Lesbók Morgunblaðsins - 01.07.2000, Qupperneq 2
ÉG ÆTLA AÐ SJÁ HVERT
SÖNGURINN BERMIG
Brezkir gggnrýnendur hafg keppzt við að hrósa
Huldu Björk Garðarsdóttur íyrir glæsilegan og fágað-
an söng og leik í hlutverki Súsönnu í Brúðkaupi Fígar-
ós, sem hún syngur nú hjá Garsington-sumaróper-
unni. Hvílíkur happafengur! segir gagnrýnandi The
Independent. FREYSTEINN JÓHANNSSON átti far-
símamót við Huldu Björk á listrænu kaffihúsi í Oxford.
HVER er hún þessi „yndis-
lega sópransöngkona" -
þessi íslenzka rós í hnappa-
gati enskrar sumaróperu?
„Ég er að norðan, fædd á
Akureyri, en fluttist með
foreldrum mínum að Syðra-
Laugalandi. Ég lærði íyrir
norðan í nokkur ár, en kom svo suður og klár-
aði Söngskólann 1996. Eftir það var ég við
söngnám í Berlín einn vetur, en fór þaðan til
London, þar sem ég lauk námi við Royal Aca-
demy of Music 1998.
Ég fór heim eftir námið, en var þá nýbúin að
kynnast umboðsmanni, sem vildi aðstoða mig
við að fá tækifæri erlendis. Ég var varasöngv-
ari hjá Garsington-óperunni í fyrrasumar og í
haust bauðst mér að koma núna og syngja Sú-
sönnu.“
í millitíðinni hefur hún haldið tónleika heima
á íslandi og í apríl sl. söng hún í tveimur sýn-
ingum á Cosi van Tutti á tónlistarhátíð í útjaðri
London.
í Garsington syngur hún í kapp við þrestina.
Þessi sumarópera er skammt frá Oxford og
sviðið er úti í Guðs grænni náttúrunni. Þar er
stutt í fuglasönginn, en uppsetning óperunnar
Ljósmynd/Keith Saunders
Hulda Björk Garðarsdóttir í hlutverki
sínu í Brúðkaupi Fígarós.
er einföld og hnitmiðuð með fallegum búning-
um. Og þama eru góðir og reyndir söngvarar
og nýliðar eins og ég. Sýningar á brúðkaupinu
verða sjö talsins og standa fram í byrjun júlí.“
Hvað tekur svo við?
„Ég ætla heim. Ég ætla að gera út frá ís-
landi, þótt það krefjist meiri fyrirhafnar, en ef
ég væri búsett ytra. í haust verð ég með
skandinavíska tónleika með sænskri söngkonu
og norskum píanóleikara og við ætlum að
syngja í löndunum okkar þremur. I haust syng
ég á Spáni hlutverk Servilia í La Clemenza Di
Tito eftir Mozart og í marz syng ég Michaelu í
Carmenuppfærslu Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands í Laugardalshöll. Þai’ verður Rico
Saccani við stjómvölinn og það er búið að ráða
í aðalhlutverkin; Carmen syngur Sylvie Bmn-
et, Mario Malagnini verður Don Jose og Gino
Quilto syngur hlutverk Escamillo."
Hvernig líður henni að lesa dóma brezku
gagnrýnendanna?
„Það var skrítin tilfinning að lesa svona um
sjálfa sig. En nú er ég ánægð og mér líður vel.
Það er náttúrlega ofsalega hvetjandi og góð
hjálp að fá svona umsagnir."
Hvernig kom söngurinn til hennar?
„Tónlistin hefur alltaf verið sjálfsagður hlut-
ur af mínu lífi. Ég spilaði á selló í tíu ár. Svo
heyrði mamma mig vera eitthvað að fíflast við
að herma eftir ópemsöngkonum og hún gaf
mér söngtíma hjá Þuríði Baldursdóttur á Ak-
ureyri. Eg varð auðvitað að prafa og eftir það
varð ekki aftur snúið.“
Og nú er söngurinn orðinn þitt líf.
„Veiztu, ég hef verið voðalega feimin við að
kveða upp úr um það að ég ætli að verða söng-
kona. Ég segi ekki að ég hafi ætlað að snúa við
en ég hef einhvern veginn ekki þorað að gera
mér miklar vonir. Ég hef meira látið hverjum
degi nægja sína þjáningu. En það kom náttúr-
lega að því að ég varð að spyrja sjálfa mig
hvort ég vildi leggja sönginn fyrir mig, eða
ekki. Og nú get ég sagt að ég er ákveðin í að sjá
hvert söngurinn ber mig og ég vona að það
verði bæði langt og farsælt ferðalag."
Reuters
Metvero
fyrir Degas
BRONSSKÚLPTÚRINN á myndinni, „Petite
Danseuse de quatorze ans“, sem má útleggja
sem „14 ára dansari", eftir franska 19. aldar-
listamanninn Edgar Degas seldist fyrir met-
verð á uppboði hjá Sotheby’s nú í vikunni.
Kaupverð verksins, sem er hæsta verð sem
greitt hefur verið fyrir skúlptúr í Evrópu, var
7,7 milljónir punda eða hátt í 900 milljónir
króna. Dansarinn er meðal þekktari verka
Degas og sýnir unga stúlku í balletkjól með
borða í hárinu. Ekki er vitað hver kaupandinn
var en verkið kom almenningi fyrst fyrir sjónir
á sjöttu listsýningu impressjónistanna sem
haldin var árið 1881.
Alan James í Straumi
Samruni sam-
ofinna forma
ENSKI listmálarinn Aian James opnar sýn-
ingu á málverkum sínum í dag kl. 14 í sýning-
arsal Listamiðstöðvarinnar í Straumi
v/Reykjanesbraut.
Alan James hefur undanfarna mánuði unnið
að verkum sínum í gestavinnustofu Straums.
Listamaðurinn hefur reyndar unnið mest-
megnis á Islandi s.l. sjö ár. Segja má að verk
James séu eins konar samrani samofinna
forma sem líkja má við torrætt myndmál er
nær að mynda eina heild á þéttofnu yfirborð-
inu. Verkin eru byggð í lögum upp á við og ala
á hinu óræða en rafmagnaða rými milli veggjar
og striga.
Sýningin mun verða opin daglega frá kl.16-
21 virka daga og 14-19 um helgar.
Verk eftir Alan James.
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Árbæjarsafn: Saga Reykjavíkur - frá
býli til borgar, í húsinu Lækjargötu 4.
Sýningin er unnin í samvinnu við
Reykjavík Menningarborg Evrópu árið
2000.
Ámastofnun, Ámagarði: Hátíðarsýn-
ing handrita við árþúsundamót. Heim-
ildir um siglingar íslendinga og Græn-
lendinga til Vínlands og kristnitöku á
Alþingi við Öxará fyrir þúsund árum.
Til 1. okt.
Ásmundarsafn: Verk í eigu safnsins. Til
1. nóv.
Byggðasafn Árnesinga, Húsinu Eyrar-
bakka: Kirkjugripir og kirkjustaðir í
Árnesþingi. Til 9. júlí.
Byggðasafn Hafnarfjarðar: Þeir settu
svip á söguna. Sýningin samanstendur
af vaxmyndum úr eigu Þjóðminjasafns
íslands auk fjölda muna og ljósmynda
úr eigu Byggðasafns Hafnarfjarðar. Til
30. sep.
Galleri@hlenunur.is: Ragnar Gests-
son. Til 16. júlí.
Gallerí Reykjavík: Stuttsýning Höllu
Har.. Til 2. júlí.
Gallerí Sævars Karls: Ema G. Sigurð-
ardóttir. Til 20. júlí.
Garður, Ártún 3, Selfossi: Kaj Nyborg,
Drive-In. GUK - exhibition placeer sýn-
ingarstaður fyrir myndlist sem opnaði í
maí á síðasta ári. Úm er að ræða sýn-
ingarstað í þremur löndum; í húsgarði á
Selfossi, í garðhúsi í Lejre í Danmörku
og í eldhúsi í Hannover í Þýskalandi.
Gerðarsafn: Árátta. Safn Péturs Ara-
sonar og Rögnu Róbertsdóttur er Til 8.
ágúst
Hallgrímskirkja: Ný verk Karólínu
Lárasdóttur. Til 1. september
Kjarvalsstaðir: Austursalur: Jóhannes
S. Kjarval. Myndir úr Kjarvalssafni.
Listasafn Akureyrar: Dyggðirnar sjö.
Til 27. ágúst
Listasafn ASÍ: Magdalena Margrét
Kjartansdóttir og M.E.Prigge. Til 27.
ágúst
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Valin
verk eftir Sigurjón Ólafsson.
Listasalurinn Man, Skólavörðustíg:
Guðbjörg Lind Jónsdóttir og Valgai-ð
GunnarssonTil 3. júlí.
Mokkakaffi: Kristín Pálmadóttir. Sýn-
inguna nefnir listamaðurinn Til 10. júlí.
Norska húsið, Stykkishólmi: Erna
Guðmarsdóttir.. Til 2. júlí.
Perlan: Magnús Th. Magnússon. Til 31.
júlí.
Safnasafnið, Svalbarðsströnd: Ragnar
Bjamason, Haraldur Sigurðsson, Vald-
imar Bjarnfreðsson, Svava Skúladóttir,
Egill Ólafur Guðmundsson og Guðjón
R. Sigurðss. Til 29. ág.
Sjóminjasafn fslands, Vesturgötu 8,
Hafnarf.: Málverkasýning Jóns Gunn-
arssonar. Til 1. september
Slunkarfki, ísafirði: Harpa Árnadóttir.
Til 2. júlí.
Snegla listhús, Klapparstíg: Arnfríður
Lára Guðnadóttir. Til 4. júlí.
Stöðlakot: Soffía Sæmundsdóttir. Til
17. ágúst
Þjóðarbókhlaða: Ástu Sigurðardóttur
minnst með sýningu á verkum hennar.
Til 31. ágúst
Upplýsingamiðstöð myndlistar: Lista
yfir fyrirhugaðar og yfirstandandi
myndlistarsýningar í öllum helstu sýn-
ingarsölum má finna á slóðinni
www.umm.is undir Fréttir.
TONLIST
Laugardagur
Hallgrímskirkja: Karstein Askeland.
Hádegistónleikar í tenglsum við orgel-
tónleikaröðina Sumarkvöld við orgelið
2000. Karstein Askeland, organisti frá
Bergen í Noregi leikur á Klais-orgel
Hallgrímskirkju. Kl. 12.
Þriðjudagur
Listasafn Siguijóns Ólafssonar:
Christopher Czaja Sager píanóleikari.
Flutt eru verk úr Die Klavierabung:
Partíta I í B dúr, BWV 825, Partíta II í
c-moll. BWV 826 og Partíta III í a-moll,
BWV827. Kl. 20:30.
Miðvikudagur
Norræna húsið: Franski píanóleikarinn
Fern Nevjinsky. Kl. 12:15.
LEIKLIST
Iðnó: Björninn, fim. 6. júlí.
Ilafnarfjarðarleikhúsið: The Hammer
of Thor, sun. 2. júlí, fös. 7. júlí, fim. 6. jú-
lí.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 1. JÚLÍ 2000