Lesbók Morgunblaðsins - 18.01.1997, Síða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 18.01.1997, Síða 12
ERLENDAR BÆKUR FRANK- ENSTEIN Mary Shelley: Frankenstein - The 1818 Text - Contexts: Nineteen - Century Responses - Modern Critisism. Edited by J. Poul Hunter. Norton & Company - New York - London 1996. A Norton Critical Edition. Flestir hafa heyrt Frankenstein nefndan. Kvikmyndir hafa verið unnar úr sögunni, sjónvarps- myndir og video-myndir. En það þvælist fyrir mörgum hvort ófreskjan hét Frankenstein eða hvort nafnið er heiti þess sem bjó ófreskjuna til, heiti vísinda- mannsins sem skapaði hana, þ.e. ófreskjuna. Frankenstein er oft talin til þeirra skáld- sagna sem nefndust „Gothic novels" eða hrollvekjur. Upphaf hrollvekjunnar í þessum dúr var The Castle of Otranto eftir Horace Walpole, kom út 1764. Af hrollvekjum frá síðari hluta 18. aldar og fyrri hluta 19. ald- ar er Frankenstein sú eina, sem enn er lesin og rædd. Höfundurinn var Mary Shelley fylgi- og eiginkona Percy Bysshe Shelley. Shelley og Mary ásamt Byron lávarði og fleira fólki leigðu sér villu á strönd Leman- vatnsins skammt frá Genf. Júnímánuður árið 1816 var vætusamur og hópurinn dreifði huganum með því að segja hryllings- og draugasögur. Síðan var ákveðið að hver og einn skyldi setja saman hryliingssögu og allir hófust handa, en ekkert varð úr fram- haldinu utan að Mary fann kveikju að sögu, sem hún fullgerði og kom út 1818. Sir Walter Scott skrifaði ritdóm um bók- ina í Edinburgh Magazin í marsmánuði 1818, sem er birtur meðal margvíslegra ritdóma og umfjallana um bókina og hugarheim höf- undarins og útlegginga á persónum sögunn- ar þá einkum Frankenstein og ófreskjunni. Sagan hefst með frásögn af rannsóknarferð til norðurpólsins. Englendingurinn sem segir söguna hittir þar af tilviljun mann að nafni Frankenstein, sem segir hinum sögu sína. Og þar með söguna af því hvernig hann skapaði lifandi veru og í mannsmynd með vísindalegum aðferðum. Þessi sköpun tekur á sig mynd ófreskjunnar, sem Frankenstein á í stöðugu stríði við allt sitt líf. Sagan fjall- ar um fegurð og ofboðslegar þjáningar, valda- og framagirni, snilld og skelfingu, hættur þekkingarinnar og hrikalegar afleið- ingar óbeislaðs „hugvits", ást og hatur. Áhuginn á Frankenstein og ófreskju hans nú á dögum á sér augljósar ástæður. Fram- farir og gífurleg aukning þekkingar i líf- fræði er komin á það stig að gjörlegt er að móta lifandi verur og þar með mannverur með litningatilfærslum. Gjörlegt virðist að móta mennsk fyrirbrigði með því að „leysa, tengja og sundurgreina" frumhvatana. Gena-rannsóknir og flokkun genanna er hita- mál nú á dögum, líffræðingar telja sig sjá fyrir mótunarafi í sköpuninni. Jafnframt er mörgum þeirra ljós hættan sem mannheimi getur stafað af þessari þekkingu og hagnýt- ingu hennar. Þessi þekking nær til þess að geta breytt erfðavísunum, en Frankenstein Maríu Shel- ley skapaði mennska veru úr líkamspörtum, sem hann tíndi saman í líkhúsum Genfar á sínum tfma og honum tekst að blása lífi í mótaða mannsmynd. Þar með hefst saga ófreskjunnar. Nú er að vita hvort breytingar á genunum muni geta myndað og ummynd- að mennskar verur og þá í hvaða átt? Sögu Maríu Shelley lýkur með dauða Frankensteins og í lokin kemur ófreskjan utan úr íshafsmistrinu, og lýsir kvölum sínum og hörmunugarlífi, glæpum og illvirkjum og kveður og hverfur úr í íshafsnóttina. Þótt ekki kæmu til áhugamál á genafræð- um og lífssköpun, þá er sagan lesturs virði, vegna hugkvæmni og frásagnargleði höfund- ar. Þessi útgáfa er byggð á fyrstu útgáfu söguonar 1818, og er gefín út með ritdóm- um, umsögnum og ritgerðum um tengsl sög- unnar við hugmyndafræði mannheima und- anfarin 180 ár. SIGLAUGUR BRYNLEIFSSON skjóðu og tekur að raða í hana. Stúlkan ætlar að hjálpa en konan kippir skjóðunni frá henni. Hún ætlar að raða sjálf. Hún gerir það á sinn hátt. Ég lít á klukkuna. Unglingurinn kemur til baka. Hann lötr- ar. Honum liggur ekki á. Stúlkan smellir strikamerkjunum í geislann og verðið er skráð. „Enginn poki?“ „Nei.“ „Þijú þúsund fímm hundruð og tuttugu,“ segir hún. Kon- an heldur áfram að raða. Þegar hún á bara eftir að setja skyrið og jógúrtina í skjóðuna hættir hún. Hún fer að taka upp úr henni aftur. „Er eitthvað að?“ segir stúlkan. „Nei,“ segir og konan og heldur áfram að taka upp úr töskunni. Hún grefur sig að endingu niður á botn og tekur fram seðlaveski. „Hvað var þetta mikið?“ „Þijú þúsund fímm hundruð og tuttugu," svarar stúlkan. Konan tekur seðil úr veskinu. „Eru þetta þúsund eða tvö þúsund krónur?“ segir hún. „Ég er ekki með gleraugun mín.“ „Þetta eru tvö þúsund krónur," svarar stúlkan. „Get ég hjálpað þér?“ „Nei,“ segir konan og færir vesk- ið fjær svo að stúlkan geti örugg- lega ekki teygt sig í það. Hún telur fram peningana. Tvö þúsund. Þijú þúsund. Einn hundrað króna pen- ingur. Annar. Þriðji. Fjórði. Nei, þetta eru víst fímmtíu krónur. „Er það ekki?“ „Jú,“ segir stúlkan. Konan hrærir í veskinu. „Ég á víst ekki fleiri hundrað króna pen- inga. Hérna eru fímmtíu, sextíu, BLOÐÞRYSTINGUR EFTIR PÁL HERSTEINSSON Kassarnir. AHs staóar jqfnlangar raóir. Þarna er skilti: „Hraókassi. Hámark 10 hlutir.“ Eg fer í röð- ina. Hún mjakast áfram. A undan mér er kona. Ekki gömul. FÖSTUDAGUR. Matarboð hjá forstjóranum í kvöld. Mæting stundvíslega klukkan sjö. Stundvísi. Það var eiginleikinn sem forstjórinn lagði áherslu á þegar ég byijaði fyrir tveim vikum. Mæting stundvíslega á morgnana. Mæting stundvís- lega á fundi, bæði innanhúss og úti í bæ þegar ég mætti fyrir hönd fyrirtækisins. Stundvísi úr matarhléi. Eina undantekning- in væri við vinnulok á kvöldin, hafði hann gefíð í skyn án þess að segja það berum orðum. Föstudagur og klukkan að verða sex. Verð að koma sér heim. Tíu mínútna akst- ur, tíu mínútur í sturtu, tíu mínútur að klæða mig. Tilbúinn klukkan hálfsjö. Eigin- konan hafði lofað að vera tilbúin_ að fara út úr dyrunum klukkan hálfsjö. Áætlaður akstur heim til forstjórans tuttugu mínút- ur. Við hefðum tíu mínútur upp á að hlaupa. Síminn hringir. Það er eiginkonan. Ungl- ingarnir á heimilinu eiga að fá að kaupa sér pítsu í kvöld en heimilið er gjörsamlega mjólkurlaust. Gæti ég ekki komið við í Hagkaupi? Best að kaupa brauð og ost í leiðinni. Og skyr og morgunkorn. Líka kló- settpappír. Hún væri sjálf að stíga inn í sturtuna. Umferðin. Ekki mjög mikil en hæg. Maðurinn í næsta bíl á undan er óeðlilega kurteis. Gefur alltaf réttinn. Hleypir sjö eða átta bílum inn inn í röðina fyrir framan sig. Viðgerðir á Hringbrautinni. Ein akrein í vestur. Ég flauta. Það hefur öfug áhrif. Fleiri fá að komast inn í röðina. Mig langar að hlaupa út úr bílnum og taka í lurginn á þessum manni. Ég er heitur í andlitinu. Það vottar fyrir höfuðverk. Opna gluggann. Mundi ég eftir blóðþrýstingslyfínu mínu í morgun? Hagkaup. Allt vitlaust að gera. Mánaða- mót. Ég raða í körfuna eftir minni. Rétt að taka epli líka úr því ég er hérna. Kassarnir. Alls staðar jafnlangar raðir. Þarna er skilti: „Hraðkassi. Hámark 10 hlutir." Ég fer í röðina. Hún mjakast áfram. Á undan mér er kona. Ekki gömul. Núorð- ið kalla ég engan gamlan sem er undir átt- ræðu. Kannski svona sjötug. Égtel í vagnin- um hjá henni. Sextán eða sautján hlutir. Ég segi ekkert. Bít á jaxlinn. Hún ætti ekki að vera í þessari röð. Það er komið að konunni. Vörurnar renna eftir færibandinu. „Þetta eru meira en tíu hlutir," segir afgreiðslustúlkan kuldalega. „Kannski tólf,“ segir konan. Stúlkan hristir höfuðið og horfír á mig með uppgjafarsvip. Konan horfír á mig líka. Hún skynjar sam- særi hneykslunar með mér og stúlkunni. Stúlkan hefur hraðar hendur. Strikamerk- ingarnar. Mjólk, brauð, smjör, mjólkurost- ur, lýsi, majones, lærissneiðar. Lærissneið- arnar fara í sérstakan plastpoka. Skyr og jógúrt. Skyrið og jógúrtin fara saman í glæran plastpoka. „Það á eftir að vigta þessa sveppi,“ segir stúlkan. „Nú,“ segir konan. Það vottar ekki fyrir undrun eða leiða í rödd hennar. Stúlkan hringir og legg- ur sveppina til hliðar. Niðursuðudósir. Grænar baunir, maís, afhýddir tómatar. „Það á eftir að vigta þessa banana,“ segir stúlkan og leggur þá til hliðar. Hún hringir aftur. Konan segir ekkert en horfír kulda- lega á mig. Klósettpappír, kerti. Síld í fötu. Síldin fær sinn plastpoka. Bið. Stúlkan hringir í þriðja sinn. Ungl- ingsdrengur kemur. Hann tekur sveppina og bananana og hverfur á braut. Ég fínn að konan horfír á mig. Ég gýt augunum á móti. Það er þótti í svipnum. Hún sér hve óþolinmóður ég er. Ég er heitur í framan. Áreiðanlega rauður. Ég hlýt að hafa gleymt að taka töflumar í morgun. Konan dregur fram samanvöndlaða sjötíu, áttatíu, níutíu, hundrað. „Eru þá ekki komnar fímmtíu krónur?“ „Jú,“ segir stúlkan þreytulega. Héma em tíu. Fimmt- án, sextán, sautján, átján, nítján, tuttugu. Er þetta þá ekki komið?" Stúlkan ráðfærir sig við skjáinn á kassan- um. „Jú,“ segir hún svo. Konan fær kvittun- ina. Brýtur hana saman varlega, eftir kúnst- arinnar reglum. Setur í veskið. Tekur að raða í skjóðuna sína aftur. Ég lít á klukkuna. Mér er runnin reiðin. Uppgjöf. Blóðþrýstingurinn er að lækka aftur. Af hveiju færir konan sig ekki fjær með töskuna? Stúlkan reynir ekki einu sinni að afgreiða mig meðan konan raðar í tösk- una. Það er ekki pláss til þess. Ég horfi á konuna. Stúlkan horfír á hana. Konan horf- ir í töskuna sína. Þegar síðasti hluturinn af sautján er kominn ofan í hana, lítur hún á mig. Hún veit að mér liggur á. Ég sé það á henni. En valdið er hennar og hún nýtur þess. Vald. Hve sætt það er. Síðast fer veskið ofan í töskuna. Ég flyt þungann af vinstri fæti yfír á þann hægri, tilbúinn að færa mig á staðinn þar sem konan stendur nú. Konan fer með vinstri höndina í kápuvasann. Hún er að leita að einhveiju en fínnur það ekki. Hún tekur höndina upp úr vasanum og setur hina höndina í hægri vasann. Hún dregur upp fíngerða leðurhanska. Hún setur þá ofan á töskuna. Tekur hægri hanskann og byijar að klæða sig í hann. Hann er þröngur. Það tekur sinn tíma. Stúlkan horfír á mig og lyftir brúnum. Við erum að hugsa það sama. Konan er komin í hanskann. Hún tekur vinstri hanskann. Hann dettur á gólfið. Ég beygi mig til að ná í hann fyrir konuna. Ég geri hvað sem er til að flýta fyrir. En konan kemur á óvart. Eldsnöggt beygir hún sig og er á undan mér að ná í hanskann. Starir á mig. Það er sambland af þótta og ótta í svipnum. Hélt hún að ég ætlaði að stela honum? Konan tekur skjóðuna sína og býst til að ganga í burtu. Stansar. Snýr sér að mér. Ætlar að segja eitthvað en hættir við. Hún gengur í burtu. Það er komið að mér. Léttir. Ég brosi framan í manninn fyrir aftan mig. Hann glottir á móti. Við vitum báðir að nú mun allt ganga hratt fyrir sig. Stúlkan bregður strikamerkjunum að geislanum. Mjólk, brauð. Stúlkan lítur upp. Hún hikar. „Það á eftir að vigta þessi epli,“ segir hún svo. Höfundurinn er prófessor viö Hóskóla íslands. ' 12 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 18. JANÚAR 1997

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.