Lesbók Morgunblaðsins - 09.10.1999, Síða 2
GITARTONLEIKAR TIL HEIÐURS GUNNARI H. JONSSYNI
Morgunblaðið/Kristinn
Símon H. ívarsson, Pétur Jónasson, Páll Eyjólfsson og Einar Kristján Einarsson á æfingu.
HEFUR ALLTAF ÖRVAÐ
TIL SAMSPILS
AMALIA
RODRIGUES
LÁTIN
PORTÚGALSKA söngkonan Amalia
Rodrigues lést á heimili sínu í vikunni á áttug-
asta aldursári. Rodrigues var ástsælasta
söngkona Portúgala, en hún hóf söngferil sinn
sem fadosöngkona fyrir sextíu árum. Lýst var
yfir þriggja daga þjóðarsorg í Portúgal er
fréttist um lát hennar.
Amalia Rodrigues vakti fyrst athygli sem
tangódansari sem unglingur en fór síðan að
syngja fadosöngva,
en fado er hefðbund-
ið tónlistarform
portúgalskt, man-
söngvar sem
þrungnir eru þeirri
stemmningu sem
Portúgalar kalla
saudade, trega, eft-
irsjá og uppgjöf.
Rödd Rodrigues
þótti sú fegursta
sem menn höfðu
heyrt í fadosöng og
ýmsir landsmenn
hennar urðu til að
halda því fram að
hún væri mesta
söngkona Evrópu
þegar hún var á hátindi ferils síns. Rodrigues
kom ævinlega fram svartklædd til að undir-
strika saudade-stemmninguna í lögunum en
hún lét þau orð falla í viðtali að hjarta sitt
væri hlaðið sorg, „ég er svartsýn, tómhyggju-
kona, ber í mér allt sem fadosöngur krefst“.
Rodrigues söng fadosöngva í fímmtíu ár og
naut ævinlega mikillar hylli utan að heldur
dró úr vinsældum hennar eftir að Portúgalar
steyptu harðstjóranum Soares 1974. Um tíma
voru upptökur hennar ekki leiknar í útvarpi,
því margir tengdu saman fadosöngva, gamlan
tíma og harðstjómina, en er frá leið naut hún
sömu hylli og forðum.
Amalia Rodrigues tók upp fyrstu fadolög
sín 1945 og söng inn á óteljandi hlómplötur.
Hún hætti að syngja opinberlega vegna
hjartakvilla á þessum áratug, en kom síðast
fram við opnun heimssýningarinnar í Portú-
gal á síðasta ári.
SEX þjóðkunnir gítarleikarar leiða saman
hesta sína í Gerðubergi í dag, laugardag, kl. 16
og halda tónleika til heiðurs Gunnari H. Jóns-
syni í tilefni af sjötíu ára afmæli hans fyrr á ár-
inu. Þar frumflytja þeir allir saman
Fúgu í E, gítarverk eftir Gunnar
Reyni Sveinsson. Gítarleikararnir eru
þeir Arnaldur Arnarson, Einar Krist-
ján Einarsson, Kristinn H. Arnason,
Páll Eyjólfsson, Pétur Jónasson og
Símon H. ívarsson, en Arnaldur gerir
sér ferð alla leið frá Spáni, þar sem
hann er búsettur, til þess að heiðra
lærimeistara sinn.
Gunnar H. Jónsson er einn af frum-
kvöðlum klassískrar gítartónlistar á
íslandi. Hann hóf gítarkennslu árið
1956 hjá FÍH og var einn af stofnendum Tón-
skóla Sigursveins D. Kristinssonar. Gunnar
hefur allar götur síðan kennt á hljóðfæri við
ýmsa tónlistarskóla. Hann varð sjötugur í
mars síðastliðnum og með tónleikunum segir
Símon að þeir félagar vilji þakka lærimeistar-
anum. Fjórir þeirra voru nemendur hans um
lengri eða skemmri tíma og þó að þeir Pétur og
Páll hafí ekki verið nemendur hans hafa þeir
engu að síður kynnst honum, m.a. þegar hann
var prófdómari þeirra. Arnaldur og Símon út-
skrifúðust báðir frá honum.
„Við höfum alltaf haft mjög góð tengsl við
Gunnar, líka eftir að hann hætti að kenna, og
með þessu viljum við sýna honum einhvers
konar þakkartilfínningu fyrir hans miklu
umbun. Hann hefur alltaf verið mjög gefandi í
starfi og er mjög sérstök persóna sem
þjóðfélagið hefur kannski lítið tekið
eftir. Hann hefur sig lítið í frammi en
er stöðugt að gefa til annarra og ein-
hvern veginn situr það mjög sterkt í
okkur að hafa notið þessarar leiðsagn-
ar hjá honum,“ segir Símon.
„Þessir gítarleikarar sem þarna
koma saman hafa allir gefið sig út fyr-
ir að vera einleikarar en það sem verð-
ur óvenjulegt á þessum tónleikum er
að við spilum saman. Það hefur oft
gerst að gítarleikari hefur spilað með
öðrum gítarleikara í dúett, en það hefur lítið
farið fyrir því að menn spili í tríói eða kvartett.
Þannig að nú er brotið blað í sögunni að því
leyti en það er líka í anda Gunnars, því hann
hefur alltaf örvað til samspils. Við höfum líka
kallað til okkar fímm aðra gítarkennara, sem
koma fram í lok tónleikanna en hugmyndin er
að sýna fram á að hér eru fleiri sem kenna á
gítar,“ heldur Símon áfram.
Á tónleikunum verða m.a. flutt verk eftir
Misti Þorkelsdóttur, Lennon og McCartney,
Koshkin, E. Granados, J. Turina, Ayala, Tár-
rega og de Falla.
Portúgalska
fadosöngkonan
Amalia Rodrigues.
Gunnar H.
Jónsson
Morgunblaöið/Þorkell
Guðbjörg Lind Jónsdóttir og Sara Vilbergsdóttir koma fyrir örsmáum verkum 30 listamanna á veggjum ASÍ.
FÉLAG ÍSLENSKRA MYNDLISTARMANNA
ÖRVERUSÝNING í LISTASAFNI ASÍ
ÞEMA- og örverusýning Félags íslenskra
myndlistarmanna verður opnuð í Listasafni
ASÍ við Freyjugötu í dag kl. 15. Yfirskrift
sýningarinn er Ör djúpinu og sýna þar rúm-
lega 30 listamenn, en öllum félagsmönnum
var boðin þátttaka.
Þetta er önnur örverusýning FIM, en sú
fyrsta, Oðurinn til sauðkindarinnar, var hald-
in á sama stað árið 1997 og er ætlunin að
halda slíkar samsýningar annað hvert ár.
Félag íslenskra myndlistarmanna er elsta
og stærsta myndlistarfélag landsins. í því
eru rúmlega 130 félagsmenn. FIM er aðili að
fulltrúaráði Listahátíðar Reykjavíkur og hef-
ur staðið fyrir sýningarhaldi á undanfömum
Listahátíðum á verkum þeirra Sigurjóns
Ólafssonar, Sigurðar Sigurðssonar, Jóns
Engilberts, Hjörleifs Sigurðssonar, Karls
Kvaran og nú síðast á portrettverkum
Ágústs Petersen. Þekktar eru haustsýningar
FIM sem voru lengi árlegur viðburður en
lögðust af á níunda áratugnum vegna
breyttra aðstæðna í sýningarmálum mynd-
listarmanna.
Núverandi stjóm og sýningamefnd hafa
endurvakið þessar haustsýningar en með
breyttu sniði frá því sem áður var þar sem
eitt ákveðið þema er nú lagt til grundvallar
hverri sýningu. Auk þess verða listaverkin að
vera innan stærðarmarkanna 400 fersentí-
metrar. Ætlunin er að sýningar þessar verði
haldnar annað hvert ár.
Óðurinn tii sauðkindai-innar var þema
fyrstu sýningarinnar með þessu breytta sniði.
Yfirskrift sýningarinnar að þessu sinni, Úr
djúpinu, er mun víðfeðmara en hugmyndin að
bald báðum þessum sýningum er að bjóða fé-
lagsmönnum upp á glímu við ólík yrkisefni
hverju sinni. Öllum félagsmönnum var boðin
þátttaka í sýningunni og mátti hver listamað-
ur senda inn þrjú verk sem stjórn og sýning-
arnefnd áskildu sér rétt til að velja úr eitt til
þrjú verk.
Allur undirbúningur sýningarinnar var í
höndum stjórnar og sýningamefndar FIM, en
formaður þess er Guðbjörg Lind Jónsdóttir.
Sýningin er opin alia daga nema mánudaga
kl. 14-18 og stendur til 24. október.
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásinundarsafn
Yfírlitss. á verkum Ásmundar Sveinssonar.
Bílar & list, Vegmótaslíg 4
Ingþór Hrafnkelsson. Til 14. okt.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg 14
Sigurður Eyþórsson. Til 10. okt.
Galleri@hlemmur.is. Þverholti 5
Erling Þ.V. Klingenberg. Til 24. okt.
Gallerí Stöðlakot
Pétur Behrens. Til 24. okt.
Gallerí Sævars Karls, Bankastræti
Magnús Kjartansson. Til 14. okt.
Gerðarsafn, Listasafn Kópavogs
Inga Rós, Ólafur Lárusson og Benedikt Gunn-
arsson. Til 10. okt.
Gerðuberg
Þorvaldur Þorsteinsson. Til 17. okt.
Ilafnarborg
Kristín Þorkelsd., Jóhanna Bogad. Til 25. okt.
Hallgrímskirkja
Jón Axel Björnsson. Til 28. nóv.
By&gðasafn Eyrarbakka, Húsið
Klæðið fljúgandi. Til 31. okt.
i8, Ingólfsstræti 8
Kristján Guðmundsson. Til 10. okt.
íslensk grafík, Hafnarhúsinu
Ljósmyndaverk Einars Fals Ingólfssonar, Guð-
mundar Ingólfssonar, ívars Brynjólfssonar,
Spessa, Þorbjargar Þorvaldsdóttur. Til 10. okt.
Kjarvalsstaðir
Hafsteinn Austmann. Borgarhluti verður til.
Patrick Huse. Til 24. okt.
Listasafn ASÍ
Ásmundarsalur og Gi^fja: Úr djúpinu. Örverka-
sýning á vegum FIM. Arinstofa: Sýnishorn
verka úr eigu safnsins. Til 24. okt.
Listasafn Einars Jónssonar
Opið laugardaga og sunnudag kl. 14-17. Högg-
myndagarðurinn opinn alla daga.
Listasafn Islands
Nan Golding. Helgi Þorgilsson. Til 24. okt. Sýn-
ingar á verkum úr eigu safnsins. 28. nóv.
Listasalurinn Man, Skólavörðustíg 14
Hjörtur Marteinsson. Til 17. okt.
Listasetrið Kirkjuhvoli, Akranesi
Jónína Guðnadóttir. Til 17. okt.
Mokkakaffi
Einhverfir - Heyrnarlausir: Sigurður Þór Elías-
son, Gísli Steindór Þórðarson. Til 5. nóv.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Sumarsýningin Spor í sandinn.
Norræna húsið
Grafíkverk Johns Thprrisen við ljóð Rolfs Jacob-
sen. Til 24. okt. Prinsessudagar. Til 31. okt.
Nýlistasafnið
Malin Bogholt, Anna Carlson, Maria Hurtig,
Mauri Knuuti, Pia König og Leif Skoog. Bjarta
og Svarta-sal: Luc Franckaert. Sýning Islands-
deildar Amnesty International. Til 17. okt.
One o one Gallerí, Laugavegi 48b
Gabríela Friðriksd., Magnús Sigurðars. 12. okt.
Sjóminjasafn íslands, Vesturgötu 8, Hafnarf.
Fiskurinn í list Sveins Björnssonar. Til 15. okt.
Slunkariki, ísafírði
Færeysk myndlist: Torbjörn Olsen. Til 15. okt.
Sparisjóðurinn í Garðabæ, Garðatorgi
Freyja Önundardóttir, Guðný Jónsdóttir, Gunn-
hildur Ólafsdóttir, Ingibjörg Hauksdóttir, Jó-
hanna Sveinsdóttir, Krístín Blöndal og Sesselja
Tómasdóttir. Til 5. nóv.
Stofnun Árna Magnússonar,
Árnagarði v. Suðurgötu
Handritasýning opin þriðjudag-föstudaga kl. 14-
16. Til 15. maí.
TONLIST
Laugardagur
Gerðuberg: Gítartónleikar til heiðurs Gunnari H.
Jónssyni: Arnaldur Ai’narson, Einar Kristján
Einarsson, Kristinn H. Árnason, Páll Eyjólfsson,
Pétur Jónasson og Símon H. ívarsson. Kl. 16.
Salurinn: Ungir tónlistarmenn. Kl. 16.
Langholtskirkja: Kvartettinn Út í vorið ásamt
Signýju Sæmundsdóttur. Kl. 17.
Sunnudagur
Salurinn: Caput. Eydís Franzdótir. Kl. 20.30.
Mánudagur
Salurinn: Sönglög Sigfúsar. Kl. 20.30.
Fimmtudagur
íslenska Óperan: Elín Ósk Óskarsdóttir, sópran,
Rannveig Fríða Bragadóttir, mezzosópran og
Kolbeinn Jón Ketilsson, tenór, Kór Islensku óp-
erunnar. Píanóleikari Gerrit Schuil. Kl. 20.30.
Föstudagur
íslenska Óperan: Sjá fimmtudagur.
LEIKLIST
Þjóðlcikhúsið
Tveir tvöfaldir, lau. 9., fös. 15. okt. Glanni glæpur
í Latabæ, sun. 10. okt. Abel Snorko býr einn, lau.
9., mið. 13., fös. 15. okt. Fedra, sun, 10., fím. 14.
okt.
Borgarleikhúsið
Vorið vaknar, fós. 15. okt. Sex í sveit, mið. 13. okt.
Fegurðardrottningin frá Línakri, fim. 14. okt.
Loftkastalinn
Hattur og Fattur, sun. 10. okt. Rent, lau 9., fös.
15. okt. Bíóleikhúsið, Bíóborginni við Snorrabr.
Kossinn, lau. 9., fös. 15. okt.
Iðnó
Frankie & Johnny, mið. 13. okt. Rommí, lau. 9.,
fös. 15. okt. Þjónn í súpunni, sun. 10., fím. 14. okt.
Kaffileikhúsið
Ævintýrið um ástina, sun. 10. okt.
Tjarnarbíó
Töfratívolí, sun. 10. okt.
Danslcikhúsið með ekka
Ber, lau. 9., fös. 8. okt.
Möguleikhúsið
Snuðra og Tuðra, sun. 10. okt. Langafi prakkari,
frums. fím. 14. okt.
Leikfélag Akureyrar
Klukkustrengir, lau. 9. okt.
1 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 9. OKTÓBER 1999