygur fugl
höfuð eftir höfuð af
snúnar tröppur liggja upp í svimandi turninn sólblómið drúpir V.
fuglarnir þagna tíminn brunar
hver opnar tunglið felur sig gegnum nóttina
þunga vindubrú himinninn verður svartur trén hvíslast á
hver man nú horfínn veisluglaum aðeins vængir drekaflugunnar ein
hörpunnar óm titra í mannlausum turni
hvað leynist innan IV. bið hvað gerist
köngulóarskreyttra þú hefur mælt öll orðin gangurinn draugalangi
veggja öll tárin
þessa dimma kastala öll vopnin dyrnar forboðnu
77 brynjan slitin læstu
Hjartað berst þekkir ekkeit nema vanmátt þinn þú lýkur upp
á sífelldum verði huldulykill
hertygin glamra froskurinn rýfurkyrrð næturinnar hvað tekur við
endalaust sem elfur staðfestir hugsanir þínar
streymir blóðið segir já