Lesbók Morgunblaðsins - 08.07.2000, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 08.07.2000, Blaðsíða 9
ÆTTARTALA AF FRISLANDI AFKOMENDUR SNORRA ÞOR- FINNSSONAR I HOLLANDI EFTIR BJARNA KARLSSON Fyrsti Ameríkaninn af evrópskum uppruna í mannkynssögunni hefur væntanlega verið Snorri Þorfinnsson bóndi í Glaumbæ í Skagafirði. Hann er talinn fædd- ur um 1008 á austurströnd Am- eríku, rétt norðan við landamæri Kanada og Bandaríkjanna. Þessi saga verður okkur íslendingum allhugleikin nú þegar 1000 ár eru liðin frá landafundum Is- lendinga í Vesturheimi. Það er því skemmtileg viðbót við það sem íslensk sagnfræði hefur haft af fróðleik um Snorra að suður í Hollandi er til fólk sem rekur ættir sínar til dóttur hans Ingibjargar sem ekki hefur fram til þessa ver- ið vitað um heima á Fróni. Snorri átti samkvæmt íslenskum heimildum börnin Hallfríði, sem var móðir Þorláks bisk- ups helga, og Þorgeir, afa Brands hólabiskups. Nú bætist Ingibjörg við en vel gæti gifting suður á Frísland tengst suðurgöngu þeirrar merku konu Guðrúnar Þorbjarnardóttur. Ingeborg Karolseveny I ættartölu sem skráð er fremst í hollenska fjölskyldubiblíu frá árinu 1657 er skráð að Fríslendingurinn Sicco Acksfehtan hafi um 1103 gengið að eiga Ingeborg Karolseveny van Glaumbjeu Snorrydochter. Ekki virðist af þessu mikill vafi að átt er við dóttur Snorra Þorfinnssonar karlsefnis. Evert Leendert Ackslan van Vriesland í Lakewood í Colorado er 23. maður frá Ingibjörgu þessari og geymir enn ættarbiblíuna á heimili sínu. Öll saga þessarar hollensku ættarbiblíu og vitneskja Islendinga um hana er mjög með ól- íkindum og skal henni nú gerð lausleg skil. Evert og faðir hans Leendert de Vries hófu á sjöunda áratugnum athugun á ættaruppruna sínum með það í farteskinu að þá grunaði að rekja mætti ættina aftur til aðalsmanna í Hol- landi. H.L. Kruimel ættfræðing- ur við Hollensku ættfræði- stofnunina í Haag komst að því að ætt þeirra væri með elstu höfðingjaættum í Hol- landi og væri ættfaðirinn Uppi jarl hinn frísneski. Nokkru síðar hafði maður að nafni Gerhard Halwasse sam- band við þá feðga og sagðist hafa í vörslu sinni fjöl- skyldubiblíu sem tiiheyrði ætt þeirra en Gerhard þessi sem titlaði sig skrásetjara hjá Vil- helmínu drottningu hafði bi- blíusöfnun sem sitt helsta áhugamál. Fjölskyldubiblíur sem þessi voru algengar hjá vel stæðu fólki í Hollandi og voru fremst í Biblíum þessum auð blöð þar sem ættin skráði ættarsögu sína og gekk hún mann fram af manni, ævin- lega frá föður til elsta sonar. Riddaratitill f ram á 18. öld - eftir það bara Vries í fjölskyldubiblíunni sem Gerhard Halwasse afhenti þeim Vries feðgum kom fram að ættin hafði borið aðals- eða riddaratitil allt fram til 1713 þegar trúarbragðaofsóknir urðu þáverandi ættföður, og flestu af hans fólki, að aldur- tila. Sveinninn Jan Workse bjargaðist einn úr þeim hild- arleik, ársgamall, og var alinn upp hjá munkinum Jean Les- landes sem ákvað um leið að breyta fjölskyldunafni drengsins úr Ackslan van Vriesland í de Vries sem er reyndar eitt algengasta ættarnafn Hollendinga. Með þessu bjargaði munkurinn unga drengnum frá því að lenda í vandræðum vegna uppruna síns en jafnframt skráði hann þessa breytingu í fjöl- skyldubiblíuna. Jan Werkse bjó síðan í Dordrecht en afkom- endur hans í Vlissingen en báðir þessir staðir eru í sunnanverðu Hollandi. Þeir hafa borið hið látlausa ættarnafn de Vries allt þar til fyrir fáeinum árum að Evert fékk leyfi til að taka upp hið gamla nafn fjölskyldunnar, Ackslan van Vriesland. Það er á Dordrecht árum fjöl- skyldunnar sem biblían og ættin verða viðskila hvort við annað og reyndar var það svo að þeg- ar þeir feðgar Evert og Leendert höfðu haft upp á þessu ættgöfgi sínu beið þeirra talsvert safn fornmuna í Dordrecht sem fjölskyldan taldist réttur eigandi að, bæði málverk, vopn og húsmunir. Allt hafði þetta verið í vörslu kirkjunnar um aldir og var reyndar flest í því ástandi að það taldist of kostnaðarsamt að bjarga því frá glötun. Það var því látið nægja að taka ljósmyndir af þessum munum en þeim var sjálfum fargað. íslenskur uppruni Um 1970 komst Evert Leendert de Vries í kynni við íslenskan stúdent sem var í Amster- dam, Pál Skúlason lögfræðing frá Bræðra- tungu í Biskupstungum. Hann bar ættartöl- una undir Pál sem kannaðist þegar við nafn Snorra Þorfinnssonar og þótti ættrakning þessi athyglisverð án þess að gera nokkuð með hana frekar. Það var svo ekki fyrr en 1997 sem þessu máli var hreyft aftur heima á íslandi að forystu sr. Kolbeins Þorleifssonar sem hefur meðal annars ritað ættfræðistofnuninni í Ha- ag til þess að grennslast fyrir um áreiðanleika þessarar ættrakningar. Enn þá hefur ekkert komið út úr þeim fyrirspurnum og hér verður ekki tekin nein afstaða til sannleiksgildi þess- ara fræða. Páll gat lauslega um þetta í tímariti sínu, Konan á myndinni er Hanny M. Hanswijk Pennink. Hún er hér ásamt manni sínum (til hægri), Johannesi syni sínum og Tiern- ey sonarsyni sínum, sem eru væntanlega yngstu afkomendur Snorra Þorfinnssonar bónda í Glaumbæ í Skagaflrði. Tierney litli er líklega 26. lidur frá Snorra. Biblíukápa frá 1730 með nokkurn hluta af upprunalegri skreytingu varðveittan. í miðju er skjaldarmerki Ackslan van Vriesland-fjöl- skyldunnar, sem virðist hafa verið sett í stað katólskrar krossfestingarmyndar, því að orðin „In hoc signo vincil" (með þessu merki skaltu sigra) var fyrr á öldum tákn katólsku kirkjunn- ar í andstöðu við endurbættan kristindóm (re- formertan) sem réð í Hollandi. Forsíða á Statenbiblíu, þ.e. hinni opinberu rík- isbiblíu frá 1730, sem er endurprentun á út- gáfu frá 1652. *-» „<y , 07 >"■ . • .• c,cc qX. r. . v. »»* «i «íí •í-Ví,,v,/v^ tctc ■><n C'nt Q) »,'? ,tiV Upphafið á ættartölu Ackslan van Driesland-ættarinnar. Norska Ijónið, með öxi, ásamt skildi með frísneska erninum og rauðum hálfskildi. Þarna er Ubbi Frísajari kallaður Ack- fehlan sem merkir „bardagamaður með exi“. í áttunda lið stendur í íslenskri þýðingu: „Siggi sem átti Ingibjörgu Karls- efnis frá Glaumbæ 1102“. Skildi, fyrir fáum misserum og eftir það var áhugi Kolbeins vak- inn. í samtali við blaðamann sögðu þeir Kolbeinn og Páll að líklegt megi telja að þessi hjú- skapur Ingibjargar Snorradóttur tengist suðurferð ömmu hennar, Guðrúnar Þorbjarnardóttur. Reyndar koma fleiri Islending- ar fyrir í ættartölunni því um 1360 gekk Willem Ackslan van Vrieschland að eiga Ingibjörgu Hauksdóttur Erlendssonar, sem tímans vegna gæti verið dóttir Hauks lögmanns Erlendssonar sem byrjaði siftn embættisferil ó íslandi sem lögmaður sunnan og austan með aðsetur á Strönd í Selvogi en bjó frá 1302 í Björgvin, sát í ríkisráði og gengdi embætti lögmanns í Gulaþingi. Ættartala frá Uppa fríska Ættfræðingurinn H.L. Kruim- el setti síðan saman ættartölu fjölskyldunnar sem hann byggði jöfnum höndum á ættarbiblíunni og opinberum skjölum. Þar er ættin rakin frá Jarl Ubbo Acks- fehtan sem talinn er sá sami og sagt er frá í Sögubroti af forn- konungum og heitir þar Ubbi fríski og var ein fremsta hetja Haraldar hilditannar í Brávalla- bardaga. I ættartölunni er þessi saga rifjuð lítillega upp og þó ekki beri Hollendingum þar alveg saman við Fornaldarsögur Norð- urlanda þá eru hvorutveggja all- skemmtilegar hetju- og ýkjusög- ur. Ubbi þessi fellir hverja hetjuna af annarri fyrir Svíakon- ungi og það eins þó við marga sé að eiga í senn en að lokum verða það hinir óvirðulegu Þilir af Þelamörk sem fella hann með örvaskotum sínum. Tvennum sögum fer af örvafjölda en annaðhvort eru það 2x12 eða 12x12 örvar sem lenda í senn í brjósti Ubba og er hann þar með allur. En áður en þetta gerist hafði hann, ef marka má hina frísnesku ættartölu, átt Her- lindu dóttur Haraldar hilditannar (Stridtands- dochter) og þau getið af sér soninn Eric Acks- fehtan og talið er að ættin hafi búið þar sem heitir Warga og Wolvega á Fríslandi. Sicco Acksfehtan sem nefndur er í upphafi greinarinnar er talinn hafa átt Ingeborgu Karolseveny árið 1103 sem er reyndar nokkuð seint miðað við þá kenningu Páls Bergþórs- sonar að Snorri Þorfinnsson hafi verið fæddui- 1008 en samt ekki útilokað. Hitt er þó miklu sennilegra að ártöl séu í þessari ættartölu óná- kvæm enda ekki við neinar kirkjubækur frá þessum tíma að styðjast. Deyjandi ætt „Bróðir minn fékk leyfi til að taka gamla ættarnafnið upp og heitir þess vegna í dag Evert L Ackslan van Vriesland,“ segir Hanny viðmælandi okkar þar sem við sitjum heima í stofunni hennar í smábænum Massluis skammt frá Rotterdam. „En hann verður líka sá síðasti til að bera þetta ættarnafn og þegai- hann fellur frá verður ættin ekki til lengur.“ Hér kemur til hin evrópska ættfræðihefð að „ættin“ er karlleggurinn. Hanny, sem er fædd de Vries, ber í dag ættarnafn manns síns, Hanswjjk Pennink og börn hennar tilheyra ekki Vries ættinni. Evert er barnlaus og þar sem systkinahópurinn er ekki stæm, bara Evert og Hanny, eru líkur á að þessi ætt deyi út, fjölskyldunafnið hverfi. Aftur á móti verða áfram til Hollendingar sem geta rakið ættir sínar til Ingeborgar því Hanny á tvö börn og barnabarn eins og myndin hér á síðunni sýnir. Leendert de Vries (1908 - 1992) hóf að rannsaka ættarsögu sína og komst að því að forfeður hans báru ættarnafnið Ackslan van Vriesland. Samkvæmt ættartölu þeirrar ættar giftist íslensk kona inn í fjölskylduna um 1100, Ingibjörg Snorradóttir frá Glaumbæ, dóttir Snorra Þorfinnssonar karlsefnis. Leendert lést fyrir sex árum. Evert Leendert tók að nýju upp ættarnafn fjölskyldunnar eftir 300 ára hlé. Hann heitir nú Evert L. Ackslan van Vriesland. I hans fór- um í Colorado í Bandaríkjunum er 400 ára gömul ættartala þar sem ættin er rakin aftur til Snorra Þorfinnssonar, Hauks lögmanns á Strönd og Ubba fríska kappa í Brávallabar- daga. Höfundur er ritstjóri Sunnlenska fréltablaðsins ó Selfossi. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 8. JÚLÍ 2000 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.