Lesbók Morgunblaðsins - 14.09.1991, Blaðsíða 10
4
Morgunblaðið/Bjarni
Voyager fjölskyldu- og
ferðabíllinn frá Chrysler.
Ökumaður er fljótur á ná góð-
um tökum á Voyager.
— B ■ M 1 L A R
Voyager með sítengdu aldrifi
Miðjubekkurinn tekur tvo farþega og
sá aftasti þrjá og er gott rými fyrir
alla farþega. Farangursrými er hins
vegar ekki mikið ef bíllinn er fullskip-
aður fólki.
Chrysler Voyager sjö
manna ferðabíllinn sem
Chrysler-umboðið, Jöfur
í Kópavogi, hefur boðið
um nokkurt skeið er nú
fáanlegur með sítengdu
aldrifi. Voyager er sjö
manna fjölskyldu-,
ferða- eða fjölnota bíll með 3,3 lítra öflugri
vél, búinn sjálfskiptingu og hvers konar
rafdrifnum þægindum. Hann kostar rúm-
lega 2,6 milljónir króna en eindrifsbíllinn,
og þá með framdrifi, kostar um 200 þús-
und krónum minna. Hvað verðið snertir
er Voyager nálægt miðjunni þegar hann
er borinn saman við aðra 7 til 8 manna
ferðabíla með aldrifi. Hann er dýrari en
Mitsubishi L-300, svipaður og Pontiac
Trans Sport, Toyota Previa eða Renault
Espace og ódýrari en Astro frá Chevrolet,
svo dæmi séu tekin en allt eru þetta þó
ólíkir bílar. En Voyager er einn kosturinn
þegar menn leita að rúmgóðum ferðabíl
með miklum þægindum.
Chrysler Voyager er rennilegur bíll og
allur fínlegur og snotur þrátt fyrir að hann
sé nokkuð stór. Hann situr láréttur á vegi
og línur eru ekki rísandi eins og títt er,
framendinn hallar að vísu nokkuð niður.
Stuðarar falla vel inn í heildarsvipinn að
framan sem aftan og stuðaralínan er látin
halda sér á hliðunum. Framluktir eru all-
stórar og ná stöðu- og stefnuluktir út yfir
framhornin og síðan eru litlar luktir í stuð-
aranum. Rúður eru stórar og má ítreka
að Voyager er snotur bíll þrátt fyrir hefð-
bundið sendibílslag.
Hjólhafið er langt og stuttir endar fram
og aftur af nema að helst er það kannski
framendinn sem er varasamur ef menn
hyggjast aka á fjallvegum. Reyndar er
ekki mjög hátt undir bílinn svo að í öllum
tilvikum verður að sýna varkárni í slíkum
akstri.
Mikill rafbúnaður
Búnaður Voyager er ríkulegur á öllum
sviðum. Hann er búinn 3,3 lítra V6 vél sem
er 148 hestöfl. Þá er hann með vökva-
stýri, veltistýri, rafdrifnum rúðum, læsing-
um og útispeglum sem sömuleiðis eru hit-
aðir og raunar eru stillingar á sæti öku-
manns einnig rafdrifnar. Hurðir læsast
sjálfkrafa þegar komið er á um 25 km
hraða og er ég ekki viss um hversu góð
ráðstöfun það er. Sjálfskipting er fjögurra
þrepa, gler í rúðum litað, útvarp og segul-
band ásamt fjórum hátölurum fylgja og
aksturstölva sem gefur helstu upplýsingar
um bensíneyðslu, hitastig og fleira og
bíllinn er einnig búinn hraðafestingu. Voya-
ger er búinn blaðfjöðrum að aftan og gorm-
um að framan. Þá eru bæði innrétting og
klæðning öll vönduð og allt vel frágengin.
Margs konar geymsluhólf eru á hliðum og
undir farþegasæti við hlið ökumanns en
hanskahólf er hins vegar lítið. Þá mætti
hugsa sér að nota betur rýmið milli fram-
sæta fyrir einhvers konar hirslu.
Hægt er að opna farangursdyr innan frá
Mikil breidd í framboð-
inu frá Mercedes Benz
Ef við lítúm á alla línuna frá Merce-
des Benz þá má segja að hægt
sé að kaupa allt frá tiltölulega
ódýrum bílum og upp í stóra, dýra og vel
búna bíla og þannig hefur það verið allt
frá því 190 bíllinn kom fyrst á markað.
Styrkur fyrirtækisins í dag liggur í því
mikla úrvali sem við bjóðum, sögðu þeir
Herbert Bnrstle deildarstjóri fyrir Norður
Evrópu og Peter F. Rau sem er yfirmaður
allrar fólksbílasölu Mercedes Benz í Evr-
ópu í viðtali við Mbl. Þeir heimsóttu í
síðustu viku forráðamenn Ræsis til að
ræða um hvernig auka mætti sölu og
bæta þjónustu við eigendur Mercedes Benz
bíla hérlendis.
-Við teljum að forráðamenn Ræsis hafi
sýnt áræði í fjárfestingum sínum hér í
húsinu með bættri aðstöðu í varahluta-
og viðgerðarþjónustu og ekki síður í sölu-
deildinni. Vandi ykkar Islendinga liggur í
einhæfum og viðkvæmum útflutningi fisk-
afurða og það hlýtur að vera erfitt að eiga
svo mikið undir einni atvinnugrein.
Viðræður okkar hafa meðal annars snú-
ist um hvernig Merccdes Benz getur kom-
ið til aðstoðar. Hér er um 4.600 bila floti
frá okkur og þótt margir þeirra séu flutt-
ir inn notaðir hefur Ræsir haft verkefni
við að útvega varahluti og sinna annarri
þjónustu við þennan flota. Þetta er traust
fyrirtæki og við teljum það síður en svo
hafa spillt fyrir að annast einnig sölu á
Mazda bílum því allt sem rennir enn styrk-
ari stoðum undir umboðsaðila okkar hlýtur
að auka möguleika hans á meiri sölu.
Peter F. Rau segir að meðal vandamála
hjá mörgum bílaframleiðendum hafi verið
langur þróunartími frá því að nýjung kem-
ur fram og þar til hún er komin í fjölda-
framleiðslu. Segir hann að þrátt fyrir að
ýmsar nýjungar til dæmis læsivarðir heml—-
ar og önnur öryggismál hafi verið fundin
upp af evrópskum framleiðendum hafi
Japanir ávallt verið fljótir að koma þessum
nýjungum í framleiðslu sína. Segir hann
mikilvægt fyrir bílaframleiðanda að halda
ákveðinni tækniforystu og það hafí jafnan
verið stefna Mercedes Benz. Þá segir hann
ýmsa þjónustu við Benz eigendur í Þýska-
og úr sæti ökumanns má einnig opna og
loka öftustu hliðargluggunum en það er
mjög þægilegt til að fá skjóta loftræsingu.
Annars er miðstöðvarkerfi öflugt og þótt
ekki hafi reynt verulega á það í hlýjunni
þessa síðsumarsdaga er miðstöðin fljót að
hreinsa móðu.
Voyager er sjö manna bíll, einn farþegi
við hlið ökumanns, tveir í miðjusæti og
þrír aftast. Framsætin eru að sjálfsögðu
þægilegust en vel fer þó um alla og einkan-
lega er fótarými gott í öllum sætum. Allir
sjá vel út og umgangur um hliðarhurðina
er ágætur. Það er rennihurð og þarf
ákveðna lagni við að umgangast hana eins
og alltaf með slíkár hurðir. Rennihurðir
eru að mörgu leyti hentugar í þessum
ferðabílum en oft finnst manni samt að
venjulegar hurðir séu ekkert síðri og þær
eru áreiðanlega léttari í viðhaldi.
Voyager er 4,52 metra langur og 1,83
metrar á breidd. Hann vegur 1.745 kg og
getur borið 630 kg.
Auðveldur akstur
Akstur Chrysler Voyager er í sem fæst-
um orðum sagt auðveldur. Vinnslan er góð
og skiptingin er lipur. í borgarumferð er
þetta náttúrlega óþarflega stór bíll (að
minnsta kosti fyrir allan venjulegan fjöl-
skyldusnúning) og þótt hann sé ekkert
erfiður viðfangs er ljóst að hann nýtur sín
best til ferðalaga. Nokkrir Voyager eru þó
komnir í leiguakstur en það eru reyndar
landi hafa verið stóraukna. Fari bíll þeirra
á verkstæði sé jafnan boðið upp á akstur
tilbaka eða jafnvel lánaður bíll á meðan.
-Við erum ekki aðeins að selja bílinn sjálf-
an heldur ýmislegt sem fylgir því að eiga
einmitt þessa bíla. Annað atriði sem nú
flest bílar með eindrifi.
Eins og áður er getið fer vel um alla í
sætum Voyager. Vel er búið að ökumanni
sem getur stillt sæti sitt á flesta vegu,
fram-aftur, upp-niður, fram- og aftur halla
svo og halla á sætisbaki. Ekki þarf langan
tíma til að átta sig á öllum tækjum og
aðstæðum og er ökumaður því fljótur að
ná tökum á akstri og á það einnig við um
stærð bílsins.
Uti á vegum koma í ljós góðir aksturseig-
inleikar því fjöðrun er ágæt og bíllinn ligg-
ur vel. Ákjósanlegt hefði verið að geta
prófað bílinn líka í hálku því þar er líklegt
að aldrifið skili góðum árangri. Hávaði frá
vél eða vegi er ekki truflandi en best væri
að setið væri í öllum sætum á ferðalögum
því annars er hætt við dálitlum titringi frá
þeim.
Mikið eða lítið verð?
Chrysler Voyager kostar kr. 2.656.900
kominn á götuna ryðvarinn og skráður,
þ.e. sé hann staðgreiddur. Þetta er allmik-
ið verð en fyrir það fæst líka allgóður
ferða- og fjölskyldubíll sem tekur sjö manns
en ekki mikinn farangur nema farþegar
séu færri. Til eru ódýrari ferðabílar en hér
eru menn að greiða talsvert fyrir ýmis
þægindi. Eins og áður snýst því spurningin
um lítið eða mikið verð því um það hversu
langt menn vilja ganga í að búa vel að sér
í bíl sínum.
jt
er orðið mjög mikilvægt en það er hversu
mikill hluti af bílnum er endurnýtanlegur
og að dregið sé eins og kostur er úr meng-
un af völdum bílanna.
jt
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hallgrímur Gunnarsson framkvæmdastjóri Ræsis (lengst til vinstri) ásamt þeim
Herbert Brustle og Peter F. Rau og lengst til hægri er Geir Þorsteinsson sem áður
veitti Ræsi forstöðu. Þeir standa hér við einn glæsivagninn, Mercedes Benz 500 SE.
10