Lesbók Morgunblaðsins - 18.01.1997, Síða 7
PORTRET ársins: Spessi eftir Kristin Ingvarsson, Morgunblaðinu.
VIÐ GRJÓTNES á Melrakkasléttu, ein mynda Ragnars Axelssonar Morgunblaðinu, sem átti bestu blaðaljósmynd ársins, á sýningunni í Gerðarsafni.
MYNDARÖÐ ársins: íslendingadagur á Gimli í Kanada eftir Einar Fal Ingólfsson,
Morgunblaðinu.
FJÓRÐA sameiginlega Ijósmyndasýning
Blaðamannafélags íslands og Blaðaljós-
myndarafélags íslands stendur yfir í
Gerðarsafni í Kópavogi þessa dagana. Er hún
sú viðamesta sem haldin hefur verið til þessa
- samtals á þriðja hundrað myndir sem fylla
báða aðalsýningarsali safnsins.
Sýningunni er skipt upp í tvo hluta. Ann-
ars vegar er um að ræða yfirlit bestu blaða-
og fréttamynda frá nýliðnu ári, líkt og BÍ
og BLÍ hafa staðið fyrir undanfarin ár en
þar má sjá liðlega eitt hundrað myndir sem
dómnefnd valdi úr á fimmta hundrað innsend-
um myndum. Hins vegar getur að líta fjöl-
margar þekktar fréttamyndir frá liðnum
árum, þar á meðal „fréttamyndir ársins" síð-
ustu árin og myndir frá fréttnæmum viðburð-
um, svo sem Vestmannaeyjagosinu, leiðtoga-
fundi Reagans og Gorbatsjovs í Reykjavík
og skákeinvígi Fischers og Spasskíjs en sýn-
ingin er fyrsti liðurinn í hátíðardagskrá í til-
efni af því að í nóvember næstkomandi verða
liðin eitt hundrað ár frá stofnun Blaðamanna-
félags íslands.
„Það fer vel á því að minnast þessara tima-
móta með glæsilegri ljósmyndasýningu,“ seg-
ir Lúðvík Geirsson formaður BÍ í sýningar-
skrá. „Liðlega öld er nú liðin frá því að ljós-
myndatæknin ruddi sér til rúms og fyrstu
fréttamyndirnar fóru að birtast í fréttablöð-
um hérlendis. Jón Ólafsson upphafsmaður
að stofnun Blaðamannafélagsins mun fyrstur
íslenskra ritstjóra hafa birt frétta- og manna-
mynd í blaði sínu Skuld árið 1880, en áður
höfðu birst margvíslegar teikningar í blöðum.
Þessar fyrstu myndir voru dúk- og tréristur."
Og áfram heldur Lúðvík: „Fyrsta raun-
verulega fréttamyndin sem birtist í íslensku
blaði mun vera mynd af Friðriki VIII kon-
ungi á svölum Amalienborgar eftir að hann
tók við völdum í janúar 1906 fyrir liðlega
90 árum. Myndin birtist í ísafold „aðeins“
17 dögum eftir að atburðurinn gerðistogvar
myndin fengin að láni frá Politiken i Kaup-
mannahöfn."
Við opnun sýningarinnar var, sem fyrr,
tilkynnt um val dómnefndar á blaðaljósmynd-
um ársins, sem getur að líta hér á opnunni,
ef undan er skilin mynd ársins 1996, eftir
Ragnar Axelsson á Morgunblaðinu, sem birt-
ist í blaðinu siðastliðinn þriðjudag.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 18. JANÚAR 1997 7