Lesbók Morgunblaðsins - 30.08.1997, Side 7

Lesbók Morgunblaðsins - 30.08.1997, Side 7
ÁSVEGUR 28. Einbýlishús. Arkitekt: Sigvaldi Thordarson. Byggingu hússins lauk 1958. HRAFNABJÖRG 2. Einbýlishús og eigið hús arkitektsins, Fanneyjar Hauksdóttur. Byggingu hússins lauk 1996. HAMRAGERÐI31. Einbýlishús. Arkitekt: Haukur Viktorsson, 1969. Byggingu hússins lauk 1973. LINDASÍÐA 2 og 4. Fjölbýlishús fyrir aldraða. Arkitekt: Fanney Hauksdóttir, Arkitekta- og verkf ræðistofa Hauks 1992. Byggingu hússins lauk 1994. BREKKUSÍÐA 5. Einbýlishús. Arkitekt: Reynir Adamsson 1981. Byggingu hússins lauk 1986. KAUPVANGSSTRÆT11. Verzlunar- skrifstofu- og íbúðarhús. Arkitekt: Örn Sigurðsson. Húsinu telst ekki að fullu lokið. stað þar sm útsýni opnast norður yfir allan Eyjafjörð. Tuminn sem þama er, hefur orðið einskonar kennimark á fleiri byggingum Fan- neyjar og kemur fyrir í minna mæli í sambýl- ishúsinu Lindarsíðu 2-4 og glerhúsi Blómav- als að Hafnarstræti 26. Miðbær Akureyrar hefur fengið glæsilega viðbót með verzlunar-skrifstofu- og íbúðar- húsinu að Kaupvangsstræti 1. Eins og sést af myndinni hefur Morgunblaðið fengið þar inni. Þetta hús Arnar Sigurðssonar arkitekts er í hæsta máta nútímalegt og þótt það sé „á bezta stað í bænurn" skyggir það ekki á neitt annað. Það er Gísli Gestsson ljósmynd- ari og kaupmaður í Ljósmyndavörum í Reykjavík, sem auðgað hefur Akureyri með þessu húsi. í einbýlishúsinu Brekkusíðu 5 svarar Reyn- ir Adamsson arkitekt þeirri spumingu, hvort hægt sé að byggja svo fullkomlega „venju- legt“ hús að í rauninni hafi það ytra útlit hlöðu, en sé samt í hæsta máta athyglisvert. Aðeins glerskálinn víkur í forminu frá hlöðu- byggingunni, en hér skiptir ekki mestu máli hvað er gert, heldur hvernig það er gert. Gluggaskipanin, svörtu staurarnir tveir, horngluggi, útbyggingin, staurabútar út úr útvegg eiga hér þátt í merkilegu samspili og svart er síðan endurtekið á þakinu. Ef til vill var vandasamasta verkefnið af öllum þessum að hanna og byggja nýja við- byggingu við það gamla og glæsilega hús Menntaskólans á Akureyri. Það verk hafa arkitektarnir Gísli Kristinsson og Páll Tómas- son leyst með prýði. Hér hefur verið unnið af mikilli hógværð og virðingu fyrir gamla húsinu, enda er af og frá að nýja byggingin skyggi á það á nokkurn hátt. Það hefur auð- veldað arkitektunum verkið, að nýja bygging- in er bakatil og ofan við gamla húsið, svo vegfarandi sem kemur að gamla Mennta- skólahúsinu tekur naumast eftir henni. Þegar komið er að húsinu ofanfrá sést ennþá betur hvað hér hefur verið vel að verki staðið; bygg- ingarnar aðeins látnar tengjast með boga- dregnum gangi og síðan er bogaformið látið halda áfram eins og myndin sýnir, en gras- flöt uppi á þakinu og fyrirlestrasalur klæddur með bláum flísum. Sömu arkitektar hafa teiknað hús við Undirhlíð 2 sem er fagurt á allt annan hátt. Þar er léttleiki og góð birta í öndvegi og gæti virzt fremur ólíklegt að hér er hjólbarða- verkstæði til húsa. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 30. ÁGÚST 1997 T

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.