Lesbók Morgunblaðsins - 12.04.1997, Page 14

Lesbók Morgunblaðsins - 12.04.1997, Page 14
Ákall um frið í Palestínu BRENNIÐ SÁLIR YKKAR, BRJÓTIÐ PENNA YKKAR AÐ KOMAST til Palestínu á válegum tímum er ekki auðvelt, allra síst þegar ferðinni er heitið á rithöf- undaþing á Vesturbakk- anum. Israelsmenn eru ekki reiðubúnir að hleypa hveijum sem vill inn í landið. Á þetta rekum við Ragnheiður okkur á flugvellinum i London þegar við ætlum að ganga óáreitt inn í flugvélina frá E1 Al, en verðum strax fyrir hindrun lengstu biðraðar sem við höfum séð á flugvelli og er aðeins ein af mörgum sem við þurfum að standa í. Eftir langa yfirheyrslu sem sannar að árið hans Orwells, 1984, er löngu runnið upp þokumst við í áttina, en glímunni er ekki Iokið því nú er farið að rífa upp úr töskunum sem við bókuðum á Keflavíkurflugvelli á áfangastað í Tel Aviv. Allir hatt- og skeggjúðar ásamt fleira fólki eru komnir í sæti sín þegar við troðumst að lokum inn í kúffulla vélina. Framundan er næturflug, en lítil von að sofna eftir meðferð öryggisgæslunnar. Okkur hefur verið sagt að óeinkennisklæddir öryggisverðir séu með- al farþega svo að það er vissara að hafa hægft um sig og hneykslast ekki upphátt, að minnsta kosti ekki á einhveiju skiljanlegu máli. Hver hefur áhuga á að láta berhátta sig í þágu ísraelskra stjómvalda? Bibliulandslag Það er léttir að stíga út úr flugvélinni á Ben Gurion flugvelli þótt enn ein biðröðin taki við. Spurningahríðin er vægari en áður. Okkar bíður bílstjóri sem ekur okkur gegnum Biblíulandslagið alla leið að hótelinu í Ra- mallah. Landslagið er hijóstrugt, steinar, sandar, grastoppar og stöku tré og minnir oft á íslenska heiði. Bílstjórinn segir ekki orð. Illa sofinn næturvörður á Hotel A1 Hajal í Ramallah býður okkur að velja milli tveggja herbergja. Klukkan er rúmlega sex að morgni að palestínskum tíma. Við kveikjum á hita- ofninum sem stendur á miðju gólfí, lítum snöggvast út^um gluggann og skríðum síðan undir sæng. íslendingar em löngu hættir að þola húskulda. Fórnir og fangelai í boði um kvöldið heima hjá formanni Rit- höfundasambands Palestínu, Izzat Ghazzawi, verður betur ljóst en áður hvemig skuggi átaka nágrannaþjóðanna tveggja hvílir yfír öllu. Það vekur athygli að á veggnum eru margar myndir af sama unga manninum, syni hjónanna. Sextán ára að aldri féll hann Fyrsta alþjólega þing rithöfunda sem Palestínu- menn standa aö var haldið í Birzeit-hóskólanum í nógrenni Ramallah í lok mars. JOHANN HJALMARS- SON var meðal fjölmargra fulltrúa ýmissa landa sem töluðu út fró þemanu Ný umhugsunarefni við upphaf nýs tímabils. Mest kvað að Palestínumönnum í átökum við ísraelsmenn. í blaði dagsins sem okkur er sýnt er greint frá því sem formenn rithöfunda- sambanda Palestínu og ísraels eiga sameiginlegt. Þeir hafa báðir misst syni sína í átökunum. Enn- fremur er á það minnt að Ghazzavi fær ekki að fara til Jerúsalem að hitta starfsbróður sinn og ísra- elski formaðurinn á þess ekki kost að sækja palest- ínska rithöfundaþingið. Izzat Ghazzavi sem lengi hefur setið í fangelsi ísraelsmanna á fleiri syni. Annar þeirra aðstoðar við framkvæmd þingsins, hinn er varla nema þriggja ára en vel liðtæk- ur við að skera ávexti í sneiðar og afar laghentur. Dætur eiga þau hjón líka, en þær láta fara lítið fyrir sér ásamt móður sinni og eru klædd- ar að hefðbundnum hætti múhameðstrúar- manna. Izzat sem er enskukennari við Birz- eit-háskólann er á þönum við að sinna gestum og kynna þá fyrir palestínskum starfssystkin- um (ég sá hann aldrei matast). Bók eftir hann er væntanleg í norskri þýðingu hjá Cappelen á næstunni og tvær hafa komið á ensku: Nebo Mountain og Letters Underway, báðar gefnar út af Birzeit-háskólaútgáfunni. Norðmenn voru áberandi á þinginu, meðal þeirra Thore G. Hem frá NORAD, stofnun sem veitir þróunarhjálp og studdi þingið myndarlega, einnig Knut Odegárd, Torvald Steen og Kirsti Blom, öll rithöfundar og þátt- takendur í alþjóðasamstarfi. í ávarpi sínu við setningu rithöfundaþings- ins drap Ghazzawi á það að ísreölsk stjórn- völd minntu fólk ávallt á þann ójöfnuð að ísraelsmenn og Palestínu- menn sætu ekki við sama borð. „Stjórnvöld í ísrael vilja hafa allt í hendi sér og útiloka mannlega um- ræðu á jafnréttisgrund- velli“, sagði Ghazzavi. Hann var þó ekki jafn- herskár og menntamála- ráðherra landsins, Yaser Abed Rabu, sem kallaði ísraelsmenn morðingja og svikara og sagði þá hafa lýst yfir stríði og undan þeirri áskorun myndu Pa- lestíumenn ekki skorast. Ráðgert var að bjóða ísraelskum rithöfundum til þingsins, en vegna ástandsins í kjölfar bygg- ingaframkvæmda ísraels- manna í Austur-Jerúsal- em breyttust aðstæður. Það hefði í raun verið mjög erfitt fyrir ísraelsmenn og Palestínu- menn að tala saman og heift sem undir býr hefði auðveldlega getað brotist út og eyðilagt þingið. Að auki kröfðust rithöfundar frá öðr- um arabalöndum þess að ísraelsmenn sætu ekki þingið. Rithöfundar annarra arabalanda töldu Palestínumenn friðmælast við „óvininn" með því að bjóða ísraelsmönnum og ákváðu því að hunsa þingið og sitja heima. Þetta varð til þess að Ghazzawi varð að hætta við áform sín og útiloka ísraelsmenn. Hann var nauðbeygður til þess. Ritskoóun í gangi Með þetta í huga er auðveldara að skilja tilraun Ghazzawis til ritskoðunar. Hann bað til dæmis Knut Ddegárd skáld að nefna ekki í ræðu sinni að hann hafði sem forseti alþjóð- legu bókmenntahátiðarinnar í Molde í Noregi boðið þangað rithöfundum frá ísrael og Pa- IZZAT Ghazzawi setur þingið í Birzeit-háskólanum lestínu og vel hefði farið á með þeim. Þeir hefðu í fyrsta sinn getað talað saman í ein- lægni um mál sem brunnu á þeim. Þetta mætti 0degárd alls ekki nefna. 0degárd fór ekki eftir þessu heldur lagði áherslu á fund þessara tveggja stríðandi þjóða í friðsæld Noregs. En hann sleppti nöfnum þeirra sem komu, skáldsins Yehuda Amichais frá ísrael og skáldsagnahöfundar- ins Mahmdud Shqirat frá Palestínu. Áður en ég flutti ræðu mína, þar sem ég m. a. varaði við því ríki alræðisins sem Ge- orge Orwell sá fyrir í skáldsögu sinni 1984, spurði stjórnandi umræðnanna þann daginn hvort ég myndi ekki örugglega fara eftir drögum sem ég hafði sent. Lítið var gefið út á það af minni háfu, enda var viðbótin eink- um hvatning til Palestínumanna að glata ekki voninni og víkja ekki af friðarvegi. Hlutverk skálda og skáldskapar Munur var á málflutningi vestrænu gest- anna og þeirra sem komu frá arabalöndum. Abdallatif Laabi frá Marókkó hefði nýlagt út af glötuðum draumum þegar Norðmaður- inn Kirsti Blom „frá litlu ríku landi í norðri“ lýsti þeirri skoðun sinni að skáldskapurinn væri gríma gegn þögninni og tungumálið gerði heiminn sýnilegan. „Yfirlýsingar gera menn ekki vitrari," sagði hún. M. Ali Taha frá Palestínu sagði að hernám ísraelsmanna hefði enn áhrif og setti svip á umhverfið. „Við þurfum vitræna rökræðu en ekki hrós,“ sagði Taha og bætti við: „Við þurfum nýjar stofnanir, háskólar okkar eru ekki nógu skapandi." Ræða Kirsti Blom þar sem hún m.a. reif- aði existensíalisma og hlutverk skáldskapar hleypti af stað umræðu um hlutverk skálda í grimmu samfélagi. Áheyrendur úr sal gerð- ust háværir og framlag þeirra var oft ofstæk- isfullt og jafnvel stríðsyfírlýsingar gegn ræðumönnum. Einn sagði: „Ljóð og bók- menntir má ekki slíta frá fólkinu." Annar fullyrti að sumir hefðu selt sig. Nauðsynlegt væri að vinna gegn bandarísku glæpamönn- unum: „Hvemig komumst við út úr myrkr- inu. Það er ráðist á okkur, en við höfum réttan málstað? Segið okkkur hvað við eigum að gera?“ „Óvinir okkar eru vel skipulagðir," sagði áheyrandi. „Hve margir Palestínumenn lesa bækur, hugsið um það ef þið viljið hafa áhrif með skáldskap. Undanfarin 30 ár hefur menningarleg yfirstétt ráðið ferðinni. Það eru líka til aðrar listir, ekki bara ljóð.“ KNUT Odegárd hiustar á palestínska heimspekinginn Ibrahim Abu-Lughud sem ræddi sérstöðu araba IMÝ UMHUGSUNAREFNI við upphaf nýs tímabils: Jóhann Hjálmarsson, Dima Samman Palestinu og Luis Rocha frá Nicaragua Union * ff New Thiines for A New Era Bfrziet 22-26Mardi97 lð YVWjiiíWtt CA^y. 14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 12. APRÍL1997

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.