Lesbók Morgunblaðsins - 30.10.1999, Page 6
Fjölskyldan um 1952: Jóhannes og Hróðný með börnum sínum. F.v.: Svanur, Þóra og Inga Dóra.
Jóhannes á göngu í Þórsmörk.
I Þórsmörk. Jóhannes Kolbeinsson t.v. og Jóhannes úr Kötlum fyrir miðju, aðstoða ferðafélaga.
„Vissulega var móðir mín mikil trúkona en
auk þess hélt ég áfram að samlagast vissum
kristilegum þenkimáta í kynnum mínum af
ungmennafélagshreyfingunni og svo síðar
við veru mína í Kennaraskólanum undir
handarjaðri sr. Magnúsar Helgasonar. Ann-
ars hefur mér alltaf fundizt vera mjótt á
milli trúhneigðar og skáldhneigðar enda
þótt trú eins geti komið fram í mismunandi
myndum."
„Já, víst hefur það sannazt á þér því
seinna gerðist þú trúarskáld með annan
boðskap. Hverjum tókst að spilla þér þann-
ig, þessum saklausa sveitapilti?“
„Ja, það raunverulega spillingarafl var
náttúrulega sjálft auðvaldsskipulagið, heim-
skreppa þess og fasismi. En sá einstakling-
ur sem í þann tíð af allra mestum fídóns-
krafti prédikaði fyrir mér kommúnisma var
enginn annar en sjálft átrúnaðargoð þitt,
Steinn Steinar. Hann hafði verið nemandi
minn fyrir vestan og orðið mér mjög kær og
handgenginn. Svo þegar ég fluttist hingað
til bæjarins var hann kominn þangað á und-
an mér og þá þegar orðinn eldheitur bylt-
ingarsinni. Og nú var það hann sem fór að
kenna mér.“
„Já, nú minnist ég afmælisgreinar Jó-
hannes, sem Steinn Steinar skrifaði um þig
fimmtugan. Hann sagðist hafa pínt inná þig
kommúnisma og orðrétt segir hann að hann
hafi verið þessum fyrsta og einasta læriföð-
ur sínum baldinn nokkuð. Er frásögn hans
af viðskiptum ykkar sannleikanum sam-
kvæmt?“
„Ja, sú grein er náttúrulega skrifuð af
þeim skemmtilega tvískinnungi alvöru og
skáldaleyfis sem var Steini alla jafnan svo
tiltækur. En sannleikurinn er nú sá að þó að
á milli okkar Steins lægi alla tíð römm taug,
þá vorum við í raun og veru mjög ólíkir að
eðlisfari. Það var aftur á móti margt líkara
með Steini og Stefáni heitnum frá Hvítadal,
sem var okkur samtíða þarna í suðurbæn-
um. Og ég hygg að þaðan hafi hann einmitt
haft fordæmið að þessari hárbeittu og sefj-
andi samtalslist sem hann iðkaði jafnan síð-
an allt fram í andlátið."
„Já, ég kynntist henni og svo hélduð þið
áfram að berja rauðu bumburnar?“
„Jú, jú víst var svo um skeið. Að vísu fór
nú Steinn bráðlega að hneigjast svona til
heimspekilegrar efahyggju og almennrar
heimsádeilu. Trú hans á byltinguna endaði
nú með því, eins og þú kannski manst, að
hann jós bölmóði sínum yfir Kreml og allt
það hafurtask en ég hélt áfram að þruma
minn heittrúaða boðskap í anda verkalýðs-
baráttu og fólksins."
„Og hefur þér aldrei fundizt þú hafa
hlaupið á þig þegar þú á þessu tímabili ortir
svo frumleg ljóð í andanum sem „Sovét-
ísland, óskalandið, hvenær kemur þú“ og
lofkvæðið um Stalín.“
„Ja, vegna nafnsins á fyrra kvæðinu sem
þú nefndir hafa nú kannski sumir haldið -
og þá sérstaklega þeir sem aldrei lásu
kvæðið - að ég væri þar að biðja blessaða
Rússana að koma og taka okkur, en ég held
nú endilega að mér sé óhætt að fullyrða það
að rússnesk herseta hefði orðið engu sárs-
aukaminni fleinn í mínu holdi en sú amer-
íska. Hins vegar var það sannfæring mín að
sameignarskipulag væri framtíðarlausnin
og mér fannst hreint engin goðgá að spurja
eins og gert er í kvæðinu, hvenær kemur þú
lífsviljans land með ljóma strætanna, hljóm-
fall vélanna, blóm og söng, hvenær kemurðu
með kraft lífsins, eld áhugans, innileik bróð-
urþelsins. Hvenær! Hvenær!
Og svo er það þá lofsöngurinn um Stalín.
í því kvæði er náttúrulega fyrst og fremst
um að ræða einskonar persónugerving
minnar eigin óskhyggju í ljósi þeirrar goð-
sagnar sem hafði myndazt í kringum þenn-
an son skógarans. Svona fannst mér þá
endilega að hinn mikli sigurvegari í stríðinu
gegn nazismanum ætti að vera. Og síðari
uppljóstranir í sambandi við framferði
þessa stálmanns þama frá Grúsíu segja svo
sem hvorki til né frá um listgildi þessarar
myndar, út af fyrir sig. Þetta veit ég að þú,
sálmaskáld á atómöld, skilur allra manna
bezt. Annars finnst mér nú að þið morgun-
blaðsmenn mættuð vera mér öllum öðrum
þakklátari fyrir þessi tvö kvæði svo oft og
lengi sem þið hafið notazt við þau eins og
nokkurs konar kórónu á kommúnistagrýl-
una.“
„Ja, við höfum nú ekki búið til þá grýlu,
Jóhannes, og þarf ég ekki annað en að vitna
í orð Krúsjefs sjálfs til þess að minna þig á
að hann staðfesti alla morgunblaðslygina.
En gaman þykir mér að minna þig einnig á
það að þú hefur nú sjálfur ort ljóð um þessa
grýlu og lýst henni betur en allir aðrir:
Grýla hét tröllkerling, leið og ljót, með fer-
lega hönd og haltan fót. En hvernig stendur
svo á þeirri hógværð og hlédrægni sem ein-
kenna flest kvæðin þín í Eilífðar smáblóm-
um.“
„Áður en ég svara því þá langar mig til
þess að lýsa því yfir hvað vænt mér þykir
um það að þú skulir ennþá kunna grýlu-
kvæði mitt sem ég veit að þú hefur lært
þegar þú varst svo lítið og gott barn að
grýla gamla lagðist í bólið og dó. En svo ég
víki nú aftur að spumingu þinni um Eilífðar
smáblóm, þá er það nú svo að samhliða bar-
áttukvæðunum í öllum mínum bókum hafði
verið að finna lióð um landið og náttúru
þess og fólk. En orsökin til þess að þama
kom heil bók um einföldustu lífsgildi okkar
þúsund ára sveitamennsku var m.a. sú að ég
hafði um þær mundir, á upphafsárum seinni
heimsstyrjaldarinnar, dvalizt tvö sumur
uppá öræfum og þá komizt eins og í nánari
snertingu við sjálfan mig og uppruna minn
en oftast endranær."
„Á menntaskólaárum mínum tóku að birt-
ast ljóð eftir Anonimus sem vöktu athygli.
Þegar það kom í ljós að þú værir höfundur
þeirra veltu menn því fyrir sér og ekki sízt
við sem þá vorum ung að þessi mikli rímari
fór að yrkja svo lausbeislað form. Tókstu
þetta dulnefni til að móðga ekki neinn af
þínum gömlu aðdáendum?11
„í sem fæstum orðum get ég sagt að ég
þóttist finna að mitt hefðbundna form væri
að hafna í stöðnun og að ljóðagerð mín
þarfnaðist aukins svigrúms og endurnýjun-
ar. Dulnefnið tók ég ekki upp af varúð-
arástæðum heldur til þess að leita meira
hlutleysis, hlutlausra viðbragða við þessum
tilraunum mínum á meðan ég væri að átta
mig á árangri þeirra og gildi.“
„Og 1962 komu svo Oljóð þar sem þú
hættir þér enn lengra í upplausn formsins
og raunar innihaldsins líka og sumir höfðu á
orði að nú lægju loksins á borðinu sannanir
fyrir því að þú værir orðinn geggjaður.“
„Já, vissulega gat virzt svo að gömlum
kennara og háttalykilsmanni væri ekki al-
dæla að koma þarna með heila bók þar sem
hvorki fyrirfannst upphafsstafur né lestrar-
merki, að maður tali ekki um sjálft orð-
bragðið þar sem t.d. þessar ljóðlínur eru:
„Hvað segir mogginn hvað segir pravda /
mogginn það þýðir morgunblaðið / eigum
vér þá að segja upp morgunblaðinu / pravda
það þýðir sannleikurinn / eigum vér þá að
hætta að leita sannleikans."
En hvað sem skáldskapargildi þessarar
bókar annars líður, þá er það eitt víst að i
henni er að finna einhver óvægilegustu
reikningsskil mín við samtíðina og vel að
merkja ekki sízt við einmitt kommúnism-
ann. Það hélt maður nú satt að segja að ráð-
settir góðborgarar mundu síðast af öllu
flokka undir geggjun."
„Nei, en svo við höldum áfram Jóhannes,
vil ég minna þig á að tveimur árum seinna
birtist svo bókin Tregaslagur, sem lesið
verður úr hér á eftir, þar sem þú velur þér
aftur hógværari eða hóglátari tjáningu og
ferð að föndra við ný afbrigði af rími. Hvað
olli því afturhvarfi?“
„Það er nú kannski rétt að benda á það að
á milli þeirra bóka sem hér eru kynntar í
kvöld liggur hvorki meira né minna en ald-
arfjórðungsskeið. En eins og bækurnar
Hart er í heimi og Eilífðar smáblóm urðu til
svo að segja samtímis, svo ólíkar sem þær
annars að ýmsu leyti eru, þá er þetta eins
um Oljóð og Tregaslag. I báðum tilfellunum
eru þær síðarnefndu einskonar persónu-
bundin frávik frá þessu sífellda samfélags-
lega umróti sem hafði sótt svo fast á mig.
Sem sagt baráttuhlé. Hitt er svo aftur rétt
að nýju rímafbrigðin í síðasta hluta Trega-
slags, þetta sem ég kalla „Stef úr glataðri
bók“, er að nokkru leyti afturhvarf en þó
um leið tilraunir til sem allra mestrar ein-
földunar á strangri ljóðrænni háttbind-
ingu.“
„Og hvað viltu svo helzt segja um íslenzka
nútímaljóðlist og þá sérstaklega yngstu
skáldin. Ég á ekki við að þú gefir hverjum
einstökum einkunn, það er nóg af því, held-
ur þróunina?"
„Slíkri spurningu er nú ekki hægt að gera
viðhlítandi skil í stuttu máli en það eitt er
víst að hlutur ljóðsins hefur gerbreytzt við
þá miklu þjóðlífsbyltingu sem hér hefur átt
sér stað að undanförnu. Ljóðið er ekki leng-
ur það meginafl sem það var í þjóðernis-
baráttu og alþýðumenningu þeirrar snauðu
en skáldlegu bændaþjóðar sem hér sótti
fram fyrir og eftir aldamótin, heldur virðist
nútímaljóðið, eins og raunar aðrar listgrein-
ir og menningarlíf okkar yfirhöfuð, stefna
til sífellt innhverfari sérhæfingar. Gamli op-
inskái hugsjónaboðskapurinn virðist ekki
lengur gjaldgengur, heldur leitar þróunin æ
meir yfir í einhvers konar margræðar sálar-
flækjur og myndgátur, náttúrulega í sam-
ræmi við upplausn og ringulreið samfé-
lagsandans. Það er þess vegna ekkert
undarlegt þó að einföld og alþýðleg lífstján-
ing, sem hér er verið að kynna, láti í eyrum
róttækra framúrstefnumanna eins og hvert
annað innantómt hjal sem á ekkert erindi til
nútímans."
„Og að lokum, Jóhannes. Nú höfum við
báðir lifað vargöld. Hvernig segir þér hugur
um framtíðina? Telurðu að nokkur von sé til
þess að þessum illdeilum og hjaðningavíg-
um milli einstaklinga og þjóða linni?“
„Því miður er mér satt að segja heldur
dimmt fyrir augum, hvort heldur sem ég lít
til okkar eigin þjóðar ellegar umheimsins.
Þegar þær fáu hræður sem búa í þessu
landi verða orðnar, hvað eigum við að segja,
einhvers konar hersetin stóriðjupeð, þá
mega þær sannarlega gæta sín betur hér
eftir en hingað til, ef þær ætla ekki að glata
sjálfsvirðingu sinni og frumburðarrétti.
Sprengiöflin-í heimsmálunum yfirleitt virð-
ast mér slík að þar megi hvenær sem vera
skal búast við hverju sem verða skal nema
því að einu að maður reyni að fela sig á bak
við einhverja óraunhæfa bjartsýni sem gæti
þá og þegar snúizt upp í örlagaríkt and-
varaleysi. Það er satt að segja ekkert
björgulegt að öll þessi undursamlegu tækni-
vísindi nútímans skuli fyrst og fremst miða
við síaukið vígbúnaðarkapphlaup og síaukið
geimskotakapphlaup á sama tíma sem sá
mikli meirihluti mannkynsins sem berst við
hungurvofuna stækkar með hverjum degin-
um sem líður. Kannski lýsi ég núverandi
hugarástandi mínu ekki betur en með
óprentuðu smáljóði sem þannig hljóðar:
Frumsmiðurinn stendur
við lúbarið grettistak,
reiðir til höggs
í lausu lofti titrum við ósjálfbjarga
milli steins og sleggju.
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 30. OKTÓBER 1999