Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 12.04.1997, Qupperneq 9

Lesbók Morgunblaðsins - 12.04.1997, Qupperneq 9
ALVAR Aalto hannaði þennan stól úr formbeygðum viði 1930 og hann er enn framleiddur. Þetta er jafnframt uppá- haldsstóli Ásdísar. amir, þykkir armar og bök og hvergi mátti koma fyrir sveigð lína. Þungum og efnismikl- um húsgögnum var síðan fargað í stórum stíl um 1955, þegar skandinavíska húsgagna- tízkan varð gersamlega ofaná. Ég nefndi það við Ásdísi vegna þess að hún er svo ung, að þessi léttu húsgögn voru stundum í gríni nefnd „prikamublur". Áratugi síðar fór þetta að breytast og fólk sóttist eftir skárri hægindum með þeim ár- angri að síðan hafa húsgögn sáralítið breyzt. Engar tízkuholskeflur hafa gengið yfir og áhnf frá arkhektúr eru ekki áberandi. Ég spurði Ásdísi hvernig henni kæmi þetta fyrir sjónir og hvort það væri rétt ályktað, að eiginlega hafi ekkert gerst í „bransanum" í áratugi. Hún kvaðst að sumu leyti geta tekið undir það. Ekki hefur mikil nýsköpun orðið í Amer- íku; þó hefur einn klassískur stóll orðið til þar; Eames-stóllinn, kenndur við Charles Eames, bandarískan hönnuð. Þessi lúxusstóll er fokdýr, búinn til úr formbeygðum viði, leðri og málmi. Um 1980 gerðu ítalir smá byltingu með Memphis-húsgögnum, sem voru litsterk og framúrstefnuleg; stundum eins og skúlptúrar. Að sjálfsögðu hefur ýmislegt fleira gerst. Húsgagnahönnuðurinn Philip Stark kom fram með alveg nýja línu uppúr 1980. hann notaði bæði málm og tré og FINNSK nútfma húsgagnahönnun eftir Jouka Jáevinen. Hér er enn unnið í anda módernismans og formið tekið framyfir hægindin. Þá hannaði Mies van der Rohe Barcelona- stólinn, sem svo hefur verið nefndur. Hann byggist á stálfjöðrum og er framleiddur enn, fokdýr, en þó hefur Listasafn íslands get- að keypt nokkra slíka stóla og hafa þeir ver- ið þar í forsalnum. Aalto hannaði árið 1929 einfaldan stól úr stálröri og beygðum krossviði og þessum stólum var hægt að stafla. Aalto öðlast síðan sérstöðu í þá veru, að hann tekur að nota formbeygðan og sam- límdan við. Þessi ljósi viður, mest fínnskt beyki, verður einskon- ar vörumerki Aaltos. Aftur hannaði hann fótalausa, fjaðrandi stóla, en nú einnig úr formbeygðum viði. Að þessari framleiðslu stóð fyrirtækið Artek, sem stofnað var 1935 í Helsinki og framleiðir enn flest eða öll húsgögn Aaltos, mest til útflutnings. Húsgögn hafa oft verið undir áhrifum frá því sem efst er á baugi í Arkitektúr. Til dæmis voru á 4. áratugnum flutt inn hús- gögn - og líklega smíðuð hér einnig - í funk- isstíl, sem þá var tízkustefna í arkitektúr. Þau voru efnismikil, einkanlega hægindastól- grannar línur sem mjókkuðu til endanna. Sá stíll varð mjög vin- sæll í Frakklandi og víðar, en þetta voru frekar dýr húsgögn. Mér sýnist, segir Ás- dís, að ungir danskir hönnuðir séu undir áhrifum frá Philip Stark. En hver skyldi vera uppáhaldsstóll Ásdís- ar? Það er hún með á hreinu og stendur ekki á svarinu: Stóllinn hans Aaltos, sem kenndur er við Paimo- sjúkrahúsið. Mér finnst hann stórkost- legur, segir Ásdís. Það er gott að sitja í hon- um; hann er fagur að horf á hann og auk þess alveg sígildur og fer aldrei úr tízku. Því miður hefur hún ekki ennþá eignast þennan kjörgrip. Og hvað er svo efst á baugi? Sem stendur er Asdís að vinna bók um Alvar Aalto og hönnun hans uppúr doktorsritgerð sinni. Það er ítalskt útgáfufyrirtæki sem að því stend- ur. Frá fæðingu Aaltos eru liðin 100 ár á næsta ári og stefnt er að því að bókin komu þá út. Þetta verður vönduð útgáfa svo sem verðugt er; útgáfufyrirtækið er fjölþjóðlegt, en bókin kemur út á ensku og frönsku. MARCEL Breuer var elnn þelrra módern- Ista sem gerðu tilraunir meö stál í hús- gögn og þessi stóll, kenndur viö málarann Wassily Kandinsky, hefur orðið klassískur og er enn framleiddur. ÓÐ UM AALTO LJÓDRÝNI II SIGFÚS DAÐASON I Mannshöfuð er nokkuð þungt en samt skulum við standa uppréttir og sumarið bætir fyrir flestar syndir okkar. Við létum gamlan dvalarstað að baki - eins og dagblöð í bréfakörfuna - höldum nú áfram lítum ei framar við. Eða brutum við allt í einu glerhimnana yfir gömlum dögum okkar? til þess lögðum við af stað. Og jafnvel þó við féllum þá leysti sólin okkur sundur í frumefni og smámsaman yrðum við aftur ein heild. Velkunnugt andlit hljómur blær það er þín eign barn æsandi og ný IFYRSTA ljóði fyrstu ljóðabókar sinnar þótti Sigfúsi Daðasyni (1928- 1996) ástæða til að yrkja manninum og ljóðinu lofsöng og horfa bjart- sýnn fram á veginn. Seinna varð bjartsýnin að eins konar skammar- yrði í meðförum Sigfúsar en hér er hún tær og óspjölluð af viðsjár- verðum, spilltum heiminum og lærdómi lífsins. Ljóðið ber ekkert heiti heldur er einungis tölusett (I) eins og mörg önnur ljóð bókarinnar sem nefnist Ljóð 1947-1951. Form ljóðsins er einfalt og reglulegt að því leyti að það samanstendur af fímm jafn löngum erindum. Rím er ekkert en stuðlum bregður fyrir til áhersluauka, svo sem í síðustu línu fyrsta erindis. Ljóðstíllinn er sömuleiðis einfaldur og yfírvegaður; hann er ekki fullur ákafa og ástríðu, strengir tungunnar eru ekki þandir til hins ýtrasta þótt hljómurinn sé mikill í inntaki orðanna. Myndmáli er í hóf stillt, það er hvorki mikið né flókið; ljóðið höfðar til vitsmuna, síður til skynjunar eða tilfinninga. Ljóðið er ort til barns eins og kemur fram í síðasta erindi og er hvatn- ing til þess um að halda nú ótrautt áfram þrátt fyrir þungar byrðar. Ljóðið er ort skömmu eftir stríð þegar maðurinn stóð uppi í sundurtætt- um og syndugum heimi. Þetta var nýr heimur og það þurfti nýjan og sterkan mann til að takast á við hann, til að standa uppréttur. Skáldið vill að gamli heimurinn sé yfírgefinn og að ekki verði framar litið við. Þó má greina eilítinn beyg í rödd þess því að allar brýr hafi verið brenndar, það óttast að ekki verði snúið aftur. En það er einnig kominn tími til að yfírgefa eða endumýja þessa gömlu, brothættu til- vera og til þess var farið af stað. Það er heldur ekkert að óttast því að forsenda alls lífs verður enn til staðar - sólin, kjarni og miðja alls sem er. Ennfremur hefur bamið fortíðina í sér fólgna, ásjónu kunnuga en einnig sitthvað nýtt, æsandi og nýtt. Þrátt fýrir allt er því framtíðin björt. Þannig má lesa ljóðið sem lofsöng um manninn, styrk hans, hug- dirfsku, framsækni og endumýjunarkraft á tímum þegar heimurinn virð- ist á hverfanda hveli. En eins og áður sagði mætti einnig lesa ljóðið sem lofsöng um hið nýja ljóð, hinn nýja Ijóðstíl sem spratt upp úr ógnarhrær- ingum aldarinnar; það mætti líta á það sem hvatningu til hins nýja ljóð- forms, til skálda um að takast á við það óhrædd. Fyrsta ljóðið sem birtist eftir Sigfús Daðason, „Strætisvagnamir era hættir að ganga“ (Tímarit Máls ogmenningar 1945), var hefðbundið að öllu leyti en fljótlega hóf hann að leita nýrra leiða. Sigfús var talinn í hópi atómskáldanna svokölluðu sem tryggðu nýju og óbundnu ljóðformi öraggan sess í íslenskum skáldskap. Þetta fýrsta ljóð í fyrstu Ijóðabók Sigfúsar hefur mönnum því þótt freistandi að túlka sem stefnuljóð þessa framsækna skáldahóps. Gamli dvalarstaðurinn, sem talað er um í öðru erindi, er þá hið hefð- bundna ljóðform. Brothættir himnar þess gefa til kynna að það var ekki mikill styrkur fólginn í því lengur, að það veitti lítið skjól í nýjum og eyðilegum heimi. Engu að síður vill skáldið greinilega geta leitað í þenn- an gamla sjóð, það vill að bam sitt beri svipmót hefðarinnar þótt það sæki líka hljóm sinn og blæ til nýs tíma. ÞRÖSTUR HELGASON LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 12. APRÍL 1997 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.