Lesbók Morgunblaðsins - 08.07.2000, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 08.07.2000, Blaðsíða 7
„UM ÞAP ALLRA FfG- URSTA LIFSINS TRE..." f dag kl. 17 verða frumflutt nýtónverk eftir Báru Grímsdóttur,staðar- tónskáld í Skálholti. Tón- verkin eru samin f/rir söngraddirogþað er söngl" íópurinn Hljómeyki sem flytur undir stjórn Bernharðs Wilkinson. ÞETTA eru sex tónverk sem eru samin við latínuljóð eftir íslensk 17. og 18. aldar skáld,“ segir Bára. „Þau eru Maríuljóð eftir Brynjólf Sveinsson (1605-1675), sr. Eirík Þorsteinsson (1669- 1738) og Jón Þorkelsson, rektor Skálholts- skóla, (1697-1759).“ Bára segir að áhugi sinn fyrir helgikvæðum þessa tíma hafi kviknað þegar hún sá helgi- kvæðaútgáfu Almenna bókafélagsins fyrir nokkrum árum. „Fyrir þremur árum ákvað ég svo að að semja tónlist við þessa texta, fyrst Morgunb!aðið/Jim Smart Sönghópurinn Gríma, Margrét Bóasdóttir og strengjakvintett ásamt stjórnandanum Gunnsteini Ólafssyni og ióni Guðmundssyni tónskáldi. fyrir karlakór og síðan fyrir blandað- an kór. Samkórinn í Vestmannaeyj- um hefur sungið tvö af þessum lög- um.“ Þess verður að geta að Bára er búsett í Vestmannaeyjum og starfar þar sem kórstjóri og tónlistarkennari. „Helga Ingólfsdóttir hafði svo sam- band við mig og bauð mér að semja fyrir Skálholtstónleika. Ég fór þá að kynna mér þetta betur og komst í samstarf við Sigurð Pétursson lektor og hann hefur kynnt mig fyrir ýms- um af þessum latínuljóðum og þýtt þau fyrir mig. Þar á meðal er það sem yfirskrift tónleik- anna er dregin af, „Um það allra fegursta lífs- ins tré...“ sem er ekki vitað eftir hvern er. Við þetta er lag sem ég hef útsett fyrir blandaðan kór. Mjög fallegt lag. Annað verk er samið við erfiljóð eftir Jón Þorkelsson um Sigríði Jóns- dóttur, ekkju Jóns Vídalíns, en hún mun hafa verið mikil merkiskona. Kvæðið heitir á latínu In memoriam piissimæ Matronoæ og útleggst lík- lega eitthvað á þessa leið: í minningu frómrar frúar.“ Bára segist vinna út frá textunum og tónhugmyndirnar séu byggðar á fornum íslenskum kvæðalögum sem hún hef- ur rannsakað. „Ég gef mér nú samt frjálsar hendur við tónsmíðarnar og leita fanga í ýms- um áttum og spinn í kringum textana og lag- línurnar, aðeins djassað og svo má heyra áhrif frá Balkanskaganum en þjóðlög þaðan eru reyndar nokkuð lík íslensku þjóðlögunum að vissu leyti. Það sem er nokkuð sérstakt er að þetta eru allt acapella sönglög. Ég hef ekki gert mikið af slíku þótt ég hafi útsett talsvert fyrir Samkórinn í Vestmannaeyjum. Það er reyndar orðið talsvert þegar allt er talið sam- an. í þessum verkum hef ég tekið þá stefnu að flækja málin ekki mjög mikið. Þetta er hómó- fóm'skt og stundum einradda, stundum tví- radda og stundum reyndar fleiri raddir en í aðalatriðum ákvað ég að hafa þetta einfalt,“ segir Bára Grímsdóttir, staðartónskáld í Skál- holti. Bára Grímsdóttir Fyrir tónlistina LEIKARI í gervi nasista stendur hér fyrir framan hóp fanga á æfingu leikritsins „An die Musik“ sem útleggja má sem „Fyrir tónlistina". Leikararnir eru frá gyðinga- leikhúsinu í Búkarest, en sýningin verður sett upp á næstunni í Weimar í Þýskalandi. Verkið er eftir enska leikskáldið Pip Simmons og er þetta í fyrsta skipti sem það er sett á svið í Þýskalandi. Viðfangsefnið er grimmdin sem við- gekkst í útrýmingarbúðum nasista og er notast við blöndu popptónistar og klass- ískrar tónlistar. „An die Musik“ var fyrst sett á svið fyrir 25 árum. Dagskró Sumartón- leika í Skólholtskirkju Laugardagur 8. júlí Hátíðardagskráin hefst kl. 14 með forn- um tvísöngvum í flutningi Voces Thules. Avörp flytja séra Sigurður Sigurðarson vígslubiskup, Björn Bjamason mennta- málaráðherra, Helga Ingólfsdóttir list- rænn stjómandi Sumartónleikanna og Kári Bjarnason formaður Collegium Musicum. Einar Sigurðsson landsbóka- vörður opnar sýningu á íslenskum tón- listahandritum. Sönghópurinn Gríma, Margrét Bóasdóttur sópran og strengja- kvintett flytja útsetningar á söngvum úr nótnahandritum eftir Hildigunni Rúnars- dóttur, Mist Þorkelsdóttur og Elínu Gunnlaugsdóttur. Stjórnandi er Gunn- steinn Ólafsson. Kl. 17 flytur Sönghópur- inn Hljómeyki, undir stjórn Bernharðs Wilkinson, verk eftir Báru Grimsdóttur staðartónskáld. Kvöldsöngur verður kl. 21.30 en þá syngur Kammerkór Suður- lands undir stjórn Hilmars Arnar Agnar- ssonar úr sönghandritum. Kl. 22 syngur Isleifsreglan náttsöng. Sunnudagur 9. júli Morguntíðir í höndum ísleifsreglunnar heijast kl. 9. Sönghópurinn Gríma ásamt Margréti Bóasdóttur syngja morgunsöng kl. 9.30. Kl. 15 verða frumfluttar útsetn- ingar á nótnahandritum eftir 6 íslensk tónskáld: Hildigunni Rúnarsdóttur, Þórð Magnússon, Elínu Gunnlaugsdóttur, Jón Guðmundsson, Mist Þorkelsdóttur og Steingi’ím Rohloff. Plytjendur em söng- hópurinn Gríma, Margrét Bóasdóttir og strengjakvintett. Kl. 16.40 syngur Kam- merkór Suðurlands söngva úr handritum pg hátíðarmessa með þátttöku kórsins og ísleifsreglunnar verður kl. 17. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 8. JÚLÍ 2000 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.