Lesbók Morgunblaðsins - 09.10.1999, Page 11
UjfT- . |
f l
íl 1 'W i
1 li
1 11 LJL
■hkI
\ y\
Uf I j 1
af smekkvísi og með virðingu fyrir þessu fagra guðshúsi.
Ljósmynd: Lesbók/Golli
Nýir kirkjubekkir og gólf, nýtt og ósýnilegt burðarvirki undir orgelloftinu, en orgelið hefur
prýtt Fríkirkjuna síðan 1926 og þykir vera einstakt.
lum hafa verið látnar standa eftir slitrur úr gamalli skreytingu sem síðar var málað yfir. Þannig lít-
ur kirkjan út þegar staðið er á orgelloftinu.
g þeim fer vel um kirkjugesti. Efst í gaflfjölinni
i- á hverjum bekk er útskorinn Möltukross,
f- gamalt kristið tákn. Burðai-viði undir gólfinu
a þurfti að auka og endurnýja, en gólfið er úr
'0 amerískri eik, sem þurrkuð var og unnin í
í verksmiðjunni á Húsavík.
í Predikunarstóllinn stendur á háum og
grönnum fæti, en hefur þó verið lækkaður nú
um 86 sm. Sagði séra Hjörtur Magni Jó-
hannsson fríkirkjuprestur að sér hefði áður
fundizt hæð stólsins óþægilega mikil. Hann
lagði líka til og fékk samþykkt að kirkju-
bekkirnir fylla ekki gólfið; innst er frjálst
rými þar sem hægt er að koma fyrir lausum
stólum ef svo ber undir. Þar stendur nú nýr
flygill, eign kirkjunnar en hefur ekki verið
vígður. Hann er notaður við ýmsar smærri at-
hafnir, svo og tónleika, en hljómburður í
kirkjunni hefur verið talinn með ágætum.
Um áratugaskeið var Fríkirkjan eitt helzta
tónlistarhús landsmanna. Þá voru ekki til
rúmbetri eða glæsilegri húsakynni hér á landi
til flutnings á hinum miklu kirkjuverkum tón-
bókmenntanna. Orgel Fríkirkjunnar var end-
urnýjað árið 1926 að tilhlutan Páls Isólfsson-
ar, sem var þar organisti. Orgelið er frá
Leipzig þar sem Páll var við nám og þekkti til
orgelsmiða. Það er kallað „rómantískt“ og
þykir vera nær einstakt í sinni röð í heimin-
um. Undir stjórn Páls, Roberts Abrahams
Ottóssonar og Victors Urbanschich voru stór-
virki kirkjutónlistarinnar frumflutt í Fríkirlq-
unni á sínum tíma.
Ytra byrði kirkjunnar var endurnýjað fyrir
nokkrum árum og var ekkert gert við það
frekar núna. Gluggar eru í upprunalegri
mynd, meira að segja með einföldu gleri, en
loftræstikerfi vantar enn og bíður framtíðar-
innar. Ofnar utan með veggjum eru gamlir,
en nú var sú breyting gerð að gengt er með-
fram hliðarveggjum í bekkina og þá þykja
þessir ofnai- of þykkir. Verða aðrir þynnri
settir upp í staðinn og bætir það gangrými.
Þegar þröngt er setinn bekkurinn er jafnvel
gert ráð fyrir því að kirkjugestir geti staðið í
þessu hliðarrými, en þar fyrir utan er gert ráð
fyrir að kirkjan rúmi a.m.k. 500 manns í sæti
á neðra gólfi, þegar búið er að raða stólum á
gólfið framan við kórinn. Auk þess rúmast
100-200 manns á svölum.
Ein er sú breyting að innanverðu sem ekki
sést. Þar voru áður hvítmálaðar járnsúlur
sem mynduðu burðarvirki undir orgellofti líkt
og í Dómkirkjunni. Þær eru nú ekki sýnilegar
lengur, en í samráði við verkfræðistofu Sig-
urðar Thoroddsen var burðarvirkið fellt inn í
loft og burðarvirki kirkjunnar.
Altaristaflan er sá af gripum kh-kjunnar
sem mest ber á, enda er hún í öndvegi fyrir
miðjum kór svo sem hefðin bauð. Hún er frá
árinu 1925; gjöf til kirkjunnar frá Kvenfélagi
Fríkirkjunnar og fyrir löngu orðin órjúfanleg-
ur hluti hennar. Hún er eftir danskan málara
og í „Biblíumyndastíl" sem stundum er nefnd-
ur svo. Það er karlmannlegur og sterkur
Kristur sem þama er, sveipaður fyrirferðar-
miklum dúkum í stað klæða. Þessi danskætt-
aða ímynd Frelsarans var svo víða í kirkjum
landsins að hún hefur í huga æði margra orðið
hin eina sanna Jesúmynd.
Skímarfontur kirkjunnar er senn sjötugur;
hann kom til landsins rétt fyrir jól 1929 og var
gjöf til kirkjunnar frá Kvenfélagi Fríkirkj-
unnar. Af öðrum kirkjugripum má nefna tvo
háa kertastjaka; þakkargjöf frá Bretum, en
brezki herinn hafði aðstöðu í kirkjunni meðan
hann var hér á stríðsárunum.
Fríkirkjan hefur verið máluð ljósum litum
að innanverðu, tréverk, súlur, bitar og listar
em í fremur daufum brúnum og grænum lit-
um og skrautmálning hefur verið endurvakin.
Allt er það gert af stakri smekkvísi.
Athygli vekur að slitmr af málverki standa
eftir yfir kórdyrum. Eiríkur Jónsson málara-
meistari og frístundamálari landslagsmynda,
hafði upprunalega unnið að talsvert viðamik-
illi skreytingu í kirkjunni og hluti þess var
málverk yfir kómum, líklega af því þegar
heilagur andi birtist lærisveinunum.
Myndin hafði skemmst nokkuð, m.a. vegna
leka og því var síðar meir málað yfir hana. Nú
hefur hluti hennar verið hreinsaður og mynd-
brotin standa út úr hvítum lit á veggnum.
Myndin er að vísu „sögulegt plagg“ og hluti af
hinni uppmnalegu Fríkirkju, en kann að vera
á kostnað þess hreinleika sem annars ein-
kennir Fríkirkjuna að innan.
Endurbætur og breytingar á kirkjunni hafa
kostað talsvert fé eins og nærri má geta. Til
þess að fjármagna framkvæmdir var prest-
setur Fríkirkjusafnaðarins við Garðastræti
selt og kirkjan sér prestinum ekki lengur fyr-
ir húsnæði. Borgin lagði fram 15 milljónh- til
verksins, sem alls kostaði rúmar 36 milljónir
króna.
GÍSU SIGURÐSSON
IK FEGRUÐ
OG BÆTT
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 9. OKTÓBER 1999 1 1