Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 30.10.1999, Qupperneq 6

Lesbók Morgunblaðsins - 30.10.1999, Qupperneq 6
Fjölskyldan um 1952: Jóhannes og Hróðný með börnum sínum. F.v.: Svanur, Þóra og Inga Dóra. Jóhannes á göngu í Þórsmörk. I Þórsmörk. Jóhannes Kolbeinsson t.v. og Jóhannes úr Kötlum fyrir miðju, aðstoða ferðafélaga. „Vissulega var móðir mín mikil trúkona en auk þess hélt ég áfram að samlagast vissum kristilegum þenkimáta í kynnum mínum af ungmennafélagshreyfingunni og svo síðar við veru mína í Kennaraskólanum undir handarjaðri sr. Magnúsar Helgasonar. Ann- ars hefur mér alltaf fundizt vera mjótt á milli trúhneigðar og skáldhneigðar enda þótt trú eins geti komið fram í mismunandi myndum." „Já, víst hefur það sannazt á þér því seinna gerðist þú trúarskáld með annan boðskap. Hverjum tókst að spilla þér þann- ig, þessum saklausa sveitapilti?“ „Ja, það raunverulega spillingarafl var náttúrulega sjálft auðvaldsskipulagið, heim- skreppa þess og fasismi. En sá einstakling- ur sem í þann tíð af allra mestum fídóns- krafti prédikaði fyrir mér kommúnisma var enginn annar en sjálft átrúnaðargoð þitt, Steinn Steinar. Hann hafði verið nemandi minn fyrir vestan og orðið mér mjög kær og handgenginn. Svo þegar ég fluttist hingað til bæjarins var hann kominn þangað á und- an mér og þá þegar orðinn eldheitur bylt- ingarsinni. Og nú var það hann sem fór að kenna mér.“ „Já, nú minnist ég afmælisgreinar Jó- hannes, sem Steinn Steinar skrifaði um þig fimmtugan. Hann sagðist hafa pínt inná þig kommúnisma og orðrétt segir hann að hann hafi verið þessum fyrsta og einasta læriföð- ur sínum baldinn nokkuð. Er frásögn hans af viðskiptum ykkar sannleikanum sam- kvæmt?“ „Ja, sú grein er náttúrulega skrifuð af þeim skemmtilega tvískinnungi alvöru og skáldaleyfis sem var Steini alla jafnan svo tiltækur. En sannleikurinn er nú sá að þó að á milli okkar Steins lægi alla tíð römm taug, þá vorum við í raun og veru mjög ólíkir að eðlisfari. Það var aftur á móti margt líkara með Steini og Stefáni heitnum frá Hvítadal, sem var okkur samtíða þarna í suðurbæn- um. Og ég hygg að þaðan hafi hann einmitt haft fordæmið að þessari hárbeittu og sefj- andi samtalslist sem hann iðkaði jafnan síð- an allt fram í andlátið." „Já, ég kynntist henni og svo hélduð þið áfram að berja rauðu bumburnar?“ „Jú, jú víst var svo um skeið. Að vísu fór nú Steinn bráðlega að hneigjast svona til heimspekilegrar efahyggju og almennrar heimsádeilu. Trú hans á byltinguna endaði nú með því, eins og þú kannski manst, að hann jós bölmóði sínum yfir Kreml og allt það hafurtask en ég hélt áfram að þruma minn heittrúaða boðskap í anda verkalýðs- baráttu og fólksins." „Og hefur þér aldrei fundizt þú hafa hlaupið á þig þegar þú á þessu tímabili ortir svo frumleg ljóð í andanum sem „Sovét- ísland, óskalandið, hvenær kemur þú“ og lofkvæðið um Stalín.“ „Ja, vegna nafnsins á fyrra kvæðinu sem þú nefndir hafa nú kannski sumir haldið - og þá sérstaklega þeir sem aldrei lásu kvæðið - að ég væri þar að biðja blessaða Rússana að koma og taka okkur, en ég held nú endilega að mér sé óhætt að fullyrða það að rússnesk herseta hefði orðið engu sárs- aukaminni fleinn í mínu holdi en sú amer- íska. Hins vegar var það sannfæring mín að sameignarskipulag væri framtíðarlausnin og mér fannst hreint engin goðgá að spurja eins og gert er í kvæðinu, hvenær kemur þú lífsviljans land með ljóma strætanna, hljóm- fall vélanna, blóm og söng, hvenær kemurðu með kraft lífsins, eld áhugans, innileik bróð- urþelsins. Hvenær! Hvenær! Og svo er það þá lofsöngurinn um Stalín. í því kvæði er náttúrulega fyrst og fremst um að ræða einskonar persónugerving minnar eigin óskhyggju í ljósi þeirrar goð- sagnar sem hafði myndazt í kringum þenn- an son skógarans. Svona fannst mér þá endilega að hinn mikli sigurvegari í stríðinu gegn nazismanum ætti að vera. Og síðari uppljóstranir í sambandi við framferði þessa stálmanns þama frá Grúsíu segja svo sem hvorki til né frá um listgildi þessarar myndar, út af fyrir sig. Þetta veit ég að þú, sálmaskáld á atómöld, skilur allra manna bezt. Annars finnst mér nú að þið morgun- blaðsmenn mættuð vera mér öllum öðrum þakklátari fyrir þessi tvö kvæði svo oft og lengi sem þið hafið notazt við þau eins og nokkurs konar kórónu á kommúnistagrýl- una.“ „Ja, við höfum nú ekki búið til þá grýlu, Jóhannes, og þarf ég ekki annað en að vitna í orð Krúsjefs sjálfs til þess að minna þig á að hann staðfesti alla morgunblaðslygina. En gaman þykir mér að minna þig einnig á það að þú hefur nú sjálfur ort ljóð um þessa grýlu og lýst henni betur en allir aðrir: Grýla hét tröllkerling, leið og ljót, með fer- lega hönd og haltan fót. En hvernig stendur svo á þeirri hógværð og hlédrægni sem ein- kenna flest kvæðin þín í Eilífðar smáblóm- um.“ „Áður en ég svara því þá langar mig til þess að lýsa því yfir hvað vænt mér þykir um það að þú skulir ennþá kunna grýlu- kvæði mitt sem ég veit að þú hefur lært þegar þú varst svo lítið og gott barn að grýla gamla lagðist í bólið og dó. En svo ég víki nú aftur að spumingu þinni um Eilífðar smáblóm, þá er það nú svo að samhliða bar- áttukvæðunum í öllum mínum bókum hafði verið að finna lióð um landið og náttúru þess og fólk. En orsökin til þess að þama kom heil bók um einföldustu lífsgildi okkar þúsund ára sveitamennsku var m.a. sú að ég hafði um þær mundir, á upphafsárum seinni heimsstyrjaldarinnar, dvalizt tvö sumur uppá öræfum og þá komizt eins og í nánari snertingu við sjálfan mig og uppruna minn en oftast endranær." „Á menntaskólaárum mínum tóku að birt- ast ljóð eftir Anonimus sem vöktu athygli. Þegar það kom í ljós að þú værir höfundur þeirra veltu menn því fyrir sér og ekki sízt við sem þá vorum ung að þessi mikli rímari fór að yrkja svo lausbeislað form. Tókstu þetta dulnefni til að móðga ekki neinn af þínum gömlu aðdáendum?11 „í sem fæstum orðum get ég sagt að ég þóttist finna að mitt hefðbundna form væri að hafna í stöðnun og að ljóðagerð mín þarfnaðist aukins svigrúms og endurnýjun- ar. Dulnefnið tók ég ekki upp af varúð- arástæðum heldur til þess að leita meira hlutleysis, hlutlausra viðbragða við þessum tilraunum mínum á meðan ég væri að átta mig á árangri þeirra og gildi.“ „Og 1962 komu svo Oljóð þar sem þú hættir þér enn lengra í upplausn formsins og raunar innihaldsins líka og sumir höfðu á orði að nú lægju loksins á borðinu sannanir fyrir því að þú værir orðinn geggjaður.“ „Já, vissulega gat virzt svo að gömlum kennara og háttalykilsmanni væri ekki al- dæla að koma þarna með heila bók þar sem hvorki fyrirfannst upphafsstafur né lestrar- merki, að maður tali ekki um sjálft orð- bragðið þar sem t.d. þessar ljóðlínur eru: „Hvað segir mogginn hvað segir pravda / mogginn það þýðir morgunblaðið / eigum vér þá að segja upp morgunblaðinu / pravda það þýðir sannleikurinn / eigum vér þá að hætta að leita sannleikans." En hvað sem skáldskapargildi þessarar bókar annars líður, þá er það eitt víst að i henni er að finna einhver óvægilegustu reikningsskil mín við samtíðina og vel að merkja ekki sízt við einmitt kommúnism- ann. Það hélt maður nú satt að segja að ráð- settir góðborgarar mundu síðast af öllu flokka undir geggjun." „Nei, en svo við höldum áfram Jóhannes, vil ég minna þig á að tveimur árum seinna birtist svo bókin Tregaslagur, sem lesið verður úr hér á eftir, þar sem þú velur þér aftur hógværari eða hóglátari tjáningu og ferð að föndra við ný afbrigði af rími. Hvað olli því afturhvarfi?“ „Það er nú kannski rétt að benda á það að á milli þeirra bóka sem hér eru kynntar í kvöld liggur hvorki meira né minna en ald- arfjórðungsskeið. En eins og bækurnar Hart er í heimi og Eilífðar smáblóm urðu til svo að segja samtímis, svo ólíkar sem þær annars að ýmsu leyti eru, þá er þetta eins um Oljóð og Tregaslag. I báðum tilfellunum eru þær síðarnefndu einskonar persónu- bundin frávik frá þessu sífellda samfélags- lega umróti sem hafði sótt svo fast á mig. Sem sagt baráttuhlé. Hitt er svo aftur rétt að nýju rímafbrigðin í síðasta hluta Trega- slags, þetta sem ég kalla „Stef úr glataðri bók“, er að nokkru leyti afturhvarf en þó um leið tilraunir til sem allra mestrar ein- földunar á strangri ljóðrænni háttbind- ingu.“ „Og hvað viltu svo helzt segja um íslenzka nútímaljóðlist og þá sérstaklega yngstu skáldin. Ég á ekki við að þú gefir hverjum einstökum einkunn, það er nóg af því, held- ur þróunina?" „Slíkri spurningu er nú ekki hægt að gera viðhlítandi skil í stuttu máli en það eitt er víst að hlutur ljóðsins hefur gerbreytzt við þá miklu þjóðlífsbyltingu sem hér hefur átt sér stað að undanförnu. Ljóðið er ekki leng- ur það meginafl sem það var í þjóðernis- baráttu og alþýðumenningu þeirrar snauðu en skáldlegu bændaþjóðar sem hér sótti fram fyrir og eftir aldamótin, heldur virðist nútímaljóðið, eins og raunar aðrar listgrein- ir og menningarlíf okkar yfirhöfuð, stefna til sífellt innhverfari sérhæfingar. Gamli op- inskái hugsjónaboðskapurinn virðist ekki lengur gjaldgengur, heldur leitar þróunin æ meir yfir í einhvers konar margræðar sálar- flækjur og myndgátur, náttúrulega í sam- ræmi við upplausn og ringulreið samfé- lagsandans. Það er þess vegna ekkert undarlegt þó að einföld og alþýðleg lífstján- ing, sem hér er verið að kynna, láti í eyrum róttækra framúrstefnumanna eins og hvert annað innantómt hjal sem á ekkert erindi til nútímans." „Og að lokum, Jóhannes. Nú höfum við báðir lifað vargöld. Hvernig segir þér hugur um framtíðina? Telurðu að nokkur von sé til þess að þessum illdeilum og hjaðningavíg- um milli einstaklinga og þjóða linni?“ „Því miður er mér satt að segja heldur dimmt fyrir augum, hvort heldur sem ég lít til okkar eigin þjóðar ellegar umheimsins. Þegar þær fáu hræður sem búa í þessu landi verða orðnar, hvað eigum við að segja, einhvers konar hersetin stóriðjupeð, þá mega þær sannarlega gæta sín betur hér eftir en hingað til, ef þær ætla ekki að glata sjálfsvirðingu sinni og frumburðarrétti. Sprengiöflin-í heimsmálunum yfirleitt virð- ast mér slík að þar megi hvenær sem vera skal búast við hverju sem verða skal nema því að einu að maður reyni að fela sig á bak við einhverja óraunhæfa bjartsýni sem gæti þá og þegar snúizt upp í örlagaríkt and- varaleysi. Það er satt að segja ekkert björgulegt að öll þessi undursamlegu tækni- vísindi nútímans skuli fyrst og fremst miða við síaukið vígbúnaðarkapphlaup og síaukið geimskotakapphlaup á sama tíma sem sá mikli meirihluti mannkynsins sem berst við hungurvofuna stækkar með hverjum degin- um sem líður. Kannski lýsi ég núverandi hugarástandi mínu ekki betur en með óprentuðu smáljóði sem þannig hljóðar: Frumsmiðurinn stendur við lúbarið grettistak, reiðir til höggs í lausu lofti titrum við ósjálfbjarga milli steins og sleggju. 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 30. OKTÓBER 1999

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.