Lesbók Morgunblaðsins - 30.10.1999, Síða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 30.10.1999, Síða 16
' LANGFERÐIR - ÍSLENSK MENN- INGARHÁTÍÐ í BANDARÍKJUNUM Morgunblaðið/RAX Gudmundur Emilsson horfir til himins í Grindavík en hann gegnir nú starfi menningarfulltrúa Grindavíkurbæjar. Baltneska filharmónían í Riga vid upptökur á lidnu vori undir stjórn Gudmundar Emilssonar. Guðmundur Emilsson, stjórnandi Baltnesku Fíl- harmóníunnar í Riga, hygguró landvinninga í Vesturheimi. Framundan ♦ er fjögurra daga tónlist- arhótíð í Brown Universi- ty þar sem dagskróin er borin uppi af nýjum ís- lenskum tónverkum og er hótíðin öll tileinkuð landafundunum sem minnst verður við ór- * þúsundamótin. HÁVAR SIGURJÓNSSON ræddi við Guðmund. YFIRSKRIFT hátíðarinnar er Voyages eða Langferðir og á það vel við þegar landafund- anna er minnst en þar lögðu djarfir menn og konur upp í langferðir yfir ókunn höf í leit nýrra landa. Guðmundur hef- ur helgað þessu verkefni krafta sína um nær tveggja ára skeið og upp- sker nú árangur erfiðisins þegar hátíðin hefst á fimmtudaginn kemur, hinn 4. nóvember. „Upphaf þessa ævintýris nær aftur til janúar 1998 er mér var boðið að stjórna Sin- fóníuhljómsveit Brown University i Provi- dence í Rhode Island fylki. Þetta er einn af -elstu og virtustu háskólum Bandaríkjanna og er í hópi þeirra fimm sem kallaðir eru Ivy League háskólamir. Við Brown University • er starfrækt öflug tónlistardeild undir stjóm tónskáldsins Geralds Shapiros. Mér varð að orði þegar við hittumst í Providenee hvort „ekki væri tilvalið að efna til hátíðar með ís- lenskri tónlist í tilefni landafundanna. Hann greip hugmyndina á lofti og við ræddum hana á meðan ég dvaldi þama við æfingar og tónleikahald með hljómsveitinni í sex vikur. Við brottför skipaði hann mig listrænan stjómanda verkefnisins. í fyrstu var talað um eina tónleika en hugmyndin hefur vaxið og dafnað á þessum 18 mánuðum og eigin- lega þanist út og sífellt fleiri komið að,“ segir Guðmundur. Ferðast um sex fylki Kjölfesta hátíðarinnar er 25 manna Kammersveit Baltnesku Fílharmóníunnar í Riga ásamt fjórum slaghljóðfæraleikurum og kór sem leika undir stjóm Guðmundar en fimm íslensk og þrjú bandarísk tónskáld leggja hátíðinni til fmmsamin verk. Guðný Guðmundsdóttir, konsertmeistari Sinfóníu- hljómsveitar Islands, fmmflytur fiðlukonsert og ameríska mezzosópran söngkonan Lynn Helding ogkór Brown University taka þátt í hátíðinni. I kjölfar þessarar fjögurra daga menningarhátíðar er lagt upp í sex ríkja tón- leikaferð með jafnmörgum tónleikum með einleikuram, kómum og hljómsveitinni. I allt tæplega 100 manns. „Fyrst em tónleikar í Wesleyan Universi- ty í Connecticut og þar er víst uppselt nú þegar. Síðan em tónleikar í finnska menning- arsetrinu glæsta í Washington. Þeir tónleik- ar eru haldnir í samstarfi sendiráða íslands, v Lettlands og Finnlands. Þar er líka uppselt að ég held. Síðan era tónleikar í MOler Theatre á Broadway í New York. Það er há- tíðarsalur Columbia University - og fór þá aldrei svo að maður kæmist ekki á svið á Broadway," segir Guðmundur og hlær. „Næstsíðustu tónleikamir em í Pennsylvan- íu og þaðan fömm við alla leið til Kentucky og höldum þar lokatónleika." Hljóðritar fjóra diska Ólafur Ragnar Grímsson, forseti fslands, hefur þekkst boð Brown University um að halda fyrirlestur í hinni alþjóðlegu Ogden fyrirlestraröð og nefnist erindi forsetans: The Northem Region: A new dimension in intemational relations. Guðmundur segir það mikinn heiður fyrir aðstandendur hátíð- arinnar að forsetinn hafi þekkst boð um taka þátt í henni með þessum hætti. Hljómsveitin hefur þegar hljóðritað flest þau nýju íslensku og bandarísku tónverk sem frumflutt verða á hátíðinni. Þó ekki öll. Þau verða hljóðrituð í Providence. „Það er gaman að segja frá því að einmitt núna þegar við leggjum í þessa ferð að fyrsti hljómdiskur Baltnesku fílharmóníunnar undir minni stjóm kemur út á vegum Skífunnar. A hon- um em forleikir að ópemm Mozarts og bari- tónaríur og er Sigurður Bragason þar í aðal- hlutverki. Hljómsveitin hefur þegar hljóðritað efni á fjóra diska sem hver er til- einkaður einu tónskáldi. Þau em Atli Heimir Sveinsson, Þorkeil Sigurbjömsson, William Hudson Harper III og Gerald Shapiro. í bíg- erð er einnig útgáfa hljómdiska með verkum Mistar Þorkelsdóttur og Mark Phillips. Ég vil einnig geta þess að tónskáldin Finnur Torfí Stefánsson og Hilmar Þórðarson sömdu kórverk til flutnings á Providence- hátíðinni. Því miður vannst kór skólans ekki tími til að fullæfa þau fyrir hátíðina enda eru þetta mikil tónverk og er vonandi stefnt að því að flytja þau og hljóðrita sem fyrst.“ Framlag tónlistarmannanna mikilvægast „Það gleður mig mjög að tónskáldin skyldu öll verða við beiðni minni um að semja verk fyrir þetta tilefni," segir Guðmundur en flest era verkin tileinkuð honum. Aðspurður segir Guðmundur þetta verkefni ekki njóta fjár- hagslegs stuðnings íslenskra yfirvalda. „Við Shapiro gengum á fund þartil settra aðila fyrir rúmu ári og óskuðum eftir stuðningi við Providencehátíðina en engin svör hafa enn borist við erindi okkar. Við þóttumst sjá þetta fyrir og tókum skjótt þá ákvörðun að fjármagna dæmið eftir öðmm leiðum. Þar vegur þyngst framlag tónlistarmanna og tón- skálda. Baltneska Fflharmónían leggur til tónlistarmenn sína og stjórnanda og Brown University ber hita og þunga af undirbúningi ásamt mér. Gerald Shapiro hefur verið mjög ötull í þessu samstarfi, tekið hugmyndum mínum vel og gert bókstaflega allt til að hrinda þeim í framkvæmd. Auk þess nýtur hátíðin stuðnings fjölmargra bandarískra menningarsjóða og einstaklinga og stuðnings vina minna hér á Islandi." Melódrama úr Vínlandssógum Eftir Atla Heimi Sveinsson verður fram- flutt verkið Doloroso sem hann samdi í minn- ingu Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur for- setafrúar og er tileinkað Ólafi Ragnari Grímssyni og fjölskyldu hans. „Þetta er undurfagurt verk sem Atli Heimir samdi á föstudaginn langa í ár. Ég hringdi í hann frá Riga og bað hann semja verkið þennan til- tekna dag sem og varð.“ Eftir Mist Þorkels- dóttur verður fmmflutt verkið Kvinnan fróma. „Þetta er verk fyrir strengjasveit og er helgað Guðríði Þorbjamardóttur og sögu hennar," segir Guðmundur. „Þau Atli Heimir og Mist verða sérstakir heiðursgestir á hátíð- inni og halda fyrirlestra um íslenska tónlist og hitta tónsmíðanema og kennara." Eftir Þorkel Sigurbjörnsson verður frumflutt verkið Goodnight fyrir mezzosópran og strengjasveit. „Hógvært verk og fagurt," segir Guðmundur. „Textinn er fenginn úr Ijóði eftir vestur-íslenska skáldið Guttorm Guttormsson og á það vel við. Eftir Gerald Shapiro verða fmmflutt tvö verk. Hið fyrra er fiðlukonsert þar sem Guðný Guðmunds- dóttir leikur einleik. Hið síðara er hálftíma langt verk er nefnist The Vinland Sagas og er samið fyrir hljómsveit og sögumann. Texti þess er sóttur í Vínlandssögur og er þetta opnunarverk hátíðarinnar og verður frum- flutt áður en forseti Islands jlytur erindi sitt fimmtudaginn 4. nóvember. I hlutverki sögu- manns verður Atli Heimir Sveinsson og mæl- ir hann á íslensku með öriitlu ensku ívafi. „Segja má að verkið sé samið með ákveðið form í huga, þar sem saman fara texti og tón- ar. A 19. öld hét þetta melódrama og þekkt verk þeirrar gerðar á 20. öld eru t.d. Lincoln Portrait og Pétur og úlfurinn. Ég veit þó ekki til þess að áður hafi verið samið melódrama upp úr Islendingasögunum," segir Guð- mundur. Eldur og ís nefnist nýtt verk eftir Mark Phillips, „... mikilúðlegt eins og nafnið ber með sér“. Éftir William Hudson Harper verður frumflutt verkið Marlíðendur sem Guðmundur segir innblásið af lestri tón- skáldsins á samnefndu Ijóði Jóhanns Hjálmarssonar, og tilheyrir verkið Námum. „Þetta er magnað verk fyrir ásláttarhljóð- færi, kór, einsöngvara og hljómsveit. Það býr yfir kynngi og forneskju en er þó nútímalegt. Eins konar blanda af rokkmúsík og miðalda- söng. Þetta verk hljóðritaði ég í apríl síðast- liðnum með Baltnesku Fflharmóníunni og Drengjakómum í Riga en sú upptaka hefur enn ekki verið gefin út svo þetta er frum- flutningur verksins." Guðmundur segir að nýju verkin beri uppi efnisskrá tónleikanna á hátíðinni í Provi- dence en önnur samnorræn efnisskrá verður einnig í boði þegar haldið er í tónleikaferðina. „Þá munum við leika verk eftir Grieg og Si- belius og önnur norræn og baltnesk sem val- in hafa verið,“ sagði Guðmundur Emilsson, listrænn stjórnandi Baltnesku Fflharmón- íunnar og menningarfulltrúi Grindavíkur- bæjar. 1 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 30. OKTÓBER 1999

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.