Lesbók Morgunblaðsins - 14.11.1998, Qupperneq 2
FOSSVOGSKIRKJA
NÝ ÚTSETNING Á SÁLMI
HALLGRÍMS PÉTURSSONAR
VIKTORIA OG ALBERT-SAFNIÐ
TVÖ
CONSTABLE-
VERK HORFIN
London. Reuters.
TVÖ olíumálverk eftir einn þekktasta
listamann Breta, John Constable, hafa
horfíð úr Viktoria og Albert-safninu í
Lundúnum. Verkin sáust síðast við
skoðun í ágúst og er talið fullvíst að
þeim hafí verið stolið. Málið er hið
vandræðalegasta fyrir safnið, því dóttir
málarans gaf verkin og eru þau metin á
um eina milljón sterlingspunda, um 120
milljónir ísl. kr.
Alan Borg, forstjóri safnsins, segir
að þar sem yfir ein milljón verka sé í
vörslu safnsins, sé nær útilokað að
koma í veg fyrir hvarf af þessu tagi,
en starfsmenn þess séu miður sín
vegna þess. Tekur Borg fram að verk-
in; „Dedham Lock“ og „Valley Farm“
séu of þekkt til að hægt sé að koma
þeim í verð.
ÞESS verður minnst
með ýmsum hætti í
Fossvogskirkju í dag
kl. 17, að á þessu ári
er hálf öld liðin frá
vígslu kirkjunnar.
Flutt verður ný út-
setning Þorkels Sig-
urbjömssonar á sálmi
Hallgríms Pétursson-
ar „um dauðans óvissa
tíma“, Allt eins og
blómstrið eina. Lagið
byggist á fjórum mis-
munandi orgelundir-
leiksútsetningum mið-
að við einraddaðan
safnaðarsöng, einni
útsetningu á laginu fyrir blandaðan kór og einni
útsetningu fyrir einraddaðan safnaðarsöng með
sópran-yfirrödd sem Signý Sæmundsdóttir
syngur. Scola Cantorum flytur Kvöldbænir
Hallgríms Péturssonar eftir Þorkel Sigur-
bjömsson, og Kam-
merkór Langholts-
kirkju flytur Dagui- er
nærri, eftir Handel
við texta Kristjáns
Vals. Einnig koma
fram Tónkórinn,
Hljómkórinn, Kam-
merkór Dómkirkjunn-
ar og Bústaðakórinn.
Tónlistar- og kór-
stjóri er Jón Stefáns-
son. Organleikari
Marteinn H. Frið-
riksson.
Saga Fossvogs-
kirkju og Fossvogs-
kirlqugarðs verður
tjáð í myndsyrpum við tónlistamndirleik
Gunnars Hrafnssonar, kontrabassaleikara og
Hilmars Jenssonar, gítarleikara.
Forseti íslands, hr. Ólafur Ragnar Gríms-
son, verður viðstaddur vigsluminnið.
Þorkell
Sigurbjörnsson
ARISTEION-bókmenntaverðlaunin vora af-
hent belgíska rithöfundinum Hugo Claus í ráð-
húsinu í Stokkhólmi á miðvikudag og spænski
þýðandinn Miguel Sáenz tók við þýðingarverð-
laununum. Claus hlaut verðlaunin fyrir nýjustu
skáldsögu sína, De Gerachten, eða Orðrómur-
inn, og Sáenz fyrir þýðingu sína á skáldsögunni
Ein weites Feld, eða A víðum velli, eftir Giint-
er Grass. Þórarinn Eldjárn var einn þeirra sex
rithöfunda sem lentu í efsta flokki og var við-
staddur afhendinguna í Stokkhólmi.
„Mér þykir það mjög leitt að ég skyldi taka
verðlaunin þín, ég er viss um að þú hefðir haft
meiri þörf fyrir þau en ég,“ sagði Hugo Claus
við Þórarin þegar sá fyrrnefndi hafði veitt
verðlaununum viðtöku. „Hann er húmoristi,“
segir Þórarinn.
Rithöfundamir sex sem lentu á stuttlistan-
um vora, auk þeirra Þórarins og Claus, Nikolaj
Frobenius frá Noregi, Sóren Uh-ik Thomsen
frá Danmörku, Spánverjinn Alvaro Pombo og
Nóbelsverðlaunahöfundurinn José Saramago
frá Portúgal. Hinir þrír fyrstnefndu vora við
afhendinguna á miðvikudag en hinir áttu ekki
heimangengt. „Saramago kom ekki, enda á
hann nú erindi til Stokkhólms eftir mánuð og
nennir kannski ekki alltaf að vera að þvælast
þangað," segir Þórarinn.
Þórarinn segir það ágætt veganesti að hafa
fengið þessa tilnefningu og telur líklegt að
áhugi á bók hans, Brotahöfði, vaxi í öðrum
löndum. Bókin kemur út á ensku á næstu dög-
Pressens bild
RITHÖFUNDARNIR Hugo Claus og Þórarinn Eldjárn á spjalli að lokinni afhendingu Aristeion-
bókmenntaverðlaunanna í ráðhúsi Stokkhólms.
um, í þýðingu Bemards Scudder, en sá hinn fyrir þýðingu sína á Svaninum eftir Guðberg
sami komst raunar í hóp sex efstu þýðendanna Bergsson.
HUGO CLAUS TEKUR VIÐ ARISTEION-
BÓKMENNTAVERÐLAUNUNUM
Morgunblaðið/Golli
ÞÆR LEIKA á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins annað kvöld: Guðrún Birgisdóttir, Anna
Guðný Guðmundsdóttir, Auður Hafsteinsdóttir, Bryndís Halla Gylfadóttir og Svava Bernharðs-
dóttir.
KAMMERMÚSÍKKLÚBBURINN
TÓNLEIKAR OG
PLÖTUÚTGÁFA
ÞRIÐJU tónleikar starfsárs Kammermús-
íkklúbbsins verða haldnir í Bústaðakirkju
annað kvöld kl. 20.30. Fram koma Guðrún
Birgisdóttir flautuleikari, Auður Hafsteins-
dóttir fíðluleikari, Svava Bemharðsdóttir
víóluleikari, Bryndís Halla Gylfadóttir selló-
leikari og Anna Guðný Guðmundsdóttir pí-
anóleikari.
Á tónleikunum verða leikin fjögur verk;
serenaða fyrir flautu, fíðlu og víólu í D-dúr,
op. 25 og Tríó fyrir píanó, fiðlu og selló í B-
dúr, WoO. 39 eftir Ludwig van Beethoven og
Kvartett fyrir flautu, fiðlu, víólu og selló í D-
dúr, K. 285 og Kvartett fyrir píanó, fiðlu, víólu
og selló í Es-dúr, K. 493 eftir Wolfgang Ama-
deus Mozart.
Á tónleikunum verður boðin til sölu glæný
tvöföld geislaplata, sem Mál og menning gef-
ur út, með efni sem hljóðritað var á tónleikum
afmælisárs Kammermúsíkklúbbsins, 1997-98.
Á plötunum eru Strengjakvartettar eftir
Haydn og Beethoven í flutningi Sigrúnar Eð-
valdsdóttur og fleiri, Strengjakvartett eftir
Jón Nordal leikinn af Bernardel-kvartettnum,
Kvintett fyrir blásara eftir Carl Nielsen flutt-
ur af Blásarakvintett Reykjavíkur, Ljóða-
söngvar eftir Braþms með víólu og píanói, þar
sem Alina Dubik syngur og Klarínettukvin-
tett eftir Brahms í flutningi Einars Jóhannes-
sonar og fleiri.
Klúbbfélagar fá plöturnar á sérstöku fé-
lagsverði, kr. 1.980, en almennt verð er kr.
2.980. Þær verða til sölu hjá Máli og menn-
ingu í Síðumúla 7-9.
MENNING/
MSTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn - Sigtúni
Yfirlitss. á verkum Ásmundar Sveinssonar.
Fálkahúsið, Hafnarstræti 1
Greipar Ægis: Sandskúlptúrar. Til áramóta.
Gallerí Bílar & list Hildur Waltersdóttir. Til
10. des.
Gallerí Fold. Zhang Hong. Til 22. nóv.
Gallerí Horn Lára Halldórsdóttir. Til 2. des.
Gallerí Listakot Hrönn Vilhelmsdóttir og
Charlotta R. Magnúsdóttir. Til 28. nóv.
Gallerí Sævars Karls Sjónþing Hannesar
Lárussonar. Til 25. nóv.
Hafnarborg Úrval verka Sigurjóns Ólafsson-
ar. Til 23. des.
Hallgrímskirkja Benedikt Gunnarsson. Til 1.
des.
Ingólfsstræti 8 Guðmunda Andrésdóttir. Til
29. nóv.
Kjarvalsstaðir Austursalur: „Framsýning:
Foroysk nútíðarlist“. Vestursalur: Nýjar kyn-
slóðir í norrænum arkitektúr. Miðsalur:
Myndlist og tónlist: Halldór Ásgeirsson og
Snorri Sigfús Birgisson. Til 20. des.
Listasafn ASÍ Asmundarsalur: Katrín Sig-
urðardóttir. Gryfjan: Guðrún Einarsdóttir.
Arinstofa: Kristinn Pétursson. Til 15. nóv.
Listasafn Einars Jónssonar, Skólavörðuholti
Opið laugardaga og sunnudaga 14-17.
Höggmyndagarðurinn opinn alla daga.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn
Sæmundur Valdimarsson. Til 13. des.
Listasafn Islands
80/90. Speglar samtímans. Til 31. jan.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Sigurjón Ólafsson - Ævi og list. Til 1. des.
Listaskálinn í Hveragerði: Haustsýning. Til
13. des.
Listhús Ófeigs, Skólavörðustfg
Alice Olivia Clarke, mósaíkverk. Til 15. nóv.
Menningarmiðstöðin Gerðubergi
Sjónþing Hannesar Lárussonar. Til 31. des.
Mokkakaffi, Skólavörðustíg Ljósmyndasýn-
ing Hörpu Björnsdóttur. Til 19. nóv.
Norræna húsið. Herdís Tómasd. Til 29. nóv.
Anddyri: Ljósmyndir Ujuukulooqs. Til 1. des.
Nýlistasafnið Þóroddur Bjarnason, Lilja
Björk Egilsdóttir, Aðalsteinn Stefánsson,
Hjörtur Hjartarson og Pétur Guðmundsson.
Til 29. nóvember.
Stofnun Árna Magnússonar. Handritasýning.
Þriðj., mið., fim. 14-16. Til 14. maí.
SPRON, Mjódd Jón Axel. Til 19. feb.
TÓNLIST
Laugardagur
Kirkjuhvolur, Vidalínskirkja: Kammertón-
leikar. Blásarakvintett Reykavikur og Gerrit
Schuil. Kl. 17.
Hallgrímskirkja: Miðaldatónlistarhópurinn
ALBA og Vox Feminae. Kl. 17.
Fossvogskirkja: Ný útsetn. á sálmi Hallgríms
Péturssonar. Signý Sæmundsdóttir, Scola
Cantorum, Kammerkór Langholtskú’kju,
Tónakórinn, Hljómkórinn, Kammerkór Dóm-
kirkjunnar og Bústaðakórinn. Kl. 17.
Sunnudagur
Kristskirkja, Landakoti: Styrktartónleikar
Caritas. Kl. 17.
Bústaðakirkja: Kammertónleikar: Guðrún
Birgisdóttir, flauta, Auður Hafsteinsdóttir,
fiðla, Svava Bernharðsdóttir, lágfiðla, Bryn-
dís Halla Gylfadóttir, knéfiðla, og Anna Guð-
ný Guðmundsdóttir, píanó. Kl. 20.30.
Mánudagur
Digraneskirkja: Örn Magnússon, píanó. Kl.
20.30.
LEIKDLIST
Þjóðleikhúsið Maður í mislitum sokkum, lau.
14., fim. 19., fós. 20. nóv. Solveig, sun. 15, þrið.
17. nóv. Bróðir minn ljónshjarta, sun. 15., mið
18. nóv.Gamansami harmleikurinn, sun. 15.
nóv.Tveir tvöfaldir, lau. 14., fim. 19., fós. 20.
nóv.
Borgarleikhúsið Grease, lau. 17., sun. 15.
nóv. Sex í sveit, fim. 19. nóv. Ofanljós, lau. 14.,
fös. 20. nóv. Mávahlátur, lau. 14., sun. 15., fös.
20. nóv.
Iðnó Dimmalimm, lau. 14. nóv. Rommí, mið.
18. nóv. Þjónn í súpunni, lau. 14., fós. 20. nóv.
Beðið eftir Beckett, sun. 15. nóv. Brecht-kab-
arett, fim. 19. nóv.
íslenska óperan Ávaxtakarfan, sun. 15. nóv.
Hellisbúinn sun. 15., fim. 19. nóv.
Loftkastalinn Fjögur hjörtu, sun. 15. nóv.
Hafnarfjarðarleikhúsið
Við feðgarnir, lau. 14., fos. 20. nóv.
Kaffileikhúsið
Barbara og Úlfar, mið. 18. nóv.
Skemmtihúsið, Laufásvegi 22
Ferðir Guðríðar, sun. 15. nóv.
Sjónleikur, Tjarnarbídi
Svartklædda konan, lau. 14. nóv.
Leikbrúðuland
Fríkirkjuvegi 11
Jólasveinar einn og átta, sun. 15. nóv.
Möguleikhúsið við Hlemm
Snuðra og Tuðra, lau. 14. nóv.
Einar Áskell, sun. 15. nóv.
Leikfclag Akureyrar
Rummungur ræningi, lau. 14., sun. 16. nóv.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 14. NÓVEMBER 1998