Lesbók Morgunblaðsins - 06.09.1997, Side 12
ÍSLENZKIR vesturfarar, annaðhvort nýkomnir um borð f skipið, eða við komu þess til Granton. Myndin er eignuð Sigfúsi Eymundssyni sem var einn af agentum vesturferða.
í Hofshreppi og ólst þar upp, en lærði húsa-
smíðar á Sauðárkróki og fann þar eiginkon-
una, Guðrúnu Þorvaldsdóttur. Þau reistu bú
á Vatni í Hofshreppi 1983, fyrst á hefðbund-
inn hátt en fóru snemma að „gera út á fólk
í staðinn fyrir fé“ og leigja nú út fjögur sum-
arhús á Vatni, gistiheimili á Hofsósi, og þar
í plássinu eiga þau tvö gömul, uppgerð hús
sem einnig eru leigð út. Aukabúgreinin hefur
orðið að megin viðfangsefni. Hugmyndina
að Vesturfarasetrinu má rekja til þess, að
Valgeir kynntist því að Ferðaþjónusta bænda
var í samtökum 11 landa og var stefna þeirra
* samtaka að rækta tengsl við brottflutt fólk,
vesturfara þar á meðal.
„Húsið á sandinum" hafði hinsvegar verið
keypt 1990 í því augnamiði að varðveita
það. Valgeir hafði beitt sér fyrir endurbygg-
ingu gamalla húsa á Hofsósi. Hann tók að
sér hvert húsið af öðru, til dæmis Vilhelms-
hús, sem er blámálað og bráðfallegt og hýs-
ir nú veitingastofuna Sólvík. Nú er gamall
kjami 12-14 húsa á Hofsósi, sem öll hafa
verið lagfærð eða endurgerð og flest þeirra
eru notuð sem sumarbústaðir.
Þegar hugmyndin fæddist um Vesturfara-
setur, hafði „Húsið á sandinum" verið lag-
fært að utanverðu og leit vel út úr fjarlægð.
En nú þótti bera vel í veiði að geta fengið
því hlutverk við hæfi. Þegar ákveðið var að
. það skyldi hýsa Vesturfarasetrið, var það
allt tekið í gegn að innan og þá innréttað
með tilliti til þessarar sérstöku notkunar.
Sýning á veguns Byggdasafns
Skagfiróinga
í Vesturfarasetrinu á Hofsósi hitti ég að
máli Vigdísi Esradóttur, sem ráðin var síðast-
liðið vor sem upplýsingafulltrúi. Hún hafði
verið kennari í Reykjavík og börnin voru flog-
in úr hreiðrinu. Vigdísi og eiginmanni hennar
þótti þá tilvalið að gera kaflaskipti í lífinu
og flytja eitthvað frá Reykjavík. Þegar Vig-
dísi bauðst starfið á Hofsósi hafði hún aðeins
4 einu sinni komið þangað, en ákvað að slá
til, flutti norður og eiginmaðurinn er á leið-
inni. Nú er Vigdís meðal annars í því hlut-
verki að leiða einstaka gesti eða hópa um
setrið, sem opið er alla daga frá kl. 11-18.
Annað hlutverk Vigdísar verður að taka á
UR VESTURFARASKRA
HÉR er gripið niður á þremur stöð-
um í Vesturfaraskrá 1870-1914
eftir Júníus H. Kristinsson.
Þarna má m.a. sjá að fólkið af
Jökuldalsheiðinni er að fara og að árið
1904 flytur fjölskylda frá Sænautaseli,
bænum sem nú hefur verið gerður upp.
Úr „Húsinu“ á Eyrarbakka hefur fólk verið
að flytja vestur frá 1870 til 1904, en alltaf
einn í einu og titlarnir eru fínni en hjá
sveitafólkinu: assistent, yngispiltur, versl-
unarþjónn og fröken. Til dæmis um stór
heimili, þar sem allir hafa farið saman, er
skráin frá Egg í Rípurhreppi. Árið 1876
hafa þau Jóhann bóndi og Ragnheiður kona
hans í Egg, sem bæði hafa verið á miðjum
aldri, flutt með skyldulið og vinnufólk;
yngsta barnið ekki eins árs. Það segir sína
sögu um ungan aldur vesturfara, að á þess-
um skrám eru aðeins fjórir yfír fimmtugt.
Ripurhreppur
ÁR______________NAFN_______________ALDUR
04 Benedikt Magnússon, vinnumaður 56
04 María Jónsdóttir, vinnukona 19
Sleabrjótssel
91 Jámgerður Eiríksdóttir, vinnukona 18
Sleðbijótur
83 Stefán Eiríksson, bóndi 26
83 Oddný Sigurðardóttir, kona hans 28
83 Guðrún Stefánsdóttir, dóttir þeirra 1
83 Ólafur Eiríksson, vinnumaður 24
83 Helga Þorsteinsdóttir, vinnukona 20
93 Guðmundur Guðmundsson, vinnumaður 29
93 Mekkín Jónsdóttir, kona hans 29
93 Jón Guðmundsson, sonurþeirra 1
03 Jón Björnsson, vinnumaður 24
03 Guðný Bjamadóttir, fóstra hans 58
05 Ólafur Magnússon, bóndi 39
05 Sigþrúður Bjömsdóttir, kona hans 38
05 Guðrún Ólafsdóttir, dóttir þeirra 14
05 Sigmundur Bjömsson, vinnumaður 16
Sænautasel
76 Jónas H. Kristjánsson, bóndasonur 17
04 GuðmundurÞorláksson, bóndi 40
04 Guðný Þorsteinsdóttir, kona hans 46
04 Jón Guðmundsson, sonurþeirra 8
04 Einar Guðmundsson, sonur þeirra 7
Stokkseyrarhreppur
Háeyrarvellir
03 EyjólfurHinriksson, bóndi 36
03 Ingibjörg Björnsdóttir, kona hans 37
03 ÞuríðurEyjólfsdóttir, barnþeirra 11
03 Bjöm Eyjólfsson, barn þeirra 7
03 Guðrún Eyjólfsdóttir, bam þeirra 5
03 EybjörgJórunnEyjólfsd., bamþeirra 1
Kaupmannshúsið
70 Jón Gíslason, assistent 20
72 Hans B. Thorgrimsen, yngispiltur 19
73 Jón Pálss. Mathiesen, verslunarþj. 23
73 Guðrún Vigfúsdóttir, þjónustustúlka 28
80 Jóhanna M. Ahrens, vinnukona 22
92 Jónfna Davíðsdóttir, vinnukona 28
94 Gróa Guðlaugsdóttir, vinnukona 26
02 Margrét Skúlason, fröken 36
Ripurhreppur
Ás
76 Guðbjörg Sigfúsdóttir, vinnukona 22
87 ValgerðurKristjánsdóttir, hreppsbarn 2
zzz
74 Jósep Schram Jóhannsson 29
74 Ragnh. Jóhannsdóttir, systir hans 20
76 Jóhann Hallsson, bóndi 54
76 Ragnheiður Pálsdóttir, kona hans 55
76 JóhannSch.Jóhannss.,sonurþeirra 23
76 Elín Jóhannsdóttir, dóttir konu 34
76 Einar Sigurðsson, húsmaður 43
76 Þórunn Jensdóttir, kona hans 38
76 Sigríður Einarsdóttir, bam þeirra 12
76 Solveig Einarsdóttir, bam þeirra 5
76 JóhannPéturEinarss., bamþeirra 2
76 Ragnheiður Einarsdóttir, barn þeirra 0
76 Guðrún Ásmundsdóttir, vinnukona 17
76 Kristrún Pálsdóttir, vinnukona 15
76 Sigurður Pálsson, tökubam 11
76 Magnús Davíðsson, tökubarn 5
76 Sigtryggur Ingimundarson, vinnum. 20
76 Halldóra Ásgrímsdóttir, vinnukona 17
00 Guðrún Pétursdóttir, tökubarn 4
móti nemendum, bæði úr grunnskólum og
framhaldsskólum og stefnt er að samvinnu
við Skólaskrifstofu Skagfirðinga hvað það
varðar. Fyrirlestrasalur er í húsinu og góð
aðstaða til safnkennslu. Vert er að geta þess
að Helgi Skúli Kjartansson sagnfræðingur
hefur tekið saman námsefni undir heitinu
Vesturfarar, sem Námsgagnastofnun hefur
gefið út.
Sýningin í setrinu er í eigu Byggðasafns
Skagfirðinga sem sér um sagnfræðilega þátt-
inn. Eitthvað af safngripum var til, en öðru
hefur verið safnað. Nokkrir safngripir, áhöld
og fleira, hafa borizt safninu frá Vestur-
heimi; flestir þeirra frá Snorra Jónassyni í
Selkirk, sem nú er aldraður maður.
Endurbygging gamla kaupfélagshússins
hefur verið fjármögnuð með því að í upphafi
lögðu 15 aðilar fram 30 þúsund krónur og
fyrir þá upphæð var húsið keypt. Stofnað
var einkahlutafélagið Snorri Þorfinnsson,
nefnt eftir fyrsta baminu af evrópsku for-
eldri sem vitað er til að hafi fæðst í Vestur-
heimi; syni Þorfinns karlsefnis og Guðríðar
Þorbjarnardóttur. Félagið hefur reksturinn
með höndum og er eitt af megin markmiðun-
um að vinna að auknum samskiptum íslend-
inga og afkomenda Vesturfaranna.
Bókasafn er í Vesturfarasetrinu og hefur
það fengið góðar gjafir frá velunnurum hér
og vestanhafs. Unnið er af fullum krafti að
bóka- og heimildasöfnun. Hefur setrið m.a.
eignast 260 skyggnur eftir gömlum ljós-
myndum, sem Donald Björnsson í Gimli í
Manitoba hefur safnað. Þessar ljósmyndir
voru gjöf Ljósmyndasafns Reykjavíkurborg-
ar á eins árs afmæli Vesturfarasetursins 7.
júlí sl.
Setrið hefur og fengið að láni fjölda rita
um ættfræði og sögu vesturfara frá Héraðs-
skjalasafni Skagfírðinga. Unnið er að eflingu
ættfræðirannsókna í tengslum við Háskólann
á Akureyri, jafnframt því að sérstök áherzla
er lögð á að styrkja vináttubönd og menning-
arsamskipti við afkomendur Vesturfaranna.
Í verzlun Vesturfarasetursins er hægt að
kaupa kort, minjagripi og vandaða íslenzka
handverksmuni.
Niðurlag í næstu Lesbók.
12 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 6. SEPTEMBER 1997