Lesbók Morgunblaðsins - 25.03.2000, Blaðsíða 20
r
COLE Porter fæddist árið
1891 í bænum Peru í Indi-
ana í Bandaríkjunum. For-
eldrar hans voru Kate Cole
og Sam Porter svo nafn
drengsins var samsett úr
nöfnum þeirra beggja. Kate
Cole var dóttir milljóna-
mæringsins J.D. Cole sem að sögn var ekki al-
farið sáttur við mannsefni dóttur sinnar en
kostaði engu að síður brúðkaupið og heimilis-
hald þeirra upp frá því sem og skólagöngu
drengsins. Kate Cole hafði hlotið víðtæka
menntun, m.a. í píanóleik og dansi, og sótt dýr-
ustu einkaskóla sem völ var á. Hið sama átti við
drenginn Cole sem settur var til náms í fíðlu-
og píanóleik þegar hann var sex ára. Hug-
ur drengsins hneigðist þó fremur til slag-
hörpunnar og á unglingsárum lagði hann
fiðluna endanlega á hilluna. Óhætt er að
segja að hann hafi fæðst með silfurskeið í
munni og aldrei vanist öðru en það varð þó
ekki til að spilla hæfileikum hans. Fremur
hið gagnstæða.
Mútaði gagnrýnendum
Tónlistarhæfileikar hans voru frá upp-
hafi mjög greiniiegir og sparaði móðir
hans hvorki tíma, fé né fyrirhöfn til að
koma honum sem best á framfæri. Mun
hún hafa haldið uppi nemendahljómsveit-
um með því skilyrði að einkasonurinn fengi
næg tækifæri til einleiks svo og beitti hún
áhrifum sínum til að fá gagnrýnendur dag-
blaða til að mæta á tónleika og skrifa já-
kvæðar umsagnir. Hún mun jafnvel hafa
gengið svo langt að falsa skjöl skólans þeg-
ar Cole var 14 ára til að svo liti út sem hann
væri 12 ára undrabarn.
Hún sló þó heldur ekki slöku við í tón-
listaræfingum drengsins og æfði með hon-
um árum saman í tvær klukkustundir á
dag. Segir sagan að þau hafi löngum
skemmt sér við að snúa út úr vinsælum
dægurlögum þess tíma og semja við þau
nýja texta með ýmsum útúrsnúningum.
Hefur verið leitt að því líkum að þarna hafi
> fyrstu fræjum hins þekkta stíls söngleikja-
höfundarins Coles Porters verið sáð.
Kate Cole hvatti drenginn eindregið til
að leggja tónlist fyrir sig og árið 1905 inn-
ritaðist hann í Worcester-menntaskólann í
Massachusetts þar sem hann meðfram
náminu samdi sönglög og texta fyrir sýn-
ingar á vegum skólans. Einn kennara hans
þar, dr. Abercrombie, hafði mikil áhrif á
tónlistarsköpun Porters með því að leggja
áherslu á takt og orðanotkun í ljóðum og
söngtextum. Porter brautskráðist frá
Worcester 1909 og hóf háskólanám við
listadeild Yale-háskólans.
Striðshetja heima fyrir
A háskólaárum sínum var Porter lífið og
sálin í leiklistar- og skemmtanalífinu,
samdi ein 300 sönglög og samdi og svið-
setti sex söngleiki í fullri lengd. Pessi ár
höfðu mótandi áhrif á hann sem tónskáld
og einnig kom samkynhneigð hans í ljós
sem hann varð síðar þekktur fyrir.
Eftir útskrift frá listadeild Yale 1913
féllst Porter á fyrir orð afa síns að hefja
nám við lagadeild Yale en hætti því eftir
rúmt ár og sneri sér aftur að listanámi en
hætti því eftir stuttan tíma og fluttist New
York og hóf feril sinn sem tónlistarmaður.
Fyrsti söngleikurinn sem Porter tók þátt í sem
tónskáld nefndist See America First og náði
engum vinsældum. í júlí 1917 flutti Porter til
Parísar og laug því að bandarískum fjölmiðlum
að markmið hans væri að ganga í frönsku út-
lendingaherdeildina. Sannleikurinn var sá að
meðan á Parísarárunum stóð hellti Porter sér
út í skemmtanalífið og var þekktur fyrir taum-
' lausar veislur þar sem orð fór af kynsvalli og
eiturlyfjanotkun. Á meðan var hann hylltur
sem stríðshetja heima fyrir.
Árið 1919 giftist Porter bandarískri konu að
nafni Linda Thomas. Hún var orðlögð fyrir feg-
urð sína og auðæfi og hjónaband þeirra var frá
upphafi hugsað sem viðskiptasamningur þar
sem þau lögðust á eitt við að koma Porter á
framfæri sem tónskáldi og halda nafni þeirra á
lofti sem fremst í skemmtana- og listalífi New
York-borgar. Hjónabandið entist þeim ævi-
langt þrátt fyrir að bæði stunduðu ástalíf sitt
annars staðar en Linda lést árið 1954.
Frægur og vinsæll
Fyrsti söngleikurinn sem Porter samdi tón-
list við eftir heimkomuna frá París var Hitchy
Koo. Sýningin féll en eitt laga Porters Old
Fashioned Garden varð mjög vinsælt og seld-
ust nóturnar mjög vel. Næstu ár samdi Porter
sönglög við ýmsar revíur og söngleiki og þó
Tónskáldið og söngleikjahöfundurinn Cole Porter var
gengni alla tíð. Hann varð f/rir slysi 47 ára gamall
sem breytti lífi hans en það kom þó ekki veg fyrir að
hann semdi sinn vinsælasta söngleik, Kysstu mig
Kata, eftir það. HÁVAR SIGURJÓNSSON rifjrái
upp litríkan feril Coles Porters.
hestbaki með þeim afleiðingum að báðir fætur
hans mölbrotnuðu. Hann jafnaði sig aldrei af
þessu slysi, var hálflamaður eftir og hafði slysið
afgerandi áhrif á allt hans líf eftir þetta því
Porter hafði alla tíð lagt gríðarlega mikið upp
úr líkamlegu atgerfi sínu og útliti.
Engu að síður hélt hann áfram að semja
söngleiki sem nutu vinsælda og meðal þeirra
sem birtust á næstu árum voru Leave it to me,
Du Barry was a Lady, Panama Hattie, Let’s
Face it og Something for the Boys. Árið 1944
samdi Porter einn af sínum vinsælustu söng-
leikjum Mexican Hayrideen fjórum árum síðar
var sá allra vinsælasti af söngleikjum hans
frumsýndur, Kiss me Kate. Sýningin gekk
1.077 sinnum á Broadway og fór síðan í leikferð
um Bandaríkin og Evrópu. Sviðsetningar
um allan heim fylgdu í kjölfarið og einnig
var gerð eftir henni vinsæl kvikmynd með
Kathryn Grayson, Howard Keel, Ánn Mill-
er og Bob Fosse í stærstu hlutverkunum.
Porter hafði í upphafi ekki meira en svo trú
á söguþræðinum sem höfundarnir Sam og
Bella Spivak höfðu samið í kringum leikrit
Shakespeares Skassið tamið. Að eigin
sögn botnaði hann ekki í þræðinum fyrr en
eftir þriðja lestur en reynslan hefur þó
sýnt að áhorfendur eiga auðvelt með að til-
einka sér hina snjöllu sögu sem spunnin er
í kringum uppfærslu leikhópsins á hinu sí-
gilda leikriti. Gagnýnendur hrósuðu verk-
inu í hástert og töldu frumlegasta söngleik
sem komið hefði fram á Broadway í langan
tíma. Sjálfur taldi Porter að hann hefði
komist næst fullkomnun á ferli sínum með
Kysstu mig Kata. Með þessu reis frægðar-
sól Porters að nýju eftir að hann hafði nán-
ast verið afskrifaður um hríð. Mörg lag-
anna úr Kiss me Kate slógu í gegn á
dægurlagamarkaðinum þ.á m. Wunder-
bar, Brush Up Your Shakespeare og So I
Love. Eftir þennan hápunkt á ferlinum
varð hljóðara um Porter þótt hann semdi
söngleikina Can Can 1953 og Silk Stock-
ings 1955. Árið 1958 var heilsufar Porters
svo bágborið að fjarlægja varð hægri fót
hans við mjöðm eftir margendurteknar að-
gerðir og sjúkrahúslegur. Eftir það dró
hann sig alveg í hlé, snerti ekki hljóðfærið,
þjáðist af þunglyndi og lést árið 1964.
Áhrif og viðurkenningar
Cole Porter hlotnuðust fjölmargar við-
urkenningar á ferli sínum, þeirra merk-
astar eru vafalaust inntaka hans í Song-
writers Hall of Fame árið 1960 en einnig
var hann gerður að heiðursdoktor við ýms-
ar virtar menntastofnanir s.s. Yale-há-
skóla.
Áhrif Cole Porters á þróun dægurtón-
listar í Bandaríkjunum og víðar sem og
þróun söngleikjanna eru margvisleg.
Söngleikir hans hafa verið sýndir um allan
heim og tónlist hans er ennþá flutt af lista-
mönnum um víða veröld, sérstaklega
djasstónlistarmönnum sem telja Cole
Porter einn af sínum fremstu lagahöfund-
um. Lois Armstrong, Ella Fitzgerald og
Frank Sinatra hafa sungið lög hans inn á
hljómplötur og einnig hafa popptónlistar-
menn seinni ára tekið lög hans til hand-
argagns og platan Red, Hot and Blue þar
sem Sinead O’Connor, U2 og Fine Young
Cannibals fluttu eingöngu lög Coles Port-
ers naut mikilla vinsælda meðal yngri
kynslóðar hlustenda í lok 9. áratugarins.
Rímsnilli og útúrsnúningar
Tónlist Coles Porters er auðþekkt þar sem
stíll hans var persónulegur og frábrugðinn því
sem aðrir höfundar söngleikjatónlistar voru
þekktastir fyrir. Hann er sagður hafa samið
fleiri sönglög í moll en flestir aðrir og hefur
tónlistinni verið lýst sem „djasskenndri,
slavneskri og seiðandi".
Þá er Porter ekki síður einstakur fyrir
hversu létt hann átti með að semja fyndna og
smellna texta við lög sin, svo texti og tónlist
runnu saman í eitt, oft er húmorinn fléttaður
inn í hvorutveggja með þeim hætti að engum
blöðum er um að fletta hver höfundurinn er.
Þetta gerir reyndar söngtexta hans oft á tíðum
býsna snúna í þýðingum en þar reynir verulega
á hugvitssemi þýðandans.
I Kysstu mig Kata leikur Porter á als oddi í
ýmsum skondnum rímendingum og rímar hann
hiklaust saman „Troilus and Cressida" við
„British embessida", „The Merchant of Ven-
ice“ við „sweet pound of flesh you would men-
ace“, og „when you would flatter her“ við „tell
her what Tony told Cleopatter". Ýmiss konar
útúrsnúningar nafna, orða og orðasambanda af
þessu tagi voru ær og kýr Porters sem Ijá tón-
list hans og textum sinn sérstaka og einstaka
blæ hárfínnar gamansemi.
Velgengni söngleiksins Kysstu mig Kata hóf frægöarsól Porters hærra á loft en nokkru sinni fyrr.
ekkert þeirra næði veruleg-
um vinsældum var þeim engu
að síður ágætlega tekið. Árið
1924 samdi hann tónlist við
revíuna The Greenwich Vill-
age Follies. Sýningin sló í
gegn en tónlistin náði ekki
sömu vinsældum. Árið 1928
urðu tímamót á ferli Porters.
Þá samdi hann lagið Let’s do
it fyrir söngleikinn París.
Lagið sló eftirminnilega í
gegn og söngleikurinn líka.
Eftir þetta samdi Porter hvert
lagið af öðru sem sló í gegn.
Tvö lög í söngleiknum Fifty
Million Frenchmen (1929)
You Do Something for Me og Find Me a Prim-
itive Man. Árið eftir samdi hann tvo söngleiki
sem slógu í gegn Wake Up and Dream og The
New Yorkers. Þar birtust lögin What Is This
Thing Called Love? og Love For Sale. Söng-
leikurinn Gay Divorce sló í gegn 1932 og þar
varð lagið Night and Day geysilega vinsælt.
Árið 1934 samdi Porter einn af sínum allra vin-
sælustu söngleikjum Anything Goes og þar
birtust fimm af vinsælustu lögum hans. Ali
Through the Night, Anything Goes, Blow,
Gabriel, Blow, I Get a Kick Out of You og
Gulldrengurinn frá Indi-
ana. Cole Porter við upp-
haf 3. áratugarins.
Cole Porter á fjórða áratugnum.
You’re the Top. Næstu árin samdi Porter
hvern söngleikinn á fætur öðrum sem slógu í
gegn á Broadway þ.á m. Jubilee 1935 og Red,
Hot and Blue 1936. Árin 1936 og 1937 samdi
Porter tónlist við tvær kvikmyndir sem urðu
gríðarvinsælar, Born To Dance og Rosalie. í
báðum myndunum voru lög sem slógu í gegn í
dægurlagaheiminum.
Slasaðist illa á hestbaki
Árið 1937 stuttu eftir frumsýningu Rosalie
lenti Porter í slæmu slysi þegar hann féll af
MEÐ SILFURSKEIÐIMUNNI
20 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 25. MARS 2000