Lesbók Morgunblaðsins - 12.04.1997, Side 20

Lesbók Morgunblaðsins - 12.04.1997, Side 20
m i NORSKA verkið sem varð hlutskarpast í afstrakt flokknum. SNJÓR er ótjúfanlegur hluti af lífi Grænlendinga. Frá alda öðli hefur hann rammað inn tilveru þeirra drjúgan hluta ársins enda er veturinn langur og strangur á norðurslóð. Það . þarf því vart að koma á óvart að í grænlenskri tungu séu til fleiri orð yfir snjó en víðast hvar annars stað- ar. En Grænlendingum er í lófa lagið að gera meira við snjóinn en nefna hann nöfnum, svo sem að vinna úr honum listaverk. Getur því hugsast betri staður í heimi hér til að efna til snjóskúlptúrhátíðar? Snjóskúlptúrhátíðin í höfuðstað Grænlands, Nuuk, var haldin í fjórða sinn í liðnum mán- uði. 45 lið, þar af ellefu erlend, mættu til leiks og kepptu sín á milli í gerð afstrakt og fígúra- tífra skúlptúra. Mikið var um dýrðir og dóm- nefnd svo sannarlega vandi á höndum, ekki einungis fyrir þær sakir að verkin voru fleiri en nokkru sinni, heldur jafnframt þar sem þau verða sífellt betri og betri, svo sem Grenlands- posten hafði eftir einum dómnefndarmanna. Bæjaryfírvöld í Nuuk hafa veg og vanda af framkvæmd keppninnar en í hópi styrktaraðila er Norræna ráðherranefndin. Hugmyndin mun hins vegar vera runnin undan rifjum arkitekts- ins Peters Barfoeds. Meðal þátttakenda að þessu sinni var í fyrsta sinn lið frá Islandi, skipað myndhöggvurunum Erni Þorsteinssyni og Onnu Sigríði Siguijóns- dóttur. „Myndhöggvarafélagið hafði samband við okkur með örskömmum fyrirvara og bað okkur að taka þátt í keppninni fyrir Íslands hönd. Mig minnir að talað hafí verið við okkur á laugardegi og við fórum út á fímmtudegi," segir Örn og bætir við að boð Grænlendinga hafí einhverra hluta vegna lent í röngum hönd- um og þar af leiðandi ekki borist félaginu fyrr en á elleftu stundu. Menntamálaráðuneytið og SAMIK-sjóðurinn styrktu listafólkið til farar- innar. Allt unnió meó handverkfærum í upphafi Snjóskúlptúrhátíðarinnar stóðu öll liðin í sömu sporum - andspænis 3x3x3 metra snjóteningi. Engar vélar eru leyfðar í keppn- inni, unnið skal með handverkfærum. Stóð keppnin í fjóra erfiða sólarhringa, svo sem Erni og Önnu Sigríði segist frá. „Það er óhætt að segja að við höfum snúið örþreytt til baka enda fór ailur dagurinn í þetta og á lokasprett- inum var unnið allan sólarhringinn," segir Örn KEPPNISSVÆÐIÐ um það leyti sem listamennirnir voru að taka til starfa. ORT í FÖNN Myndhöggvaramir Anna Sigríður Sigurjónsdóttir — —j og Orn Þorsteinsson voru fulltrúar Islands ó Snjó- skúlptúrhótíðinni í Nuuk, höfuðstað Grænlands, sem haldin var í fjóróa sinn í liónum mónuói. QRRI PALL ORMARSSON hlýddi ó ferðasögu þeirra en keppnin mun aldrei hafa verið fjölmennari. ÖRN og Anna Sigríður fyrir framan klumpinn áður en keppnin hófst. og bætir við að hann hafi verið svo uppgefinn að verki loknu að Önnu Sigríði hafi ekki tek- ist að ræsa hann fyrir lokahóf sem haldið var keppendum til heiðurs að kvöldi lokadagsins. „Er ég þó í mjög góðu formi - langskokkari og maraþonhlaupari!“ Að sögn íslensku keppendanna voru liðin af öllum stærðum og gerðum - allt frá áhuga- fólki upp í fagfólk. Samkvæmt reglum keppn- innar er liðum óheimilt að hafa á að skipa fleiri en fjórum einstaklingum en Örn og Anna Sig- ríður segja að mörg hver hafí þau verið með liðsstjóra og jafnvel aðra aðstoðarmenn sér til halds og trausts. „Þarna voru til að mynda tékkneskt, kanadískt og finnskt lið sem taka þátt í mörgum sambærilegum keppnum á ári hveiju og hafa trausta styrktaraðila á bak við sig,“ segir Anna Sigríður. Að áliti Arnar hefðu liðin að ósekju mátt vera örlítið færri eða þeim skipt í tvo flokka - fagmenn og áhugamenn. Önnu Sigríði þykir þessi blanda á hinn bóginn hafa sett skemmti- legan svip á keppnina og fyrir vikið hafi and- rúmsloftið verið afslappaðra - keppnin sjálf hafi í raun verið aukaatriði. Listafólkið er hins vegar á einu máli um að almenningur í Nuuk hafí sýnt keppninni mik- inn áhuga - hundruð manna hafí daglega verið á stjákli á keppnissvæðinu. „Heimamenn voru ræðnir og virkilega vingjarnlegir - sann- ir höfðingjar heim að sækja,“ segir Anna Sig- ríður. Það sem kom þeim Erni og Önnu Sigríði mest á óvart meðan á keppninni stóð var veðr- ið - „ótrúlegt en satt“. „Hlýindin voru til vand- ræða,“ segir Öm og kímir. „Hitastigið fór upp í 0° og á síðasta deginum hrundu sum verk- anna til grunna. Það var óneitanlega sérkenni- leg tilfinning að vera staddur á Grænlandi um hávetur og eiga á hættu að 3x3x3 m snjó- klumpur myndi hrynja yfir mann.“ Hefóu þurft líósstyrk Reyndar taka þau fram að þeirra verk hafi verið í minni hættu en mörg önnur þar sem þau hafi í upphafi tekið þá afstöðu að halda að mestu leyti í snjóinn. Þau hafi því verið að vinna með meiri massa en flestir keppinautar þeirra - hækkuðu til að mynda verkið um hálfan metra sem er leyfilegt. „Fyrir vikið þurftum við að vinna meira verk en margir aðrir og eftir á að hyggja hefðum við senni- lega þurft að vera fleiri - þetta var mikið álag á tvær manneskjur," segir Örn. Önnu Sigríði og Erni tókst ekki að krækja sér í verðlaun - nokkuð sem þau láta sér í léttu rúmi liggja. Upplifunin dugir þeim. Sig- urvegari í flokki fígúratífra verka var græn- lenskur hópur en í afstrakt flokknum fór norskt lið, með Islendinginn Ingþór Hrafnkelsson inn- anborðs, með sigur af hólmi. íslensku keppendurnir segjast á hinn bóginn hafa snúið reynslunni ríkari frá Grænlandi og eigi án efa eftir að glíma á ný við snjóinn. „Þessi keppni hefur vakið áhuga minn á að vinna meira með snjó og ís. Eg var til að mynda að grafa snjóhús um síðustu helgi,“ segir Anna Sigríður og brosir. Órn tekur í sama streng. „Ég gæti vel hugs- að mér að komast í svipaða vinnu á ný. Ætli ísinn verði ekki næsta viðfangsefni - það er hægt að vinna fínni hluti í hann en snjóinn sem er meiri takmörkunum háður." 20 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 12. APRÍLI997

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.