Lesbók Morgunblaðsins - 08.07.2000, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 08.07.2000, Blaðsíða 2
Morgunblaðið/Jim Smart Kristín Geirsdóttir vió eitt af verkum sínum. Ása notar gotneskt letur í myndvefnað sinn. HINN SAMEIGIN- LEGI ÞRÁÐUR Þrjú af verkum Kristínar. Ása Ólafsdóttir undirbýr sýningu sína. I Listasafni ASÍ opna tvær myndlistarkonur sýningar í dag. Það eru þær Asa Olafsdóttir, sem sýnir myndvefnað, og Kristín Geirsdóttir, sem sýnir ol- íumólverk. Blaðamaður Morgunblaðsins fór ó stúfana og hitti listamenn- ina við undirbúning sýn- inganna. ✓ SA og Kristín eru báðar með vinnu- stofu að Korpúlfsstöðum og hafa ver- ið þar síðastliðin þrjú ár. Ákváðu þær að sýna saman? „Nei, það var tilvilj- un, en skemmtileg tilviljun,“ svarar Ása. „Við sóttum um hvor í sínu lagi, en urðum mjög glað- ar þegar við komumst að því að við myndum sýna á sama tíma,“ segir Kristín. Myndverk þeirra eru unnin á ólikan hátt, Ása vefur en Kri- stín málar. Samt segja þær að sameiginlegur þráður sé í verkum þeirra. Hver er þessi þráð- ur? „Hinn sameiginlegi þráður okkar er eigin- lega þráðurinn sjálfur. Málverk Kristínar minna að vissu leyti á vefnað,“ svarar Ása. „Svo má líka segja að við eigum nokkuð sameiginlegt hvað varðar liti og form, en við notum til dæmis báðar þríhyming mjög mikið í verkunum á þessari sýningu." Kristín segir að þær hafi frá fyrstu tíð fundið eitthvað sameiginlegt hjá hvor annarri, en án þess að geta skilgreint nákvæm- lega hvað. „Þó að við vinnum með ólík efni, eig- um við til dæmis mjög auðvelt með að gagnrýna og skoða hjá hvor annarri." Ása Myndvefnaður Ásu er í tveimur herbergjum á neðri hæð hússins við Freyjugötu. Þar sýnir hún myndaröð sem nefnist Lyklar ásamt tveimur stærri myndum, þar sem unnið er með gotnesktletur fomhandritanna. „Lyklamir era eiginlega tilraun mín til að skapa lykla að þeim skrám sem ég vil opna,“ útskýrir Ása. „Ég velti mikið fyrir mér fomum hlutum og fyrri lífum og hvort ég komist í þær upplýsingar. Stundum finnst mér eins og þær séu á lager og komi fram, svona upplýsingar sem maður áttar sig ekki á hvaðan koma.“ En eru þetta abstrakt pælingar um lykla eða eru þetta myndir af lyklum í raun og vera? „Þetta era abstrakt pælingar, þetta era eig- inlega tilfinningar sem ég upplifi að séu lyklar. Myndimar bera allar tilfinningaleg nöfn, auk lyklanafnsins. Til dæmis heitir ein myndin Veiðin, hefur eitthvað með sjómennsku að gera. Mér finnst endilega að ég hafi einhvem tíma verið á sjó og sá lykill fjallar um þá tilfinningu.“ Hvemig tengjast lyklamyndirnar stóra myndunum með gotneska letrinu? „Þær tengjast auðvitað í efnisnotkun. Svo er ég alltaf að leita í eitthvað sem er gamalt, eitt- hvað sem er að baki og má nýta og gera nýtt úr.“ Kristín Stórir strigar Kristínar prýða Ásmundarsal á efri hæð safnsins. Sýning Kristínar nefnist Rastir. „Nafnið er vísun í þessar rákir og þræði, þetta streymi í myndunum og hvemig ég vinn þær,“ segir Kristín. „Ég vinn með skammvinn fyrirbæri í náttúranni og nafn sýningarinnar skírskotar líka til þess. Innri og ytri náttúra er það sem myndimar fjalla um.“ Kristín segist leita til náttúrannar í leit að viðfangsefnum, en hún máli ekki hlutbundnar myndir. „Þær eru á mörkunum. Oft er um að ræða augnabliks upp- plifanir." Myndir Kristínar era unnar þannig að rákir af oh'ulit, sem gefa myndunum ákveðna áferð eða efniskennd, renna í þríhyrninga í mörgum, þunnum lögum. „Ég vinn með form og lit. Undanfarið hef ég verið upptekin af þrí- hyraingnum sem formi, og svo tíglum og kross- um sem verða til í myndunum. Ég er alls ekki búin með þetta viðfangsefni,“ segir Kristín brosandi. Sýningamar standa til 30. júlí. MENNING/ LISTIR NÆSTU VIKU MYNDLIST Árbæjarsafn: Saga Reykjavíkur. Árnastofnun, Árnagarði: Handrit við árþúsundamót. Sumartími: Opið alla daga kl. 13-17. Til 31. ág. Ásmundarsafn: Verk í eigu safnsins. Sýning á verkum Ásmundar Sveins- sonar. Til 1. nóv. Byggðasafn Árnesinga: Kirkna- myndir Jóns Helgasonar biskups. Til 9. júlí. Byggðasafn Hafnarfjarðar: Vax- myndasýning. Til 30. sept. Galleri@hleinmur.is: Ragnar Gests- son. Til 16. júlí. Gallerí Reykjavík: Pétur Behrens. Til 18. júlí. Gallerí Sævars Karls: Erna G. Sig- urðardóttir. Til 20. júlí. Gerðarsafn: Safn Péturs Arasonar og Rögnu Róbertsdóttur. Til 8. ág. Hafnarborg: Keizo Ushio. Til 28. júlí. Island með augum Fransmanna. Til 7. ág. Hallgrímskirkja: Karólína Lárusdótt- ir. Til 1. sep. i8, Ingólfsstræti 8: Ljósmyndaverk Elinu Brotheras. Til 7. ág. Kjarvalsstaðir: Austursalur: Jóhann- es S. Kjarval. Myndir úr Kjarvals- safni. Garðhhúsabærinn. Til 23. júlí. Listasafn Akureyrar: Dyggðirnar sjö. Til 27. ág. Listasafn ASÍ: Kristín Geirsdóttir og Ása Ólafsdóttir. Til 30. ág. Listasafn Einars Jónssonar: Opið alla daga, nema mánudga, kl. 14-17. Höggmyndagarðurinn opinn alla daga. Listasafn íslands: Sumarsýning úr eigu safnsins. Til 27. ág. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús- inu: Gestur Þorgrímsson og Rax Rinnekangas. Til 27. ág. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Val- in verk eftir Sigurjón Ólafsson. Listasalurinn Man, Skólavörðustíg: Guðbjörg Lind Jónsdóttir og Valgarð Gunnarsson. Til 16. júlí. Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg: Ragna. Til 20. júlí. Ljósaklif, Hafnarf.: Keizo Ushio. Til 23. júlí. Mokkakaffi: Kristín Pálmadóttir. Til 10. júlí. Norska húsið, Stykkishólmi: Hlíf Ás- grímsdóttir. Til 1. ág. Norræna húsið: Flakk. Til 13. ág. Safnahús Reykjavíkur: Ljósmynda- sýning Marisu Navarrou Arason og Roberto Legnani. Til 31. júlí. Safnasafnið, Svalbarðsströnd: Sex listamenn. Til 29. ág. Sjóminjasafn fslands, Vesturgötu 8, Hafnarf.: Jón Gunnarsson. Til 1. sep. Slunkaríki, ísafirði: Hallgrímur Helgason. Til 23. júlí. Straumur, Hafnarfirði: Alan James. Til 15. júlí. Stöðlakot: Grímur Marinó Gunnars- son. Til 23. júlí. Bubbi. Til 17. ág. Þjóðarbókhlaða: Verk Ástu Sigurðar- dóttur. Til 31. ág. Þjóðminjasafn Islands: Island með augum Fransmanna. Til 7. ágúst. Upplýsingamiðstöð myndlistar: www.umm.is undir Fréttir. TONLIST Sunnudagur Akureyrarkirkja: Gradualekór Lang- holtskirkju. Kl. 20. Hallgrímskirkja: Hákan Wikman orgelleikari. Kl. 20. Hásalir, Hafnarfirði: Marina Nadir- adze píanóleikari. Kl. 20. Þriðjudagur Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Lise Lotte Riisager mezzósópran og Mort- en Spanggaard gítarleikari. Kl. 20.30. Fimmtudagur Norræna húsið: Mika Orava píanó og Mika Ryhtá klarinett. Kl. 22. LEIKLIST Iðnó: Björninn, lau. 8., fim. 13. júlí. Loftkastalinn: Thriller, fös. 14. júlí. Hafnarfjarðarleikhúsið: The Hamm- er of Thor, fös. 14. júlí. Upplýsingar um listviðburði sem ósk- að er eftir að birtar verði í þessum dálki verða að hafa borist bréflega eða í tölvupósti fyrir kl. 16 á miðviku- dögum merktar: Morgunblaðið, menning/listir, Kringlunni 1, 103 Rvik. Myndsendir: 5691222. Net- fang: menning@mbl.is. 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 8. JÚLÍ 2000

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.