Lesbók Morgunblaðsins - 08.04.2000, Blaðsíða 2
TÓLFTU ALDAR SÖNGUR
í HALLGRÍMSKIRKJU
CODEX CALIXTINUS er yfirskrift tónleika
sem haldnir verða í Hallgrímskirkju 29.
apríl næstkomandi kl.16. Einsöngvarar
verða Damien Poisblaud, Frederic Tavern-
ier, Christian Barriere, Robert Pozarski,
Frederic Richard og Marcin Bornus-
Szczycinski.
Þá syngur Karlakórinn Fóstbræður sem
munkakór undir stjórn Árna Harðarsonar.
Listrænn stjórnandi er Damien Poisblaud.
Codex Calixtinus, einnig þekkt sem bókin
um dýrlinginn heilagan Jakob, er tengd
borginni Santiago de Compostela og dýrkun
á heilögum Jakobi. Handritið, sem er frá
Dómkirkjunni í Santiago og varðveitt þar,
var skrifað á miðri 12. öld. Verkið lýsir goð-
sögninni um líf og píslarvætti heilags Jak-
obs, kraftaverkum hans og ímyndaðri pfla-
grímsferð Karlamagnúsar og Rolands til
Santiago.
Codex Calixtinus þykir hafa einstakt
sögulegt og tónlistarlegt gildi, m.a. vegna
hins heildstæða og viðamikla safns helgi-
söngva sem fluttir eru við nafntoguð hátíða-
höld í Compostela.
Flutningurinn á Codex Calixtinus í Hall-
grímskirkju verður að mestu tónleika-
uppfærsla, þó með ívafi af hinni upp-
runalegu helgiathöfn.
Tónleikaröðin er eitt af samvinnuverk-
efnum menningarborganna árið 2000 og er
unnin að frumkvæði Kraká í Póllandi.
Verkefnið er einnig unnið í samvinnu við
Kristnihátið.
Miðasala hefst í Upplýsingamiðstöð
ferðamála mánudaginn 10. aprfl kl. 13.00 en
þá hefst einnig miðasala á tvo aðra stórvið-
burði menningarborgarársins, Baldur eftir
Jón Leifs og tónleika Radda Evrópu og
Bjarkar.
Síðustu
nótur Bach
London. Morgunblaðið.
SÍÐASTA tónverk Johanns Sebastians Bach
hefur fundizt í skjalasafni í Kiev. Þetta verk,
sem er viðbót við sálm eftir
frænda hans Johann
Christoph Bach, samdi J. S.
Bach fyrir útför sína.
í frétt í The Times segir,
að Christop Wolf, höfundur
ævisögu Bach, sem kemur
út hjá Oxford University
Press síðar í mánuðinum,
haldi því fram að ekkert
yngra handrit sé til með rit-
hönd Bach. Mönnum hafi
láðst að skoða handritið vandlega og því ekki
gert sér grein íyrir því, að þarna hefði Bach lagt
hönd að verki. Það gerði hann fáum mánuðum
fyrir dauða sinn 1750, en ekki var getið um hans
hlut, þegar verkið var gefið út 1840.
J. S. Bach
Tónleikar
Frímúrara-
kórsins
FRÍMÚRARAKÓRINN heldur árlega
tónleika sunnudaginn 9. apríl kl. 17 í reglu-
heimili Frímúrara við Skúlagötu. Efnis-
skráin hefur að geyma bæði innlend og er-
lend lög. Einsöng með kómum syngja
Einar Gunnarsson, Eiríkur Hreinn
Helgason og Friðbjöm G. Jónsson. Stjóm
kórsins og undirleik annast Gylfi Gunn-
arsson, Helgi Bragason og Úlrik Ólason.
Frímúrarakórinn, sem skipaður er um
50 söngmönnum, var stofnaður árið 1993.
Kórinn hélt sína fyrstu opinberu tónleika
vorið 1997 í Kaupmannahöfn og síðan hafa
verið haldnir tónleikar árlega bæði í
Reykjavík og úti á landi. Viku eftir tónleik-
ana halda söngmenn úr kómum ásamt
eiginkonum í ferð til Egyptalands og ísr-
ael.
MINNINGARSÝNING
BIRGIS ENGILBERTS
MINNINGARSÝNING Birgis Engilberts
verður opnuð í Galleríi Reykjavík í dag kl. 16.
Birgir, sem lést fyrir ári, var kunnur sem leik-
ritaskáld og leikmyndamálari en málverk hans
þekktu afar fáir. Birgir lét fáeinar myndir frá
sér til ættingja og vina en að öðm leyti flíkaði
hann þessum verkum alls ekki.
A sýningunni verður úrval verka hans sýnt.
Hluti þeirra er búninga- og leiksviðsteikning-
ar. Einnig er þar að finna fjölmargar myndir
sem gerðar eru með klippi-, sprautu- og lita-
tækni og mynda eina samfellda heild. Þeir sem
þekkja leikrit Birgis munu eflaust kannast við
ýmsar hugmyndir þessara verka en í veröld
þeirra koma þær fram í alveg nýju Ijósi.
I grein sem Sveinn Einarsson ritar í sýning-
arskrá segir: „En hvað eiga þá rithöfundurinn
og myndlistannaðurinn Birgir Engilberts
sameiginlegt? I leikritunum er mjög áberandi
tilfinning fyrir hinu myndræna ekki síður en
hinu leikræna, enda dylst ekki, að höfundurinn
er heimamaður í leikhúsinu og þekkir vel tján-
ingarmeðöl þess. Myndirnar hér á sýningunni
eru þó af ýmsum toga. Þær elstu eru svolítið í
ætt við verk frændans, en brátt kveður við
persónulegri tónn, oft með súrrealískum blæ
og stundum ógnvekjandi. Sumar myndimar
sækja efni sitt í leikhúsið eins og t.d. myndin úr
skipinu og myndirnar úr Gosa, aðrar eru á
sömu slóðum og grunnhugmyndin í Hvers-
dags-draumi. Og 1991 er hann orðinn upptek-
Ein af myndum Blrgis Engilberts sem verður
á sýnlngunnl. Spraututækni, 1982.
inn af veröld dansarans."
Sýningin stendur í tvær vikur. Hún er opin
alla virka daga frá 10-18, laugardaga frá 11-16
og sunnudaga frá 14-17.
Vortónleikatíð í Ými
KVENNAKÓR Reykjavíkur og eldri félagar
Karlakórs Reykjavíkur hefja tónleikavertíð-
ina í Ými á þessu vori. Alls munu á annan tug
kóra halda tónleika í Ými í apríl og maí. Auk
Karlakórs Reykjavíkur og allra kóra innan
Kvennakórs Reykjavíkur munu sex innlendir
og tveir erlendir kórar halda tónleika í hús-
inu.
Kvennakórinn ríður á vaðið með tónleikum
í Ými í dag, laugardag, kl. 17.00. Yfirskrift
tónleikanna er „Vorkvöld í Reykjavík". Kór-
inn flytur blöndu af norrænum vor- og sumar-
lögum. Stjórnandi er Sigrún Þorgeirsdóttir,
undirleikari Þórhildur Björnsdóttir og gestur
á tónleikunum er Szymon Kuran fiðluleikari.
Tónleikamir verða endurteknir í Langholts-
kirkju þriðjudaginn 11. apríl. kl. 20.30.
Tónleikar eldri félaga Karlakórs Reykja-
víkur verða sunnudaginn 9. apríl kl. 20.30.
Stjórnandi er Kjartan Sigurjónsson, ein-
söngvari Jónas Guðmundsson. Meðal þeirra
laga sem kórinn syngur er Kvöldið er fagurt,
Sjá dagar koma og Tarantella auk syrpu af
lögum Arna Thorsteinssonar.
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Akureyrarkirkja: Tíminn og trúin.
Árbæjarsafn: Saga Reykjavíkur.
Ásmundarsafn: Steinunn Þórarinsdótt-
ir. Til 14. maí. Verk í eigu safnsins.
Bflar og list: Lilja Kristjánsd. Til 29.
apr.
Galleri@hlemmur.is: Bjargey Olafs-
dóttir. Til 23. apr.
Gallerí Fold: Sigríður Anna E. Nikulás-
dóttir. Til 16. apr.
Gallerí List: Æja. Til 14. apr.
Gallerí Reykjavfk: Birgir Engilberts.
Til 16. apr.
Gallerí Sævars Karls: Blaðaskopteikn-
arar. Til 13. apr.
Gerðarsafn: Islenskar kirkjur í Vestur-
heimi. Til 25. apr.
Gerðuberg: Sjónþing Önnu Líndal. Til
19. apr. Til 21. apr.
Hallgrímskirkja: Sigurður Örlygsson.
Til 1. júní.
i_8: Catherine Yass. Til 7. maí.
íslensk grafík: Arnannguaq Hpegh. Til
9. apr.
Kjarvalsstaðir: Austursalur: Jóhannes
S. Kjarval. Myndir úr Kjarvalssafni.
Veg(g)urinn: Gunnar Örn. Til 27. apr.
Listasafn Akureyrar: Bamæska í ís-
lenskri myndlist. Til 7. maí.
Listasafn ASÍ: Kjartan piason, Ás-
mundarsalur og Þórarinn Óskar Þórar-
insson, Gryfju. Til 24. apr.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið lau.
og sunnud. kl. 14-17. Höggmyndagarð-
urinn opinn alla daga.
Listasafn Islands: Jón G. Árnason. Til 9.
apr. Þrír málarar á Þingvöllum. Til 14.
apr. Listamenn 4. árat.Til 14. maí.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Valin
verk eftir Sigurjón Ólafsson.
Listasetrið Kirkjuhvoli, Akranesi:
Sossa og Gyða L. Jónsd. Til 16. apr.
Listhúsið Laugardal: Les Femmes
Fatales, ERRÓ. Til 17. apr.
Mokka: Láms H. List. Til 8. apr.
Norræna húsið: Terror 2000. Til 14.
maí.
Nýlistas.: Hvítari en hvítt. Til 16. apr.
Ófeigur: Harri Syrjánen. Til 19. apr.
Safnahús Reykjavíkur: Ungt fólk í
Reykjavík á 20. öld. Til 15. maí.
Slunkaríki: Birgir Andr. Til 30. apr.
Stofnun Áma Magnússonar: Handrita-
sýning þri-fös kl. 14-16. Til 15. maí.
Stöðlakot: Daði Guðbjömsson. Til 9.
apr.
Þjóðarbókhlaða: Stefnumót við íslenska
sagnahefð. Til 30. apr.
Upplýsingamiðstöð myndlistar:
www.umm.is undir Fréttir.
TÓNLIST
Laugardagur
Kirkjuhvoll: Hermann Baumann, Gerr-
it Schuil og Sigrún Eðvaldsdóttir. KL17.
Salurinn, Kópavogi: Gradualekór
Langholtskirkju. Kl. 16.
Ýmir: Kvennakór Rvíkur. Kl. 17.
Sunnudagur
Salurinn: Caput. Kl. 20:30.
Fríkirkjan: Borgarkórinn. Kl. 20:30.
Hafnarborg: Tríó Reykjavíkur ásamt
Finni Bjamasyni. Kl. 20.
Neskirkja: SÁ. Kl. 17.
Regluheimili frímúrara við Skúlagötu:
Frímúrarakórinn. Kl. 17.
Ýmir, Skógarhlíð: Eldri félagar Karla-
kórs Reykjavíkur. Kl. 20:30.
Menntaskólinn við Hamrahlíð: Kór MH
og Hamrahlíðarkórinn. Kl. 14 og 16.
Mánudagur
Hafnarborg: Borgarkórinn. Einsöngv-
arar era Sigurður Skagfjörð og Helga
Magnúsdóttir. Kl. 20:30.
Þriðjudagur
Langholtskirkja: Kvennakór Reykja-
víkur og Szymon Kuran. Kl. 20:30.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Hægan, Elektra, lau. 8.
apr. Komdu nær, lau. 8. apr. Glanni
glæpur, sun. 9. apr. Abel Snorko, sun. 9.
apr. Vér morðingjar, lau. 8. apr.
Borgarleikhúsið: Kysstu mig Kata, lau.
8., fim. 13., fös. 14. apr. Afaspil, sun. 9.
apr. Fegurðard. frá Línakri, sun. 9. apr.
íslenski dansfl. Goðsagnir, sun. 9. apr.
Iðnó: Stjörnur á morgunhimni, lau. 8.,
mið. 12. apr. Leikir, fim. 13., fös. 14. apr.
Leitum að ungri stúlku, sun. 9. apr.
Loftkastalinn: Panodil, fös. 14. apr. Jón
Gnarr, lau. 8. apr.
Islenska óperan: Haukurinn, jau. 8. apr.
Möguleikhúsið: Hugleikur: Ég sé ekki
Muninn, sun. 9. apr. Draumasmiðjan:
Ég sé............., sun. 9., þrið. 11. apr.
Hafnarfjarðarleikhúsið: Salka, lau. 8.
apr. Júlíus, sun. 9., mán. 10. apr.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 8. APRÍL 2000