Lesbók Morgunblaðsins - 12.04.1997, Blaðsíða 2
SAGAN
GLEYMDA
SKÁLDSAGAN „Den glemte historie“
(Sagan gleymda) eftir Jon Hoyer
kemur út í Danmörku á mánudag-
inn.
Sagan byggist á sögulegum atburðum
á Islandi á þjóðveldis-
öld. Höfðinginn Haf-
iiði á ungan, ofstækis-
fullan og hefnigjarn-
an frænda, Má að
nafni. Már á í deilum
við Ólaf, frænda
Þorgils, annars valda-
mikils höfðingja.
Deilurnar leiða til
átaka milli ætta þegar
Már vegur Ólaf.
Allt logar i ófriði
Sagan er sögð rúmri öld eftir atburð-
ina af sonardóttur Más sem misst hefur
mann sinn, þrjá syni og sjö sonarsyni í
vígaferlum. Hún spáir þjóðveldinu falli
vegna sundrungar innanlands, en allt
logar í ófriði. Norðmenn gera sitt til að
etja ættunum saman i þeirri von að geta
náð undirtökum og að lokum lagt landið
undir sig.
Höfundurinn Jon Hoyer er fæddur
1942 og er lektor í dönsku við Háskóla
íslands. Meðal bóka hans eru ljóðabæk-
ur, skáldsögur, smásagansöfn og
barnabækur. Fyrsta bók hans var ljóð-
sagan „Den lukkede vej“ (1977) sem fjall-
ar um Egil Skallagrímsson og hlaut hún
góðar viðtökur í Danmörku.
FRÁ tónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands fyrir skólaæsku Kópavogs í Háskólabíói í gær.
TÓNLIST FYRIRALLA
Morgunblaðið/Ásdís
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT íslands tekur nú í apríl þátt í verkefn-
inu Tónlist fyrir alla. Það hefur tíðkast að hljómsveitin reki
ár hvert endahnútinn á verkefnið.
Leikið er á Selfossi, í Búðardal, Stykishólmi og Ólafsvík.
Skólatónleikar verða átta talsins, en opinberir tónleikar aðeins
tvennir að þessu sinni, á Selfossi 14. apríl kl. 20 og í Stykkis-
hólmi 16. apríl kl. 20.
Á ferðum um landið hefur sinfóníuhljómsveitin kappkostað
að fá til liðs við sig heimamenn á viðkomandi stöðum og svo
verður einnig að þessu sinni.
Einleikari er Einar St. Jónsson trompetleikari, hljómsveitar-
stjóri Perti Sakari.
HEMINGWAY-HÁTÍÐ
r r
I KEY WEST AFLYST
Key West. Reuter.
Ekki samboðin minningu rithöfundarins
segja synir hans
KLUKKAN hefur
glumið Hem-
ingway-dögunum í
Key West í Florida,
heldur sukksamri hátíð
til minningar um rithöf-
undinn, en í Key West
bjó hann og starfaði um
tíu ára skeið. Sonum
hans fannst hins vegar
komið nóg af pranginu
og kaupmennskunni í
kringum hátiðina og
ekki minningu föður
síns sæmandi.
Aðstandendur hátíð-
arinnar hefðu getað lát-
ið hart mæta hörðu og
farið með málið fyrir
dómstóla en þeir ákváðu
þess í stað að hætta við
hátíðina. Það þýðir, að
hætt hefur verið við
samkeppni um hver líkist
gamla manninum mest,
við kynningarferð á milli
kránna, sem Ernest
Hemingway stundaði, og
við smásagnakeppni
meðal ungra og upprenn-
andi rithöfunda.
Á hátíðinni, sem hefur
dregið til sín um 10.000
manns árlega frá 1981,
hefur jafnan farið mikið
fyrir gráskeggjuðum ís-
trubelgjum, sem reyna að slá hver annan út
í ýktum karlmennskutilburðum og drykkju-
skap, og þeim Hemingwaysonunum fannst
sem hátíðin öll væri orðin að skrípaleik og
til skammar fyrir minningu föður síns.
Vildu hlut i hagnaói
Á þessu máli er að vísu önnur hlið, peninga-
hliðin, en í febrúar sl. skrifaði lögfræðingur
Hemingwaysonanna aðstandendum hátíðar-
innar bréf þar hann krafðist þess, að þeir
fengju að hafa hönd í bagga með henni; 10%
Morgunbloðið/Einar Folur
Ferðamenn skoða „rithöfundarkofa" Hemingways, sem stend-
ur á bak við fbúðarhúsið í Key West.
af hagnaði og greiðslur fyrir sl. fimm ár.
Það var ekki samþykkt og heldur ákveðið
að hætta við allt saman.
Ekki eru allir afkomendur Hemingways
sáttir við þessi málalok, til dæmis ekki Lor-
ian Hemingway, sonardóttir hans, en hún
hefur setið í nefndinni, sem dæmt hefur
smásögurnar. Hún sagði, að það væri alveg
yfirgengilegt, að fólk, sem hefði selt nafn
föður síns á haglabyssur, skyldi leyfa sér að
kalla Key West-hátíðina ómerkilega. Átti hún
þá við deilumál, sem upp kom fyrir nokkrum
árum þegar Patrick, sonur Hemingways, seldi
haglabyssuframleiðanda fjölskyldunafnið en
Hemingway svipti sig lífi með haglabyssu
árið 1961.
Ernest
Hemingway
Aukin
kynning á Kúbu
Annar gamall kunningi Hemingways, Fid-
el Castro Kúbuforseti, hugsar sér gott til
glóðarinnar eftir uppákomuna í Key West
og kúbanska ferðamálaráðið ætlar að stór-
auka kynningu á ýmsu, sem tengist Hem-
ingway en hann bjó á Kúbu í 22 ár.
MENNING/
LISTIR
í NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn - Sigtúni
Mótunarárin í list Ásmundar Sveinssonar
Kjarvalsstaðir - Flókagötu
Sýn. verkum eftir Larry Bell, einnig sýn. á verk-
um eftir Kjarval til 11. maí.
Sýn. Hallsteins Sigurðssonar til 5. maí.
ASÍ - Ásmundarsalur - Freyjugötu 41
Kristján Steingrímur sýn. til 13. apríl
Listasafn íslands - Fríkirkjuvegi 7
Sýn. Ný aðföng til 20. apríl.
Safn Ásgríms Jónssonar - Bergstaðastræti
74
Sýning á úrvali vatnslitamynda eftir Ásgrím til
loka maímánaðar.
Gallerí Listakot - Laugavegi 70
Dröfn Guðmundsdóttir sýn. til 14. apríl.
Gallerí Hornið Elín P. Kolka og Sigríður Einars-
dóttir sýn. til 16. apríl.
Snegla listhús Erna Guðmarsdsóttir sýn. 12.
apríl.
Skruggusteinn - Hamraborg 20a
Rannveig Jónsdóttir sýnir til 25. apríl.
Mokka - Skólavörðustíg
Maður með mönnum: Þrjátíu sjálfboðaliðar á
aldrinum milli tvitugs og sextugs sýna.
Gerðuberg - Gerðubergi 3-5
Magnús Tómass. sýn. til 25. maí.
Sjónarhóll - Hverfisgötu 12
Magnús Tómasson sýnir til 27. apríl.
20m2 - Vesturgötu lOa
Guðrún Hjartardóttir sýn. til 26. apríl.
Galleríkeðjan - Sýnirými
Sýningar í apríl: Gallerí sýnibox: Morten Kilde-
væld Larsen. Gallerí Barmur: Stefán Jónsson,
berandi er Yean Fee Quay. Gallerí Hlust: Flutt
verk eftir Halldór Björn Runólfsson.
Gallerí Smíðar og skart - Skólavörðust. 16a
Irena Jensen sýnir til 28. apríl.
Gerðarsafn - Hamraborg 4 Kóp.
Sveinn Björnsson, Helga Egilsdóttir og Gréta
Mjöll Bjarnadóttir sýn. til 27. apríl.
Listhús 39 - Strandgötu 39, Hf.
Sýn. Einars Unnsteinssonar til 27. apríl.
Hafnarborg - Strandgötu 34 Hf.
Jón Thor Gislason sýn. í Sverrissal til 28. apríl.
í kaffistofu sýn. Barbara Vogler 28. apríl.
Gallerí Sævars Karls - Bankastræti 9
Páll á Húsafelli sýn. til 16. apríl.
Listasafn Sigurjóns - Laugarnestanga 70
Skólasýn. á vöidum verkum Siguijóns.
Hlaðvarpinn - Vesturgötu 3
Ragnhildur Stefánsdóttir sýn. til 20. apríl.
Nýlistasafnið - Vatnsstíg 3b
Sólveig Eggertsdóttir sýn. til 27. apríl.
Guðrún Einarsdóttir sýn. til 27. apríl.
Norræna húsið - við Hringbraut.
Sigurður Þórir Sigurðsson sýn. til 13. apríl.
Norskir myndlistarmenn til 11. maí.
Gallerí Ófeigs - Skólavörðustíg 5
Sigurður Þórir Sigurðsson sýn. til 13. apríl.
Ingólfsstræti 8 - Ingólfsstræti 8
Þorvaldur Þorsteinsson sýn. til 27. apríl.
Gallerí Stöðlakot - Bókhlöðustíg 6
Guðrún Svava Svavarsdóttir sýn. 13. apríl.
Undir pari - Smiðjustíg 3
Ráðhildur Ingadóttir sýn. til 19. apríl.
Þjóðminjasafn íslands - Hringbraut
Sýn. í Bogasal „Fyrrum átti ég falieg gull“.
Gallerí Fold - við Rauðarárstíg
Daði Guðbjörnsson sýn. til 20. apríl. Klaus Kretz-
er sýn. ljósmyndir í kynningarhorni.
Eden Hveragerði
Hannes Scheving sýn til. 21. apríl.
Laugardagur 12. april.
Norræna húsið: Eyrún Jónasdóttir og Ólafur
Vignir Albertsson halda tónleika kl. 16.
Sunnudagur 13. apríl.
Sönghópur Móður jarðar heldur tónl. í Fríkirkj-
unni kl. 17.
Vortónleikar Háskólakórsins í Seltjarnarnes-
kirkju kl. 20.
Mánudagur 14. apríl. Listasafn Kópavogs:
Tónl. Finns Bjarnasonar bariton, kl. 20.30.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið Leitt hún skyldi vera skækja lau.
12. apríl.
Köttur á heitu blikkþaki, sun. 13. og fim. 16.
apríl.
Litli Kláus og Stóri Kláus, sun. 13. apríl.
Villiöndin lau. 12. apríl.
Fiðlarinn á þakinu. Frums. fös. 13. apríl.
Borgarleikhúsið Konur skelfa lau. 12. aprfl.
Völundarhús sun. 13. apríl.
BarPar lau. 12. apríl.
Dómínó sun. 12. og fös. 18. apríl.
Svanurinn fös. 18. apríl.
Krókar & kimar, ævintýraferð um leikhús-
geymsluna frá 13-18 alla daga og til kl. 22
sýningardaga.
íslenska óperan Káta ekkjan lau. 12. apríl.
Loftkastalinn
Áfram Latibær sun. 13. apríl tvær sýn.
Á sama tíma að ári sun. 13. apríl.
Skari skrípó lau. 12. apríl.
Skemmtihúsið Ormstunga mán. 14. og þrið.
15. aþríl.
Möguleikhúsið Snillingarí Snotraskógi sun. 13.
apríl.
Kaffileikhúsið Vinnukonurnar fim. 17. apríl.
Hugleikur Embættismannahvörfin, lau. 12.,
föst. 18. apríl.
Leikfélag Akureyrar
Vefarinn mikli frá Kasmír Iau. 12., fös. 18. apríl.
Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eftir
að birtar verði í þessum dálki verða að hafa
borist brcflcga fyrir kl. 16 á miðvikudögum
merktar: Morgunblaðið, Menning/listir, Kringl-
unni 1, 103 Rvík. Myndsendir: 5691181.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 12. APRÍL1997