Lesbók Morgunblaðsins - 17.10.1998, Blaðsíða 7
urreist á Hagatorgi.
Auk hinna hefðbundnu verkefria vann Sigur-
jón alltaf frjáls verk þar sem hugmyndaflugið
og tilraunir með efni og form fengu að ráða.
Síðustu tíu ár ævinnar voru einmitt helguð
frjálsri listsköpun og notaði listamaðurinn oft
tré eða rekavið í verkin. Birgitta Spur segir að
meðal brýnustu verkefna safnsins sé einmitt að
steypa nokkrar myndanna, sem Sigurjón vann
í tré og steinsteypu, í varanlegt efni. „Þá er
safnið í stöðugum vandræðum með geymslu-
húsnæði. Sem stendur leigjum við húsnæði út í
bæ en meðal framtíðarverkefna er að auka við
húsakostinn hér í Laugamesinu," segir
Birgitta.
Öll verkin á skrá
I ritinu Sigurjón Olafsson - Ævi og list I-II
birtist í fyrsta sinn algjörlega tæmandi skrá yf-
ir öll þrívíð listaverk sem Sigurjón gerði á ferli
sínum. „Þessi skrá er afrakstur fímmtán ára
rannsóknarvinnu á vegum Listasafns Sigur-
jóns Olafssonar og það er auðvitað von okkar
sem að þessu stöndum að þetta verði til að auð-
velda aðgang og yfirsýn um listferil Sigurjóns
Ólafssonar,“ segir Birgitta Spur.
Ekki þarf að hafa mörg orð um hversu gríð-
arleg vinna liggur að baki skráningu allra
verka Sigurjóns. Frá upphafi hafa fjórir ein-
staklingar komið að skráningunni, Birgitta Sp-
ur, Sólveig Georgsdóttir, Helga Guðmunds-
dóttir og Geirfinnur Jónsson. Skráin er þannig
byggð upp að við hvert verk er getið sköpunar-
árs, sýningaferils, vísað er til umsagna sem
birst hafa á prenti og eigenda getið. Skránni
fylgir ljósmynd af verkinu. „Við höfum lagt
mjög mikla áherslu á að allar upplýsingar í
skránni séu réttar. Sköpunarár margra verk-
anna hefur verið á reiki, sýningarskrám og
öðrum heimildum hefur ekki borið saman og
stundum misminnti listamanninn sjálfan hvaða
ár einstök verk voru unnin. Þá er ekki vitað um
afdrif margra verka, sérstaklega frá Dan-
merkurárunum, og þó ólíklegt sé að þau komi í
leitimar þá getur svona skrá orðið til þess að
einhver þeirra komi í ljós,“ segir Birgitta.
Eftir Siguijón Ólafsson liggja 800-900 þrívíð
verk sem skiptast í ríflega 200 portrettmyndir
og 600-700 önnur verk. Þetta eru varlega áætl-
aðar tölur að sögn Birgittu og hún áréttar jafn-
framt að nánast sé ógjömingur að slá endan-
legri tölu á fjölda þeirra. „Sum verkin era
þannig að þau geta talist eitt verk eða mörg.
Þá er til mikill fjöldi af skissum, teikningum og
módelum sem ekki era talin með.“
Þrátt fyrir að Listasafn Sigurjóns Ólafsson-
ar hafi frá upphafi notið stuðnings ríkis og
borgar og fjölda annarra styrktaraðila er ljóst
að stór hluti þess starfs sem unninn hefur verið
á vegum safnsins byggist á ósérhlífni og sjálf-
boðavinnu þeirra sem þar hafa lagt hönd að
verki. „Safnið hefur alltaf notið þess að hafa á
að skipa mjög áhugasömu og færa starfsfólki,"
segir Birgitta.
Lifandi safn
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar á 10 ára
starfsafmæli á þessu ári og hefur frá upphafi
fest sig í sessi sem lifandi og skapandi lista-
safn. A vegum þess hafa verið settar upp 17
sýningar á verkum Siguijóns Ólafssonar, auk
fjölda annarra listviðburða, og má þar helst
telja sumartónleika sem safnið hefur staðið
fyrir á hveiju sumri frá upphafi. „Þegar við
byrjuðum með tónleikahaldið hér í safninu
sumarið 1989 var nánast ekkert reglulegt tón-
leikahald að sumarlagi nema í Skálholti," segir
Birgitta. Sumartónleikarnir í Sigurjónssafni
mæltust vel fýrir og urðu í raun upphaf þeirrar
miklu bylgju tónleika að sumarlagi sem nú era
haldnir vítt og breitt um borgina. „Fyrstu árin
stóðum við einnig að bókmenntakynningum en
þegar aðrir fóru að sinna slíku höfum við látið
þeim það eftir. Okkur era settar mjög þröngar
skorður um alla svona hliðarstarfsemi varðandi
kostnað og mjög lítið má útaf bera svo ekki
verði fjárhagslegt tap, þó ekki sé miklu til
kostað. Ef margir leita á sömu mið verðum við
að draga í land. Okkar hlutverk er auðvitað
fyrst og fremst að sinna sýningarhaldi og rann-
sóknum á verkum Siguijóns Ólafssonar og
þess vegna höfum við gert fremur lítið af því að
sýna verk annarra listamanna. Þó kemur það
auðvitað fyrir og veitár aukna fjölbreytni, en
við eram ekki gallerí og tökum verk annarra
listamanna aðeins inn á okkar forsendum og ef
okkur finnst þau eiga við í þessu samhengi,"
segir Birgitta.
Auk þess rannsóknarstarfs sem þegar er
nefnt hefur Listasafh Sigurjóns Ólafssonar
staðið að útgáfu fjögurra árbóka sem hafa að
geyma greinar eftir listfræðinga um ýmsa
þætti og tímabil í list Sigurjóns ðlafssonar. Þá
hefur safnið einnig staðið að útgáfu veglegra
sýningarskráa í tengslum við sýningarhald og
tvær bækur hafa komið út á vegum safnsins,
Siguijón Ólafsson myndhöggvari (1985) og
Tracks in Sand, ljóð Susanne Jom við listaverk
Sigurjóns ásamt þýðingum á japönsku. Há-
punktur útgáfustarfseminnar er að sjálfsögðu
hið viðamikla verk sem nú er að koma út, Sig-
urjón Ólafsson - Ævi og list I-II.
LANDBÚNAÐUR og handiðn. Granít 1941-44. Stærsta verkið sem Sigurjón vann að á Danmerkurárunum. Hæð verksins er 215 cm. Þetta er
önnur myndin af tveimur sem Sigurjón Ólafsson gerði fyrir Vejle á ráðhústorgi borgarinnar.
SURTUR 1968.
MÓÐIR mín. Gifs 1938. Fyrir þessa mynd hlaut Sigurjón
Ólafsson Eckersberg-verðlaunin 1939.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/USTIR 17. OKTÓBER 1998 7