Lesbók Morgunblaðsins - 27.11.1999, Qupperneq 2
KALLAÐ EFTIR
YERKUM A
HÓNNUNAR-
SÝNINGU
STÓR hönnunarsýning verður haldin að
Kjarvalsstöðum í október á næsta ári og er
unnið að því þessa dagana að safna verkum á
hana. Sýningunni er ætlað að spegla 100 ára
sögu hönnunar á Islandi en megináhersla
verður þó lögð á nútímann.
Sýningin er haldin í tengslum við dagskrá
Reykjavíkur, menningarborgar Evrópu árið
2000, að tilstuðlan Form ísland, en einnig
hafa stjórn hins nýstofnaða Hönnunarsafns
íslands og Kjarvalsstaðir verið fengin til
samstarfs. Sýningarstjórar verða hönnuðim-
ir Katrín Pétursdóttir og Michael Young.
Hugmyndafræði sýningarinnar er að sögn
Katrínar tvíþætt: Annars vegar er sýning-
unni ætlað að varpa ljósi á hinn sögulega arf
og gefa yfirlit yfir þróun íslenskrar hönnunar
til þess sjálfstæðis og fagmennsku sem ein-
kennir hana nú. Hins vegar er henni ætlað að
veita innsýn í það margvíslega ferli sem
hönnun og framleiðsla er.
Katrín segir sýninguna verða mjög stóra
og metnaðarfulla og að þar megi sjá allt það
besta sem gert hefur verið í hönnun á Islandi
á einum stað, en þetta verður í fyrsta skipti
sem haldin er stór íslensk hönnunarsýning.
„Við erum að tala um húsgagnahönnun,
iðnhönnun, arkitektúr, textílhönnun, kera-
mik, allt sem lýtur að húsbúnaði, tískuhönn-
un, landslagsarkitektúr, í stuttu máli; sjón-
ræn hönnun í víðtækustu merkingu þess
orðs,“ segir hún. Eina ástæðu þess að Katrín
og Michael Young, eiginmaður hennar, hafi
verið ráðin til að velja verk á sýninguna og
hanna hana, telur hún vera þá að þar sem þau
hafi lengi starfað erlendis og séu tiltölulega
nýflutt hingað heim, megi segja að glöggt sé
gests augað.
Katrín kveðst vilja hvetja alla þá sem fást
við hönnun í víðu samhengi að senda inn verk
fyrir 15. desember nk. Utanáskriftin er
Form ísland, pósthólf 1584,121 Reykjavík.
Ennfremur stendur til að gefa út veglega
bók í tengslum við sýninguna.
ÍSLENDINGAR
SÝNA í STUTTGART
ÞRIR listamenn frá Islandi, eða 3 Kixnstler
aus Island, er sýning sem opnuð verður í Ga-
lerie Michael Sturm í Stuttgart í dag.
Þar eru á ferð listamenn sem Edda Jóns-
dóttir í galleríinu i8 hefur á sínum snærum,
þau Kristján Guðmundsson, Finnbogi Pét-
ursson og Ragna Róbertsdóttir. Á sýning-
unni eru að sögn Eddu tvö stór verk úr gleri
og hrauni eftir Rögnu, tvö stór máluð gler-
verk eftir Kristján og álplötur og gólfverk
eftir Finnboga. Sýningin stendur til 22. jan-
úar næstkomandi.
SELTJARNARNESKIRKJA
HELGUN
TEXTÍLVERKS
Morgunblaðið/Golli
Verk Herdísar er unnið úr ull, hör, sísl og koparþræði.
TEXTÍLLISTA-
VERK Herdísar
Tómasdóttur verður
helgað í Seltjarnar-
neskirkju á morgun,
sunnudag, kl. 11.
Á Kirkjulistahátíð
í Hallgrímskirkju í
júní 1997 var lögð
áhersla á myndlist
og voru fengnir níu
listamenn til að gera
tillögur að nýjum
listaverkum í níu
kirkjur í Reykjavík-
urprófastsdæmi, en
þessar kirkjur áttu
það sameiginlegt að
innan við 10 ár voru
frávígslu þeirra.
Herdísi var falið
að gera tillögu að
veflistaverki á vegg í
Seltjarnarneskirkju.
Tillögurnar voru
felldar inn í ljósmynd
af því rými þar sem
þær áttu að vera og
var ljósmyndin sýnd
á Kirkjulistahátíð-
inni ásamt tillögum
listamannanna, mód-
eli af listaverkinu og
vinnuteikningum
arkitekta af
kirkjunni.
Verkið byggt á
formi kirkjunnar
Sóknarnefnd
Seltjarnameskirkju
og prestur fóra þess
síðar um haustið á
leit við Herdísi að
hún fullynni sína til-
lögu íyrir kirkjuna.
Veflistaverkið er
unnið úr ull, hör, sí-
sal (snæri) og kopar-
þræði. Stærð verksins er 350x200 cm. Verkið
er að miklu leyti byggt á formi kirkjunnar
sjálfrar, þakhallanum, litum innan kirkjunn-
ar og utan, bláum litum hafsins, himinsins og
fjallanna í fjarska. Formin mynda í dökkum
og rauðum hluta verksins nokkurs konar
homsteina og hleðslu, sem síðan lýsast upp
við krossana þrjá og breytast í bjartari bláa
liti og efst í ljósa og að lokum ljósa liti. Band-
ið/efnið í verkið hefur Herdís litað sjálf, þ.e.
annað en hvítt og svart.
Táknmál kristinnar trúar er ríkulegt.
Form, litir og tölur hafa táknræna merkingu.
Herdís er fædd árið 1945 og er búsett á
Seltjarnamesi. Hún lauk prófi frá Myndlista-
skólanum í Reykjavík og Myndlista- og
handíðaskóla íslands, textíldeild og vefnað-
arkennaradeikl. Árið 1998 hélt Herdís einka-
sýningu í Norræna húsinu og hún hefur einn-
ig tekið þátt í fjölda samsýninga hér heima
og erlendis. Verk hennar prýða m.a. íslands-
banka, Landspítalann og varnarmáladeild
utanríkisráðuneytisins. Herdís var valin bæj-
arlistamaður Seltjarnarness árið 1997.
Auður Gunnarsdóttir sópransöngkona
Semurvið óper-
una í Wurzburg
AUÐUR Gunnarsdóttir sópransöngkona
hefur skrifað undir samning við ópemna í
Wiirzburg í Þýskalandi. Hefur hún þegar
þreytt frumraun sína við húsið, sem Desp-
ina í Cosi fan tutte eftir Mozart, og var
hrósað af gagnrýnendum fyrir líflega sviðs-
framkomu og leiftrandi rödd.
Auður hefur verið búsett í Þýskalandi
undanfarin sjö ár. Hún lauk framhaldsnámi
frá Tónlistarháskólanum í Stuttgart vorið
1997 og hefur síðan starfað sem gesta-
söngvari og við kennslu. Hefur hún meðal
annars sungið við húsin í Heidelberg,
Mannheim og Bielefeld, þar sem hún fer nú
með hlutverk Juliu de Weert í óperettunni
Der Vetter aus Dingsda eftir Kunneke.
Fyrsta geislaplatan
komin út
Samningurinn í Wurzburg er til tveggja
ára og mun Auður meðal annars syngja
hlutverk Pamínu í Töfraflautu Mozarts,
Luisu í Unga Lordinum eftir Hense og
Annínu í Nótt í Feneyjum eftir Johann
Strauss.
Auður kveðst leggja mikla áherslu á að
syngja fyrir Islendinga og hefur komið
fram á mörgum ljóða- og óperutónleikum
hér á landi. Hún hefur starfað mikið með
Jónasi Ingimundarsyni píanóleikara og í
vikunni _kom út fyrsta geislaplata þeirra
saman. Á henni eru íslensk þjóð og sönglög
sem fæst hafa komið út áður en einnig er að
finna gamalkunnar söngperlur eins og I
dag skein sól og Eg lít í anda liðna tíð. Japis
gefur út.
Meðfram verkefnum á nýjum vinnustað
mun Auður koma fram á ýmsum tónleikum
í vetur, meðal annars í Liederhalle, elsta
tónleikahúsi Stuttgart. Þá stefnir hún að
því að syngja á Tíbrár-tónleikum í Salnum í
mars á næsta ári.
Ljósmynd/Matthias Stutte
Auður Gunnarsdóttir í hlutverki Juliu de
Weert í Der Vetter aus Dingsda í Bielefeld.
Með henni á myndinni er tenórsöngvarinn
Hans-Jurgen Schöpflin.
MENNING/
LISTIR
MYNDLIST
Ásmundarsafn: Verk Ásmundar Sveins-
sonar.
Gallerí Fold: Soffía Sæmundsdóttir. Til
28. nóv.
Galleri@hlemmur.is: Sara Björnsdóttir.
Til 19. des.
Gallerí Smíðar/Skart: Ragnheiður I.
Ágústsdóttir. Til 4. des.
Gallerí Stöðlakot: Linda Eyjólfsdóttir.
Til 5. des.
Gallerí Sævars Karls:
Vignir Jóhannesson. Til 19. des.. Gerðu-
berg: Eiríkur Smith. 9. jan.
Hafnarborg: Sigurður Magnússon.
Hrönn Axelsdóttir. Láms Karlsson: Til
13. des.
Hallgrímskirkja: Leifur Breiðfjörð. Til
16. des.
i8, Ingólfsstræti 8; Magnús Pálsson. Til
5. des.
Kjarvalsstaðir: Grafík í mynd. Ragna
Róbertsdóttir. Til 19. des.
Listasafn ASÍ: Ingimar Ólafsson Waage,
Karl Jóhann Jónsson. Harpa Bjöms-
dóttir. Til 5. des. Arinstofa: Verk úr eigu
safnsins.
Listasafn Akureyrar:
Stefán Jónsson.Yfirlitssýning á vegum
safnsins. Til 5. des.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið laug-
ardaga og sunnudag kl. 14-17. Högg-
myndagarðurinn opinn alla daga.
Listasafn íslands: Ásgrímur Jónsson .
Málverk og höggmyndir í eigu safnsins.
Til 21. des. Kaffist.Málverk Dunganons.
Til 31. des.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Verk
Sigurjóns Ólafssonar.
Listasalurinn Man: Sigurborg Stefáns-
dóttir. Til 1. des.
Mokkakaffi:Snorra Ásmundssonar. Til
3. des.
Norræna húsið: Lifi Kalevala. Til 31.
des.
Nýlistasafnið: Didda Hjartardóttir
Leaman, Þómnn Hjartardóttir, Olga
Bergmann og Anna Hallin. Til 12. des.
One o one Gallerí: Haraldur Jónsson.
Sparisjóður Garðabæjar: Átta mynd-
listakonur. Til 31. des.
Stofnun Áma Magnússonar: Handrita-
sýning opin þriðjudag-föstudaga kl. 14-
16. Til 15. maí.
TÓNLIST
Sunnudagur
Hallgrimskirkja: Barna- og unglingakór
Hallgrímskirkju. Kl. 17. Kvennakór
Reykjavíkur. Kl. 20.
Hafnarborg: Tríó Reykjavíkur. Kl. 20.
Þjóðleikhúsið: Þórarinn Eldjárn og Jó-
hann G. Jóhannsson. Kl. 21.
Mánudagur
Hafnarborg: Ágúst Ólafsson og Kiril
Kozlovski. Kl. 20.30
Þriðjudagur
Frikirkjan í Reykjavík: Blásarakvintett
Reykjavíkur. Kl. 20.30.
Þjóðleikhúsið: Þórarinn Eldjárn. Jó-
hann G. Jóhannsson. Kl. 20.30.
Miðvikudagur
Hafnarborg: Hanna Björk Guðjónsdótt-
ir. Claudio Rizzi ,K1.20.30.
Salurinn, Kópvogi: Emil Thoroddsen:
Þorgeir Andrésson, Sigurður Skagfjörð
Steingi-ímsson og Jónas Ingimundarson.
Kl. 20.30.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Sjálfstætt fólk: Bjartur,
ogÁsta Sóllilja, lau. 27. nóv. Krítarhring-
urinn, 1., fim. 2., 3. des. Glanni glæpur í
Lataþæ, sun. 28. nóv. Abel Snorko býr
einn, sun. 28. nóv. Fedra, sun. 28. nóv.
Borgarleikhúsið: Bláa herbergið, frums.
3. des. Litla hryllingsbúðin, 27., 25. nóv.
Fegurðardrottningin frá Línakri, fim. 2.
des. Pétur Pan, sun. 28. nóv. Leitin að
vísbendingu..., lau. 27. sun. 28. nóv.
Islenska óperan: Mannsröddin, 1. des.
Baneitrað samband, 27. nóv. Hellis-
búinn, 2., 3. des.
Loftkastalinn
Jón Gnarr, lau. 27. nóv. Mið. 3. des. SOS-
kabarett, lau. 27. nóv.
Iðnó: Frankie & Johnny, lau. 27. Fös. 3.
des. Leitum að ungri stúlku, lau. 27. nóv.
Gleym mér ey og Ljóni Kóngsson, lau.
27. okt. Leikhússport, mán. 29. nóv.
Kaffíleikhúsið: Ó, þessi þjóð, 3. des. Æv-
intýrið um ástina, 28. nóv.
Tjarnarbíó: í kjölfar stormsins, (flutt á
ensku), sun. 28. nóv.
Hafnarfjarðarleikhúsið: Salka ástar-
saga, lau. 27. nóv. Fös. 3. des.
Bæjarleikhúsið Mosfellsbæ: Kötturinn
sem fer sínar eigin leiðir, lau. 27., sun. 28.
nóv.
Hjáleigan Kópav. Leikf. Kópav.:Kirsu-
berjagarðurinn, 27. nóv.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 27. NÓVEMBER 1999