Lesbók Morgunblaðsins - 06.09.1997, Page 12

Lesbók Morgunblaðsins - 06.09.1997, Page 12
ÍSLENZKIR vesturfarar, annaðhvort nýkomnir um borð f skipið, eða við komu þess til Granton. Myndin er eignuð Sigfúsi Eymundssyni sem var einn af agentum vesturferða. í Hofshreppi og ólst þar upp, en lærði húsa- smíðar á Sauðárkróki og fann þar eiginkon- una, Guðrúnu Þorvaldsdóttur. Þau reistu bú á Vatni í Hofshreppi 1983, fyrst á hefðbund- inn hátt en fóru snemma að „gera út á fólk í staðinn fyrir fé“ og leigja nú út fjögur sum- arhús á Vatni, gistiheimili á Hofsósi, og þar í plássinu eiga þau tvö gömul, uppgerð hús sem einnig eru leigð út. Aukabúgreinin hefur orðið að megin viðfangsefni. Hugmyndina að Vesturfarasetrinu má rekja til þess, að Valgeir kynntist því að Ferðaþjónusta bænda var í samtökum 11 landa og var stefna þeirra * samtaka að rækta tengsl við brottflutt fólk, vesturfara þar á meðal. „Húsið á sandinum" hafði hinsvegar verið keypt 1990 í því augnamiði að varðveita það. Valgeir hafði beitt sér fyrir endurbygg- ingu gamalla húsa á Hofsósi. Hann tók að sér hvert húsið af öðru, til dæmis Vilhelms- hús, sem er blámálað og bráðfallegt og hýs- ir nú veitingastofuna Sólvík. Nú er gamall kjami 12-14 húsa á Hofsósi, sem öll hafa verið lagfærð eða endurgerð og flest þeirra eru notuð sem sumarbústaðir. Þegar hugmyndin fæddist um Vesturfara- setur, hafði „Húsið á sandinum" verið lag- fært að utanverðu og leit vel út úr fjarlægð. En nú þótti bera vel í veiði að geta fengið því hlutverk við hæfi. Þegar ákveðið var að . það skyldi hýsa Vesturfarasetrið, var það allt tekið í gegn að innan og þá innréttað með tilliti til þessarar sérstöku notkunar. Sýning á veguns Byggdasafns Skagfiróinga í Vesturfarasetrinu á Hofsósi hitti ég að máli Vigdísi Esradóttur, sem ráðin var síðast- liðið vor sem upplýsingafulltrúi. Hún hafði verið kennari í Reykjavík og börnin voru flog- in úr hreiðrinu. Vigdísi og eiginmanni hennar þótti þá tilvalið að gera kaflaskipti í lífinu og flytja eitthvað frá Reykjavík. Þegar Vig- dísi bauðst starfið á Hofsósi hafði hún aðeins 4 einu sinni komið þangað, en ákvað að slá til, flutti norður og eiginmaðurinn er á leið- inni. Nú er Vigdís meðal annars í því hlut- verki að leiða einstaka gesti eða hópa um setrið, sem opið er alla daga frá kl. 11-18. Annað hlutverk Vigdísar verður að taka á UR VESTURFARASKRA HÉR er gripið niður á þremur stöð- um í Vesturfaraskrá 1870-1914 eftir Júníus H. Kristinsson. Þarna má m.a. sjá að fólkið af Jökuldalsheiðinni er að fara og að árið 1904 flytur fjölskylda frá Sænautaseli, bænum sem nú hefur verið gerður upp. Úr „Húsinu“ á Eyrarbakka hefur fólk verið að flytja vestur frá 1870 til 1904, en alltaf einn í einu og titlarnir eru fínni en hjá sveitafólkinu: assistent, yngispiltur, versl- unarþjónn og fröken. Til dæmis um stór heimili, þar sem allir hafa farið saman, er skráin frá Egg í Rípurhreppi. Árið 1876 hafa þau Jóhann bóndi og Ragnheiður kona hans í Egg, sem bæði hafa verið á miðjum aldri, flutt með skyldulið og vinnufólk; yngsta barnið ekki eins árs. Það segir sína sögu um ungan aldur vesturfara, að á þess- um skrám eru aðeins fjórir yfír fimmtugt. Ripurhreppur ÁR______________NAFN_______________ALDUR 04 Benedikt Magnússon, vinnumaður 56 04 María Jónsdóttir, vinnukona 19 Sleabrjótssel 91 Jámgerður Eiríksdóttir, vinnukona 18 Sleðbijótur 83 Stefán Eiríksson, bóndi 26 83 Oddný Sigurðardóttir, kona hans 28 83 Guðrún Stefánsdóttir, dóttir þeirra 1 83 Ólafur Eiríksson, vinnumaður 24 83 Helga Þorsteinsdóttir, vinnukona 20 93 Guðmundur Guðmundsson, vinnumaður 29 93 Mekkín Jónsdóttir, kona hans 29 93 Jón Guðmundsson, sonurþeirra 1 03 Jón Björnsson, vinnumaður 24 03 Guðný Bjamadóttir, fóstra hans 58 05 Ólafur Magnússon, bóndi 39 05 Sigþrúður Bjömsdóttir, kona hans 38 05 Guðrún Ólafsdóttir, dóttir þeirra 14 05 Sigmundur Bjömsson, vinnumaður 16 Sænautasel 76 Jónas H. Kristjánsson, bóndasonur 17 04 GuðmundurÞorláksson, bóndi 40 04 Guðný Þorsteinsdóttir, kona hans 46 04 Jón Guðmundsson, sonurþeirra 8 04 Einar Guðmundsson, sonur þeirra 7 Stokkseyrarhreppur Háeyrarvellir 03 EyjólfurHinriksson, bóndi 36 03 Ingibjörg Björnsdóttir, kona hans 37 03 ÞuríðurEyjólfsdóttir, barnþeirra 11 03 Bjöm Eyjólfsson, barn þeirra 7 03 Guðrún Eyjólfsdóttir, bam þeirra 5 03 EybjörgJórunnEyjólfsd., bamþeirra 1 Kaupmannshúsið 70 Jón Gíslason, assistent 20 72 Hans B. Thorgrimsen, yngispiltur 19 73 Jón Pálss. Mathiesen, verslunarþj. 23 73 Guðrún Vigfúsdóttir, þjónustustúlka 28 80 Jóhanna M. Ahrens, vinnukona 22 92 Jónfna Davíðsdóttir, vinnukona 28 94 Gróa Guðlaugsdóttir, vinnukona 26 02 Margrét Skúlason, fröken 36 Ripurhreppur Ás 76 Guðbjörg Sigfúsdóttir, vinnukona 22 87 ValgerðurKristjánsdóttir, hreppsbarn 2 zzz 74 Jósep Schram Jóhannsson 29 74 Ragnh. Jóhannsdóttir, systir hans 20 76 Jóhann Hallsson, bóndi 54 76 Ragnheiður Pálsdóttir, kona hans 55 76 JóhannSch.Jóhannss.,sonurþeirra 23 76 Elín Jóhannsdóttir, dóttir konu 34 76 Einar Sigurðsson, húsmaður 43 76 Þórunn Jensdóttir, kona hans 38 76 Sigríður Einarsdóttir, bam þeirra 12 76 Solveig Einarsdóttir, bam þeirra 5 76 JóhannPéturEinarss., bamþeirra 2 76 Ragnheiður Einarsdóttir, barn þeirra 0 76 Guðrún Ásmundsdóttir, vinnukona 17 76 Kristrún Pálsdóttir, vinnukona 15 76 Sigurður Pálsson, tökubam 11 76 Magnús Davíðsson, tökubarn 5 76 Sigtryggur Ingimundarson, vinnum. 20 76 Halldóra Ásgrímsdóttir, vinnukona 17 00 Guðrún Pétursdóttir, tökubarn 4 móti nemendum, bæði úr grunnskólum og framhaldsskólum og stefnt er að samvinnu við Skólaskrifstofu Skagfirðinga hvað það varðar. Fyrirlestrasalur er í húsinu og góð aðstaða til safnkennslu. Vert er að geta þess að Helgi Skúli Kjartansson sagnfræðingur hefur tekið saman námsefni undir heitinu Vesturfarar, sem Námsgagnastofnun hefur gefið út. Sýningin í setrinu er í eigu Byggðasafns Skagfirðinga sem sér um sagnfræðilega þátt- inn. Eitthvað af safngripum var til, en öðru hefur verið safnað. Nokkrir safngripir, áhöld og fleira, hafa borizt safninu frá Vestur- heimi; flestir þeirra frá Snorra Jónassyni í Selkirk, sem nú er aldraður maður. Endurbygging gamla kaupfélagshússins hefur verið fjármögnuð með því að í upphafi lögðu 15 aðilar fram 30 þúsund krónur og fyrir þá upphæð var húsið keypt. Stofnað var einkahlutafélagið Snorri Þorfinnsson, nefnt eftir fyrsta baminu af evrópsku for- eldri sem vitað er til að hafi fæðst í Vestur- heimi; syni Þorfinns karlsefnis og Guðríðar Þorbjarnardóttur. Félagið hefur reksturinn með höndum og er eitt af megin markmiðun- um að vinna að auknum samskiptum íslend- inga og afkomenda Vesturfaranna. Bókasafn er í Vesturfarasetrinu og hefur það fengið góðar gjafir frá velunnurum hér og vestanhafs. Unnið er af fullum krafti að bóka- og heimildasöfnun. Hefur setrið m.a. eignast 260 skyggnur eftir gömlum ljós- myndum, sem Donald Björnsson í Gimli í Manitoba hefur safnað. Þessar ljósmyndir voru gjöf Ljósmyndasafns Reykjavíkurborg- ar á eins árs afmæli Vesturfarasetursins 7. júlí sl. Setrið hefur og fengið að láni fjölda rita um ættfræði og sögu vesturfara frá Héraðs- skjalasafni Skagfírðinga. Unnið er að eflingu ættfræðirannsókna í tengslum við Háskólann á Akureyri, jafnframt því að sérstök áherzla er lögð á að styrkja vináttubönd og menning- arsamskipti við afkomendur Vesturfaranna. Í verzlun Vesturfarasetursins er hægt að kaupa kort, minjagripi og vandaða íslenzka handverksmuni. Niðurlag í næstu Lesbók. 12 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 6. SEPTEMBER 1997

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.