Lesbók Morgunblaðsins - 30.08.1997, Page 2

Lesbók Morgunblaðsins - 30.08.1997, Page 2
ISLENSKA OPERAN MOZART, DONIZETTI, LEIFUR ÞÓRARINSSON OG JÓN ÁSGEIRSSON FYRSTA frumsýning íslensku óperunnar á þessu starfsári verður 10. október, þegar Cosi fan tutte Mozarts verður sýnd. í febrúar á næsta ári verður Ástardrykkur Donizettis á dagskrá, en milli óperanna mun m.a. nýtt leikrit Ólafs Jóhanns Ólafssonar; Fjögur hjörtu, fá inni í húsakynn- um óperunnar. í marz verður svo sýnd ný ópera eftir Leif Þórarinsson og konsertupp- færsla á Galdra-Lofti Jóns Ásgeirssonar verð- ur næsta sumar í tengslum við plötuútgáfu. Það er ástralski leikstjórinn David Freeman sem leikstýrir Cosi fan tutti, sem á íslenzku hefur fengið heitið „Svona eru þær allar“, og hljómsveitarstjóri er Howard Moody. Söngvar- arnir eru; Sólrún Bragadóttir, Ingveldur Ýr Jónsdóttir, Þóra Einarsdóttir, Björn Ingi Jóns- son, Loftur Erlingsson og Bergþór Pálsson. Þeir Björn Ingi og Bergþór munu einnig syngja í Ástardrykknum, en þar verður Sigrún Hjálm- týsdóttir í aðalkvenhlutverkinu. Maríuglerið heitir ný ópera Leifs Þórarins- sonar, sem sýnd verður í marz í leikstjórn Ingu Bjarnason. Óperutónleikar Kórs íslensku óperunnar verða 8. nóvember og í marz verða kórtónleik- ar, þar sem Requiem eftir ýmsa höfunda verða á efnisskránni. Og í maí verður tekin til sýn- inga Carmen Negra (rokk-salsa uppfræsla). FJÖGUR HJÖRTU NÝTT leikrit eftir Ólaf Jóhann Ólafsson verður frumsýnt í húsi íslensku óperunnar 27. desember. Leikritið heitir Fjögur hjörtu og leikstjóri verður Andrés Sigurvinsson. Með aðal- hlutverkin fara Árni Tryggvason, Bessi Bjarnason, Gunnar Eyjólfsson og Rúrik Haraldsson. Morgunblaðið spurði Ólaf Jóhann um þetta nýja verk hans, en hann vildi ekki ræða það að svo stöddu. COSI fan tutte; Björn Ingi Jónsson, Þóra Einarsdóttir, Sólrún Bragadóttir og Bergþór Pálsson á æfingu. HILMIR SNÆR í HLUTVERKI HAMLETS GENGIÐ hefur verið frá hlutverka- skipan í jólaleikriti Þjóðleikhúss- ins, Hamlet eftir Shakespeare. Mikil eftirvænting hefur ríkt yfir hvetjir veljast til að fara með hlutverk í einu frægasta leikriti heimsbókmennt- anna. Leikstjóri verksins er Baltasar Korm- ákur. Hilmir Snær Guðnason mun fara með titilhlutverk prinsins Hamlets sem glímir við samvisku sína. Hlutverk Ófelíu er í hönd- um Þrúðar Vilhjálmsdóttur, ungrar leikkonu sem mun stíga sín fyrstu skref á fjölum Þjóðleikhússins um jólin en hún lauk námi frá Leiklistarskóla íslands í vor. Draug konungsins, Hamlet eldri, leikur Ingvar Sig- urðsson. Ingvar og Hilmir eru báðir fastr- áðnir leikarar í Þjóðleikhúsinu. Æfingar hefjast í nóvember en leikár Þjóðleihússins hefst á mánudag. Fyrsta frumsýning vetrarins verður leikritið Þijár systur eftir Anton Tsjekhof í leikstjórn Rim- as Tuminas. Þar fer Baltasar Kormákur með eitt aðalhlutverkið, bróðurinn, en syst- urnar þrjár verða leiknar af þeim Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur, Halldóru Björnsdótt- ur og Eddu Arnljótsdóttur. Meðal verka sem sýnd verða í Þjóðleikhúsinu í vetur má nefna leikgerð Kjartans Ragnarssonar og Sigríðar M. Guðmundsdóttur eftir skáldsögu Vigdís- ar Grímsdóttur, Grandavegur 7, sem sýnd verður á Stóra sviðinu undir leikstjórn Kjartans Ragnarssonar. Óskastjarnan nefn- ist nýtt leikrit eftir Birgi Sigurðsson sem Hallmar Sigurðsson leikstýrir á Stóra svið- inu. Þá frumsýnir Smíðaverkstæði Þjóðleik- hússins nýtt verk Hallgríms H. Helgasonar, Vorkvöld með krókódílum, sem Þór H. Túli- níus leikstýrir. Á Litla sviðinu verður m.a. sýnt leikritið Kaffi eftir Bjarna Jónsson í leikstjórn Viðars Eggertssonar. THE ARCHITECTURAL REVIEW FJALLAR UM HÚS í HAFNARFIRÐI TÍMARITIÐ The Architectural Review er gefíð úr í Bretlandi, en fjallar um byggingarlist í öllum heiminum. Þetta er mjög víðlesið og virt tímarit, sem á sér aldarlanga sögu, fyrst kom það út 1896. í ágústheftinu kennir margra grasa úr víðri veröld, en þar á meðal er ítarleg umfjöllun um safnaðarheimili og tónlistarskóla í Hafnar- firði, sem Teiknistofan Tröð er skrifuð fyrir. Höfundar eru arkitektarnir og hjónin Sigríður Magnúsdóttir og Hans Olav Andersen. Byggingar safnaðarheimilisins og tónlist- arskólans eru í beinu framhaldi af Þjóðkirkj- unni í Hafnarfirði og þykir sú tenging hafa gert verkið vandasamt. Þykir Architecural Review að vel hafi tekist. Birtir tímaritið 10 myndir því til sönnunar, svo og grunnteikning- ar. Einu sinni hefur það gerst áður, að Architeetural Review fjallaði um íslenska byggingu. Það var Ráðhús Reykjavíkur sem fékk svipaða umíjöllun. MENNING/ LISTIR í NÆSTU VIKU MYNDLIST Þjóðminjasafn Islands Sýningin Kirkja og kirkjuskrúð, miðaldakirkj- an í Noregi og á Islandi. Listasafn íslands ON ICELAND til 28. sept. Sögn í sjón; sýning á verkum sem byggð eru á íslenskum fornrit- um. Listasafn ASI, Freyjugötu 41 - Ásmundarsalur Aðalheiður Valgeirsdóttir sýnir til 14. sept- ember. í Gryfjunni sýnir Svanhildur Sigurðardóttir til 14. september. Ásmundarsafn - Sigtúni Yfirlitssýning á verkum Ásmundar Sveinsson- ar. Árbæjarsafn í sumar verða sýndar ljósmyndir frá Reykja- vík, ásamt ljóðum skálda. Kjarvalsstaðir - Flókagötu íslensk myndlist til 31. ágúst. í Vestursal eru landslagsmálverk frumheijanna og verk abstraktmálara, í miðrými og á ganginum verk eftir David Askevold og Árna Haraldsson. í Austursal eru verk yngri málara. Safn Ásgríms Jónssonar - Bergstaðastræti 74 Sýning á úrvali vatnslitamynda eftir Ásgrím. Norræna húsið - við Hringbraut í anddyri er ljósmyndasýning frá Samabyggð- um Finnlands eftir Jukka Suvilehto. I kjallara er sýning á verkum Urs Liithi, Elle-Mie Ejdrup Hansen og James Graham. Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði v/Suðurgötu Sögn í sjón. Hátíðarsýning handrita, opin dag- lega kl. 13-17. Þjóðarbókhlaða ísland - himnaríki eða helvíti. Sýning út ágúst. Hafnarborg í Aðalsal sýnd landslagsmálverk eftir marga af þekktustu listmálurum landsins; í Sverrissal valin verk eftir Eirík Smith; í kaffistofu trérist- ur eftir Gunnar Á. Hjaltason. Sjónarhóll Gunnar Karlsson sýnir til 31. ágúst. Nýlistasafnið - Vatnsstig 3b Færur/Sposamenti. ítölsk samtímalist. Val- gerður Hafstað í setustofu. Gallerí Hornið Helenu Junttila og Ullamaija Hánninen sýna til 10. september. Gallerikeðjan Sýnirými Sýnibox: Elsa D. Gísladóttir Gallerí Barmur: Finnur Amar Amarson. Listasafn Siguijóns - Laugarnestanga 70 Sumarsýning á völdum verkum Siguijóns. Ingólfsstræti 8 - Ingólfsstræti 8 Sýning á málverkum Lore Bert. Listasafn Kópavogs - Gerðarsafn Málfríður Aðalsteinsdóttir, Ragna Ingimund- ardóttir og Kristín Jónsdóttir sýna til 21. sept- ember. Gallerí Stöðlakot Ríkharður Valtingojer sýnir til 7. september. Gallcrí Listakot, Laugavegi 70 Birna Matthíasdóttir sýnir til 6. september. Byggðasafn Hafnarfjarðar: Undir Hamrin- um - Af lífi hafnfirskrar alþýðu til 30. sept. Myndás Ijósmyndamiðstöð, Skólavörðustíg 4: Wout Berger sýnir til 26. september. Sjóminjasafn Islands við Vesturgötu í Hf. Almenn sýning og sýning á olíumyndum Bjama Jónssonar. Listaskálinn í Hveragcrði: Björgvin Sigur- geir Haraldsson, Gunnar Karlsson, Jóhanna Bogadóttir, Kjartan Gunnarsson, Pétur Gaut- ur, Soffía Sæmundsdóttir og Valgarður Gunn- arsson. Norska húsið, Stykkishólmi: Sýning á verk- um R. Weissaves. Hulduhólar: Sýnishom úr ævistarfi Sverris Haraldssonar listmálara. til 31. ágúst, lokað mánudaga. Gull- og silfurverkstæði Jens, Kringlunni 30 ára afmælissýning: Jens Guðjónsson, Jón Snorri Sigurðsson, Haukur Valdimarsson. Pcrlan: Sýning á verkum Ingu Hlöðversdóttur Sunnudagur 31. september Hallgrímskirkja: Marteinn H. Friðriksson heldur orgeltónl. kl. 20,30. Mánudagur 1. september Listasafn Kópavog: Ólafur Kjartan Sigurðar- son bariton og Tómas Guðni Eggertsson píanóleikari halda tónl. kl. 20.30. Þriðjudagur 2. septcmber Listasafn Siguijóns Ólafssonar: Tatu Kan- tomaa harmoníkuleikari heldur tónl. kl. 20.30. Fimmtudagur 4. september Langholtskirkja: Jóhann Friðgeir Valdimars- son og Hulda Björk Garðarsdóttir halda tónl. kl. 20.30 LEIKLIST Borgarleikhúsið: Hár og Hitt lau. 30., sun. 31. ágúst, mið. 6. sept. Loftkastalinn: Á sama tíma að ári sun. 31. ágúst, föst. 5. sept. Veðmálið lau. 6. sept. fslcnska óperan: Evíta lau. 30., sun. 31. ágúst, fim. 4., fös. 5. sept. Light Niglits, Tjarnarbíói.: Sýning lau. 30. ágúst kl. 21. 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 30. ÁGÚST 1997

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.