Lesbók Morgunblaðsins - 01.08.1998, Page 10
GAMLI bærinn í Brokey. Myndin er tekin fyrir 1902 en þá var þessi bær rifinn og byggt tveggja hæða timburhús sem stóð þar til 1955.
LYSTIVAGNINN í Stykkishólmi. Ekki er vitað hvenær myndin var
tekin, en á þessum lystivagni var hægt að komast í ökutúr
um bæinn og næsta nágrenni.
HEYBAND flutt í land í Stykkishólmi, að líkindum
einhverntíma fyrir miðja öldina, en úti í
eyjum öfluðu menn heyja.
STYKKISHÓLMUR 1868. Þessa elztu mynd
sem til er af bænum tók
Sigfús Eymundsson.
VEIZLUHÖLD í Stykkishólmi 1909 í tilefni vígslu nýrrar hafskipa-
bryggju. Myndin hefur dofnað en sýnir þó að Hólmarar eru f sínu
fínasta pússi og klæddir eftir tízku tímans.
GARÐVEIZLA utan við Egilshús sem byggt var 1867 og er eitt af
þeim húsum frá síðustu öld sem setja svip á staðinn. Enda þótt
húsinu sé vel við haldið hefur það breyzt talsvert í útliti. Þama má
sjá að klassískar „tilvitnanir" hafa verið settar á gaflinn til skrauts;
annarsvegar súlur með súlnahöfuðum og hinsvegar útskorin vind-
skeið. Athyglisverður er einnig hinn virðulegi dyraumbúnaður. Mað-
urinn í tvíhnepptum frakka lengst til hægri er Sigurður Sigurðsson,
sýslumaður.
VIRÐULEGIR borgarar í Stykkishólmi, samankomnir í sextugsaf-
mæli Guðmundar Guðmundssonar læknis, föður Ásu Wright sem
flutti til Trinidad og stofnaði síðan sjóð sem við hana er kenndur.
Ungi maðurinn lengst til vinstri er Sigurður Ágústsson, síðar kaup-
maður og alþingismaður, en Ágúst Þórarinsson faðir Sigurðar er
þriðji frá vinstri. Ekki er vitað með vissu hvar afmælisbarnið er á
myndinni og ekki heldur hver konan er fyrir miðju. Maðurinn með
kúluhattinn hægra megin við hana er Sæmundur Halldórson kaup-
maður í Sæmundarbúð og lengra til hægri eru Páll sýslumaður og
Ebeneser Sívertsen smiður.
SVEINN
GUÐMUNDSSON
ISLANDS
LIUA
Vorgeislar sólar sindra
sigrandi brosa móti,
grænum túnum og glókollum
blóma.
Mannsins hugur mildast
mundin linast á skafti.
Hugur leitar lífsins strauma.
Vefja skulum vinir
vorið faðmi okkar
og sækjum þangað sóma þjóðar.
Enginn er öðrum meiri,
allir á sama fari.
Skaparinn öllum gjafir gefur.
Öfunda þú skalt engan,
allt er frá þér tekið.
Engum hlífír engill dauðans.
Urðaðu ekki pundið,
yrktu reit þinn fagran,
vorið hvetur vitund mannsins.
Sæktu á brattann sonur,
sæktu á brattann dóttir,
í veði er sæmd þinnar þjóðar.
Fjallkonan þér flytur
friðarkveðjur sínar.
Fagna þú á þessum degi.
Vorið er í önnum
að yrkja kvæði lífsins
og bendir eins og bandstafur
sólar.
Ég trúi því og treysti
og tek í hönd á öllum,
sem treysta vilja bróðurböndin.
Berið kveðjur kærar
í kotbæi og hallir.
Til sérhvers manns er ljósið lítur.
Höfundurinn hefur búið ú Miðhúsum í Reyk-
hólahreppi síðan 1955 og verið fréttaritari
Morgunblaðsins.
HRAFN A.
HARÐARSON
SLIKJA
A heiðum upp
eru hallir djúpt í jörðu
með gluggum
sem gleðja guð
á lygnum dögum:
líkt og augu manna
eru þeir speglar
sálar
móður jarðar.
Horfíst þú í augu
við hana
í eftirstormslogni
sérðu slikjuna
í augnbotnunum
græna, gula, bláa.
Það er slikja
hryggðarinnar.
Höfundurinn er skáld í Kópavogi.
10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 1.ÁGÚST1998