Lesbók Morgunblaðsins - 10.01.1998, Side 12

Lesbók Morgunblaðsins - 10.01.1998, Side 12
ÞÓRÐUR TÓMASSON PRESTUR - FRUMHERJI - SKÁLD EFTIR RAGNAR LÁR Fóein orð um merkan íslending í tilefni ummæla í grein eftir ÖRN ÓLAFSSON íLesbók. Engin deíli? DOKTOR Öm Ólafsson, fyrrum lektor í Kaupmannahöfn, hefur skrifað fróðlegar greinar undir fyrirsögninni „Islenskar bók- menntir á dönsku“ og hafa þær birst í Lesbók Morgunblaðsins að undanfömu. í annarri grein, sem að mestu fjallar um Gunnar Gunnarsson skáld og rithöfund, er getið nokkurra íslenskra rithöfunda sem skrifuðu á dönsku. í upptalningunni er setn- ing sem mér þótti „afgreiða" einn rithöfund- inn á kaldranalegan hátt. Setningin er þessi: „A uk þeirra má telja Pórð Tómasson sem ég veit engin deili á, en gaf út a.m.k. fimm bækur á árunum 1922-31, allar mjög kristilegar af titlunum að dæma“, (leturbr. mín). Svo mörg em þau orð fræðimannsins um Þórð Tómas- son. Það er varla skylda fræðimanna að þekkja til allra manna af íslensku bergi brptna, sem skrifað hafa á dönsku, eða hvað? í eftirfarandi grein ætla ég að stikla á stóm í lífi og starfi Þórðar Tómassonar. Von mín er sú, að þær takmörkuðu upplýsingar sem í greininni koma fram, verði til þess að vekja athygli fræðimanna á þeim merka manni, Þórði Tómasi Tómassyni, presti, skáldi, fram- herja og mannvini. Af Fiölnismanni kominn Þórður Tómas Tómasson var fæddur á Akureyri 7. desember árið 1871. Foreldrar hans vora Þórður Tómasson, Sæmundssonar prests og Fjölnismanns á Breiðabólsstað. Þórður eldri var fæddur 1837 og dó árið 1873. Móðir Þórðar yngra var dönsk, Camilla Christine fædd Enig árið 1847, dáin árið 1926. Þórður yngri var því náfrændi Jóns biskups Helgasonar, (1866-1942), en séra Jón var son- ur Þórhildar Tómasdóttur Sæmundssonar og Helga lektors Hálfdanarsonar. Jón biskup Helgason lagði ætíð áherslu á gott samband íslensku kirkjunnar við erlendar kirkjur og ekki síst þá dönsku. Naut hann meðal annars tilstyrks frænda síns og vinar séra Þórðar við þá vinnu. Faðir séra Þórðar og nafni, Þórður Tómas- son Sæmundssonar, lærði til læknis í Kaup- mannahöfn. Þar kvæntist hann fyrmefndri Camillu Christine. Hann fékk veitingu fyrir héraðslæknisembættinu á Akureyri og fluttu u.-igu hjónin þangað árið 1867. í Sögu Akur- eyrar eftir Klemens Jónsson segir m.a. svo um Þórð Tómasson héraðslækni: „Kom þá í hans stað 1868“, (þ.e. annars læknis sem um er rætt) „Þórður Tómasson, prófasts á Breiðabólsstað í Fljótshlíð; hann andaðist 2. nóv.br. 1873, og hafði verið vel lát- inn læknir. Kona hans var dönsk. Sonur þeirra var Þórður, prestur í Danmörku, í tölu helstu presta þar, (leturbr. mín), var hann fæddur á Akureyri". „Gráttu ekki mamma mín" Eins og fram kemur hér að framan varð Þórður læknir ekki langlífur. Aðeins 36 ára gamall lést hann úr lungnabólgu. Eina kalda októbemótt árið 1873 var hann kallaður til sængurkonu úti í sveit. Stórhríð var á með grimmdarfrosti. Lækninum tókst að taka á móti nýju Iífi, en lét sitt í staðinn nokkra síðar vegna ofkælingar á langri leið. Kona héraðs- læknisins var nú orðin ekkja, aðeins 26 ára, með bömin þeirra tvö, Maríu sex ára og Þórð Tómas tveggja ára. Það var ekki bjart framundan fyrir ekkjuna ungu með börnin tvö. En hún Iét ekki bugast. Hún flutti á ný til Kaupmannahafnar og barðist fyrir framtíð bamanna. Þegar Þórður litli sá móður sína gráta bónda sinn sagði hann: „Gráttu ekki mamma mín, ég skal verða maðurinn þinn þegar ég verð stór.“ Þórður Tómasson gaf út sína fyrstu ljóðabók „Mellem Bedeslag" árið 1922 og tileinkaði hana móður sinni. Arið 1925 kom út bókin „Kors og Krone“ en þá bók til- einkaði hann systur sinni Maríu. Auk þessara bóka kom út Ijóðabókin „Daggry“ árið 1928. ÞÓRÐUR Tómas Tómasson prestur, frum- herji og skáld. Þýðing séra Þórðar á Passíusálmum Hall- gríms Péturssonar kom út árið 1930. Auk þeirra bóka sem hér era nefndar samdi hann „En lille Julebog“ 1914 til 1925. Ótaldar era að sjálfsögðu allar þær ritsmíðar í blöðum og tímaritum sem séra Þórður lét frá sér fara í tengslum við lífsstarf sitt, en áhrifa þeirra gætir enn. Ekki síst á það við um það mikla starf sem hann innti af hendi í þágu ungdóms- ins. „Fátsekraskólinn" Sem fyrr segir settist ekkjan unga að í Kaupmannahöfn. Börnin gengu í skóla sem bar það virðulega nafn „Det kgl. Danske Va- isenhus’skole". Vegna námshæfileika sinna fékk Þórður inni í „Borgerdydsskolen“ í Kri- stjánshöfti tólf ára gamall. Til að gera langa sögu stutta má geta þess að ýmsir mektar- menn urðu til að styðja við bakið á hinum unga og efnilega námsmanni. Þórður Tómasson varð guðfræðingur og vígðist sem prestur til Klosterskirkjunnar í Horsens á Jótlandi. Hann varð strax mjög virkur í öllu starfi meðal sóknarbarna sinna, ekki síst í starfi meðal ungmenna og hafði þar áhrif sem enn sér stað, ekki aðeins í Horsens, heldur um alla Danmörku. Þórður Tómasson þjónaði sínum stóra söfnuði í Horsens í 27 ár. Þegar hann lét af störfum í Horsens varð hann prestur við nunnuklaustrið í Vemmetofte. Þegar í bamaskóla vakti tilfinning Þórðar fyrir danskri tungu mikla athygli og náði hann þeim tökum á móðurmáli sínu sem æ síðan vakti aðdáun og virðingu hvort heldur sem var í ræðu eða riti. Kirkjuklukka á islenskum legsteini Þórður Tómasson lést árið 1931 á sumar- dvalai-stað sínum á eyjunni Fanö. Hann var lagður til hinstu hvílu í Vestre kirkegaard I Kaupmannahöfn. Sunnudaginn 23. ágúst 1931 var þess getið við guðþjónustu í Klosterkirkj- unni í Horsens að Þórður Tómasson hefði and- ast daginn áður á Fanö. Fyrmefnd guðþjón- usta var m.a. haldin í tilefni þess, að ákveðið hafði verið að taka niður gömlu kirkjuklukk- una og setja nýja upp í staðinn. Hljómur gömlu klukkunnar þótti orðinn veikur og sár. Söfnuðinum fannst sem nokkur teikn hefðu átt sér stað og kom fram sú fagra hugmynd að gamla klukkan skyldi sett á leiði Þórðar og var svo gert síðar. Legsteinninn kom frá Is- landi og á honum hvílir gamla kirkjuklukkan. Á legsteininum stendur: „Fra Island kom stenen fra Horsens Klosterkirkens gamle klokke, der tav, da han döde. Venner i Dan- mark og Island rejste dette Minde.“ Sergin gleymir engum Á jóladag, 25. desember 1898 kvæntist Þórður Tómasson í Jakobskirkju í Kaup- mannahöfn. Kona hans hét Thora Christine fædd Payberg, (1875-1949). Þórður og Thora eignuðust þrjár dætur, Inger, Ellen og Aase. Thora veiktist skömmu eftir aldamótin og var lögð inn á geðsjúkrahúsið í Árósum og átti þaðan ekki afturkvæmt. Má nærri geta hví- líka sorg það bakaði Þórði og ungum dætram hans. Sem fyrr segir andaðist Thora Christine árið 1949, átján áram eftir lát eigin- mannsins og var hún lögð til hinstu hvílu við hlið hans. Þórður sá að mestu einn um uppeldi dætra sinna og fórst það vel úr hendi sem annað. Þær systur áttu góða æsku hjá kær- leiksríkum föður, þrátt fyrir skuggann sem hvíldi yfir heimilinu vegna veikinda móður- innar. íslandsheimsókn 1922 Þórður hafði alla tíð mikinn áhuga á nánari sambandi islenskrar og danskrar kirkju eins og fyrr er getið. Jón biskup Helgason, frændi hans og vinur, heimsótti gjama frænda sinn í Danmerkurferðum sínum, auk þess sem þeir höfðu bréflegt samband. Þórður ferðaðist víða um lönd og auðnaðist honum að heimsækja foðurland sitt árið 1922. Hér á landi var hon- um vel tekið og fann fyrir þeirri hlýju hjart- ans sem þeir f slendingar sögðust hafa fundið sem heimsóttu hann til Danmerkur. Þeir frændumir séra Þórður og Jón biskup þóttu um margt lfldr, hvort heldur var í útliti eða að innræti. Þegar ég sem þetta skrifa sé mynd af Þórði kemur mér séra Hálfdan Helgason, fyrram prestur að Mosfelli í Mosfellssveit, í huga, en hann var sonur Jóns biskups Helga- sonar. Ættarmótið leynir sér ekki. Passíusálmarnir og sfðasta prédikun Þegar séra Þórður Tómasson var orðinn prestur í Vemmetofte hafði hann fleiri frí- stundir en þá hann þjónaði hinum stóra söfn- uði í Horsens. Því var það árið 1930 að honum hafði tekist að ljúka því stórvirki að þýða Passíusálma séra Hallgríms á dönsku og kom þýðingin út það ár. í dönsku sálmabókinni era sálmar úr þessari þýðingu, auk frumsaminna sálma efdr séra Þórð. Séra Þórður hélt síðustu prédikun sína í kirkjunni í Sönderho á Fanö 2. ágúst 1931. í Sönderho hafði hann átt fallegt „Fanö-hús“ til margra ára. Svokölluð Fanö-hús era byggð í nokkuð sérstökum stíl sem rekja má til frís- nesku eyjanna. Séra Þórður var í hópi þeirra mörgu lista- og menntamanna sem áhuga höfðu fyrir varðveislu þeirra sérsöku Fanö- húsa sem Sönderhoþorpið samanstendur af. Barátta þessara manna varð til þess að í dag er Sönderho merkasta þorp sinnar tegundar. Séra Þórður var mikilsvirtur á Fanö sem ann- arsstaðar. Að honum drógust listamenn og aðrir menntamenn og vora stundir í húsi hans eftirsóknarverðar sakir andrflds húsráðand- ans. Enn í dag syngja Fanöbúar „þjóðsöng- inn“ sem séra Þórður samdi handa þeim. Séra Þórður hafði óskað þess að fá að deyja á Fanö. Honum varð að ósk sinni. Þrem vik- um eftir fyrmefnda prédikun andaðist séra Þórður í Sönderho. Sem fyrr segir var séra Þórður lagður til hinstu hvilu í Vestre Kir- kegaard í Kaupmannahöfn 27. ágúst árið 1931. Jarðarförin var gífurlega fjölmenn og fylgdu honum meðal annars fulltrúar frá þeim söfnuðum sem hann hafði þjónað og þeim fjöl- mörgu mannræktarfélögum sem hann hafði ýmist stofnað eða lagt lið. Fulltrúi íslands var Sveinn Bjömsson sem síðar varð fyrsti forseti landsins. „Slægter dö, men sproget binder" Þegar Kristján Eldjám forseti íslands var í opinberri heimsókn í Danmörku árið 1970 var m.a. haldin íslensk-dönsk veisla í „Frederiks- berg Raadhus". Einn af ræðumönnum var sá kunni ritstjóri Bent A. Koch. I ræðu sinni vitnaði hann í ljóð sem hefur að geyma þessar línur: „Slægter dö, men sproget binder. Fremtid gror af dyre minder“. Þótti tilvitnunin vel hæfa tilefninu. En eftir hvem voru ljóðlínum- ar? Jú, þær vora úr svonefndu Dybböl-ljóði séra Þórðar Tómassonar. Vissulega er ofanskráð greinarkom afskap- lega ófullkomin ritsmíð. En ég bið lesendur að taka viljann fyrir verkið og vona um leið að þeir séu nokkurs vísari um þann merka mann séra Þórð Tómasson. Best væri ef ritsmíðin sú ama yrði til þess, að ekki yrði lesin setning eftir íslenskan fræðimann á borð við þá sem vitnað var til í upphafi, þ.e.a.s: ,Áuk þeirra má telja Þórð Tómasson sem ég veit engin deili á... „. Heimildir: Saga Akureyrar eftir Klemens Jónsson. Thordur Tomasson, Præst - Igangsætter - Digter, eftir Carl Th. Jörgensen. Merkir íslendingar. Höfundur er myndlistarmaður og lcennari KRISTJÁNJ. GUNNARSSON ALDREI AÐ VITA Margir segja hérvistina bara til að búa fyrir himnaför í haginn. Og hinir eru til sem telja öllu lokið þegar torfan kyssir náinn og grasið hylur tóttina. En aldrei er að vita hvort betra er að deyja inní daginn eða dvína burt og slokkna útí nóttina. LOKASPRETTUR Ferðbúinn bíður rakkinn. Berartennur. Urrar er sestu öfugt í hnakkinn. Heljartaki þú heldur í taglið og hefur upp spora. Hleypur Bleikur trylltur. Reistur makinn. Blakar eyrum. Brettist grönin. Bylgjast mönin. Hvítmatar hægra auga, á hinu vaglið. Hlaupið bhndingsleikur um ófærur urða og fora ofaní kviksyndið, dökkvan jarðarsora. Geiglaus skaltu til þinnar grafar þora. GRAFSKRIFT A dauðans stund þú gekkst á guðs þíns fund og gleymdir hverri kvöl sem var og er. Úr grýttrijörð þú grófst þitt falda pund og gildisrýrt það féll í lófa þér. Þitt gull var léttvægt, guð það veit og sér, er galstu brotasjóð ínáðarmund. í miskunn drottinn mildum höndum fer um mein þín öll og græðir hverja und. Höfundurinn er fyrrverandi fraeðslustjóri i Reykjavik. Ljóðin eru úr nýrri Ijóðobók hans sem heitir Tvöhll bókhald. Útgefandi er Skókprent. 12 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/USTIR 10. JANÚAR 1998

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.