Lesbók Morgunblaðsins - 08.07.2000, Síða 7
„UM ÞAP ALLRA FfG-
URSTA LIFSINS TRE..."
f dag kl. 17
verða frumflutt
nýtónverk eftir
Báru Grímsdóttur,staðar-
tónskáld í Skálholti. Tón-
verkin eru samin f/rir
söngraddirogþað er
söngl" íópurinn Hljómeyki
sem flytur undir stjórn
Bernharðs Wilkinson.
ÞETTA eru sex tónverk sem eru samin
við latínuljóð eftir íslensk 17. og 18.
aldar skáld,“ segir Bára. „Þau eru
Maríuljóð eftir Brynjólf Sveinsson
(1605-1675), sr. Eirík Þorsteinsson (1669-
1738) og Jón Þorkelsson, rektor Skálholts-
skóla, (1697-1759).“
Bára segir að áhugi sinn fyrir helgikvæðum
þessa tíma hafi kviknað þegar hún sá helgi-
kvæðaútgáfu Almenna bókafélagsins fyrir
nokkrum árum. „Fyrir þremur árum ákvað ég
svo að að semja tónlist við þessa texta, fyrst
Morgunb!aðið/Jim Smart
Sönghópurinn Gríma, Margrét Bóasdóttir og strengjakvintett ásamt stjórnandanum Gunnsteini Ólafssyni og ióni Guðmundssyni tónskáldi.
fyrir karlakór og síðan fyrir blandað-
an kór. Samkórinn í Vestmannaeyj-
um hefur sungið tvö af þessum lög-
um.“ Þess verður að geta að Bára er
búsett í Vestmannaeyjum og starfar
þar sem kórstjóri og tónlistarkennari.
„Helga Ingólfsdóttir hafði svo sam-
band við mig og bauð mér að semja
fyrir Skálholtstónleika. Ég fór þá að
kynna mér þetta betur og komst í
samstarf við Sigurð Pétursson lektor
og hann hefur kynnt mig fyrir ýms-
um af þessum latínuljóðum og þýtt þau fyrir
mig. Þar á meðal er það sem yfirskrift tónleik-
anna er dregin af, „Um það allra fegursta lífs-
ins tré...“ sem er ekki vitað eftir hvern er. Við
þetta er lag sem ég hef útsett fyrir
blandaðan kór. Mjög fallegt lag.
Annað verk er samið við erfiljóð
eftir Jón Þorkelsson um Sigríði Jóns-
dóttur, ekkju Jóns Vídalíns, en hún
mun hafa verið mikil merkiskona.
Kvæðið heitir á latínu In memoriam
piissimæ Matronoæ og útleggst lík-
lega eitthvað á þessa leið: í minningu
frómrar frúar.“
Bára segist vinna út frá textunum
og tónhugmyndirnar séu byggðar á
fornum íslenskum kvæðalögum sem hún hef-
ur rannsakað. „Ég gef mér nú samt frjálsar
hendur við tónsmíðarnar og leita fanga í ýms-
um áttum og spinn í kringum textana og lag-
línurnar, aðeins djassað og svo má heyra áhrif
frá Balkanskaganum en þjóðlög þaðan eru
reyndar nokkuð lík íslensku þjóðlögunum að
vissu leyti. Það sem er nokkuð sérstakt er að
þetta eru allt acapella sönglög. Ég hef ekki
gert mikið af slíku þótt ég hafi útsett talsvert
fyrir Samkórinn í Vestmannaeyjum. Það er
reyndar orðið talsvert þegar allt er talið sam-
an.
í þessum verkum hef ég tekið þá stefnu að
flækja málin ekki mjög mikið. Þetta er hómó-
fóm'skt og stundum einradda, stundum tví-
radda og stundum reyndar fleiri raddir en í
aðalatriðum ákvað ég að hafa þetta einfalt,“
segir Bára Grímsdóttir, staðartónskáld í Skál-
holti.
Bára Grímsdóttir
Fyrir tónlistina
LEIKARI í gervi nasista stendur hér fyrir
framan hóp fanga á æfingu leikritsins „An
die Musik“ sem útleggja má sem „Fyrir
tónlistina". Leikararnir eru frá gyðinga-
leikhúsinu í Búkarest, en sýningin verður
sett upp á næstunni í Weimar í Þýskalandi.
Verkið er eftir enska leikskáldið Pip
Simmons og er þetta í fyrsta skipti sem það
er sett á svið í Þýskalandi.
Viðfangsefnið er grimmdin sem við-
gekkst í útrýmingarbúðum nasista og er
notast við blöndu popptónistar og klass-
ískrar tónlistar.
„An die Musik“ var fyrst sett á svið fyrir
25 árum.
Dagskró Sumartón-
leika í Skólholtskirkju
Laugardagur 8. júlí
Hátíðardagskráin hefst kl. 14 með forn-
um tvísöngvum í flutningi Voces Thules.
Avörp flytja séra Sigurður Sigurðarson
vígslubiskup, Björn Bjamason mennta-
málaráðherra, Helga Ingólfsdóttir list-
rænn stjómandi Sumartónleikanna og
Kári Bjarnason formaður Collegium
Musicum. Einar Sigurðsson landsbóka-
vörður opnar sýningu á íslenskum tón-
listahandritum. Sönghópurinn Gríma,
Margrét Bóasdóttur sópran og strengja-
kvintett flytja útsetningar á söngvum úr
nótnahandritum eftir Hildigunni Rúnars-
dóttur, Mist Þorkelsdóttur og Elínu
Gunnlaugsdóttur. Stjórnandi er Gunn-
steinn Ólafsson. Kl. 17 flytur Sönghópur-
inn Hljómeyki, undir stjórn Bernharðs
Wilkinson, verk eftir Báru Grimsdóttur
staðartónskáld. Kvöldsöngur verður kl.
21.30 en þá syngur Kammerkór Suður-
lands undir stjórn Hilmars Arnar Agnar-
ssonar úr sönghandritum.
Kl. 22 syngur Isleifsreglan náttsöng.
Sunnudagur 9. júli
Morguntíðir í höndum ísleifsreglunnar
heijast kl. 9. Sönghópurinn Gríma ásamt
Margréti Bóasdóttur syngja morgunsöng
kl. 9.30. Kl. 15 verða frumfluttar útsetn-
ingar á nótnahandritum eftir 6 íslensk
tónskáld: Hildigunni Rúnarsdóttur, Þórð
Magnússon, Elínu Gunnlaugsdóttur, Jón
Guðmundsson, Mist Þorkelsdóttur og
Steingi’ím Rohloff. Plytjendur em söng-
hópurinn Gríma, Margrét Bóasdóttir og
strengjakvintett. Kl. 16.40 syngur Kam-
merkór Suðurlands söngva úr handritum
pg hátíðarmessa með þátttöku kórsins og
ísleifsreglunnar verður kl. 17.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 8. JÚLÍ 2000 7