Lesbók Morgunblaðsins - 20.11.1999, Síða 8
SJONÞING EIRIKS SMITH IGERÐUBERGI
Ferill Eiríks Smith listmál-
ara verður viðfangsefni
Sjón þings sem haldið
verður í menningarm iið-
stöði ínni Gerðubergi í
d ag. MARGRÉT SVEIN-
BJÖRNSDÓTTIR hitti
listamanninn ásamt
þingmönnum og 1 fékk
smjörþefinn af umræðu-
el Fnum dagsins.
OHÆTT er að segja að
fáir íslenskir mynd-
listarmenn eigi að
baki jafnfjölbreytileg-
an feril og Eiríkur
Smith. Um hann hef-
ur verið sagt að hann
hafi átt hlut í öllum
helstu liststefnum sem bárust hingað til
lands á árunum 1950-1970 - og að hann hafi
um leið átt drjúgan þátt í að móta þessar
stefnur og laga þær að íslenskum aðstæð-
um. Ferill Eiríks, allt frá fyrstu sýningu
hans árið 1948 til dagsins í dag, verður til
umfjöllunar á Sjónþingi sem hefst í Gerðu-
bergi kl. 13.30 í dag.
Spyrlar á Sjónþinginu verða myndlistar-
mennirnir Hafdís Helgadóttir og Daði Guð-
bjömsson en stjórnandi þingsins er Aðal-
steinn Ingólfsson listfræðingur. Umsjón
með uppsetningu sýningarinnar hafði
Harpa Björnsdóttir myndlistarmaður. „Við
viljum fá meiri botn í ferilinn," segir Daði.
„Hver er þessi Smith? Það er stóra spurn-
ingin,“ bætir Harpa við.
Talið berst fljótt að geómetríska málverk-
inu en því kynntist Eiríkur í París í kringum
1950. „Ég málaði gífurlega mikið af geómet-
ríu en það era bara svo fáar myndir sýnan-
legar,“ segir hann.
„Vitleysa að ég hafi
kveikt í geómetríunni"
Harpa spyr hvort það sé ekki rétt að hann
hafi kveikt í vænum haug af geómetrískum
málverkum. „Nei, það er nefnilega stóri
misskilningurinn, það er margur sem held-
ur að ég hafi kveikt í geómetríunni, en það
er vitleysa. Ég kveikti í myndum en það var
ekki geómetría," svarar hann en bætir svo
við: „Það má svo sem vel vera að það hafi
flotið með ein og ein.“ Hann segir að á bálið
hafí farið eftirreytur af myndum sem hann
átti frá því eftir fyrstu sýninguna 1948, áður
en hann hélt til náms í Kaupmannahöfn.
„Ég bar þetta upp i sandgryfju rétt fyrir of-
an þar sem ég átti heima og hafði með mér
terpentínu eða steinolíu. Ég nennti ekki að
standa í þessu lengur - og nennti ekki einu
sinni að mála yfir myndirnar, því þetta var
yfirleitt það lélegt efni.
Binna gat reyndar bjargað þremur mynd-
um og þær á ég alltaf uppi í vinnustofu,“
segir hann.
Þó að geómetrían hafi ekki orðið eldi að
bráð, nema kannski að mjög óverulegu leyti,
hafa margar geómetrísku myndanna lent
undir öðrum myndum, einfaldlega vegna
þess að listamanninn vantaði léreft.
paði furðar sig á því að nú sé talað um
SUM eins og mestu byltinguna í íslenskri
listasögu. „Mín skoðun er sú að það hafi ver-
ið svo margfalt meiri bylting að fara að mála
geómetríu," segir hann. Aðalsteinn er sama
sinnis: „Það var svo margfalt meira sjokk á
sínum tíma en SÚM, það er þó a.m.k. að-
dragandi að SÚM, en þetta gerðist svo
skyndilega."
„Nóttúran er msn uppi-
staða í myndgerð"
Hafdís hefur orð á því að náttúran sé yfir
og allt um kring í verkum Eiríks, hvað sem
öllum tímabilum líður. Hann samsinnir:
„Náttúran er mín uppistaða í myndgerð,
hvemig sem ég mála.“ Hafdís heldur áfram:
„Það er ekki endilega svo að það sé verið að
koma á framfæri einhverjum boðskap til
Hraunfjöll, eitt verka Elríks Smith.
áhorfandans, aðalatriðið er myndflöturinn
sjálfur.“ „Já, myndverkið sem slíkt,“ segir
Eiríkur. „Það er ekki hægt að segja að það
sé pólitísk afstaða í myndunum þínum,“ seg-
ir Hafdís.
„Nei nei nei, ég er mystíker og jafnframt
mikill náttúruunnandi. Ég hrífst bæði af
birtu og átökum í náttúrunni - ég er svona
margslungið kvikindi," segir Eiríkur leynd-
ardómsfullur.
Aðalsteinn hefur orð á því að það sé
merkilegt með mann sem alla tíð hafi reitt
sig á landslag og náttúru, en aldrei dottið í
hug að blanda pólitík inn í það - allt í einu
geri tíðarandinn það að verkum að öll mál-
verk hans séu orðin þrælpólitísk. „Ef hann
myndi sýna þessi verk á Egilsstöðum núna
yrði það tekið sem pólitísk yfirlýsing."
Hafdís telur að það geti verið lærdóms-
ríkt fyrir yngri myndlistarmenn að sjá
hvernig Eiríkur hafi alltaf leyft sér ýmislegt
og látið eftir sér að gera það sem andinn hafi
blásið honum J brjóst hverju sinni. „Já, ég
hef gert það. Ég hef alltaf málað eins og mig
langar til. Svo verður það að ráðast hvort
einhver hefur gaman af þessu,“ segir hann.
Sjónþingið hefst kl. 13.30 í dag og um leið
verður opnuð sýning á hátt í 40 verkum Eir-
íks Smith í Gerðubergi. Sýningin stendur til
9. janúar nk.
, Morgunblaðið/Jim Smart
Eiríkur Smith listmálari með Aðalstein Ingólfsson sér til hægri handar. Fyrir framan þá sitja Hafdís Helgadóttir, Harpa Björnsdóttír og Daði Guð-
björnsson. Á bak við þau sést i málverk eftir Eirík frá árinu 1964, titill þess er Fjara.
„EG ER SVONA MARG-
SLUNGIÐ KVIKINDI"
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 20. NÓVEMBER 1999