Lesbók Morgunblaðsins - 10.01.1998, Page 6
Rétt eins og við er að búast fjallar Barlaams
saga og Jósaphats um slíkt vandamál: „En allt
veraldar glys og góðendi eru á litlu auga-
bragði á brottu sem það sé allt sjónhverfingar
eða draumar." „Vit það sannlega að hver lif-
andi maður líður skjótt af sinni sælu, og öll
heimsins dýrð er á einu augabragði auð og
dauð. Og þessa heims flúr og fegurð fellur
skjótt og folnar".
í heimspeki Hauksbókar hljóðar upphaf
einnar hugleiðingar á þessa lund: „Ríkdómur
heims líður sem sofanda manns draumar, er
alls missir þegar vaknar. Með sama hætti er
óstöðugleg gleði heimsins, er mann glaðar um
nokkura stund, en þá er minnst varir þá kem-
ur dauðinn og rænir hann bæði fé og gleði“.
Slíkt minnir óneitanlega á ummæli Barlaams
sögu og Jóaphats: „Leggið enga elsku við
heiminn eða við það er honum fylgir, því að
heimurinn líður skjótt og öll hans fegurð“.
„Heimur sjá er hverfull og hégómlegur, og allt
það sem honum fylgir hverfur brátt og að
engu verður".
Þá hugmynd að auðævi séu ekki einungis
hverful heldur valdi einnig leiðindum orða Sól-
arljóð á þessa lund: „Ljósir aurar/verða að
löngum trega.“ Um heimskandi áhrif auðs eru
þau hvergi myrk í máli (34): „Margan hefir
auður apað“. Hér er farið eftir Hávamálum:
„Margur verður af aurum api.“
Fégirni glepur fyrir (Sól. 34): „Vil og dul /
tælir virða sonu, / þá er fíkjast á fé.“ Og lítt
þykir til þeiina koma sem þyrpast til Fé-
gjams-borgar með byrðir af blýi (Sól. 63).
10. Óvsentir atbwrðir
í latínu og öðrum tungum hníga spakmæli í
þá átt að enginn geti vitað fyrir hvað gerist,
enda fari oft svo að það dynur yfir sem síst er
von á. Afbrigðið í Sólarljóðum (8. er.):
Margan það sækir
er síst varir
er sambærilegt við ýmsa staði í fornritum.
Einna líkust að orðalagi er Orkneyinga saga:
„Margan hendir það er minnst varir.“ í Ragn-
ars sögu loðbrókar eru myndir frábrugðnar:
„Verður mjög mörgu sinni / það er minnst var-
ir sjálfan“ og „Verður það mjög mörgu sinni
það er minnst varir sjálfan." Málsháttakvasði:
„Nú verður sumt það er mangi varir.“ Eilina
ólíkust eru Hávamál (40): „Margt gengur \*§rr
en varir.“ „Margt verður öðmvísi en ætlað er,“
Dámusta saga, (103). „Margt verður öðruvísi
en ætlað er,“ Möttuls saga, (1949: 271-72).
„Margt verður annan veg en maðurinn ætlar
fyrir sér,“ Jómsvíkinga saga, „Verður það er
varir og svo hitt er eigi varir“ Grettla (41).
11. Að vita fátt fyrir
í kristnum ritum bregður fyrir þeirri hug-
mynd að það sé „náttúra sumra andskota að
þeir vita fyrir óorðna hluti til þess að þá megi
þeir framar svíkja menn en áður, þá er þangað
hafa átrúnað, og er það kallaður fítonsandi". í
slíku sambandi er fróðlegt að minnast Loka-
sennu, en í henni er talið að bæði Frigg og
Freyja viti örlög manna fyrirfram, rétt eins og
Oðinn sjálfur. Einstaka spekingar í hópi dauð-
legra manna eru einnig taldir gæddir slíkum
gáfum, svo sem Gestur Oddleifsson í Njálu og
Grípir í Grípisspá. I heiðni mun framsýni af
þessu tagi hafa verið tengd Oðinsdýrkun.
A hinn bóginn skýtur sú kenning einnig upp
kolli hér og hvar að framsýni geti raskað hug-
arró manns og því sé betra að vera fáfróður
um ókomna hluti. Sólarljóð (34) styðja slíka
hugmynd:
Glaður að mörgu
þótta eg gumnum vera,
því aá eg vissa fátt fyrir.
Rétt eins og bent hefur verið á, þá mun
viska þessi stafa frá Hávamálum (57):
Örlög sín
viti engi fyrir;
þeim er sorglausastur sefi.
Hugsvinnsmál haga orðum með svipuðu
móti:
Orlög sín
viti engi fyrir,
né um það önn ali.
Ennfremur: „Til farsælu sinnar/þarf engi
maður frétt að reka / né um það önn ala. / Guð
veit gerst/hverjum hann giftu ann./Vitu það
ei fyrðar fyrir.“
Ymsir kristnir höfundar voru andvígir fram-
sýni: „Eigi megu menn það vita fyrir óorðna
hluti, því að það er meira en mannleg náttúra
megi vita. Goðum einum er það lofað, er
ódauðlegar eru, óorðna hluti fyrir ið vita“.
Barlaams saga og Jósaphats. Franski gaman-
leikurinn Pamphilus verður til samanburðarr
„Rás örlaganna er hulin huga manna. Að vita
ókomna hluti heyrir guði einum til.“
Höfundur er fyrrverandi prófessor við Edin-
borgarhóskóla.
MENNINGARVERK-
TAKAR (MYNDLIST
Morgunblaðið/Ásdís
HELGI Sigurðsson, Jón Proppé og Hannes Sigurðsson standa að
menningarverktakafyrirtækinu art.is.
Nýtt fyrirtæki á myndlistar-
sviði kemur fyrir almenn-
ingssjónir í fyrsta sinn í
dag. art.is heitir það og
eins og nafnið bendir til
verða höfuðstöðvar þess og
andlit á Netinu. í tilefni af
opnunarsýningu Jóns
Oskars í nýju galleríi Sævars Karls við Banka-
stræti verður opnaður „gluggi“ að vefsíðu
art.is, sem stækka mun jafnt og þétt, og þegar
Listahátíð í Reykjavík hefst í maí verður þar
að finna gnótt efnis um íslenska myndlist að
sögn forsvarsvarsmanna nýja fyrirtækisins.
ÞAÐ eru Hannes Sigurðsson listfræðingur,
Jón Proppé mj'ndlistargagnrýnandi og Helgi
Sigurðsson grafískur hönnuður sem standa að
art.is og skipta þeir þannig með sér verkum að
Hannes er framkvæmdastjóri, Jón er ritstjóri
vefsins og Helgi vefstjóri.
Að sögn þremenninganna er art.is einka-
framtak, sjálfstætt fyrirtæki en ekki stofnun
eða félag. „Það er samstarfsvettvangur þar
sem fjár verður aflað til ákveðinna verkefna
sem gagnast .breiðum.hópi fólks og í raun sam-
félaginu öllu,“ að sögn Hannesar.
„Það má segja að höfuðstöðvar art.is séu á
Netinu það endurspeglar þann „strúktúr" sem
fyrirtækið byggir á,“ segir Jón. .„Vandamálið
er að það kostar tíma og peninga að búá til
vandað og fjölbreytt netefni og ef þessu efni er
síðan dreift ókeypis á Netinu tapast pening-
amir. Lausn art.is er að nota Netið sem vett-
vang til kynningar og til að mynda kjarna að
fjölbreyttari starfsemi sem síðan er fjármögn-
uð með margvíslegum hætti,“ segir Hannes.
„í stað þess að Netið sé markmiðið með
starfsemi art.is verður það í raufr starfsvett-
vangur þess. art.is_býr ekki til netefni til að
kynna starfsemi sína nema að takmörkuðu
leyti, heldur fer starfsemin fram fyrir opnum
tjöldum á Netinu. Þar sem rekstrarkootnaður
er lítill í samanburði við önnur fyrirtæki og
stofnanir er ekki þörf á því að netstarfsemin
sjálf standi alfarið undir sér,“ segir Jón.
Að sögn Hannesar starfai- art.is nú þegar
sem ráðgjafafyrirtæki á sviði myndlistar, þar
sem fyrirtækið hefur tekið að sér sýningar-
stjóm í nýju og glæsilegu myndlistargalleríi
Sævars Karls við Bankastræti. Galleríið verð-
ur opnað í dag með sýningu á verkum Jóns
Óskars sem art.is hefur haft umsjón með. Þá
hefur art.is tekið að sér umsjón með Sjónþing-
um Gerðubergs í samvinnu við listadeild stað-
arins. Einnig er unnið að því að endurvekja
sýningahald á Mokka í samstarfi við eigendur
kaffihússins. Á Listahátíð Reykjavíkur í vor
hefur art.is tekið að sér umsjón með viðamikilli
sýningu i Nýlistasafninu sem hlotið hefur heit-
ið Flögð og fögur skinn.
„Art.is mun bjóða einstaklingum jafnt og
fyrirtækjum upp á ráðgjöf við innkaup á lista-
verkum, faglega umsjón með listaverkasöfnum
þeirra og notkun myndlistar í kynningarstarf-
semi,“ segir Hannes.
„Það sem art.is býður fyrirtækjum og stofn-
unum er í raun þekking og reynsla á sviði ís-
lenskrar myndlistar. Innan vébanda art.is er
fjöldi þess fólks sem mesta reynslu hefur af ís-
lenskri myndlist og mesta þekkingu á henni,“
bætir Jón við.
Helgi vefstjóri segir að vefsíða art.is verði
mjög vönduð og hefur um fjörutíu íslenskum
myndlistarmönnum þegar verið boðin þátttaka
í vefnum. Allar upplýsingar verða bæði á ís-
lensku og ensku. „Við opnum vefinn í dag, 10.
janúar, en vefur art.is verður formlega opnað-
ur og kynntur út í heimi í apríllok," segir
Helgi.
Á vefsíðunum verða sýnd verk eftir lista-
mennina fjörutíu, en jafnfram eru birtir þar
fjölmargir textar um myndlist þeirra og um ís-
lenska myndlist almennt, bæði sögulegt efni og
efni sem tengist líðandi stund. „Líkt og við val-
ið á þeim listamönnum sem boðið er að vera á
vefnum er einnig tryggt að umfjöllunin um þá
verði eins vönduð og kostur er,“ segir Jón.
„Ýmsir af okkar þekktustu gagnrýnendum og
listfræðingum ætla að leggja vefnum til marg-
víslegt efni, en þeir eru Aðalsteinn Ingólfsson,
Auður Ólafsdóttir, Gunnar J. Árnason, Halldór
Björn Runólfsson, Ólafur Gíslason og Þorgeir
Ólafsson. Mikilvægt er þó að taka skýrt fram
að þessir fræðimenn bera enga ábyrgð á fyrir-
tækinu, aðeíns því efni sem þeir leggja nafn
sitt við. Við höfum hvarvetna mætt miklum
áhuga og skilningi á því að efla kynningu á ís-
lenskri myndlist eins og þessai- undirtektir
sanna,“ segir Hannes.
„Vefurinn er byggður að nokkru leyti upp
eins og tímarit, þótt alitaf megi nálgast þar all-
ar upplýsingar um myndlistarmennina og verk
þeirra," segir Helgi. „Þetta þýðir að nýju efni
verður vikulega bætt inn á síðurnar og það
kynnt rækilega. Þannig munu menn alltaf
finna eitthvað nýtt á vefnum þegar þeir fara að
venja komur sínar þangað. Stöðug vinna verð-
ur lögð í að endurnýja upplýsingar og bæta inn
forvitnilegu efni. Jafnframt verður komið á fót
viðamiklum gagnabanka um sögu íslenskrar
myndlistar er fram líða stundir."
Hannes segir rétt að taka fram í þessu sam-
hengi að ólíkt Upplýsingamiðstöð myndlistar
miði art.is að því að vera virkur þátttakandi í
myndlistarlífinu. „Skráning og skipulag upp-
lýsinga er aðeins hluti af starfsemi art.is. Þá er
líka rétt að minna á að Upplýsingamiðstöðin
leggur ekki mat á verk þeirra sem hún kynnir
og getur því ekki orðið leiðandi afl í beinni
markaðssetningu á því besta úr íslensku mynd-
listarlífi," segir Hannes.
„Vefsíða art.is er líka ólík Menningarvefnum
en ætti hins vegar að skoðast sem mikilvæg
viðbót við þann vef í miðlun upplýsinga um
myndlist og menningu á íslandi. Það er von
okkar að gott samstarf takist við Menningar-
vefinn um þetta sameiginlega markmið, sem og
aðrar menningarstofnanir í landinu,“ segir
Jón.
Hannes segir að vefsíðán muni bæta úr
brýnni þörf á upplýsingum um íslenska mynd-
list fyrir útlendinga. „Jafnvel áhugasömustu
listfræðingar erlendis hafa engin tök á því að
fræðast um íslenska myndlist umfram almenn
ágrip eða stakar sýningaskrár með erlendum
texta." „En við lítum líka til þess að upplýsing-
ar um myndlist skortir sárlega fyrir íslendinga
sjálfa,“ segir Jón. „Því verður jafnframt lögð
áhersla á að byggja vefinn þannig upp að hann
nýtist sem kennslugagn innanlands, bæði fyrir
skóla og almenning. Það er markmið art.is að
strax næsta haust verði gefið út efni til leið-
beiningar um notkun vefsins við kennslu og
nám og að síðan verði unnið að því að byggja
upp sérstakt vefmiðmót til að nota við
kennslu," bætir Jón við, sem þekkir vel hvar
skórinn kreppir í þessu efni því hann hefur um
nokkurt skeið kennt listasögu við Kennarahá-
skóla íslands. „Þessum lið í starfseminni verð-
ur þó ekki unnt að sinna af myndugleik nema
til komi nokkur opinber stuðningur og þátt-
taka sérfróðra aðila frá menntastofnunum,"
segir Hannes.
„Til þess að koma nýju efni vefsíðunnar jafn-
óðum á framfæri verður forsíða vefsins send
vikulega sem tölvupóstur til fjölda aðila um all-
an heim, sýningastjóra, myndlistarmanna,
safna, tímarita, gallería og annarra sem starfa
að myndlist eða hafa áhuga á henni,“ segir
Hannes. „Vefurinn getur því orðið eins konar
lykill að því besta í myndlist hér á landi og
stuðlað að aukinni umfjöllun og útbreiðslu á
verkum listamannanna. Art.is mun um leið
sinna hlutverki umboðsmanns að nokkru leyti,
svara fyrirspurnum sem berast gegnum Netið
og hafa milligöngu gagnvart söfnum og sýning-
arstjórum erlendis,“ segir Jón.
Hannes klykkir út með því að segja að hinu
nýja fyrirtæki sé ætlað að vera framsækið,
jafnt innan lands sem utan. „Það á að vera við-
bót við söfnin og mynda þannig nýtt og eftir-
sóknarvert þrep í íslensku myndlistarlífi.“
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 10. JANÚAR 1998