Lesbók Morgunblaðsins - 08.07.2000, Síða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 08.07.2000, Síða 4
Marie-Louise von Motesiczky: Sjálfsmynd með rauðan hatt. EFTIRMINNILEGAR MÆÐGUR EFTIR FRANK PONZI Mæðgurnar höfóu farið frá Vínarborg til Haag 1939 áður en herir Hitlers komu í kjölfarið. Húsið í Harr ip- stead varð síðasta hæli | þeirra; þar bjuggu þær í f ííði sínu og röðuðu kringum sig málverkum dótturinnar og erfðagripum fjölskylc dunnar. Marie-Louise Montesiczky: Gamalt Ijóð. ✓ Arið 1977 byrjaði ég að vinna að heimildarmynd um ís- lensk-dönsku söngkonuna Bngel Lund, sem var meðal fyrstu söngvara til að kynna íslensk þjóðlög víða um heim. Milli 1930 og 1960 , hafði hún verið þekkt um alla Evrópu og Bandaríkin fyrir óvenjulega túlkun þjóðlaga frá mörgum löndum. Frægð sína öðlaðist hún fyrir einstæða konserta sína þar sem hún kynnti lögin og söng lýtalaust á um það bil 20 tungumálum. Til þess að ég gæti rakið kafla úr ævi hennar gaf Gagga, eins og hún var oftast kölluð, mér lista með nöfnum vina sinna í London, þar sem hún hafði dvalist seinni stríðs- árin. Einn þeirra var listmálari að nafni Marie- Louise von Motesiczky. „Vildi Gagga að við hittumst?" var stuttaraleg spuming hennar þegar ég hringdi: “,,a-á, hún...“ „Jæja....gjörið þá svo vel að koma klukkan tvö - Finchley Road Station, 6 Chesterford Gardens." Það var eftir hádegi sólbjartan júnídag sem ég stóð á tilsettum tíma fyrir framan stórt og virðu- legt þriggja hæða hús úr rauðum múrsteini, í viktoríönskum stíl, í Hampstead. Mér reyndist þrautin þyngri að íinna aðalinnganginn og gekk þess vegna meðfram múrvegg sem lá framhjá nokkrum trjám og runnum inn í lítinn garð að húsabaki. Við dyr sem ætlaðar voru þjónustu- fólkinu var gamaldags bjalla sem ýta átti á. Ég studdi á messinghnappinn og beið. Brátt opnaði vinnukona, fremur alvarleg á svip, mældi mig snöggvast með augunum, og gat varla heitið að vottaði fyrir brosi, og bauð mér inn. Þegar ég var laus við frakkann var mér fylgt upp í stóra setustofu og sagt að madame Motesiczky kæmi undir eins niður. Stofan vissi út að breiðri flöt með litskærum blómum sem umgirt var háum garðvegg úr rauðum múrsteini. Garðurinn bar þess merki að vera einkagarður, en var þó, að mér fannst, nokkuð lokaður og vel varirm. Það sem innan- stokks var í setustofunni sýndist líka eins og fjötur, jafn þrúgandi og það var, með dökkum, þungum húsgögnum og tjöldum, sem allt virtist vera gamall og ósvikinn germanskur arfur nema nokkur málverk, sem minntu á Max Beckmann, en voru ekki eins harðneskjuleg og merkt „Mot- esiczky". Þar sem ég varð að bíða, og það býsna lengi, gafst mér gott færi á að skoða þetta gamla, fágæta innbú úr veröld sem var og það jók mjög á forvitni mína um eiganda þess. Stendur þá ekki allt í einu fyrir framan mig, hljóðlega og átakalaust, eins og hún hefði líka- mnast úr húsbúnaði þessa tíma, glæsilega klædd, virðuleg, hvíthærð hefðardama með að- alsbrag í fasi. Hún virtist vera á sextugsaldri, en var þá, eins og ég komst að seinna, sjötíu og eins. Minnugur þess að hafa heyrt hve hún var rómuð fyrir fegurð sá ég smám saman færast bros yfír lítinn munn sem ekki var laus við vipr- ur, en þrýstnar varimar hafði hún málað dauft með appelsínugulum lit. Mjúkri og þýðri röddu spurði hún hvemig sameiginleg vinkona okkar væri til heilsunnar og vísaði mér til sætis í bólstruðum stól frá 19. öld. Við inngreypt borð, hlaðið tei, Vínarsúkkulaði og smákökum, fómm við svo að tala um tengsl hennar við söngkonuna og málaraferil hennar sjálfrar. Þegar hún var ung og var að læra að mála í Frankfurt á þriðja tug aldarinnar hafði hún þekkt Beckmann bæði sem námsmann og náinn vin og seinna, á stríðsámnum, þekkti hún Ko- koschka líka. En núorðið, sagði hún, var hún ekki lengur í tengslum við neina listamanna- hópa, kærði sig kollótta um strauma samtímans og vann eins og henni sýndist og með þeim hraða sem henni hentaði Núna sýndi hún sjald- an, hafði hvorki neinn áhuga á írægð og frama né þörf fyrir að selja. Þar sem ekki var langt á milli hennar og kynslóðar Hans Richters, sem hafði dáið árið áður, spurði ég hvort hún kann- aðist við Zúrich-dadaistana frá 1916 og verk þeirra. Hún hlustaði af kurteisi, kannaðist við nafnið, en sagði listastefnur í tímans rás skipta litlu máli fyrir sig og sín léttvægu verk - verk, vildi ég bæta við, sem síðar áttu eftir að hanga í Tate Gallery og mörgum söfnum í Þýskalandi. Þegar hún heyrði að ég hefði unnið að viðgerð- um í Flórens vegna flóðanna 66^67, kom hún með málverkið Meyjan og bamið, eftir 15. aldar málarann Carlo Crivelli frá Feneyjum, augljós- lega einn erfðagripinn enn sem ekki var vanþörf á að hreinsa. Vegna deilnanna sem þá geisuðu um meinta ofhreinsun málverka í National Gall- ery taldi ég best að hún leitaði uppi sérmenntað- an viðgerðamann sem gott orð færi af og ynni sjálfstætt. Eftir að henni hafði á svo auðveldan hátt tek- ist að skapa traust okkar í milli bauð hún mér upp í vinnustofu sína á efstu hæðinni. Þótt þar væri vel bjart var hrollkalt í óupphitaðri stof; unni þegar hún fór að sýna mér nýrri verk sín. í þeim hafði hún gefið sér lausari tauminn en í þeim sem niðri voru og í eðli sínu voru þau greinilega persónulegri. Ásamt sjálfsmyndum og táknrænum myndum, sumum af henni sjálfri í hálf-goðfræðilegu gervi, voru þar líka myndir af nánum vinum hennar. Tvær þeirra voru af rit- höfundinum Elias Canetti, sem varð Nóbels- verðlaunaskáld 1981 og ég frétti seinna að hún hefði verið ástfangin af í löngu sambandi þeirra, en það ekki verið gagnkvæmt. En af öllum þeim verkum sem hún dró fram voru flest af móður hennar, Henriette, gerð á ýmsum tímum og sýndu hispurslaust hvemig hún hafði elst. Hún hafði misst fóður sinn þegar hún var þriggja ára og móðir hennar hafði fyrir vikið verið sú mann- eskja sem stóð henni næst. Hún hafði aldrei gifst, en að því er virtist eytt drýgstum hluta tíma síns í að mála þetta yfirþyrmandi foreldri sitt. Á ýmsum málverkum var móðir hennar sýnd á veiðum, með byssu, annaðhvort á eftir bráðinni eða á slóð einhvers dulins, torkennilegs óvinar, eða eins og drottning með hárkollu þar sem hún sat í tágahásæti sínu og var að reykja pípu, en seinna, þegar hún var orðin veikburða og átti erfitt með hreyfingar, gat að lita hana á sumardegi í rafknúna hjólastólnum sínum, með lítinn kjölturakka á eftir sér, akandi um ramm- girta garðflötina. Hvert málverkið af öðru bai’ það með sér vegna þess sem það sýndi að heim- ur málarans var næsta einangraður og að þang- að var ekki hleypt nema fáeinum nánum vinum og ætíð undir eftirliti móður sem alltaf var til staðar. Aldrei minntist málarinn á eftirlætisfyr- irsætu sína nema með ástúðlegum orðum og bamslegri lotningu. Á einu málverkinu er kar- læg móðirin sýnd þar sem dóttir hennar er að 4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 8. JÚLÍ 2000

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.