Lesbók Morgunblaðsins - 02.10.1999, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 02.10.1999, Blaðsíða 9
3. verðlaun, 20 stk. E100VS 135-36 mynda filmur ásamt framköllun að verðmæti 42.200 hlýtur Árný Herbertsdóttir, Ijósmyndastofunni Myndási á ísafirði, fyrir þessa mynd af manni sem var að smíða sér sumarbústað vestur í Aðalvík. Sérstaka viðurkenningu veitti dómnefndin Birgi Þórbjarnarsyni fyrir þessa Ijósmynd af Ragnari Guðmundssyni á Nýhóli á Hólsfjöllum, sem þar býr með 30 ær, eina geit og nokkur hænsni. Ragnar er 76 ára og fyrir utan fjögur fyrstu æviárin hefur hann alla tíð átt heima á Nýhóli. FIMM UOÐ UM ÍSLAND EFTIR WANG RONGHUA SENDIHERRA KÍNVERSKA ALÞÝÐULÝÐVELDISINS Á ISLANDI VILHJÁIMUR H. GÍSLASON ÞÝDDI HUGHRIF ÚR FYRSTU EYJAFERÐ MINNI I Vestmannaeyjum ótal fuglar fljúga og fylla björgin kliði radda sinna á meðan fískinn hvíta vélar vinna þá vinnsluhljóðin blandast ómi hinna. Hraun og vikurjaðar þorpsins þekur mér þessa spurning augnablikið vekur: Hvert er það afí sem viðnám þetta veitti, viljans múr, hann ásýnd þorpsins breytti? Á JÖKLUM Hve margir tindar hvíla í faðmi fanna sem fínnast hér í ríki okkar manna? A Langjökli ég söng af sannri gleðí og setti fjallakyrrðina að veði. En vélsleðar í fíokki framhjá þeystu og freðna mjöll í skýjabólstra leystu Allt í einu glöggum sá ég sjónum hvar sameinaðist vetrarbrautin snjónum. GULLFOSS LITINN AUGUM Ég lagði bílnum þar sem grasið grær og greindi í fjarska hvítan jökultind en seinna þegar bíllinn bar mig nær mér blasti við svo undurfögur mynd. Bráðinn snjór í gljúfrum römmum rann reginöskur iðukastsins drundi uns flaumur vatnsins friðinn hljóða fann í faðmi dalsins þar sem lygnt það undi. í þúsund ár það kalt og biturt beið nú beisklega það tregar þessa gerð að hafa ekki vaknað, lagt á leið sem lindarvatn til mannanna, í ferð. HUGRENN- INGAR Á LEIÐ UM GÖNGIN ARNÞÓR HELGASON OG STEINGRÍMUR ÞORBJARNARSON ÞÝDDU Mér er ljúft að frétta að á íslandi er upprunninn ójgnarmikill dreki. I friðsæld hann hvíldi í hafsins djúpi og hlýddi á öldiigjálfrið. Skrokkurinn tevgðist tíu þúsund skref. Um iður hans var hundruðum vagna ekið. Hann lék sér að perlum íhundruðára og þær fengu ekki framar fangað huga hans. Hann hendir gaman að tímanum og hefur upp nýjan leik. Aktu óhræddur um kviðarhol hans og vertu sigui-viss. HAMINGJU- ÓSKIR MEÐ SKIPULAG 29. ÓLYMPÍULEIK ANNAÍ EÐLISFRÆÐI Nemendur sækja Island heim til að etja kappi á Olympíuleikum. Gestrisnin, heit sem hraun vermdi blóð þeirra. í draumi um sumarbjarta nótt ómaði kórsöngur og lúðraþytur við dagmál. Hvernig gátu þeir sigrað íslíkn æsingu? Peir urðu að halda ró sinni og fínna jafnvægi hugans. Þótt prófín séu erfið eru þeir ófjötraðir með jöklasnjó í greipum sér. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 2. OKTÓBER 1999 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.