Lesbók Morgunblaðsins - 31.05.1997, Page 11
SKEGGJASTAÐAKIRKJA í Bakkafirði hlaut maklega tilnefningu í könnuninni sl. vetur.
Bjarni Ólafsson, sem er lesendum Morgunblaðsins vel kunnur, hefur sent Lesbók línu
með frekari upplýsingum um þessa fögru kirkju og viðbyggingu við hana. Bjarni segir
svo: „ Yfirsmiður kirkjunnar kom frá Akureyri og hét Guðjón Jónsson. Með honum kom
timbursmíðapiltur frá Grund i Eyjafirði, Jón Jónsson að nafni. Þeir voru tæpar 14 vikur
að byggja kirkjuna árið 1845. Stilinn má rekja til Eyjafjarðar. Auk þeirra komu tvier aðrir
til starfa um skemmri tíma.
Skeggjastaðakirkja er með merkari timburhúsum frá síðustu öld. Járn hefur aldrei
verið sett á þak hennar. Hún er vel gerð að innan sem utan. Gunnar Gunnarsson hefur
að öllum líkindum haft þessa kirkju sem fyrirmynd er hann skrifaði Fjallkirkjuna. Afi
hans og amma bjuggu á Bakka, sem Bakkaflói tekur nafn af. í sögunni átti Uggi afa
og ömmu á Knerri.
Árið 1960 bað séra Sigurður Pálsson, síðar vígslubiskup, mig um að taka að mér
viðgerð Skeggjastaðakirkju. Ég fór til fundar við hann og hann útskýrði fyrir mér hug-
mynd um að stækka Skeggjastaðakirkju lítið eitt um leið og gert væri við hana. Séra
Sigurður lagði áherslu á, að þessari litlu, gömlu kirkju mætti í engu breyta, heldur
byggja út úr hlið hennar lítið skrúðhús og turn.
Eg teiknaði síðan upp kirkjuna í réttum hlutföllum. Hún er að lengd 14 álnir og 4
þumlungar, að breidd 8 álnir og lakir 7 þumlungar, en hæðin mæld á austurstafni er
9 álnir. Síðan teiknaði ég eftir hugmynd séra Sigurðar Pálssonar útbyggingu út frá
norðurhlið kirkjunnar og turn í miðju útbyggingarinnar, hvorttveggja eftir minni hug-
mynd. Þetta var allt unnið í samráði við þjóðminjavörð, Kristján Eldjárn, og Sigurbjörn
Einarsson biskup. Þeim leist vel á hugmyndina og var hún send á teiknistofu húsam-
eistara ríkisins til staðfestingar. Þar var teikningin endurgerð með svolitlum breyting-
um, t.d. voru turnstoðir látnar halla aðeins inn að ofan og klæðning var strikuð. Báðar
teikningarnar eru til hjá embætti húsameistara ríkisins. Mín teikning er undirrituð af
mér en hin er ómerkt.
Viðgerðin var síðan unnin, gert við grind og klæðningu og þess vandlega gætt, að
allt væri með sama hætti og áður var, svo sem borðabreidd á klæðningu, frágangur á
þakklæðningu o.s.frv. Kirkjan var síðan máluð að innan sem utan af Jóni Björnssyni
málarameistara og kona hans, Gréta Björnsson listmálari, skreytti kirkjuna hóflega að
innan með máluðum mynsturbekkjum og kirkjulegum táknum. “
Ljósm.Lesbók/Þorkell.
HVERFISGATA 18 er gegnt Þjóðleikhúsinu; það er húsið með turnunum tveimur sem Reykvíkingar hafa haft fyrir augunum mestalla öldina,
eða síðan 1904, að Magnús Th. S. Blöndal húsasmíðameistari og athafnamaður i' Reykjavík byggði það. Sjálfur hefur hann áritað teikningar og
er að öllum líkindum höfundur hússins. Húsið var byggt fyrir Pétur Brynjóifsson, konunglegan Ijósmyndara, en síðan 1930 hefur það verið í
eigu fyrirtækisins Jóhann Ólafsson 8t Co, sem þó er flutt á annan stað. I fyrra var húsið gert upp og lítur glæsilega út. Nú er þar vinnustofa
Sigurgeirs Sigurjónssonar Ijósmyndara, en fyrirtækið Miðbæjarradíó er í helmingi hússins. Þetta hús vildu nokkrir áhugasamir lesendur telja
meðal 10 fegurstu húsa landsins, ekki sfzt eftir endurgerðina sem lýsir lofsverðri virðingu fyrir verðmætum af þessu tagi.
Ljósm.lesbók/Golli
SÓLEYJARGATA11 ber það sannarlega ekki með sér að húsið hafi verið byggt í svörtustu
kreppunni, 1931-32. Húsið hlauttilnefningu í umfjöllun Lesbókar sl. vetur, en eitthvað skol-
aðist til með höfundinn. Hann er ekki Einar Erlendsson eins og sagt var, heldur Sigurður
Guðmundsson og leiðréttist það hér með. Húsið var upphaflega teiknað fyrir fröken Ragn-
heiði Thorarensen.
HÖFÐI varð frægasta hús íslands frá og með leiðtogafundinum 1986 og ekki hefur verið reynt
að byggja eftirlíkingu af neinu öðru íslenzku húsi í öðrum heimsálfum, en ein slík reis í Japan.
Það er þó ekki vegna þessarar frægðar Höfða, að fleiri en einn og fleiri en tveir lesendur
lýstu undrun sinni á því að sjá ekki Höfða neinsstaðar hjá þeim sem völdust til þess að út-
nefna fegurstu húsin. Þeim fannst einfaldlega að Höfði væri með fallegustu húsum landsins
og víst er um það, að fá hús í Reykjavík hafa fengið slíkt rými í kringum sig og aðstæður til
að njóta sín. Ekki er Ijóst hver hefur hannað Höfða, en sá mun vera enskur. Húsið var byggt
1919 sem bústaður fyrir konsúl Frakka, en síðar komst húsið í eigu Einars skálds Benediktsson-
ar, sem nefndi það Héðinshöfða eftir æskuheimili sínu á Tjörnesi.
GRETTISGATA 11 er eitt af þessum tignarlegu, bárujárnsklæddu timburhúsum frá fyrsta
áratugi aldarinnar. Lesandi sem sendi myndina kveðst fæddur í húsinu 1911. Það var Jens
Eyjólfsson byggingarmeistari sem byggði húsið, líklega 1910 og að öllum líkindum teiknaði
hann það Ifka. Á teikningunni, sem varðveitt er hjá byggingarfulitrúanum í Reykjavík, hefur
nafn höfundarins máðst út; þó má lesa ólfsson, sem bendir til að það sé sami Jens. Hann
gerði sfðan breytingar, eða skreytingar, á hliðina sem snýr út að Grettisgötu og eru þær
teikningar greinilega áritaðar af Jens Eyjólfssyni. Hér hefur mikil atúð og vinna verið lögð í
að smíða gluggaumbúnað, en það sem framar öðru setur sérkennilegan svip á húsið eru
skreytingar, smíðaðar úr timbri, á göflunum.
JÓFRÍÐARSTAÐIR í Hafnarfirði, viðbygging við klaustur Karmelsystra eftir Knut Jeppesen, var
maklega tilnefd í könnuninni sl. vetur. En svarið sem tekið var niður meö símtali, skolaðist til
og varð Jósefsspítali, sem er eins og menn vita einnig í Hafnarfirði og prýðileg bygging, en
Knut Jeppesen kom þar hvergi nærri. Eru hann og lesendur beðnir velvirðingar á þessum ruglingi.
FEGURSTU
HÚSIN
-SIÐBUNAR TILNEFNINGAR
OG ATHUGASEMDIR-
Leitin að fegurstu húsum landsins fór fram í
Lesbók 22. febrúar og 1. marz og vakti tölu-
verða athygli og hefur án efa orðið til þess
að vekja athygli á ýmsum prýðilega vel gerð-
um byggingum sem við höfum ekki veitt
nægilega eftirtekt. Það fór hinsvegar svo eins
og við mátti búast, að áhugamenn um hús
töldu að ómaklega væri gengið framhjá húsum
í alfremstu röð, eða að þau hefðu gleymst af
einhverjum ástæðum. Einnig voru þeir til, sem
lýstu undrun sinni og jafnvel hneykslan yfir
því sem valizt hafði á listana yfir 10 fegurstu
hús landsins.
Það var tekið fram með þessari umfjöllun
í febrúar og marz og skal áréttað hér, að
fátt eru menn eins innilega ósammála um og
það, hvort hús séu falleg. Það kom í ljós í
tilnefningunum, að þær dreifðust á miklu fleiri
hús en við hefði mátt búast.
Nokkrir áhugamenn um byggingar hafa
síðan haft samband við Lesbók og beðið blað-
ið um að koma á framfæri tilnefningum, sem
að sjálfsögu er utan dagskrár, því málinu var
í raun lokið með birtingu tilnefninganna, þar
sem Húsavíkurkirkja, Safnahúsið við Hverfis-
götu og Norræna Húsið fengu bezta útkomu.
Það er hinsvegar sjálfsagt að koma á fram-
færi fáeinum tilnefningum til viðbótar og einn-
ig athugasemdum sem bárust.
GS.
1 'i' M '
. i
Mmmmímm
M ^J§j
i aa
lÉfi I BB ■■ -1
mi i Stii > i |
S ■■; m L i |s
wmmm m > ■! f ■ i; ;
ttam otus / nl.
Ljósm.Lesbók/Þorkell
BORGARBÓKASAFNIÐ í Þingholtsstræti er í virðulegu húsi frá 2. áratugi aldarinnar,
en nýtur sín ekki sem bezt vegna þess að gatan er þröng og önnur hús, svo og hávaxin
tré þrengja að því og eiga sinn þátt í því að erfitt er að ná af því góðri mynd. Nokkrir
lesendur bentu á þetta hús, sem Einar Erlendsson arkitekt teiknaði 1915-16, og töldu
það verðskulda að vera talið í fremstu röð. Undir það skal tekið hér, að þetta er vel
teiknað hús og gestir á Borgarbókasafni hafa líka tekið eftir þeim glæsibrag sem þar
hlýtur að hafa verið innan dyra þegar búið var í húsinu. Eitt af því sem undirstrikar
þann glæsibrag er mun meiri lofthæð en tíðkast að hafa i íbúðarhúsum á síðari áratugum.
Ljósm.Lesbók/Þorkell.
LAUGARNESKIRKJA er ein þeirra bygg-
inga sem sumum lesendum þótti ómak-
lega gengið framhjá í tilnefningum á 10
fegurstu húsum landsins. Enginn efi er á
því að mörgum þótti Laugarneskirkja fylli-
lega koma til álita; hún er eins hreinleg í
formi og hugsast getur og kannski mód-
ernískari en flest önnur hús Guðjóns
Samúelssonar. Eins og einhverjir muna
ef til vill, urðu hús Guðjóns langflest af
húsum einstakra arkitekta, sem
tilnefningu hlutu.
TVÖ ÍBÚÐARHÚS á Akureyri voru tilnefnd
og fengu eitt atkvæði hvort. Nú hefur les-
andi sent myndina sem hér fylgir og til-
nefnt þriðja húsið á Akureyri, einbýlishús-
ið að Byggðavegi 123. Hér hefur verið
unnið í anda módernismans, en upphaf-
lega teiknaði Birgir Ágústsson verkfræð-
ingur húsið. Viðbót við það teiknaði Svan-
ur Eiríksson arkitekt. Um skreytinguna á
framhliðinni, sem segja má að sé abstrakt
skúlptúr, eru ugglaust skiptar skoðanir
um, en einnig hún er módernísk og rímar
við húsið að öðru leyti. Laglega er farið
með liti og húsið fer vel í þessu umhverfi.
Ljósm.Guðmundur Ingólfsson.
BARÐAVOGUR 13, íbúðarhús og vinnustofa Kristjáns Davíðssonar listmálara, var með-
al þeirra húsa sem hlutu tilnefningu f umfjöllun Lesbókar sl. vetur. Málarinn var hinsveg-
ar ekki ánægður með myndina sem birtist af húsinu og má til sanns vegar færa, að
hún hafi engan veginn gefið nógu góða hugmynd um húsið og listræn tök arkitekts-
ins, Manfreðs Vilhjálmssonar. Eftir að hafa fengið mun betri mynd er Lesbók sönn
ánægja að geta sýnt betur hversu fagurt þetta hús er.
t'
10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 31. MAÍ 1997
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 31. MAÍ 1997 1 1