Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 18.01.1997, Qupperneq 10

Lesbók Morgunblaðsins - 18.01.1997, Qupperneq 10
I I I I I 1 Morgunblaðið/Kristinn HRINGUR Jóhannesson á uppgangstímum sínum í Handíða- og myndlistaskólanum 1951 eða 52. Að baki hans eru Sigurður Sigurðsson, Lúðvíg Guðmundsson og Valtýr Pétursson. „HIÐ SMAAER JAFNLÍTIÐ SMÁTT“... I tilefni tveggja sýninga á myndverkum Hrings Jóhannessonar, myndlistarmanns, sem féll frá á síð- asta ári, á Kjarvalsstöóum og í Listhúsinu Fold, lítur BRAGIÁSGEIRSSON til baka, rifjar ýmislegt upp og kemur víða við. 4- ÁNTITILS, olía; LEIÐIR okkar Hrings Jóhannessonar sköruðust í ársbytjun 1950, en þá var enn óráðið hvemig framhalds- menntun minni yrði háttað í mynd- list, ef hún yrði þá nokkur. Til að fá reglu á hlutina og fylla upp at- hafnalega eyðu, settist ég aftur í Myndlista- og handíðaskólann og var þar til vors undir handleiðslu Jóns Engil- berts. Mikil þáttaskil höfðu orðið á skólahaldinu við brotthvarf yfirkennarans Kurt Ziers til heimalandsins sumarið 1949. Hann hafði verið ráðinn að merkri skólastofnun í Óðinsskógi, Heppenheim, nokkum veginn miðja vegu milli Darmstadt og Mannheim. Varð rektor skólans tveim árum seinna, sem segir nokkra sögu um manninn. Örlagaríkum áratug var að ljúka með mik- illi uppstokkun ailra gilda eftir ragnarök heims- styijaldarinnar, og við upphaf sjötta áratugar- ins áttu dijúgar hræringar sér stað, ný og fersk viðhorf ruddu sér rúms. Fyrri helmingur aldarinnar var að baki og sá seinni að hefjast með öllum þeim væntingum sem slíkum tíma- mótum fylgja. Mikil mannlífsgeijun var í gangi um það leyti sem kennaralið skólans var end- urnýjað eftir að athafnasemi Ziers naut ekki lengur. Hafði verið allt í öllu varðandi myndlist- arkennsluna frá stofnun skólans 1939, og með brottför hans urðu eðlilega all nokkur þáttaskil. Lítill afturkippur varð þó á skólastarfinu fyrst í stað, þótt andinn væri snöggtum annar og nýju kennararnir, þeir Sigurður Sigurðsson og Björn Th. Björnsson, á byijunarreit á vett- vanginum, Valgerður Briem hafði hins vegar byijað árið áður og Jón Engilberts leiðbeint tímabundið. Önnur viðhorf réðu nú ferðinni og í upphafi skilanna var mikilsvert að fleiri nem- endur settust í fomámsdeild en ég held að dæmi hafí verið til um og vinnugleði þeirra margra viðbmgðið. Hér var komin ný fram- sækin kynslóð, má nefna Guðmund Guðmunds- son (Erró), Hring Jóhannesson, Kristínu Jóns- dóttur frá Munkaþverá, Björn Birni og Sigríði Björnsdóttur sem öll áttu eftir að láta mikið að sér kveða á myndlistarvettvangi, flest einn- ig uppfræðsluvettvangi, eiginlega held ég að allt liðið hafi skilað verðmætu verki fyrir þjóð- arbúið. Myndlistamám þótti ekki gull í ask- ana, og af þeim sökum höfðu sex af tíu látið skrá sig í kennaradeild, fleiri gerðu það árið eftir, allur var varinn góður. Þeir sem höfðu þannig forsjálnina í malnum urðu þó ekki síð- ur landskunnir á hérlendum myndlistarvett- vangi og einn á Evrópuvettvangi svo sem margur veit. Og sumir sem einungis höfðu myndlistina sem framtíðarsýn urðu á sama hátt einnig vel metnir kennarar. Þeirra á með- al Hringur Jóhannesson, sem jafnframt því að vera vígður í myndlistinni var einn af burðarás- um Myndlistarskóla Reykjavíkur um áratuga- skeið, kenndi einnig á afmörkuðu tímabili við gamla skólann sinn. Tveir úr þessum hópi vonglaðra ungmenna eru fallnir frá, Jóhannes Jörundsson og Hring- ur, báðir um aldur fram. Það gustaði af þeim félagslynda, fjöruga og góða dreng Jóhannesi Jörundssyni, en ekki varð eins mikið um at- hafnasemi á vettvanginum vegna einhvers eirð- arleysis, sem kannski mátti rekja til hjarta- galla sem leiddi seinna til fráfalls hans á fyrri hluta sjöunda áratugarins. Af þeim fjórum lengra komnum, norðan megin við hið mikla græna tjald sem skipti aflangri stofunni og myndlistardeildunum tveim, er skrifari einn eftir á vettvangi. Jónas Guðmundsson stýri- maður og Þorsteinn Þorsteinsson látnir, en kornung stúlka, Þuríður að nafni, veiktist af botnlangabólgu á góu eða einmánuði. Munu einhver mistök við svæfíngu hafa laskað lungu hennar, sem batt enda á frekara nám í málun. Myndlist var til skamms tíma ekki gilt námsfag í augum kennsluyfírvalda, og því lifði hún á kennaradeildinni um áratugaskeið. Má því segja að myndlistarspírur hafi farið bak- dyramegin inn í kennslukerfið með fulltingi hins klóka og framsýna vitmanns um vægi sjónmennta, Lúðvígs Guðmundssonar, stofn- anda skólans. Veturinn 1949-50 var þannig myndarlegt lið byijenda sunnan megin við græna tjaldið í stóru stofunni á þriðju hæð á Laugavegi 118. Hún var við enda gangs sem markaði allt húsnæði skólans. Grunnfögin voru teiknun og málun ásamt ígripi í ýmsa hliðargeira og þetta tveggja ára nám nýttist mönnum merki- lega vel til inntöku í erlenda listaháskóla. Um skilvirkni kennslunnar telst Hringur Jóhannesson skýrt dæmi, því þrátt fyrir að hann eyddi ekki árum í skólum erlendis eins og ýmsir félagar hans, stóð list hans hand- verkslega séð naumast að baki þeirra. Hringur var frá upphafí lipur teiknari, tók stórstígum framförum og meðtók þá þjálfun sem einungis fæst með stöðugum þrásetum fyrir framan myndefnin, þroskar hugsæið hægt og bítandi. Þá nutu spírurnar þess ríkulega að hafa fyrir framan sig eina þokkafyllstu fyrirsætu sem inn fyrir dyr skólans hefur komið, sem var Ásta Sigurðardóttir skáldkona, með sitt seiðandi munúðarfulla útlit, mjúka og þrýstna efnislega sköpunarverk. Það hafði ekki svo lítið að segja, þótt allir hafi trúlega ekki verið sér nægilega meðvitaðir þar um. Heimurinn var annar, þó ekki fyrir fortíðar- þrána og að efnislegu fijóhirslurnar voru virk- ari, heldur vegna annars siðgæðis og annarra gilda. Fjarlægðirnar enn miklar og mikið mál að vera sigldur, það eitt var ígildi geislabaugs yfir hinum forfrömuðu, og enginn samur í augum þeirra hvunndagslegu peða er heima sátu og hossuðu heimskum gikkjum. Nú er aldarlok færast óðum nær, lifa menn sem aldrei fyrr á tímum dýrkunar á hinu stóra, grófa, siðlausa og ögrandi á öllum sviðum. Menn reyna að leggja undir sig heiminn með því að troða sér fram fyrir náungann, jafnt á vettvangi efnis sem anda. Mest og stærst er djásn og kóróna tilverunnar, skiptir þá engu hveiju er misboðið, skynsviðinu, siðgæðinu sjóntaugunum né útverði skilningarvitanna, sjálfri heyrninni, sem verður verst úti í þessum háskalega leik. Hraðinn, græðgin, síbyljan, gervimenningin og truflun innri boðkerfa liggja hér til grundvallar. Leikurinn um eitraðan ver- 10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 18. JANÚAR 1997

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.