Lesbók Morgunblaðsins - 23.09.2000, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 23.09.2000, Blaðsíða 2
LEXUS OG SINFÓNÍAN GERA STYRKTARSAMNING LEXUS og Sinfóníuhljómsveit Islands hafa gert samning um að Lexus verði aðalstyrkt- araðili hljómsveitarinnar. Samningurinn er til þriggja ára og er metinn á um 11 milljónir króna. „Kostun einkafyrirtækja á einstaka rekstr- arþáttum menningarstofnana verður sífellt al- gengari. Það er jákvæð þróun því með því fá menningarstofnanir utanaðkomandi hvatn- ingu og ögn rýmri fjárhag til að gera betur. Við fögnum nýjum samningi við Lexus sem nú verður aðalstyrktaraðili Sinfóníuhljómsveitar íslands. Við horfum með eftirvæntingu til sam- starfsins og væntum góðs af því fyrir báða að- ila,“ segir í yfirlýsingu frá Þresti Ólafssyni, framkvæmdastjóra SI, um samninginn milli Sinfóníuhljómsveitar íslands og Lexuss. í fréttatilkynningu segir að hljómsveitin og Lexus muni hafa með sér nána samvinnu á komandi misserum um kynningarstarf og útgáfu geisla- disks, svo eitthvað sé nefnt. Gestir Sinfóníunn- ar munu verða varir við nýjungar í kynningar- starfi með tilkomu samningsins og beint fram- lag frá Lexus, sem nú er orðið aðalstyrktaraðili Sinfóníunnar, mun skipta hljómsveitina miklu máli, sérstaklega við endurnýjun á hljóðfæra- kosti, en markmið Sinfóníunnar hefur ætíð Rico Saccani, aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitarinnar, ásamt Þresti Ólafssyni, fram- verið að tengja alla styrki við Hljóðfærasjóð kvæmdastjóra hljómsveitarinnar og Boga Pálssyni forstjóra P. Samúelssonar hf. umboðsaðila hljómsveitarinnar. Lexus á íslandi. Morgunblaðið/Kristi nn Hluti af verki Douwe Jan Bakker um íslenzka byggingarlist. VERK DOUWE JAN BAKKER í i- 8 SÝNING á verkum hollenska listamannsins Douwe Jan Bakker hefur verið opnuð í i8, Gall- erí Ingólfsstræti 8. Douwe Jan Bakker fæddist í Heemstede í Hollandi árið 1943. Hann nam við listaskólana í Eindhoven og Den Bosch á árunum 196H964. í list sinni helgaði hann sig aðallega langtíma viðfangsefnum og tengdust verk hans oftast á einhvern hátt tungu og merkingu. Douwe var tíður gestur hér á íslandi og vann mörg verk tengd íslenskri menningu, tungu og náttúru. Hann komst í kynni við félagana í Súm þegar þeir sýndu í Amsterdam í kringum 1970. Stuttu seinna kom hann hingað og sýndi í Gall- erí Súm. Varð hann strax heillaður af yfir- þyrmandi landslagi, byggingarlist og tungu- málinu. Afrakstur dvala hans hér er m.a. verkið Um hið sérstaka i'ramlag íslands og ís- lensks samfélags til sögu og byggingarlistar- innar sem birtist í arkitektúr-tímaritinu For- um 1975, verk sem samanstendur af ljós- myndaröð af íslenskum sveitabæjum og lands- lagi. Einnig A Vocabulary Sculpture in the Icelandic Landscape sem er samansafn 72 ljós- mynda af atriðum í íslensku landslagi og til- heyrandi heitum og er hvert ljósmyndabrot í formi þessi heitis sem var ljósmyndað. Árið 1997 kom Douwe hingað til lands til að undirbúa verk sem hann hugðist sýna í i8. Hann tók ljósmyndir í náttúrunni, aðallega af rennandi vatniysem hann ætlaði að nota sem skissur íyrir teikningar. Honum entist ekki aldur til að Ijúka því verki, en hann lést þetta sama ár. Sýningin nú í i8 samanstendur af þessum Ijósmyndum sem eru í formi litskyggna og eldri verkum sem fengir. hafa verið að láni frá íslenskum vinum hans, Nýlistasafninu og Listasafni íslands. Auk þess gefur að líta ýmis minningarbrot úr ævi hans, bréf og ljósmynd- ir. í tilefni af sýningunni gefur i8 út sýningar- skrá með myndum og textum, m.a. eftir nokkra íslenska listamenn sem þekktu Douwe. ÍSLEND- INGAR f AÐAL- HLUTVERK- UNUM Bcrlín. Morgunblaðið. Islenskir listamenn eru fyrirferðar- miklir í Berlín um þessar mundir. A sunnudaginn hefst ný kammertónleika- röð í Deutsche Oper sem ber yfír- skriftina Norðurlöndin. Tónleikaröð þessi varð til í samvinnu við norrænu sendiráðin í Berlín. Dagskráin hefst með tónleikunum ísland - hið ófundna land. Flutt verða tónverk eftir Svein- björn Sveinbjörnsson, Jón Leifs, Þor- kel Sigurbjörnsson, Atla Ingólfsson, Atla Heimi Sveinsson og Pál Pamp- ichler Pálsson. Atli Heimir mun sjá um kynningu en verndari tónleikanna er sendiherra íslands, Ingimundur Sig- fússon. Nokkrum tímum síðar verður uppákoma í listahúsinu Schloss Wiep- ersdorf í tilefni af Reykjavík - menn- ingarborg 2000. Opnuð verður sýning á verkum listakonunnar Önnu Líndal en sýningin ber yfirskriftina taumlaus stjórnun. Að lokinni opnuninni munu Guðbergur Bergsson, Vigdís Gríms- dóttir og Einar Kárason lesa úr verk- um sínum. Kynnir verður Andreas Vollmer en hann er lektor í íslenskum fræðum við Humboldt-háskóla. Þýðing Andreasar á Stúlkunni í skóginum eftir Vigdísi kom út í Þýskalandi í síðasta mánuði. Einnig er stutt .síðan að Sú kvalda ást; sem hugarfylgsnin geyma kom út í þýskri þýðingu. Áður höfðu birst tvær- þýðingar á verkum Guð- bergs: Svanurinn og Hjartað býr enn í helli sínum. Tenór og bassi í Brottnóminu Þann 29. september verður síðan frumsýning á nýrri uppfærslu á óper- unni Brottnámið úr kvennabúrinu eftir Mozart í Staatsoper í Austur-Berlín. Tvær aðalsöngvaranna eru íslenskir, þeir Gunnar Guðbjörnsson tenór og Bjarni Thor Kristinsson bassi. MENNING/ LISTIR NÆSTU VIKU MYNDLIST Árbæjarsafn: Saga Reykjavíkur. Amastofnun, Amagarði: Handritasýn- ing opin l.sept. til lö.maí. Ásmundai-safn: Verk í eigu safnsins. Til l.nóv. Gallerí Fold, Rauðarárstíg: Kristín Guð- jónsdóttir. Til 1. okt. Gallerí Reykjavík: Ólöf Birna Blöndal. Til 7. okt. Gerðarsafn: Þórður Hall. Sigrún Einars- dóttir og Sören Larsen. Karólína Lái’us- dóttir. Til 8. okt. Gerðuberg: Verk Bjama Þórs Þorvalds- sonar „Thor“. Til 30. sep. Hafnarborg: Guðrún Kristjánsdóttir og Þorgerður Sigurðardóttir. Til 25. sep. Hallgrímskirkja: Erla Þórarinsdóttir. Til 27. nóv. i8, Ingólfsstræti 8: Douwe Jan Bakker. Til 22. okt. Kjarvalsstaðir: Austursalur: Myndir úr Kjarvalssafni. Islensk og alþjóðleg mynd- list. Til 8. okt. Listasafn Akureyrar: Tvær margmiðlun- arsýningar og Steina Vasulka. Til 22. okt. Listasafn ASI: Vigdísa Kristjánsdóttir. Bryndís Jónsdóttir. Guðrún Marinósdótt- ir. Til 1. okt. Listasafn íslands: Ljósmyndasýning. Til 8. okt. Kínversk myndlist á 20. öld. Til 1. okt. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhúsinu: Jörgen Nash og Drakabygget. Gangur- inn. Til 22. okt. cafe9.net. Til 31. okt. Listhús Ófeigs, Skólavörðustig: Verk Huldu Vilhjálmsdóttur. Til 23. sep. Norræna húsið: I nágrenni-Min hem- bygd. Til 18. okt. Nýlistasafnið: Ása Heiður Rúnarsdóttir, Darri Lorenzen, Ingibjörg Magnadóttir, Jóhannes Hinriksson, Magnús Sigurðar- son og Sara Bjömsdóttir. Til 1. okt. TÓNLIST Laugardagur Langholtskirkja: Inga Björg Stefáns- dóttir. Kl. 16. Salurinn, Kópavogi: Margrét Stefáns- dóttir og Dewitt Tipton. Kl. 17. Stykkishólmskirkja: Daníel Þorsteins- son og Sigurður Halldórsson. Kl. 17. Sunnudagur Félagsheimilið Kirkjuhvoll, Kirkjubæj- arklaustri: Sigurður Bragason baríton og Ólafur Elíasson píanóleikari. Kl. 16. Hafnarborg: Tríó Reykjavíkur ásamt Einari Jóhannessyni klarinettuleikara. Kl.20. Hallgrímskirkja: Ami Arinbjamarson organisti. Kl. 17. Hásalir, Hafnarfírði: Kór Flensborgar- skólans. Kl. 17. Salurinn, Kópavogi: Hulda Björk Garð- arsdóttir og Sigríður Aðalsteinsdóttir og Jónas Ingimundarson. Kl. 20. Þriðjudagur Hallgrímskirkja: Inga Rós Ingólfsdóttir og Hörður Áskelsson. Kl. 12. Salurinn, Kópavogi: Finnsld píanóleikar- inn Folke Gráspeck. Kl. 20. Ýmir við Skógarhlíð: Blásarakvintett Reykjavíkur. Kl. 20.30. Miðvikudagur Frfkirkjan í Rcykjavík: Söng-kammer- verk. Kl. 20:30. Salurinn, Kópavogi: Aukatónleikar til heiðurs Sigfúsi Halldórssyni. Kl. 20. LEIKLIST Nýlistasaftiið: Shopping & Fucking, laug. 23. sep., sun. 24. sep. Iðnó: Stjömur á morgunhimni, íos. 29. sep. Þjóðleikhúsið: Sjálfstætt fölk-Bjartur, kl. 15. sep. Ásta Sóllilja, kl. 20 laug. 23. sep. Glanni glæpur í Latabæ, sun. 24. sep. Litla sviðið: Horfðu reiður um öxl, fös. 29.sep. Smíðaverkstæðið: edda.ris, sun. 24. sep., fös. 29. sep. Borgarleikhúsið: Sex í sveit, laug. 23. sep. Einhver í dymnum, sun. 24. sep. Kysstu mig Kata, fiis. 29. sep. Loftkastalinn: Sjeikspír eins og hann leggur sig, sun. 24. sep., fos. 29. sep. Kaffileikhúsið: Bíbí og Blakan, iim. 28. sep., fós. 29. sep. Stormur og Ormur, laug. 23. sep., sun. 24. sep. Islenska óperan: Hellisbúinn, laug. 23. sep. Möguleikhúsið: Langafi prakkari, sun. 24. sep., Lóma, sun. 24. sep., Völuspá, laug. 23. sep. Tjamarbíó: Með fullri reisn, laug. 23. sep. 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 23. SEPTEMBER 2000

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.