Lesbók Morgunblaðsins - 06.09.1997, Qupperneq 2
OLAFUR KJARTAN SIGURÐARSON SONGNEMI I RSAMD
FER MEÐ AÐALHLUTVERK í
AFMÆLISSÝNINGU SKÓLANS
ÚR Amlóðasögu
ÓLAFUR Kjartan Sigurðarson baríton-
söngvari og nemi í óperudeild Royal Scottish
Academy of Music and Drama (RSAMD) í
Glasgow mun fara með aðalkarlhlutverkið
í Söngleiknum Into the Woods eftir Stephen
Sondheim sem frumsýndur verður 7. októ-
ber næstkomandi í tilefni af 150 ára af-
mæli akademíunnar. Þá hefur honum verið
boðið að syngja á Opera Gala-tónleikum
Royal Scottish National Orchestra að kveldi
Nýársdags 1998 í Royal Concert Hall í
Glasgow.
Að sögn Ólafs er Into the Woods ævin-
týri fyrir fullorðna og fer hann með hlut-
verk bakara nokkurs sem lendir í hinum
ýmsu uppákomum. Söngleikurinn var frum-
sýndur á Broadway fyrir um fimmtán árum
en hefur jafnframt verið sýndur á West End
í Lundúnum við miklar vinsældir.
En hvað er nemi í óperusöng að gera í
söngleik? „Þetta kom þannig til að leikhús-
mennirnir frá Lundúnum, sem setja verkið
upp hérna í skólanum, gátu ekki fellt sig
við þá nemendur úr leiklistar- og tónlistar-
deildinni sem sóttust eftir hlutverki bakar-
ans, þannig að þeir leituðu til mín.“
í framhaldi af því var Ólafur sendur á
vegum akademíunnar suður til Lundúna
þar sem hann fundaði með umræddum leik-
húsmönnum og kynnti sér verkið. „Þeim
tókst að sannfæra mig um að það væri
sniðugt að prófa þetta. Ég lít líka þannig
á málið að þótt ég sé auðvitað fyrst og
fremst að læra óperusöng falli þetta jafn-
framt undir vinnu söngvarans. Það er gam-
an að prófa þetta, þótt ég eigi ef til vill
ekki eftir að halda svona West End-söng-
leikjavinnu áfram. Því meiri reynsla, því
bet_ra.“
Óperudeild RSAMD mun setja á svið
þrjár óperur í vetur en að sögn Ólafs ligg-
ur ekki enn fyrir hvaða verk það verða. Á
liðnum vetri tók hann þátt í uppfærslum
deildarinnar á Cosi fan tutte eftir Mozart,
Xerxes eftir Hándel og La Duenna eftir
Prokofiev. Þá kom söngvarinn fram á fjölda
tónleika.
Framundan hjá Ólafi eru tónleikar með
ýmsum hljómsveitum og kórum á Bretlandi,
þeirra stærstir Opera Gala-tónleikar Royal
Scottish National Orchestra á Nýársdags-
kvöld 1998 í Royal Consert Hall í Glasgow.
Kemur hann þar fram ásamt þremur öðrum
söngvurum en á efnisskránni verður blandað
óperuefni, aríur, dúettar og tríó. „Það er
mikill heiður og viðurkenning fyrir mig að
vera boðið að taka þátt í þessum tónleikum
sem jafnan eru vel sóttir og vekja mikla
athygli."
ÓLAFUR Kjartan Sigurðarson í hlutverki
sínu í Xerxes eftir Hándel i uppfærslu
óperudeildar RSAMD á síðasta vetri.
Ólafur mun ljúka Mastersnámi frá
RSAMD í júlí á næsta ári. En hvað tekur
þá við? „Með náminu í vetur mun ég fara
í eins margar prufur og unnt er, bæði í
Bretlandi og annars staðar í Evrópu. Því
mun ég síðan halda áfram að námi loknu
en því er ekki að leyna að ég renni hýru
auga til Þýskalands. Á þessu stigi málsins
er aðalmarkmiðið hins vegar bara að standa
á báðum fótum eftir kúrsinn og vonandi fær
maður eitthvað að gera!“
RANNVEIG FRÍÐA í
LISTASAFNI KÓPAVOGS
Rannveig Fríða Jónas Gunnar
Bragadóttir Ingimundarson Kvaran
TÓNLEIKAR verða
í Listasafni Kópa-
vogs annað kvöld,
sunnudag, kl.
20.30. Þar koma
fram Rannveig
Fríða Bragadóttir,
mezzosópran, og
Jónas Ingimundar-
son, píanóleikari,
og flytja íjölþætta
efnisskrá, m.a. lög
eftir Felix Mend-
elssohn og Johann-
es Brahms og
minnast með því
150 ára afmælis
Mendelssohns og 100 ára ártíðar Brahms.
Auk þess flytja þau nokkrar alþekktar perl-
ur íslenskra sönglaga og þrjú lög eftir Vict-
or Urbancic, sem hér bjó og starfaði um
árabil.
Gunnar Kvaran, sellóleikari, mun á þess-
um tónleikum flytja með þeim Rannveigu
og Jónasi lög eftir frönsku meistarana J.
Massenet og H. Berlioz.
Rannveig er nú á förum til Vínar, þar sem
hún býr, og eru mörg verkefni sem bíða
þar. Nú styttist í að ráðningarsamningur
hennar við óperuna í Frankfurt taki gildi
þar sem hennar fyrsta hlutverk verður Ros-
ina í Rakaranum frá Sevilla eftir Rossini,
þar mun Gunnar Guðbjörnsson syngja
aðaltenórhlutverkið, Almaviva greifa, í upp-
færslunni.
Bandamenn
til Kóreu
BANDAMENN sýna Amlóðasögu í Þránd-
heimi í dag, laugardag, og halda síðan til
Kóreu, þar sem leikhópurinn sýnir fimm sinn-
um í Seoul og verður að auki með Ieiksmiðju.
Sveinn Einarsson sagði þetta vera tólftu
utanlandsferð Bandamanna. Sýningin í
Þrándheimi í dag er á dagskrá alþjóðlegrar
Ieiklistarhátíðar í tilefni 1000 ára afmælis
Þrándheims og opnunar nýs leikhúss þar. í
Seoul fer fram leikhús þjóðanna, sem alþjóða-
samtök leikhúsmanna halda annað hvert ár,
og þar sýna Bandamenn fyrst 11. septem-
ber, tvær sýningar verða 12. og tvær 13.
Leikhópurinn verður svo með opna leiksmiðju
hinn 14 september.
Sveinn Einarsson sagði að Bandamenn
væru búnir að sýna Bandamannasögu og
Amlóðasögu víða í Evrópu og einnig N-Amer-
íku og á næsta ári hefur leikhópnum verið
boðið til Ástralíu; á leiklistarhátíð í Brisbane.
MENNING/
LISTIR
í NÆSTU VIKU
Þjóðminjasafn Islands
Sýningin Kirkja og kirkjuskrúð, miðalda-
kirkjan í Noregi og á íslandi.
Listasafn íslands
ON ICELAND til 28. sept. Sögn í sjón; sýn-
ing á verkum sem byggð eru á íslenskum
fornritum.
Listesafn ASÍ, Freyjugötu 41
- Ásmundarsalur
Aðalheiður Valgeirsdóttir sýnir til 14. sept-
ember.
t Gryfjunni sýnir Svanhildur Sigurðardóttir
til 14. september.
Ásmundarsafn - Sigtúni
Yfirlitssýning á verkum Ásmundar Sveins-
sonar.
Árbæjarsafn
í sumar verða sýndar ljósmyndir frá Reykja-
vík, ásamt ljóðum skálda.
Kjarvalsstaðir - Flókagötu
Kristján Davíðsson í 'austursal, Sigurður
Guðmundsson í miðsal og Samtímalist frá
Litháen í vestursal.
Safn Ásgríms Jónssonar - Bergstaða-
stræti 74
Sýning á úrvali vatnslitamynda eftir Ásgrím.
Norræna húsið - við Hringbraut
í anddyri er ljósmyndasýning frá Sama-
byggðum Finnlands eftir Jukka Suvilehto. í
kjallara er sýning á verkum Urs Liithi, Elle-
Mie Ejdrup Hansen og James Gramham.
Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði
v/Suðurgötu
Sögn í sjón. Hátíðarsýning handrita, opin
daglega kl. 13-17.
Hafnarborg
Handverkssýning í Sverrissal, Egill Ólafur
Strange, módelsmiður og Ijósmyndasýning
Clare Langan. Sýningar til 22. september.
Nýlistasafnið - Vatnsstíg 3b
í neðri sölum sýna Olga Bergmann og Anna
Hallin frá Svíþjóð. Hafdís Helgadóttir sýnir
í Bjarta og Svarta sal og í Súmsal sýna
Nikolaj Pavlov og Yuri Spiridonov frá Jakú-
tíu. Arnar Herbertsson er gestur safnsins í
setustofunni.
Ráðhús Reykjavíkur, Nýlistasafnið og
MÍR-salurinn
Sýning sex íslenskra og jakútskra lista-
manna: Nikolaj Pavlov, Yuri Spiridonov,
Kjuregej Alexandra, Jón Magnússon, Ragnar
Axelsson, Ari Alexander Ergis Magnússon.
Gallerí Hornið
Helenu Junttila og Ullamaija Hánninen sýna
til 10. september.
Gallerí Fold
Lu Hong og Ólöf Kjaran sýna til 21. septem-
ber.
Galleríkeðjan Sýnirými
Sýnibox: Elsa D. Gísladóttir
Gallerí Barmur: Finnur Arnar Arnarson.
Listasafn Sigurjóns - Laugarnestanga 70
Sumarsýning á völdum verkum Siguijóns.
Ingólfsstræti 8 - Ingólfsstræti 8
Sýning á málverkum Lore Bert.
Listasafn Kópavogs - Gerðarsafn
Málfríður Aðalsteinsdóttir, Ragna Ingimund-
ardóttir og Kristín Jónsdóttir sýna til 21.
september.
Gallerí Stöðlakot
Ríkharður Valtingojer sýnir til 7. september.
Gallerí Listakot,
Laugavegi 70
Birna Matthíasdóttir sýnir til 6. september.
Byggðasafn Hafnarfjarðar
Undir Hamrinum - Af lífi hafnfirskrar al-
þýðu til 30. sept.
Myndás Ijósmyndamiðstöð,
Skólavörðustíg 41
Wout Berger sýnir til 26. september.
Sjóminjasafn Islands við Vesturgötu í Hf.
Almenn sýning og sýning á olíumyndum
Bjarna Jónssonar.
Listaskálinn í Hveragerði
Björgvin Sigurgeir Haraldsson, Gunnar
Karlsson, Jóhanna Bogadóttir, Kjartan
Gunnarsson, Pétur Gautur, Soffía Sæmunds-
dóttir og Valgarður Gunnarsson.
Norska húsið, Stykkishólmi
Sýning á verkum R. Weissaves.
Perlan
Sýning á verkum Ingu Hlöðversdóttur til 7.
september.
Gerðuberg
Listsköpun barna frá Noregi, Svíþjóð, Dan-
mörku, Finnlandi og íslandi.
Sunnudagur 7. september
Tjarnarbíó v. Tjörnina: Skúli Sverrisson og
Hilmar Jensson haida tónl. kl. 20.30.
Bústaðakirkja: Kammermúsíkklúbburinn
heldur tónl. kl. 20.30.
Borgarleikhúsið
Hár og hitt lau. 6., sun. 7. fim. 11 fös. 12.
sept.
Hið ljúfa líf lau. 6., sun. 7., fös. 12. septem-
ber.
Loftkastalinn
Á sama tíma að ári föst. 12. sept.
Veðmálið lau. 6. sept.
íslcnska óperan
Evíta lau. 6., fim. 11. sept.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 6. SEPTEMBER 1997