Lesbók Morgunblaðsins - 09.10.1999, Side 8
UNGVERJAR FYRSTIR
í FRANKFURT
Merki Bókastefnunnar.
UNGVERJAR verða í
brennidepli á Bókastefn-
unni í Frankfurt að þessu
sinni, hinni 51. í röðinni.
Þriðjudaginn 12. október
verður stefnan sett með
ræðum forseta Ungverja-
lands, Árpád Göncz, rithöf-
undarins Péters Esterházy og Michaels
Naumann sem verður opinber fulltrúi
Þýskalands. Stefnunni lýkur þriðjudaginn
18. október.
Ungverjar hafa sótt mjög á í bókmennt-
um að undanfömu. Auk Péters Esterházys,
sem margir þekkja, eiga þeir annan skáld-
sagnahöfund, Péter Nádas, sem minnti ný-
lega á alkunn ummæli í viðtali hér í blaðinu
til marks um dugnað Ungverja. Það væri
áreiðanlega satt sem sagt væri um Ung-
verja: „Ef Ungverji gengur á eftir þér um
hverfidyr, kemur hann út á undan.“
Í höndum nýlenduherra
Péter Nádas (f. 1942) er kannski dæmi-
gerður fyrir rithöfunda frá Austur-Evrópu.
Fall múrsins og breytt viðhorf hafa að hans
mati litlu áorkað til hins betra. í fyrmefndu
viðtali norsku blaðakonunnar Tone Mykle-
bost við hann lýsir hann ástandinu í Ung-
verjalandi og sú lýsing er síður en svo
beiskjulaus.
„Hér er allt í höndunum á alþjóðlegum
fyrirtækjum, hinum nýju nýlenduherrum.
Hér er ekkert jafnvægi á milli millistéttar-
innar og hinna mörgu fátæku. Hinir nýríku
leggja ekkert af mörkum og ríkinu er ætlað
að leysa vandann. Hjálpin kemur ekki að
vestan. Þaðan kemur bara fé til fyrirtækja,
sem flytja síðan arðinn í burt. Vestræn ríki
styðja bara framkvæmdir, sem þau hagnast
á, alveg eins og í þriðja heiminum."
Kunnustu skáldsögur Nádas era fjöl-
skyldusagan Endalok og Minningabókin,
mikið verk sem menn hafa skipað í hóp önd-
vegisverka og líkt höfundinum við Proust,
Mann og Musil.
Péter Esterházy (f. 1950) er tilraunamað-
ur í sagnagerð og samdi vinsæla skáldsögu
sem er skopstæling á sósíalrealisma. Lítið
ungverskt klámsafn er eins konar klippi-
myndasafn um lífið í Ungverjalandi komm-
únismans. Klámið merkir í raun lygina og
þessi bók er sögð afburða skemmtileg og
hugkvæm. Rithæfni og stílleikur kemur til
dæmis fram með áberandi hætti í prósasafn-
inu Hún elskar mig en þar er lýst sambandi
söguhetju og höfundar.
Esterházy hefur verið hér á Bókmennta-
hátíð og eitthvað er til eftir hann í þýðingum
í tímaritum.
Þróttmikil Ijóðlist
Attila József (1905-1937) er talinn höfuð-
skáld þessarar aldar í Ungverjalandi. Hann
var sonur verkamanns af rúmenskum ætt-
um og þvottakonu. Líf hans var mótsagna-
kennt og átakamikið. Hann var bæði rekinn
úr háskóla og kommúnistaflokknum. Bjó um
skeið í París, kynntist frönskum skáldum og
„Ef Ungverji gengur ó eftir þér um hverfidyr, kemur
hann út á undan." Þetta er sögð trúverðug lýsing
á dugnaði ungversku þlóðarinnar, skrifar JQHANN
HJÁLMARSSON en Ungverjar eru nú í brennidepli á
Bókastefnunni í Frankfurt. Menn beina sjónum að ung-
verskum bókmenntum, ekki síst skáldsögum og Ijóðum.
Péter Nádas
Zsuzsa Rakovsky
orti á frönsku. Hann fór í sálgreiningu, fékk
taugaáfall og framdi sjálfsmorð í kjölfar
þess.
Onnur ungversk skáld á þessari öld sem
oft eru nefnd sem brautryðjendur og í farar-
broddi þróttmikillar ljóðlistar eru Sándor
Weöres, Gyula Illyés, Ferenc Juhász og
Agnes Nemes Nagy. Súrrealisminn hafði
mikil áhrif í Ungverjalandi eins og víðar.
Eldhuginn Petöfi
Dáðasta skáldið er nítjándualdarmaður-
inn, eldhuginn og byltingarsinninn Sándor
Petöfi, eins konar Jónas Hallgrímsson, en
náði ekki að verða eldri en 26 ára. Hann féll
í stríði við Rússa 1849.
János Pilinszky (1921-1981) hefur vaxið
mjög í áliti og þykir sérstætt skáld. Mörg
ljóða hans eru aðeins fáeinar línur. Meðal
þýðenda hans eru Ted Hughes og Tomas
Tranströmer og hafa þýðingar þeirra stuðl-
að að frægð hans.
György Petri (f. 1943) er meðal þeirra
ungversku skálda sem oft er getið. Hann er
„gróteskur“ í skálskap sínum og oft mein-
legur, altekinn af yrkisefnum eins og kynlífi
og dauða. Hann hefur verið kallaður spá-
maður sem leiðir fólk í allan sannleika um
sig sjálft og sagt er að Ungverjar þarfnist
hans meira en hann þeirra.
Zsuzsa Rakovszky (f. 1950) er eitt þeirra
skálda sem orðið hafa kunn erlendis. Hún
yrkir í játningastíl og getur minnt á Sylviu
Plath og Emily Dickinson og líka meistar-
ann Robert Lowell. Nýjasta bók hennar er
heimspekileg, fjallar um tímann, minning-
una og sjálfið. Rakovszky er einnig höfund-
ur einræða.
Valdataka kommúnista 1949 hafði í för
með sér ritskoðun og margir rithöfundar
flýðu land. Meðal útlagahöfunda var Arthur
Koestler. Uppreisnin í Ungverjalandi 1956
skipti ekki aðeins sköpum heima fyrir held-
ur skildi eftir sig djúp spor og vakti ugg í
öðrum löndum. Einn kunnasti höfundur
Ungverja á þessum árum aðhylltist þó
marxisma, bókmenntafræðingurinn György
Lukács.
Markaðsmenn og höfundar
Kvartað hefur verið yfir því að í Frank-
furt væri erfitt að komast í samband við rit-
höfunda, allt mótaðist af lögmálum markað-
arins og stefnan snerist um að selja og
kaupa. Utgefendur, útgáfustjórar og bóksal-
ar settu því mestan svip á stefnuna. A und-
anförnum árum hefur verið bætt úr þessu,
einkum með hinni alþjóðlegu miðstöð þar
sem boðið er upp á dagskrár með rithöfund-
um og umræðufundi. I ár mun þetta starf
vera með töluverðum blóma og þess gefast
kostur að kynnast höfundum frá mörgum
löndum. Nefna má Pramoedya Ananta Toer
frá Indónesíu, Bouthaina Shaaban, arabísk-
an höfund, ævintýrahöfundurinn franska
Muriel Bloch, glæpasagnahöfundinn hol-
lenska Mirjam Boelsums og íranska höfund-
inn Mahmud Doulatabadi. Að auki verða
dagskrár á svæði Ungverja og má vænta
þess að margir ungverskir höfundar muni
láta sjá sig þar.
Á þessu ári era liðin 250 ár frá fæðingu
Goethes. Af þessu tilefni verður Goethe í há-
vegum í Frankfurt, fæðingarborg sinni.
Bernskuheimili hans er safn til minningar
um hann. Þeir sem vilja fræðast nánar um
Goethe hafa úr mörgu að velja, má nefna
bækur um kvennamanninn Goethe og sæl-
kerann Goethe.
Friðarverðlaun þýskra bókaútgefenda og
bóksala verða veitt sunnudaginn 17. október
í Pálskirkju. Þau fær að þessu sinni Banda-
ríkjamaðurinn Fritz Stern.
Islenskii' bókaútgefendur munu að venju
taka þátt í og fylgjast með stefnunni. Sýn-
ingarbása hafa eftirfarandi forlög: Mál og
menning og Forlagið í sameiningu og Vaka-
Helgafell sér.
Ljóst er að Bókastefnan í Frankfurt hefur
áhrif á bókaútgáfu um allan heim.
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 9. OKTÓBER 1999