Lesbók Morgunblaðsins - 25.03.2000, Blaðsíða 8
+
SÍÐAN ERU LIÐIN TVÖ ÞÚSUND ÁR
Munkurinn bróðir Angelico, eða hinn sæli Angelico eins og hann var síðar nefndur, málaði nokkr-
ar myndir af boðun Maríu og í verkum hans tekur hún ævinlega auðmjúk á móti boðskapnum
með krosslagðar hendur á brjósti.
■ Pl M'i jHI
j||
-si
í kirkjunni í Ögri er þessi mynd af boðun Maríu á hliðarvæng altaristöflunnar - hefðbundin mynd.
Höfundur er ókunnur.
VAR ÞAÐ BLÆRINN...?
EFTIR
VILBORGU HARÐARDÓTTUR
SAGAN af boðun Maríu og mey-
fæðingunni er ein af þeim sem
orðið hafa kristnum mönnum
hvað hugstæðastar af sögnum
Nýja testamentisins. Og er um
leið meðal þeirra sem einna erf-
iðast hefur verið að trúa - af
kristnum ekki síður en trúlaus-
um. Ótal tilgátur hafa komið fram, - allt frá því,
að þau Jósef og María hafi bara ekki staðist
freistinguna fremur en ótal elskendur fyrr og
síðar, til hins, að rómverskur setuliði hafi flek-
að hana eða nauðgað.
Um sannleiksgildi má lengi deila, bæði þess-
arar sagnar og annarra í sömu bók, en skiptir
ekki meginmáli. Aðalatriði kenninga kristinn-
ar trúar hlýtur að vera kærleiksboðskapurinn
sem kristnar þjóðir og þar á meðal við Islend-
ingar hafa byggt siðalögmál sín á og mótað
hafa menningu okkar, trúaðra sem trúleys-
ingja, síðan við trúnni var tekið á Þingvöllum
forðum. En víst er að sögnin um Maríu, þessa
ungu stúlku sem óvænt var lagt á það erfiða
hlutskipti að eignast bam með sjálfum Guði,
hefur heillað margan listamanninn og getið af
sér ótal fögur listaverk, hvort sem litið er til
myndlistar, tónlistar eða skáldskapar.
„Hvernig má
þetta veroa?"
Hvernig í ósköpunum varð henni við þegar
Gabríel erkiengill kom og tilkynnti henni
þetta? Og hún trúlofuð ungum manni sem hún
ætlaði bráðlega að giftast! Hvað átti hún að
segja honum?
Lúkas guðspjallamaður segir þannig frá
Boðun Maríu:
„...var Gabríel engill sendur frá Guði til
borgar í Galíleu, sem heitir Nasaret, til meyjar
er var föstnuð manni sem Jósef hét, af ætt
Davíðs, en mærin hét María. Og engillinn kom
inn til hennar og sagði: „Heil vert þú sem nýtur
náðar Guðs! Drottinn er með þér.“
En hún varð hrædd við þessi orð og hug-
leiddi, hvílík þessi kveðja væri. Og engillinn
sagði við hana: „Óttast þú eigi, María, því að þú
hefur fundið náð hjá Guði. Þú munt þunguð
verða og son ala, og þú skalt láta hann heita
Jesú. Hann mun verða mikill og kallaður sonur
hins hæsta. Drottinn Guð mun gefa honum há-
sæti Davíðs föður hans og hann mun ríkja yfir
ætt Jakobs að eilífu og á ríki hans mun enginn
endir verða.“
Þá sagði María við engilinn: „Hvemig má
þetta verða, þar eð ég hef ekki karlmanns
kennt?“
Og engillinn sagði við hana: „Heilagur andi
mun koma yfir þig og kraftur hins hæsta mun
yfirskyggja þig. Fyrir því mun og bamið verða
kallað heilagt, sonur Guðs. Elísabet frænd-
kona þín er einnig orðin þunguð að syni í elli
sinni og þetta er sjötti mánuður hennar sem
kölluð var óbyrja, en Guði er enginn hlutur um
megn. “
Þá sagði María: „Sjá, ég er ambátt Drottins.
Verði mér eftir orðum þínum.“ Og engillinn fór
burt frá henni.“
Skáldin
Ekki segir Lúkas frá sjálfum getnaðinum en
bæði boðunin og getnaðurinn hefur orðið
mörgum skáldinu yrkisefni, ýmist á róman-
tískan hátt eða kersknislegan.
Svona lýsir Tómas Guðmundsson því sem
skeði:
BOÐUN MARÍU
Var leikið á sítar? Nei, vindurinn var það, sem rótt
í viðinum söng og næturró minni sleit.
Ég gat ekki sofið. Sál mín var dimm og heit.
Sál mín var dimm og heit eins og austurlenzk nótt.
Og ég reikaði þangað, sem döggin úr dökkvanum hló
og á drifhvítum runnum hið gljúpa mánaskin las.
Og ég lagðist nakin í garðsins svalandi gras.
Sem gimsteina á festi nóttin stundimar dró.
Svo nálgaðist sítarsöngurinn handan að,
og senn var hann biðjandi rödd, sem við eyra mér kvað.
Var það svefninn sem vafði mig draumi sínum?
Og var það blærinn sem brjóst mín og arma strauk,
og blærinn, sem mig í titrandi faðmi sér lauk,
með sæluna, er lokaði lémapa aupm mínum?
Baldur Óskarsson yrkir:
TIL ÞÍN, MARÍA
Lúðurhljómur um hánótt. -
Er það höfuðengillinn
Gabríel að básúna?
Bregða norðurljósin á leik?
María!
Nú logar miðhiminn.
Lúðurhljómurinn
bylgjast ofan í djúpið.
Á dökkum botni
lifnar logasfli.
Jóhannes úr Kötlum er á öðrum nótum með
sitt
astans en guðspjallamanninum Matteusi seg-
ist þannig frá:
„... María var föstnuð Jósef. En áður en þau
komu saman reyndist hún þunguð af heilögum
anda. Jósef, festarmaður hennar sem var mað-
ur grandvar vildi ekki gjöra henni opinbera
minnkun og hugðist skilja við hana í kvrrþey.
Hann hafði ráðið þetta með sér, en þá vitraðist
honum engill Drottins í draumi og sagði:
„Jósef, sonur Davíðs, óttastu ekki að taka til
þín Maríu, heitkonu þína. Barnið sem hún
gengur með er af heilögum anda. Hún mun son
ala og hann skaltu láta heita Jesú, því hann
mun frelsa lýð sinn frá syndum þeirra.“
Allt varð þetta til þess að rætast skyldu orð
Drottins fyrir munn spámannsins: „Sjá, mærin
mun þunguð verða og son ala. Nafn hans mun
vera Immanúel," það þýðir: Guð er með oss.
Þegar Jósef vaknaði gjörði hann eins og
engill Drottins hafði boðið honum og tók konu
sína til sín. Hann kenndi hennar ekki fyrr en
hún hafði alið son. Og hann gaf honum nafnið
Jesús.“
MARÍUVERS
Aftur fann hún það upp á víst:
undur mjúklega á brjóstin þrýst,
- öllu öðru hún gleymdi.
Unaður, meiri en orð fá lýst.
inn í skaut hennar streymdi.
Blóðheit, frjósöm og fagurbyggð,
fann hún komið við sína dyggð,
- engan segginn þó sá hún.
Heilögum anda yfirskyggð
aftur á bak þar lá hún.
Ástleitni guðsins ofurseld,
ævintýrið það sama kveld
syrgði hin sæla meyja:
Almáttugur! Ég held... ég held...
-hvaðskyldiJósefsegja?
Ætlaði að skilja
við hana
Já, hvað sagði Jósef? Hans orða er hvergi
getið. Lúkas segir ekkert um viðbrögð kær-
Ave Maria gratia plena
Avarp Gabríels „Heil vert þú sem nýtur náð-
ar Guðs“ hefur orðið tilefni mikillar og fagurr-
ar kirkjutónlistar og vart hægt að kasta tölu á
allar Ave Maríurnar sem sungnar eru Maríu til
vegsemdar. Við eigum okkar fögru Ave Maríu
eftir Sigvalda Kaldalóns fyrir utan aðra dýrð-
aróða til Maríu.
Og sannarlega eru þau óteljandi, öll mynd-
listarverkin sem sýna boðun Maríu. Þótt tilefn-
ið sé hið sama er mjög ólíkt hvernig listamenn-
imir túlka atburðinn og gaman að bera saman
viðbrögð Maríu á myndunum. Hún tekur boð-
skapnum auðmjúk, upphafin, glöð eða skelfd.
Snýr sér undan, bandar frá sér, fómar höndum
eða krossleggur þær á brjósti og lokar augun-
um. Ymist situr hún eða stendur og Gabríel er
stundum standandi, stundum á hnjánum eins
og biðill og oft fljúgandi. Hann er með lilju-
táknið í höndunum eða þeim er komið fyrir í
vasa og mjög oft er María með bók, m.a.s. inn-
bundna, þótt þess sé reyndar hvergi getið í
Biblíunni að hún hafi kunnað að lesa. Oft er
fuglinn með og skýtur þá geisla sínum beint í
höfuð Maríu. Þeir sem skoða listaverk á söfn-
um erlendis eða í kaþólskum kirkjum geta haft
mikla skemmtun af að skoða þetta mótív.
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 25. MARS 2000