Lesbók Morgunblaðsins - 12.04.1997, Síða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 12.04.1997, Síða 11
 LEIÐANGURSMENN við opínn eld að kvöldlagi í Ikateq. Á LEIÐ út með Ammassalik-eyju ber fyrir ótal grænlenskum svipmyndum eins og þessari. athygli. Skólinn fékkst til gistingar. Þorpið er afar óhreint og ber merki um harða sókn veiði- mannanna eftir lífsbjörg og allt draslið sem fylgir nútíma lífsháttum. Fólkið er elskulegt en ekki framhleypið og átti bæði svolitla versl- un við komumenn sem og þáði sumt af is- lenska matnum að gamni sínu. Þetta þorp, eins og svo margar byggðir utan stærsta þétt- býlis hér á norðurhjara, á undir högg að sækja, m.a. vegna þess að mikið af unga fólkinu flyst á brott. NYRSTA þorpið í Tasiilaq-héraði heitir Sermeligaq. Ísafjöróur Norður og vestur af Sermeligaq er djúpur fjörður, Sermeliq eða ísafjörður á grænlensku. Hann greinist í tvær álmur, hvor með sínum skriðjökli sem steypist ofan af hásléttu Græn- landsjökuls. Þangað var haldið með strönd- inni, alla leið inn að öðru jökulstálinu; Knud Rasmussen-jökli. Hátimbruð klakahöllinn gnæfðu yfir bátana sem hættu sér ekki mjög nálægt því og ekki nema annar í einu. Þvílíkur hraði er á tungunni að stór ísabrot kelfir mar- goft á dag í sjóinn með drunum og boðaföll- um. Tókst að festa slíkan atburð á myndband- ið í logni og undarlega glærri heimskautabirtu í sólarlausu veðri. Nokkru utan við jökulinn skerst fallega gró- inn smádalur inn í fjöllin. Snotur á rennur eftir beijamóum, full af fiski, státinni bleikju. Þar var tekið land á sjávarkambi og haldið á grænlenskar silungsveiðar. Þá er fiskurinn ýmist tekinn með ífæru úr hyljum eða einfald- lega hendi rennt eldsnöggt í vatnið og silungur- inn gripinn. Tveir veiðimenn úr Sermeligaq og Tobias sýndu aðferðirnar en báglega tókst ís- lendingunum að leika þær eftir og spæni eða beituna á veiðistöngunum vildi fískurinn ekki sjá. Þyrlan kemur og veiðilukkan með Um síðir snéri leiðangurinn aftur til Ikateq. Tobias vissi um góðan veiðistað á stórri eyju, beint á móti Ikateq, og ætlaði hluti af mann- skapnum þangað. Eyjan heitir Qianarteq en veiðivatnið, rétt ofan fjörunnar, er nafnlaust. Hinn hluti leiðangursins þurfti að sinna mynd- gerðinni úr þyrlu sem leigð hafði verið til að leggja lykkjur á leið sína í hringflugi frá Ammassalik. Síðdegis, daginn áður en þyrlan kom, heyrð- ust skruðningar og dynkir utan af sundinu fyrir framan Ikateq. Sást hvar risastór borgarí- LEIFAR herstöðvarinnar við Ikateq eru í hrópandi mótsögn við umhverfi sitt. sjaki velti sér og brotnaði. Glærir ístumar og glæsilegar hvelfingar þess hluta jakans sem reis 15-20 metra úr djúpunum drógu menn í bátana til þess að skoða fyrirbærið. Um hádegisbilið daginn eftir var mættur danskur orrustuflugmaður á Bell-þyrlu sinni sem er í leiguflugi fyrir hótelið í Ammasalik og íslandsvininn Yew-Lin Tay, annan eiganda þess. í þyrlunni hófst æsilegt flug sem líktist helst ferð í rússíbana; fyrst yfir veiðimennina og um fjallaskörð og smájökia Qianarteq-eyj- ar, þá yfir borgarísjaka og þorpið Sermeligaq, fram með og yfir kelfandi Knud Rasmussens- jökulinn og hluta hópsins á bátunum. Daninn, sem var vanastur settlegu farþega- og vöru- flugi, æstist um allan helming við hrósið fyrir vel útfært myndatökuflug. Hann endaði flugið með því að hringsnúast yfir jökum og klettum við Ikateq. Meðan þessu fór fram veiddu áköfustu stangveiðimennimir hverja bleikjuna á fætur annarri, 2-6 punda, fallega fiska í vatninu á eyjunni óbyggðu. Þeir komust líka að því að Grænlendingar girða ósa þar með netum og veiða vel; líklega allt of vel. Stormwrinn Þegar allur hópurinn hafði safnast saman yfír íslensku lambasteikinni á hlaðna steingrill- inu við tjöldin á Qianarteq-eyju, var orðið löngu ljóst að stefndi í óveður. Blýgrár suðurhiminn, hvassar vindhryðjur, rigningarhraglandi og æ stærri öldur; allt talaði þetta skýru máli. Næstsíðasta leiðangursdaginn reyndu menn fyrst að ná nokkmm fiskum með grænlensku aðferðinni, með höndunum, í ánni en settust svo á rökstóla. Niðurstaðan varð þessi: Siglt í kapp við veðrið til Ammassalik. Bátamir fleyttu kerlingar á öldunni móti veðrinu. Þrátt fyrir versnandi sjólag náðu þeir að „plana“ fyrstu klukkutímana. Svo varð ljóst að bensín myndi ekki duga til öraggrar sigling- ar til Ammassalik. Var þá komið við í minnstu - byggðinni þar sem enn búa tvær fjölskyldur. Þar var höndlaður hinn dýrmæti vökvi og svo tók við 2-3 klukkustunda barningur. Brátt skildust bátarnir að í 5-7 metra öldu og a.m.k. átta vindstigum. Hver einasti bátsveiji ríghélt sér, stýrimaðurinn gætti þess að vindurinn næði ekki undir bátinn og feykti honum á hvolf og smám saman varð að losa sumt af farangrinum í sjóinn, mat og afla, til að rýmka fyrir mönnum í hamaganginum. Stórir borgari- sjakar byltust eins og hafskip við hlið bátanna sem líktust helst brothættum smáskeljum í samanburði við náttúrufyrirbærin. Hægt gekk meðfram klettóttri stöndinni þar sem hvítt löðr- ið stóð hátt til lofts og hvergi er hinn minnsti lendingarstaður. Svo allt í einu opnaðist lang- þráð sundið inn í Kongs Oscars-vog þar sem Ammassalik stendur. Hafið barði sker og eyjar en fljótlega tókst að komast innar á mun lygn- ari sjó í skjóli af fjöllunum sunnan við bæinn. Hvílíkur léttir og hvílíkur lúxus: Að setjast við borð með hvítum dúk í hlýlegum veitingasal og stinga saltstorknu nefinu ofan í ölkrús! Eftirmáli Leiðangursmenn eyddu skömmum tíma í Ammassalik; héldu sjálfum sér, Tobiasi og Evu, konu hans, þó svolitla veislu. Því næst var siglt yfir á Kulusuk-eyju í stífum vindi og öllum farangri komið í fragt. Myndefnið er nægt í þétta framhaldsmyndaröð fyrir sjónvarp en einn þáttur verður látinn nægja og er nú að styttast í sýningu hans. ARI Trausti Guómundsson er jarðeðlisfræðingur og rithöfundur, Ragnar Th. Sigurðsson er Ijós- myndari. Bóðir hafa höfundarnir sérstakan áhuga á norðurslóðum og heimskautasvæðun- um. h LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 12. APRÍL 1997 1 1

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.