Lesbók Morgunblaðsins - 17.10.1998, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 17.10.1998, Blaðsíða 2
ÓLAFUR ELÍASSON SÝNIR í MOMA New York. Morgunbiaðið. ÍSLENSKI myndlistarmaðurinn Ólafur Elí- asson er á meðal þeirra fjögurra ungu mynd- listarmanna sem valdir voru til þátttöku í ár- legri ljósmyndasamsýningu The Museum of Modem Art, MoMA, í New York. Sýningin var opnuð í gær, föstudag, og stendur til 12. janúar á næsta ári. Verk Ólafs á sýningunni er röð ljósmynda af ísjökum sem listamaður- inn vann hér á landi á síðasta ári. Ljósmyndadeild safnsins hefur efnt til sýn- ingar sem þessarar á hverju hausti undanfar- in fjórtán ár í því augnamiði að vekja athygli á mildlvægi ljósmyndamiðilsins í samtíma- myndlist. Þeir listamenn sem eiga verk á sýn- ingunni, auk Ólafs, eru Jeanne Dunning og Rachel Harrison frá Bandaríkjunum og breska myndlistarkonan Sam Taylor-Wood sem nýverið var tilnefnd til hinna virtu Turn- er-verðlauna í heimalandi sínu. Listamennimir hafa allir áunnið sér nafn fyrir verk sem unnin em í öðmm miðlum en ljósmyndun, s.s. myndbandsverk, innsetning- ar og skúlptúr. Að þeir skuli jafnframt kjósa að nýta sér Ijósmyndina í listsköpun sinni segja aðstandendur sýningarinnar að lýsi vel löngun yngri kynslóðar listamanna til að spyma gegn staðlaðri ímyndagerð samtímans. HLUTI af verki Ólafs Elíassonar á sýningunni, sem er röð Ijósmynda af ísjökum sem listamaðurinn vann hér á landi á síðasta ári. FINNSKUR KOR FRUMFLYTUR ÍSLENSKT KÓRVERK FINNSKI kammerkórinn Dominante er væntanlegur í söngfor til Islands dagana 18.-22. október. Dominante er blandaður kammerkór, skipaður rúmlega 60 nem- endum við Tækniskólann í Helsinki og þekktur fyrir áhugaverða söngskrá sína, segir í fréttatilkynningu. Kórinn syngur við guðsþjónustu í Langholtskirkju á morgun, sunnudag, og tónleikar verða í Skálholti annað kvöld kl. 21. Miðvikudaginn 21. október verður kórinn með óvænta uppákomu í sund- lauginni í Laugardal. A fímmtudag verð- ur kórinn með tónleika í Langholtskirkju kl. 20.30. Dominante fmmflytur íslenskt kór- verk, Iubilate, eftir Misti Þorkelsdóttur, sem hún samdi sérstaklega fyrir kórinn vegna íslandsfararinnar. Á söngskránni eru tvær af móttettum Bachs. Kam- merkórinn syngur einnig kórverk eftir Jean Sibelius, Toivo Kuula og Einojuhani Rautavaarra. Kórinn hefur m.a. starfað með Finnsku óperunni, Finnsku útvarpshljómsveitinni, Fflharmoníuhljómsveit Helsinki og Lahti sinfóníunni. Innan kórsins eru starfandi kvartettar og kvintettar sem hafa unnið til verð- Seppo Murto Mist Þorkelsdóttir launa í alþjóðlegum keppnum. Stjómandinn Seppo Murto er þekktur organleikari og stjómandi í Finnlandi. Hann hefur verið organisti í Dómkirkj- unni í Helsinki síðan 1985 og kennir org- elleik í Síbelíusarakademíunni. Hann hef- ur víða komið fram í Finnlandi og einnig utanlands og leikið inn á allmargar hljómplötur. Ennfremur segir í fréttatilkynningu að kammerkór hinna „fjölkunnugu“ úr Tækniskólanum hiki ekki við að sýna á sér aðrar hliðar en kórhefðm býður og það muni hann einnig gera á Islandi. KJARTAN GUÐJÓNSSON SÝNIR í GALLERÍI FOLD KJARTAN Guðjónsson opnar sýningu á „gvassmyndum" í baksal Gallerís Foldar við Rauðarárstíg, í dag, laugardag, kl. 15. Kjartan Guðjónsson er fæddur árið 1921. Hann stundaði myndlistamám við Art Institute of Chicago. Hann er einn úr upphaf- lega Septemberhópnum svokallaða, sem sýndi iýrst saman 1947 í Listamannaskálanum. Sú sýning vakti mjög mikla athygli og hafði víð- tæk áhrif á myndlist hér á landi og um langt árabil, segir í fréttatilkynningu. Kjartan kenndi við Myndlista- og handíða- skóla Islands í meira en aldarfjórðung. Hann hefur haldið margar einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga, hérlendis og erlend- is. Þá hefur hann löngum unnið við hönnun og myndskreytingar, myndskreytt bækur og rit og teiknað frímerki. Gallerí Fold er opið daglega frá kl. 10-18, laugardaga kl. 10-17 og sunnudaga kl. 14-17. Sýningunni lýkur sunnudaginn 1. nóvember. MENNING/ LISTIR NÆSTU VIKU MYNDLIST Ásmundarsafn - Sigtúni Yfirlitss. á verkum Asmundar Sveinssonar. Fálkahúsið, Hafnarstræti 1 Greipar Ægis: Sandskúlptúrar. Til áramóta. Gallerí 20 fermetrar, Vesturgata lOa Helgi Hjaltalín Eyjólfsson. Gallerí Borg Þorsteinn Helgason. Til 25. okt. Gallerí Fold, Kringlan Guðbjörg Káradóttir. Gallerí Fold, Rauðarárstíg Kjartan Guðjónsson. Til 1. nóv. Gallerí Horn Eva Sigurðardóttir. Til 21. okt. Gallerí Sævars Karls Haraldar Jónssonar. Til 28. okt. Gerðuberg: Sjónþing Kristins G. Harðarsonar. Til 24. okt Hafnarborg Teije Risbergs. Ætingar í aðal- og Sverrissal. Til 27. okt. Yfirlitssýning á verkum Siguijóns Ólafssonar. Hallgrímskirkja Benedikt Gunnarsson. Ingólfsstræti 8 Elmgreen & Dragset. „Powerless structures“. Kjarvalsstaðir -30 / 60+, samsýning tveggja kynslóða. Til 25. okt Listasafn ASÍ Gryfjan: Ólöf Erla Bjarndóttir. Ásmundarsalur: Inga Þórey Jóhannsdóttii'. Til 25. okt. Listasafn Einars Jónssonar, Skólavörðuholti Opið laugardaga og sunnudag 14-17. Höggmyndagarðurinn opinn alla daga. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn Magdalena Margrét Kjartansdóttir. Ólöf Einars- dóttir. Amælissýning Myndlistarskóla Kópavogs. Til 25. okt Listasafn íslands íslensk abstraktiist 1950-60. Til 25. okt. Listasafn Siguijóns Ólafssonar Yfirlitssýning á verkum Siguijóns Ólafssonar. Listaskálinn i Hveragerði: Erotíka: Bragi Ás- geirsson, Einar Hákonarson, Eva Benjamínsdótt- ir, Gunnar Örn Gunnarsson, Harpa Bjömsdóttir, Haukur Dór, Ragnhildur Stefánsdóttir og Stefán Boulter. Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg Fríða Jónsdóttir sýnir ljósmyndir. Til 25. okt. Mokkakaffi, Skólavörðustíg Rannveig Anna Jónsdóttir og Þorvaldur Halldór Gunnarsson. Til 29. okt, Norræna húsið, Hringbraut Erla B. Axelsdóttir. Anddyri: Myndskreytingar Kaarina Kaila, við barnabókina Læmingjaár á Lágheiði, eftir Jukka Parkkinen. Til 18. okt, Nýlistasafnið Bjarti og svarti salur: Eygló Harðardóttir. Súm- salun Ásta Ólafsdóttir. Forsalur og gryfja: Þórdís Alda Sigurðardóttir. Til 18. okt, Safn Ásgríms Jónss., Bergstaðastræti 74 Sumarsýning á verkum Ásgríms. Stofnun Árna Magnússonar, Ámag. v. Suðurgötu Handritasýning. Þriðj., mið., fun. 14-16. Til 14. maí. SPRON, iwyódd Harpa Bjömsdóttir sýnir til 24. okt. TÓNLIST Laugardagur Hafnarborg: Musica Antiqua. Kl. 20.30. Vidalinskirkja, Garðabæ: Ljóðatónleikar. Rann- veig Fríða Bragadóttir, mezzosópran og Gerrit Schuil, píanó. Kl. 17. Ráðhús Reykjavíkur: Hátíðartónleikar í tilefni aldarafmælis Suzukis. Kl. 14. íslenska óperan: Nemendaópera Söngskólans í Rvík. Töfrilautan. Kl. 17. Sunnudagur Norræna húsið: Kammertónleikar. Mezzó-sópran- söngkonan Bettina Smith. Kl. 17. íslenska óperan: Nemendaópera Söngskólans í Rvík. Töfraflautan. Kl. 17. Skálholt: Finnski kammerkórinn Dominante. Kl. 21. Þriðjudagur Iðnó: Musica Antiqua. Kl. 20.30. Miðvikudagur Hafnarborg: Guðrún Ingimarsdóttir, sópran, Steinunn Biraa Ragnarsdóttir, píanó og Áshildur Haraldsdóttir, flauta. Kl. 20.30. Fimmtudagur Langholtskirkja: Finnski kammerkórinn Domin- ante. Kl. 20.30. LEIKLIST Þjóðleikhúsið Maður í mislitum sokkum, sun. 18., fim. 22. okt. Solveig, fim. 22. okt. Bróðir minn ljónshjarta, sun. 18. okt. Óskastjaraan, lau. 17., fös. 23. okt. Gaman- sami harmleikurinn, lau. 17., fös. 23. okt. Borgarleikhúsið Mávahlátur, frums. fös. 23. okt. Grease, lau. 17. okt. Sex í sveit, lau. 17. Ofanljós, sun. 18., fös. 28. okt. íslenski dansflokkurinn Night, Jorma Uotinen; Stoolgame, Kiri Kylián; La cabina 26, Jochen Ulrich, sun. 18., fim. 22. okt. Iðnó Dimmalimm, sun. 18. okt. Þjónn í súpunni, fös. 23. okt. Rommí, lau. 17., fim. 22. okt. Brecht kabarett, frums. sun. 18. okt. íslenska óperan Ávaxtakarfan, sun. 18. okt Hellisbúinn lau. 17., sun. 18., fim. 22. okt Loftkastalinn Bugsy Malone, sun. 18. okt. Hafnarfjarðarleikhúsið Við feðgamir, lau. 17., fös. 23. okt. Síðasti bærinn í dalnum, sun. 18., lau. 17. okt. Sjónlcikur, Tjarnarbíó Svartklædda konan, lau. 17., sun. 18. okt. Kaffiieikhúsið Barbar og úlfar, lau. 17., fim. 22. okt. Skemmtihúsið, Laufásvegi 22 Ferðir Guðríðar, lau. 17., föst. 23. okt. Möguleikhúsið við Hiemm Snuðra og tuðra, lau. 17. okt. Einar Áskell, sun. 18. okt. Lcikfdlag Akureyrar Rummungur ræningi, lau. 17., sun. 18. okt. 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 17. OKTÓBER 1998

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.