Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 08.11.1997, Qupperneq 14

Lesbók Morgunblaðsins - 08.11.1997, Qupperneq 14
Á ÓGNARHRAÐA I KRINGUM SOLINA _____Búist er við því að tvíæringurinn í Kwangju í ~ Suður-Kóreu dragi hundruð þúsunda listunnenda til sín í ór. Flestir koma til að sjá það helsta sem er á seyði í nútímalist í heiminum en aðrir eru spenntir fyrir hefð- bundinni asískri list og handverki en allt þrennt og meira til má sjá á tvíæringnum. ÞORQDDUR BJARNASON heimsótti Kwangju stuttu eftir opnun sýn- ingarinnar og segir hér frá því sem fyrir augu bar. ÞAÐ fer ekki á milli mála hver aðalviðburðurinn í Kwangju borg er um þessar mundir. Alls staðar má sjá fána, aug- lýsingaborða, skilti og bæk- linga um tvíæringinn sem í ár ber yfírskriftina „Unmapping the Earth“ eða Heimur án landamæra. Þetta er í annað skipti sem sýn- ingin er haldin og er búist við mikilli aðsókn fólks, bæði Kóreumanna, fólks annars staðar að úr Asíu eða úr öðrum heimshlutum, enda búa menn að velheppnuðum tvíæringi árið 1995, þegar 1.640.000 manns borguðu sig inn, eða nokkru fleira fólk en sem nemur öllum íbúum í Kwangju, en þar búa um 1,3 milljónir manna. Tvíæringurinn er haldinn í stórum almenn- ingsgarði, um 2,3 km2 að flatarmáli. I garðin- um eru Kwangju Biennal Exhibition Hall, sem hýsir aðalsýninguna, 8.471 fermetri að flatarmáli, Listasafn Kwangju borgar og Al- þýðulistasafn borgarinnar. Fyrsti tvíæringurinn bar yfirskriftina „Beyond the Borders" eða handan landamær- anna. Þar voru sýnd 1.200 listaverk eftir 660 listamenn frá 58 löndum. Sjö sýningarstjórar stjómuðu og völdu listamenn á aðalsýninguna sem var þá skipt í sjö hluta. í ár er aðalsýn- ingunni skipt í fimm hluta og er stjómað af fímm velþekktum sýningarstjórum frá Evr- ópu og Asíu. Á tvíæringnum er einnig fjöl- breytt dagskrá þar sem boðið er upp á ein- hverjar uppákomur á hverjum degi, leiksýn- ingar, tónleika, auk ýmissa hliðarlistsýninga eins og til að mynda sýningar á handverki frá Norður-Kóreu og sýningar á verkum ungra kóreskra listamanna sem að mati blaðamanns reyndist þegar öllu var til skila haldið kraft- mesta sýningin og að mörgu leyti sú mest spennandi. Fljótasti listamaðwr f heimi stjóm í um 40 ár og stjómað sýningum eins og Documenta 5 í Kassel í Þýskalandi og stjómar í kjölfar Kwangju biennalsins tvíær- ingnum í Lyon í Frakklandi. Það var með nokkurri eftirvæntingu sem ég gekk þar inn enda einvalalið listamanna samankomið. Fyrstu verkin sem blöstu við hefðu ekki getað átt betur við þema sýningar- innar. í málverkum, Ijósmyndum og verkum á vegg fjallaði listamaðurinn Ben Vautier um tíma og hraða; hraða málverksins sjálfs á ferð sinni í kringum sólina og sýndi á stórri sam- anburðartöflu á veggnum hraða ýmissa hluta, vaxtarhraða mannshárs, skriðjökuls og loft- steins á leið inn í gufuhvolf jarðar svo eitthvað sé nefnt. I Ijósmyndaverkinu „The Fastest Artist in the World“ eða Fljótasti listamaður í heimi sést listamaðurinn skjóta í gegnum nokkra striga og afraksturinn er sýndur á veggnum með myndunum. Undir verkum hans hljómar trommusláttur listakonunn ar Gabrielle Costas, myndband af gjörn- ingi sem hún framdi við opnun sýningar- innar. I næsta herbergi er sýning á teikningum hins látna þýska lista- manns Josephs Beauys á krítartöflur auk ljósmynda af listamanninum. Hann er ekki eini látni listamaðurinn sem á verk á sýningunni því einnig má sjá verk listamannanna Yves Kleins, Johns Cage, Jean Tingulys og Albertos Breccia. í formála að sýningunni segir þetta meðal annars um þemað, hraða/vatn: ,Á okkar póst- módemísku tímum, þar sem mis- munandi skilningur á tíma er ríkj- andi, þá er nauðsynlegt fyrir menn- inguna að vera sveigjanleg og laga sig að mismunandi hraða. Listamennimir á þessari sýningu munu leitast við að kanna hin ýmsu form og myndir sem hraði getur birst í.“ Morgunblaðlð/Þóroddur „PAINTERS Costume-lngres". Bae Joon Sung. Heitt var í veðri þegar blaðamaður gekk inn á sýningarsvæðið í Kwangju. Hann hafði þann stutta tíma sem hann hafði dvalið í borg- inni orðið var við að flestir virtust vera með á nótunum, höfðu séð eða ætluðu að fara á sýn- inguna og til dæmis höfðu nokkrir samferða- menn mínir í lúxusrútunni, sem ég tók frá Pusan, verið að koma gagngert til að sjá sýn- inguna. , Inni á svæðinu var fjölmenni, fólk komið til að njóta listarinnar, virða fyrir sér mannlífið og eiga góðan dag. List og framangreindar uppákomur era ekki það eina sem boðið er upp á heldur er hægt að snæða mat frá ýms- um Asíulöndum þegar hungrið sverfur að og í tívolíinu á svæðinu er hægt að auka á adrena- línflæðið í líkamanum. Straumurinn lá þó að sjálfsögðu á aðalsýninguna, „Unmapping the Earth“, þar sem fólk beið í langri biðröð eftir að komast inn. Á leiðinni þangað var hægt að virða fyrir sér ýmis útilistaverk eins og silfurhúðuðu þyrluna sem vakti mikla athygli. Eftir að hafa beðið þolinmóður í röðinni, sem liðaðist takt- fast og örugglega inn í aðalsýningarhúsið, í nokkrar mínútur, blasti fyrsta sýningin við: Speed/Water, hraði/vatn, sett saman af sýn- ingarstjóranum og listfræðingnum Harald Szeemann sem hefur starfað við sýningar- Laerir kínversku, rússneskw og kóroskw Myndbandsverk era mörg í þessum hluta sýningarinnar. Nægir þar að nefna verk lista- mannanna Stans Douglas, Bills Viola, Gary Hills og Pipilotti Rist auk þess sem listamað- urinn Rainer Ganahl, sem býr og starfar í New York, notar myndband meðal annars í áhugaverðu verki þar sem hann nálgast stað- inn og menningu landsins sem hann sýnir í á mjög beinan hátt. „4 vikur, 5 dagar í viku, 6 tímar á dag - Grunnnám í kóresku" er titill verksins sem hann sýnir. List Ganahls snýst nefnilega fyrst og fremst um það að læra tungumál og hefur hann á undanfómum árum stundað reglulegt nám í rússnesku, kínversku og kóresku svo dæmi sé tekið. í sýningarsaln- um sýnir hann meðal annars uppstaflaðar myndbandsspólur, sem hann vill kalla lær- dómshöggmynd, en á spólunum eru upptökur af listamanninum við tungumálanámið. Einnig sýnir hann krassblöð sem hann notar við lærdóminn, og á vegginn er málaður texti úr alnetsumhverfinu, frá heimasíðu lista- mannsins þar sem hægt er að virða verk hans fyrir sér, http://www.thin.net/basic.korean. Eftir að hafa virt hið annars snúna tungu- mál kóresku fyrir sér og fengið nasasjón af ENDURGERÐ Skotbarsins úr bandarísku sjónvarpsþáttunum Melrose Place var hluti af sýningu GALA hópsins á sýningunni, vakti mikla athygli og naut vinsælda ölþyrstra. ritmálinu, han-gul, sem fundið var upp á 15. öld, blasti hið áhrifamikla verk myndbands- listakonunnar Pipilotti Rist við, „Sip My oce- an“, eða Súptu sæinn minn. Verkið er tekið neðansjávar að mestu leyti og sýnir mann- eskju á sundi og hluti fljótandi í vatni. Með verkinu hljómar lagið „Wicked Game“ eftir Chris Isaak og lágt í bakgranni, eins og frekjuöskur barns í fjarska, heyrist listakon- an syngja með laginu. Þetta verk er ekki framsýnt hér á sýningunni, gert á síðasta ári og sýnt þá í fyrsta sinn. Það er reyndar raun- in með sýninguna, Unmapping the Earth, í heild sinni, að fæst verkin á henni era splunkuný. Af þessu má sjá að að vissu leyti þjónar þessi tvíæringur uppfræðsluhlutverki, að kynna fyrir fólki í landinu hvað hefur verið á seyði á undanfórnum áram í vestrinu en leggur minni áherslu á að vera leiðandi í myndlistarheiminum. Á ffflaökrwm Serge Spitzer á til dæmis eitt af skemmti- legri verkum á sýningunni, verk sem ber titil- inn „Reality Models“ eða Líkt eftir raunveru- leikanum, en verkið er endurgert á sýning- unni, var fyrst sýnt í Westfalische Kunstver- ein í M'unster í Þýskalandi. Áhorfandinn kemur inn í stóran sal, líkastan íþróttasal, þar ’ 14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/USTIR 8. NÓVEMBER 1997

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.