Lesbók Morgunblaðsins - 30.10.1999, Blaðsíða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 30.10.1999, Blaðsíða 14
HERNA MEGIN VIÐ HELLUR EFTIR DAVÍÐ ERLINGSSON „Ég hef gert umfjöllun og skilning tveggja gildra og virðingarverðra fræðimanna á „fyrir neðan allar f íellur" að umtalsefni í | beim ti Igangi, sökum þess að mérvirðastj: >eir báðir hafa lagt sér í hendur efni til að s ikilja þetta efni á viðhlítandi háttog réttan, að mínu viti, en svo er sem | þeir s kirrist' /ið. Þeir hafa lagt efnið fram, en sjá ekki menningarfræðilegtgildi þess né symbólskt sarr ihengi. Mynd: Escher. ✓ ASTAÐ, sem þannig er skírskotað til, má, hvað sem öðru líður, fullyrða að er _(-um) við sjálf sem hér eigumst við í orði og hugsun. I því sem okkur fer á milli er þessi staður sjónarstaður. Hann er með í því, sagður eða sjálfsagður sem sá skírskotunarvettvangur sem gerir boðskipt- in miili okkar þarfleg / nauðsynleg / gerleg o.s.frv. að einhverju leyti. Beint eða óbeint og uppskátt eða dulið varða boðskipti manna vettvanginn mannheima eða eru um hann. Mannheimar eru ekki allt sem er, því að til er það í heimi sem ekki er þeir og þörf ber til að vita að er annað en þeir, og að þama eru mörk í milli héma megin og þess margvís- legs sem er hinum megin í einhverjum skiln- ingi. Þetta og þýðing þessa eru í boðskiptum oft gefin til kynna með táknmáli, symbólum. Flestar greinar málvísinda okkar aldar og orðabókaverk margvísleg reyna í viðfangs- ' efnavali sínu og með vinnuaðferðum yfirleitt að forðast að lenda í viðureignum við hið symbólska, í ámóta merkingu og þeirri sem hér er verið að tala um, — sem er eiginlega það þegar orð eða önnur tjá (myndir, tónar) kalla fram merkingar og meiningar og þar með tilfinningar sem eru allt miklu meira en það sem kalla má beina og afmarkanlega (orðabókar)merkingu (t. d.þegar hestur er látinn vera ákveðin tegund af spendýri), til dæmis þegar einhver setur sig á háan hest og alls ekki er verið að tala um spendýr heldur eitthvað allt annað og raunar alls ekki auðráðið hvað það komi dýrinu við. Orðabækur tala þá oft um afleiddar merk- ingar eða yfirfærða notkun, tala um líkingar og metafórur o.s.frv., og hljóta notendur að vera þakklátir fyrir slíkar ábendingar, þótt þær séu oft ekki mjög markvissar eða ná- kvæmar, enda er oft um torræð efni að ræða. Afstaða slíkra vísinda er raunhyggja að stofni, og litið er í botninn á tungumál sem tæki til tjáningar á veruleikanum. Ástæður þessarar afstöðu félagslegar og vís- indahugmyndasögulegar verða ekki gerðar hér að umtalsefni, en það er á hinn bóginn mikil þörf á að benda (að minnsta kosti öllu verðandi mennta) fólki á þessar afstæður og hvað þær merkja, með einstökum dæmum, og sýna hvað það getur haft í för með sér að fara að hugsa að fordæmi slíkra vísinda og hleypa ekki hinu symbólska hlutverki að (hvort sem er í málstextum eða mannlífi), þegar og eftir því sem það á við til þess að skilja orð, orðasambönd og texta um þetta sama mannlíf og heim þess. Hér kemur nú eitt slíkt dæmi. Það er fyrir neðan allar hellur. I þeim orð- um, sem heyrast oft í samtíðarmáli töluðu, fellir mælandi mjög harðan dóm um það sem til umræðu er, þetta það. Það er „afburðalé- legt“, svo að gripið sé þýðingarorð úr texta Halldórs Halldórssonar málfræðiprófessors um orðatiltækið1, þó ekki væri nema til að vekja athygli á því eiginhlutleysi fræði- manns og fræðimennsku sem yfirleitt telst dygð og kostur, því að efnismeðferðin fær hlutlægni af því að sleppa við að fræðimað- urinn blandi huglægri afstöðu sjálfs sín inn í meðferðina og texta sinn um athugunarefn- in. En um leið gætir í þessu orði rangrar eða >1 rangleitinnar hlutlægni, því að það, lélegt, á miklu betur við um eitthvað sem er efnis- hlutur en um eitthvað sem er (ef til vill ekki annað en) hugleg afstaða, og orðið ber þá í sér dóm um þá afstöðu. „Lélegt" felur þann- ig ekki í sér þá sterku siðferðilegu fordæm- ingu sem „fyrir neðan allar hellur" ber í sér. Þetta orðasamband heyrist í lifandi máli með áherzluþunga og flytur dóminn „sem ætti ekki að eiga sér stað“ eða „sem ætti ekki að geta verið, eða fá að vera, í okkar heimi“. Orðið lélegur er hins vegar orð sem gæti átt heima í orðaforða „gæðastjórnunar" t.d. yfir einhverri framleiðslu efnisbundinni, og það breytist ekki mjög með því að skeyta afburða- framan við. Að málkennd þess sem hér stritast við að hugsa er ekki langt frá að hinn harði áfellisdómur siðferðilegur í „fyrir neðan allar hellur“ komist að fordæmingar- stigi upp að hliðinni á því þegar sagt er að eitthvað sé „til háborinnar skammar", enda þótt ég segi ekki að þessi orðasambönd myndu vera höfð um það sama. Mér finnst ég varla vita það. En ég tel að við sjáum í þessu eina orði leitni raunhyggjumarkaðrar málrannsóknar til bæði hins efnisraunverulega og til þeirrar hlutlægni viðhorfsins sem er í eðli sínu sið- laus (án siðar, hér eins og í öðrum vísindum aldarinnar, en af því getur sprottið siðleysi í hinni merkingunni, með meiningu fordæm- ingar); einnig sést hér varygðin gagnvart því huglega sem er önnur hlið þessa, viljinn til að sneiða hjá því sem er einhvem veginn öðmvísi veralegt en „raun“veralegt. En allir ættu að vita að það er margur veruleiki í líf- inu sem ekki er áþreifanlegt eða sýnilegt efni. Með þessum orðum er nú bent með víðri sveiflu á þau merkinga- og meininga- svið sem hætt er við að verði út undan at- hygli til rannsókna og komi afar misjafnlega til skila í stranglega raunhyggjumótuðum skrásetningabókum um mannlega hugsun. I framhaldi af þessu er ástæða til að líta nokkru nánar á þau rit bæði um íslenzk orð- tök sem ég tek dæmið úr, rit Halldórs Hall- dórssonar áður tilvitnað og rit Jóns Frið- jónssonar.2 Fróðlegt er að sjá að Halldór gaupnar orðtakaefnið saman í eina grein, en Jón tekur það fyrir í fjórum atriðum eða deildum sem hver er að upphafi merkt með sverum punkti, eins og oft er gert tU yfír- litshjálpar í þeirri bók. Þetta tengist því að nokkru leyti, að Jón hefur meira efni að setja á sína skrá. Punktadeildir hans fjórar eru: • e-ð fellur á hellu (sjaldg.) „e-ð ber ekki ár- angur • e-ð er fyrir neðan allar hellur (hér þýtt: ) „e-ð er fráleitt, e-ð nær engri átt“. (Því er skylt að hrósa, að hér kemur afstæða for- dæmingarinnar fram í þýðingunum, sem mér þykja vera réttar og góðar.) • e-m verður hált á (sömu) hellunni (sjaldg.) „e-m verða á mistök (sömu mistök og e-m öðrum)“ • skammast sín niður fyrir /(undir) allar hellur „skammast sín mjög mikið“. Undir þessum síðasta punkti tínir Jón fram ýmis þeirra orðtaka sem nefnd eru í samgrip- inu hjá Halldóri, en ekki öll. Það sem Jón tekur upp fram yfir Halldór eru fyrst og fremst sjaldheyrðu orðtökin 1 og 3 í þessari röð. í þeim virðast koma fram beinar samlíkingar við auðráðinn efnisveru- leíka, en veruleikasamband 2, í brennidepli hér, og 4, þar sem raunar er ekki eitt heldur margt tekið saman, er miklu torráðnara fyr- ir nútímamanninn, að minnsta kosti þann sem ekki veit annað en raunhyggja og skyn- semi og heimsmynd sem ekki nær sjálfri sér saman sé allt eðlilegt og sjálfsagt og hið eina eðlilega og sjálfsagða. Það er því um þessi atriði sem hér er þörf að ræða nokkru nánar. Flettigrein Halldórs, HELLA, hefst á því að hann tekur aðdáanlega utan um nokkur þessi orðtök í einu með því að segja: Orðasamböndin niður undir (allar) hellur, ofan undir allar hellur og niður fyrir ailar hellur eru notuð til áherzluauka með nokkr- um sögnum, aðallega skammast sín, skamma, óska, níða o.s.frv. Skulu rakin nokkur dæmi, - Síðan koma þau, og er afar fróðlegt að íhuga þau í því samhengi sem þau veita hvert öðru. I því næstsíðasta skammast maður sín ofan undir allar hellur fyrir hirðu- leysi sitt, en í því síðasta er talað um að níða Spánverja niður fyrir allar hellur. Þar á eftir sérstakt stykki um upprunann, sem að verð- ur komið hér á eftir; en það hlýtur að vekja sérstaka athygli, að flettigreinin endar á staksettum viðbótarlínum sem segja: Af sömu rót er runnið e-ð er fyrir neðan allar hellur (Bl) „e-ð er afburðalélegt".3 Því að í vissum skilningi er hugmyndin í því grundvöllur og staðurinn sem allt hitt stendur á, hugmyndin um það sem er hinum megin við þetta hellnagrjót. Hefði verið eðli- legt þess vegna að skipa dæminu með so. vera á undan dæmunum með öðrum sagn- orðum sem hafa sértækari merkingar. En fræðimennimir líta ekki þannig á málið. Lít- um nú fyrst á stykki það hjá Halldóri sem flytur okkur það sem hann telur helzt ætl- andi um sannrök til orðtakanna (sbr. etymo- logia), en síðan á mál Jóns Friðjónssonar um sama efni, þar sem hann stendur vitanlega á herðum Halldórs: Uppruni er óvís, en ef gert er ráð fyrir að orðasamböndin séu í fyrstu með óska eða merkingarlíkum sögnum, gætu þau verið dregin af greftrunarsið og merkt í fyrstu „til dauða“. Þessu til styrktar má benda á eftir- farandi staði úr fornritum: Þórðr kveðst eigi þat hirða, - „má þat eigi víst vita, hverr hell- um hleðr at höfði öðrum“ ÍF XIV, 199 - „Reynt mun slíkt verða", segir Skarpheðinn, „hverr grjóti hleðr at höfði öðrum“. ÍF XII, 229.4 Jón Friðjónsson er loflega varfærinn, finnur vissa veikleika í máli Halldórs, og reynir að bæta um. Þegar hann segir i fyrstu orðunum að uppruni sé óljós í stað óvís hjá Halldóri, skil ég það svo að Jóni þyki tilvitn- animar í fomsögur í sjálfum sér alltraustur ávitull á það, á hvaða sviði orðtökin hljóti að eiga rót sína, en eigi að síður sé margt óljóst um það. Sé svo, er ég honum líka samdóma. Hann skrifar: Uppruni er óljós en líkingin er er e.t.v. tengd greftrun. Annars vegar gæti hella vísað til steina á gröfum eða þess þegar menn voru urðaðir, þ. e. óska e-m niður und- ir (allar) hellur merkti þá „óska e-m til dauða“ (HH91, 213). Hins vegar gæti líking- in verið dregin af því þegar búið var um látna menn, sbr. orðatiltækið hlaða hellum / grjóti að höfði e-m (tilv. í sömu sögur og hjá Halldóri, en í annarri útg.) „sigra e-n, verða e-m yfirsterkari" þar sem líkingin virðist dregin af umbúnaði líka, þ.e. bein merking er „búa um höfuð manns í gröfinni" en yfir- færð merking „ganga af e-m dauðum“. Þessu til styrktar skal nefnt orðatiltækið safna grjóti til sinnar eigin grafar (tilv.) og afbrigðið safna steinum að sinni eigin gröf (tilv.). Það sem er fyrir neðan allar hellur vísar þá til þess að lægra (en í gröfina) verði ekki komist. Allt virðist mér þetta fjarska viturlegt og sennilegt, og nauðsynleg er sú leiðrétting á tali Halldórs um greftrun að gera greinar- mun á þessum hinum allra hinzta frágangi manna frá líkum og öðrum frágangi á eða frá líkum manna sem t.d. gátu hafa verið vegnir í vopnaviðskiptum, og hlutu vegendur og aðrir að ganga sæmilega frá til bráðabirgða þannig að líkin yrðu ekki æzli varga í biðinni eftir heiðarlegri húslan. Þannig hefur verið fullkomlega eðlilegt að sá sem vegið hafði mann þyrfti að hlaða hellum að höfði honum, hugsunaryfirfæringin lítil frá því síðar- nefnda til hins fyrrnefnda. En hugur minn stöðvast við ályktunarsetninguna sem Jón endar umfjöllun sína með, þar sem það er líkt og orðið „lægra“ slái mig dálítið utanun- dir, sem náttúruvísindalega stefnt merking- artilbrigði við „neðar“ (fyrir neðan) í orðtök- unum sjálfum: ekki lengur miðað aðeins við hellur þessar heldur er það nú orðið ískilið að mælt sé á einhvern almennt gildan hæð- armæli því að um þannig lagaða afstöðu sé að ræða. Þetta er ósvífnislega sagt af mér, en ég bið að mér verði það umborið vegna þess að afstaða rannsakandans skiptir mjög verulegu, ef ekki öllu máli. Notendur verka vísindamanna okkar verða að vita afstöðu þeirra eins nákvæmlega og unnt er að gera hana ljósa. Og það þarf að kenna fólki að fara rétt með það sem á milli ber hugsunar þeirra og vísindamannanna. Öðrum kosti geta verk vísindamannanna beinlínis orðið til ills, fyrir lesendur sem ekki kunna að vara sig á hættulegum markaðstorgum fræðsl- unnar. Eg hef einmitt gert umfjöllun og skilning tveggja gildra og virðingarverðra fræði- manna á „fyrir neðan allar hellur" að um- talsefni í þeim tilgangi, sökum þess að mér virðast þeir báðir hafa lagt sér í hendur efni til að skilja þetta efni á viðhlítandi hátt og réttan, að mínu viti, en svo er sem þeir skirr- 1 4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 30. OKTÓBER 1999

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.