Lesbók Morgunblaðsins - 14.09.1991, Qupperneq 14
Central Arcade, yfirbyggð verzlanagata í
miðbnorginni.
Brú á Tyne frá 1929 og farþegaskip, sem nú
hýsir næturklúbb.
Aðalleikhús borg-
arinnar, Theatre
Royal.
Trójuhesturinn, nútíma skúlptúr á Laing-
listasafninu.
Eldon Square,
geysistór verzla-
namiðstöð við
samnefnt aðalt-
org borgarinnar.
I kringlunni, sem
þarna sést, er
kaffihús.
hafa verið mjög varir um sig, því
múrinn var sagður sá rammger-
asti af borgarmúrum í Evrópu.
Hlutar af þessum múr sjást enn
og innan hans risu stásslegar
byggingar eins og Nikulásarkirkj-
an, sem er frá 14. og 15. öld með
afar einkennilegum turni. Niður
» undir ánni er Bessie Surtees Ho-
use, kaupmannshús frá 16. öld
með einhveiju elzta gleri í glugg-
um, sem fundið verður og kennt
undurfagra stúlku, sem var erf-
ingi að öllu þessu, en varð ást-
fangin af blásnauðum pilti, sem
nam hana á brott úr ríkidæminu.
Sú ástarsaga fékk þó hamingju-
samlegan endi.
Glæsileg miðborg
Skipulag miðbæjarins er frá
Viktoríutímanum og að því var
„ staðið með miklum metnaði. i
miðpunkti stendur Earl Grey á
hárri súlu; forsætisráðherra 1832,
pólitískur framfaramaður, en
Bretum þótti jafnvel enn meira
um vert, að hann útvegaði þeim-
ágætt te, sem síðan er við hann
kennt.
Minnismerkið stendur á Eldon
Square, sem er víðáttumikið og
af mannijöldanum, sem þar nýtur
sólar og blíðu í hádeginu, skilur
maður betur að hér skuli vera
grundvöllur fyrir öllum þessum
verzlunum. Frá Eldon Square er
5-10 mínútna gangur að járn-
brautarstöðinni og beint á móti
henni er County Thistle Hotel,
mjög gott fjögurra stjörnu hótel
þar sem þessi skrifari gisti og
minnst er á hér vegna þess, að á
annari hæð hótelsins er matsalur,
sem heitir Mozart Room. Þar
gengur maður inn í gömlu Evr-
ópu, þar sem arisókratískur glæsi-
bragur rík'ir ennþá. Þeir sem eyði-
lögðu Gyllta salinn á Hótel Borg,
hefðu betur haft þennan að fyrir-
mynd.
Allur miðhluti Newcastle er
byggður úr sandsteini, annað-
hvort á síðustu öld eða snemma
á þessari. Hann hefur þetta stór-
borgarlega yfirbragð, sem til að
mynda sést ekki í miðbæ
Reykjavíkur. Þessar byggingar
eru eldri en modernisminn, sem
eyðilagt hefur heilu borgarhverfin
á þessari öld. Maður sér líka að
Bretinn reynir að láta það nýja
ríma við það sem fyrir er; til
dæmis hefur þeim tekizt að láta
hinar risavöxnu verzlanasam-
steypur við Eldon Square, falla inn
í borgarumhverfið.
Þegar ekki er verið
að verzla...
Stundum heyrist spurt, hvað
hægt sé að gera í þessari eða hinni
borginni „þegar ekki er verið að
verzla“. Hvað Newcastle varðar
er ýmislegt í boði og gæti farið
eftir því, hvort menn eru sportlega
sinnaðir eða leitandi eftir ein-
hvetju af listmenningarsviðinu.
í fyrsta lagi er stutt að aka
yfir til Carlisle, sem er í jaðri
Vatnahéraðsins á vesturströnd-
. inni. Þangað liggur Hadríanus-
armúrinn, sem áður er á minnst
og meðfram honum er margt að
sjá. Fótboltavöllurinn er í sjónfæri
úr miðborginni og þeir Newc-
astle-menn leika í KR-búningum
og eru í annarri deild. Margir
golfvellir eru í næsta nágrenni og
meðal þeirra sem bjóða gesti vel-
komna er Tyneside, 10 km vestur
frá Newcastle; sá völlur er lagður
bæði í heiðlendi og skóglendi, par
71, SS 69. Stressholme hjá Darl-
ington, dálítið vestar, er fallegur
skógarvöllur, par 71. Prudhol, 16
km vestur frá borginni er skógar-
völlur, par og SS 69. Northumber-
land í Gosforth Park við þjóðveg-
inn Al, um 10 km vestur frá
borginni, par og SS 72 og Arcott
Hall, 12 km í norður frá borg-
f. inni, lagður í heiðlendi, par og
SS 70. Ekki er nema liðlega
klukkutíma akstur norður til
North Berwick, Skotlandsmegin,
til þess að komast á velli, sem
Qöldi íslendinga þekkir vel. Á
þeirri leið er farið framhjá rústum
af klaustrinu Lindisfarne, sem er
sögufrægur staður, því þar var
fyrsta árás norrænna manna gerð
á ’Bretlandseyjar árið 792 og
markaði upphaf víkingaaldar.
Myndlist er hægt að sjá í Laing
listasafninu við Highham Place.
Mér sýndist safnið búa allvel af
enskri 19. aldar list og þar voru
nokkrir litlir Turnerar að spreyta
sig á ljósinu í anda meistarans.
Það er alltaf misjafnt hvernig
maður hittir á í söfnum, sem
leggja stóran hluta undir sérsýn-
ingar. I septemberbyijun var ég
svo heppinn að hitta á sérsýningu
á Stanley Spencer, enskum mál-
ara, sem var uppá sitt besta frá
1930-50 og er eiginlega engum
líkur.
Sinfóníuhljómsveit borgarinnar
er með vikulega hljómleika úr því
þessi tími er kominn. Starfandi
ópera er ekki, en stundum eru
færðar upp óperur frá London í
Theatre Royale, þar sem ég sá
Private Lives eftir Noel Coward,
sú sýning var mönnuð leikurum
frá London. Einhversstaðar sá ég
skrifað, að það fræga Royal Sha-
kespeare Company kallaði leik-
húsið í Newcastie sitt annað heim-
ili og kæmi þangað reglulega, til
að mynda í sumar með „Gæja og
pæjur“ pg söngleikinn „Kiss me
Kate.“ Ég mæli með kvöldstund
í þessu leikhúsi, sem er ekki stórt,
en byggt á klassískan máta með
þremur hæðum af bogadregnum
svölum og maður er aldrei langt
frá því sem er að gerast á sviðinu.
Fleiri leikhús eru í borginni, þar
á meða! Tyne Theatre and Opera
House, Newcastle Playhouse, Live
Theatre, Peoples Theatre og Lip-
man Theatre. Þeim sem hugsan-
lega verða á ferðinni í október,
skal bent á söngleikinn „hárið“ í
Tyne Theatre and Opera House
og á sama stað verður tízkufröm-
uðurinn Bruce Oldfield þann 15.
nóvember með risa-tízkusýningu.
Ef ekkert af þessu dugar, má
benda á nokkra möguleika úr
næturlífinu. Á ánni Tyne liggur
við festar ljósum prýtt farþega-
skip. Það er ekki lengur ætlað. til
siglinga, en'hýsir nú næturklúbb-
inn Tuxedo Royale. Þar að auki
er Studio í New Bridge Street og
í tengslum við Crest-hótelið er
Club Madison & Marcy's. Á Ma-
yfair er spilað þungarokk og
blaðamaður Lesbókar forðaði sér
öfugur út, þegar hann fékk hljóð-
bylgjurnar í belginn. Það er ekki
minn tebolli, not my cup of tea,
eins og Bretinn segir og mun
betra að fá eitthvað annað í belg-
inn, til að mynda góðan bjór. Ölkr-
árnar eru að sjálfsögðu út um
allt, en sá „öllari" sem sérstaklega
tengist Newcastle er Brown Aie,
dökkur bjór. Elztu krárnar eru
niðri á árbakka, Quayside, og má
til dæmis benda á Copperage í
húsi frá 16. öld, Hanrahans, sem
sagður er mjög í tízku nú, og
Crown Posada, þar sem steint
gler er í gluggum.
Kínahverfi, Chinatown, hefur
verið að myndast og eins og nærri
má geta er þar úrval kínverskra
veitingahúsa. Það er svo eins og
annarsstaðar í borgum, að hægt
er að finna ítalska matstaði,
mexíkanska, tailenska, afríska og
allt niður í Mc Donalds.
Metro Centre er heim-
ur út af fyrir sig.
Newcastle, sem fyrir 2-3 ára-
tugum var sótsvört iðnaðarborg,
er nú orðin bjartleit verzlunarborg
og allur kolareykur víðs fjarri.
Verzlanaframboðið er svo yfir-
gengilegt, að það bendir til þess
að hingað komi fólk úr öllu norð-
ánverðu Englandi til þess að
verzla, enda mun það vera svo.
Fyrir utan verzlunargöturnar
inni- -í- -borginni eru tvær risa-
„Kringlur" eða „Mall“ eins og
slíkir verzlanakjarnar eru nefndir
í Ameríku. Skammt utan við
Newcastle, við þjóðveginn Al,
sem liggur frá London um Norð-
imbraland og áfram til Edinborg-
ar, er verzlanamiðstöðin Metro
Centre, sem sögð er vera sú
stærsta í allri Evrópu. Þar eru
undir einu þaki 360 verzlanir,
stórar og smáar. Að ganga fram-
hjá þeim öllum, telst vera 4 km.
Þar er vel hægt að villast, en
óþarft því auðvelt er að fara eftir
leiðsögukerfi, sem byggist á lit-
um. Búðirnar eru á tveimur hæð-
um, svipað og í Kringlunni. Verð-
lagið á að vera hagstætt, lítið eitt
lægra en í Glasgow, var okkur
sagt.
Auðvelt er að komast úr mið-
borginni út á Metro Centre með
strætisvögnum og 60 sinnum á
dag eru lestarferðir þangað. 12
þúsund bílastæði eru svo handa
þeim sem koma akandi og fyrir
þau þarf ekki að greiða. Á síðasta
ári komu hingað 2.5 milljónir
manna til að verzla, enda búa 2
milljónir manna í hálftíma aksturs
fjarlægð eða minna. Til Newc-
astle gengur bílfeija frá Bergen
í Noregi og þaðan komu á sl. ári
100 þúsund manns; einnig 10
þúsund rútubílar víðsvegar að.
Af þessu mætti ráða, að biðrað-
ir og þrengsli séu í Metro Centre,
en því er víðs fjarri. Starfsfólkið
er um 6 þúsund og búðirnar eru
opnar daglega til kl. 20 og til kl.
19 á laugardögum.
Barnagæzla er á staðnum og
ýmislegt hægt að gera annað en
að verzla. Til dæmis eru þar 50
veitingastaðir af öllum hugsanleg-
um tegundum, en þar er líka
hægt að grípa í bowling og velja
um 10 kvikmyndasali. Metro Cen-
tre er talinn mjög öruggur stað-'
ur; þar eru sjónvarpstökuvélar.
víðsvegar, svo hægt er að fylgjast
með öllu o g þar að auki góð örygg-
isgæzla.
Eldon Square
í miðri miðborg Newcastle er
verzlunarmiðstöðin Eldon Square,
sem er svo stór, að þar er að finna
stærsta verzlanasvæði í borg á
Bretlandseyjum, þegar London er
frátalin - og verðlagið er hag-
stætt. Þar eru 180 búðir á tveim-
ur hæðum, en þar að auki er inn-
angengt í margar stórverzlanir
svo sem C&A. í raun og veru eru
þetta yfirbyggðar göngugötur,
víða með glerþaki, og fyrirmyndir
að Kringlunni hjá okkur munu
hafa verið sóttar hingað að ein-
hveiju leyti.
Vel er séð fyrir því að tengja
Eldon Square samgöngum. Stræt-
isvagnar ganga gegnum kjallar-
ann og stoppa þar, en bílum er
hægt að koma fyrir í tveimur bíla-
geymsluhúsum og auk þess eru
bílastæði á þökum. Reynt er að
halda æskilegu jafnvægi í vöru-
framboði; til dæmis er leigt
ákveðnum fjölda af skóbúðum eða
tízkuverzlunum og sá fjöldi er
ekki látinn breytast. Daglega er
opið í Eldon Centre frá 9-17.30,
en til kl. 18 á laugardögum.
Lýkur þar að segja frá verzlun-
arborginni Newcastle upon Tyne.
Líklega mundi Einar Benedikts-
son ekki yrkja um Tínarsmiðjur,
væri hann þar á ferðinni núna.
En stórbrotinn glæsileiki höfðaði
til þessa heimsmanns, sem Einar
var og kannski fengi hann ekki
síður innblástur á Eldon Square
og í Metro Centre.
Hvernig er svo hægt að komast
til Newcastle? Til þess eru ýmsar
leiðir og má benda á, að Flugleið-
ir fljúga daglega til London og
þaðan eru tíðar lestarferðir. Flog-
ið er tvisvar í viku til Glasgow
og þaðan eru lestarferðir einnig,
sem taka skemmri tíma. Síðla
þessa mánaðar hefjast svo á veg-
um Ferðaskrifstofunnar Alís í
Hafnarfirði flugferðir beint til
Newcastle tvisvar í viku. Annars-
vegar verða fjögurra daga ferðir
og hinsvegar fímm daga.
Gísli Sigurðsson
f
14